Morgunblaðið - 08.11.2003, Page 35
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2003 35
Í KYNNINGARBRÉFI frá þeim,
sem standa að söfnun fyrir Sjón-
arhól, fyrirhugaða þjónustumiðstöð í
þágu barna með sér-
þarfir og fjölskyldur
þeirra, segir m.a.:
„Það er foreldrum
áfall að komast að
því að barn þeirra er
með langvinnan eða
ólæknandi sjúkdóm,
varanlega fötlun eða önnur þroska-
frávik. Við tekur greining, rann-
sóknir, meðferð, upplýsingaleit, út-
vegun hjálpartækja, fundir, viðtöl og
vinnutap vegna umönnunar með til-
heyrandi fjárhagsvanda og röskun á
heimilishögum og jafnvel búsetu.
Fjölskyldulífið fer að verulegu leyti
að snúast um þarfir hins veika eða
fatlaða barns. Það kemur foreldrum
á óvart hve mikill tími fer í að fá yf-
irsýn og samræma þann stuðning
sem tiltækur er vítt og breitt í heil-
brigðiskerfinu, hjá félagsþjónustu
sveitarfélaga og á öllum stigum
skólastarfsins.“
Síðar segir: „Ráðgjöfum Sjón-
arhóls er m.a. ætlað það hlutverk að
kynna foreldrum þann stuðning sem
þeir eiga rétt á frá opinberum að-
ilum og veita þeim aðstoð við að
sækja hann.“
Á þessu er svo sannarlega þörf!
Ég er sannfærður um að ef vel tekst
til getur Sjónarhóll komið til með að
gegna lykilhlutverki í orðsins fyllstu
merkingu. Mörgum reynist nefni-
lega erfitt að finna lykilinn að þeirri
velferðarþjónustu sem er í boði eða á
að vera í boði lögum samkvæmt.
Þetta er frábært framtak og vona ég
að sú landssöfnun sem er framundan
skili góðum árangri. Það mun
gagnast börnunum og fjölskyld-
unum sem í hlut eiga og það er mín
sannfæring að það muni einnig
styrkja velferðarþjónustuna, stuðla
að því að hún verði opnari og mark-
vissari.
Söfnum fyrir
Sjónarhól
Eftir Ögmund Jónasson
Höfundur er alþingismaður
og formaður BSRB.
UM helgina bankaði upp á hjá mér kona í þeim tilgangi að safna undir-
skriftum til að mótmæla nýrri byggð sem fyrirhugað er að reisa í landi
Lundar í Kópavogi. Þetta vakti nokkra undrun mína, enda búsett í Hjalla-
hverfi, hinum megin við Digraneshæðina. Gesturinn sá
skipulaginu í Lundi allt til foráttu og var helst að skilja að
háhýsi væru mannfjandsamlegt og óheilsusamlegt íbúða-
form sem engan rétt eigi á sér og því mikilvægt að afstýra
því slysi sem þetta skipulag boðar. Þetta kom mér nokkuð
spánskt fyrir sjónir, enda er héðan úr Hjallahverfinu útsýni
yfir Kópavogsdalinn, þar sem sjá má háhýsi í bland við lág-
reistari byggð. Þetta hefur ekki dregið úr vinsældum þessa
svæðis og má reikna með að hið fjölbreytta íbúðaform hafi jákvæð áhrif á
blandað og fjölskrúðugt mannlíf.
Handan hæðarinnar í Fossvogsdalnum er mun minna framboð af fjölbýli
og gæti maður helst trúað því að slíkar byggingar komi til með að njóta
vinsælda. Mér er því erfitt að sjá hvers vegna þetta mál væri svo stórt að
það yrði til þess að fólk legði leið sína yfir Digraneshæðina til að ná í undir-
skriftir gegn þessu skipulagi.
Það hefur vakið undrun mína hve mikill hiti er vegna þessa máls. Skilja
mætti slíkt ef byggja ætti umhverfisspillandi starfsemi þarna í næsta ná-
grenni við útivistarsvæði Fossvogsdals. Raunveruleikinn er hinsvegar sá
að þarna á að byggja íbúðir fyrir fólk á þessum frábæra stað sem hlýtur að
vera jákvætt mál í sjálfu sér. Þannig hef ég t.d. heyrt í mörgum vinnu-
félögum mínum sem starfa á Landspítalanum í Fossvogi sem eru jákvæðir
fyrir skipulaginu. Þar hafa komið fram sjónarmið á þá leið að þarna sé
hægt að sameina kosti þess að búa í fjölskylduvænu umhverfi, eiga stutt í
vinnuna og geta keypt fasteign á viðráðanlegu verði á þessum eftirsótta
stað!
Það má því spyrja hvort raunverulega sé verið að ganga erinda allra
Kópavogsbúa þegar þessum tillögum er mótmælt. Eða er málið í raun
hagsmunamál fámennari hóps? Það er ekkert skrítið að fólk sem verður
fyrir áhrifum fyrirhugaðra breytinga bregðist við og mótmæli með þeim
hætti sem lög og reglur gera ráð fyrir. Hitt er erfiðara að skilja, að reynt
sé að gera þetta að baráttumáli fólks sem býr í öðrum bæjarhlutum.
Undirskriftarlistar eru máttugt tæki sem nota skal í þágu almennings.
Eina leiðin fyrir utanaðkomandi aðila til að taka málefnalega afstöðu áður
en skrifað er undir slíkt er að kynna sér málið. Ég hef kynnt mér skipulag-
ið á vefsíðum Kópavogs (www.kopavogur.is) og Lundar (www.lundur.net)
og hvet aðra til að gera hið sama áður en tekin er afstaða með eða á móti
þessu skipulagi.
Stóriðja í Fossvogsdal?
Eftir Soffíu Eiríksdóttur
Höfundur er hjúkrunarfræðingur.