Morgunblaðið - 08.11.2003, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2003 33
1½ tsk. svartur nýmulinn pipar
2 tsk. kraminn hvítlaukur
5-6 msk. af fljótandi krafti, Vilt og
cantarelle frá Bong
1 msk. fljótandi Knorr nautakraftur
¾ l rjómi
200 g rjómaostur
1 msk. gráðostur
matarlitur
Sjóðið fyrst niður vatn, krydd og
kjötkraft.
Bætið svo í rjóma, matarlit og ost-
um. Smakkið til með kryddi í lokin.
Salat
4 græn epli
4 lófafylli saxaðar pecan
hnetur
½ l þeyttur rjómi
1½ dós 18% sýrður rjómi
2½-3 msk. sykur
½ sítróna
Afhýðið og saxið epli, saxið hnetur
smátt og kreistið safa úr sítrónu yfir.
Blandið síðan öllu varlega saman í
salat.
Brúnaðar kartöflur
Setjið sykur og smjörva á pönnu,
ca. 2 bolla af sykri og ¾ bolla af
smjörva.
Bræðið saman í karamellulit
smjörva og sykur, vatni og rjóma er
bætt út í eftir smekk og hrært saman
yfir hita þar til sykur og vatn eru ein
upplausn. Þá er kartöflum bætt út í.
Steiktir sveppir
4 bakkar blandaðir sveppir, bæði
villisveppir og venjulegir, smjörvi,
pipar og marður hvítlaukur.
Steikið sveppina í smjörinu og
bætið við kryddi.
Morgunblaðið/Þorkell
Einar naut aðstoðar Tinnu Ágústsdóttur, fósturdóttur sinnar, í eldhúsinu.
Steikin komin á grillið og Einar
penslar hana með kryddolíunni.
Eplasalat á vel við hreindýrakjötið og það þarf að vera góð sósa með því.
MATARKISTAN