Morgunblaðið - 08.11.2003, Page 42
MESSUR Á MORGUN
42 LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Karl V. Matthías-
son prédikar. Kór Áskirkju syngur. Org-
anisti Kári Þormar. Kaffi eftir messu. Árni
Bergur Sigurbjörnsson
BÚSTÐAKIRKJA: Barnamessa kl. 11.
Englakór kemur í heimsókn. Fjölbreytt tón-
list. Skemmtileg samvera fyrir alla fjöl-
skylduna. Guðsþjónusta kl. 14. Stúlkna-
og kammerkór Bústaðakirkju syngja undir
stjórn Jóhönnu Þórhallsdóttur. Heitt á
könnunni eftir messu. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Sr. Jakob
Ágúst Hjálmarsson prédikar og þjónar fyrir
altari ásamt sr. Erni Bárði Jónssyni sókn-
arpresti í Neskirkju. Kór Neskirkju syngur.
Organisti er Steingrímur Þórhallsson. Í
messunni kemur einnig fram barnakór
Dómkirkjunnar, yngri deild, undir stjórn
Kristínar Valsdóttur. Eftir messu er fundur í
Safnaðarfélagi Dómkirkjunnar í safn-
aðarheimilinu. Þar mun dr. Sigurbjörn Ein-
arsson flytja erindi. Tónleikar kl. 17. Ung-
lingakór Dómkirkjunnar ásamt Stúlknakór
Bústaðakirkju undir stjórn Kristínar Vals-
dóttur.
GRENSÁSKIRKJA: Barnastarf kl 11 í
umsjá Hrundar Þórarinsdóttur djákna o.fl.
Guðsþjónusta kl. 11. Kristniboðsdag-
urinn. Kirkjukór Grensáskirkju syngur. Org-
anisti Árni Arinbjarnarson. Tekin samskot
til kristniboðsstarfs SÍK í Afríku. Ólafur Jó-
hannsson.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili: Guðs-
þjónusta kl. 14. Organisti Kjartan Ólafs-
son. Sr. Ólafur Jens Sigurðsson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa og barnastarf
kl. 11. Umsjón barnastarfs Magnea Sverr-
isdóttir. Sr. María Ágústsdóttir prédikar og
þjónar ásamt sr. Jóni Dalbú Hróbjartssyni.
Sunnudagsfundur kl. 12.30. Sem engill af
himnum: Ómar Ragnarsson fjallar um
kristniboð, hjálparstarf og Helga Hróbjarts-
son.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11. Organisti
Douglas A. Brotchie. Sr. Helga Soffía Kon-
ráðsdóttir. Barnaguðsþjónusta kl. 13. Um-
sjón Hrund Þórarinsdóttir djákni.
LANDSPÍTALI Háskólasjúkrahús: Foss-
vogur: Guðsþjónusta kl. 10.30. Sr. Birgir
Ásgeirsson. Hringbraut: Helgistund kl.
10.30. Rósa Kristjánsdóttir djákni. Landa-
kot: Guðsþjónusta kl. 11.30. Sr. Birgir Ás-
geirsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands
biskups. Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.
Börn og fullorðnir eiga saman stund í kirkj-
unni. Kór Kórskólans og Graduale futuri
syngja undir stjórn Bryndísar Baldvins-
dóttur og Hörpu Harðardóttur. Lena Rós
Matthíasdóttir guðfræðingur flytur hug-
vekju ásamt sóknarpresti. Organisti Lára
Bryndís Eggertsdóttir. Hressing eftir stund-
ina.
LAUGARNESKIRKJA: Sunnudagaskóli kl.
11. Að þessu sinni yfirtekur sunnudaga-
skólinn messutímann í Laugarneskirkju.
Sunnudagaskólakennararnir Hildur Eir
Bolladóttir, Heimir Haraldsson og Þorvald-
ur Þorvaldsson taka á móti börnum og full-
orðnum með söng og leik, ásamt Gunnari
Gunnarssyni organista og Sigurbirni Þor-
kelssyni meðhjálpara. Guðsþjónusta kl.
14 á Dvalarheimilinu Sóltúni í tilefni af
allra heilagra messu. Þjónustu annast Sig-
urbjörn Þorkelsson framkvæmdastjóri
safnaðarins ásamt djáknum heimilisins,
Jóni Jóhannssyni og Jóhönnu Guðmunds-
dóttur. Kór Laugarneskirkju syngur undir
stjórn Gunnars Gunnarssonar sem leikur á
orgelið. Kvöldmessa kl. 20.30. Djass-
kvartett Gunnars Gunnarssonar leikur og
Kór Laugarneskirkju syngur. Að þessu
sinni þjónar Ólafur Jóhannsson sókn-
arprestur í Grensáskirkju ásamt Sigurbirni
Þorkelssyni. Fyrirbænaþjónusta við altarið
að messu lokinni og messukaffi í safn-
aðarheimilinu. Athugið að djassinn hefst
kl. 20 svo gott er að mæta snemma í góð
sæti og njóta alls frá upphafi.
NESKIRKJA: Messa kl. 11. Drengjakór
Neskirkju leiðir safnaðarsöng undir stjórn
Friðriks S. Kristinssonar. Organisti Sigrún
Steingrímsdóttir. Prestur sr. Halldór Reyn-
isson. Barnastarf á sama tíma. Sögur,
brúður og söngur. Öll börn fá kirkjubókina
og límmiða. Kaffi, djús og spjall í safn-
aðarheimilinu eftir messu.
SELTJARNARNESKIRKJA: Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Sunnudagaskólinn í kirkj-
unni. Umsjón sr. Arna Grétarsdóttir.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Guðsþjónusta kl.
14. Barnastarf á sama tíma. Maul eftir
messu.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Barnasamvera
klukkan 11. Efni dagsins: Viltu vera vinur
minn. Umsjón með stundinni hafa Hreiðar
og Ása. Þeim til aðstoðar eru fjörkálfarnir
Carl Möller og Skapti Örn. Í lok stundar för-
um við niður að tjörn að venju og gefum
öndunum brauð. Allir velkomnir. Safn-
aðarstarf Fríkirkjunnar.
ÁRBÆJARKIRKJA: Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Annan sunnudag hvers mán-
aðar sameinast almenna guðsþjónustan
og sunnudagskólinn í kirkjunni. Form guðs-
þjónustunnar er með léttara yfirbragði.
Sungin eru lög sem allir kunna og geta tek-
ið undir af hjarta. Rebbi refur og Fróði
koma og fræða okkur um hvað hefur drifið
á dagana hjá þeim frá því að við hittumst
síðast. Viljum við hvetja pabba, mömmu,
afa og ömmu að koma og eiga notalega
stund í kirkjunni á sunnudag. Prestar og
starfsfólk barnastarfsins.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Kristniboðsdag-
urinn. Messa kl. 11. Barnastarf á sama
tíma. Skúli Svavarsson framkvæmdastj.
Kristniboðssambandsins prédikar. Tekið
við gjöfum til kristniboðsins. Organisti Sig-
rún M. Þórsteinsdóttir. Kaffisopi í safn-
aðarheimilinu eftir guðsþjónustuna.
DIGRANESKIRKJA: Messa kl 11. Prestur
sr. Gunnar Sigurjónsson. Arndís Hauks-
dóttir guðfræðingur prédikar. Organisti
Kjartan Sigurjónsson. Kór Digraneskirkju
A-hópur. Sunnudagaskóli á sama tíma í
kapellu á neðri hæð kirkjunnar. Léttur
málsverður í safnaðarsal eftir messu (kr.
500). Kvöldsamkoma kl. 20 með Þorvaldi
Halldórssyni. Prestur sr. Gunnar Sig-
urjónsson. Léttur málsverður í safn-
aðarsal eftir messu (kr. 500). (Sjá nánar:
www.digraneskirkja.is)
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Fjölskyldu-
messa kl. 11. Prestur sr. Svavar Stef-
ánsson. Elín Elísabet Jóhannsdóttir spjall-
ar við kirkjugesti ásamt prestinum. Pétur
pókus kemur í heimsókn og sýnir töfra-
brögð. Barnakór Keflavíkurkirkju kemur
líka í heimsókn og syngur undir stjórn Há-
kons Leifssonar. Barnakórar Fella- og
Hólakirkju syngja undir stjórn Lenku
Mátéová organista og Þórdísar Þórhalls-
dóttur. Kaffi og svaladrykkur í safn-
aðarheimilinu eftir guðsþjónustu. Rúta ek-
ur um hverfið í lokin.
GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Kristniboðsdagurinn. Prestur séra
Anna Sigríður Pálsdóttir prédikar og þjónar
fyrir altari. Kór Grafarvogskirkju syngur.
Organisti Hörður Bragason. Barnaguðs-
þjónusta kl. 11 í Grafarvogskirkju. Prestur
séra Sigurður Arnarson. Umsjón Bryndís
og Atli. Krakkakór Grafarvogskirkju syngur.
Stjórnandi Oddný J. Þorsteinsdóttir. Org-
anisti Gróa Hreinsdóttir. Barnaguðsþjón-
usta kl. 11 í Borgarholtsskóla. Prestur
séra Vigfús Þór Árnason. Umsjón Sigga og
Sigurvin. Undirleikari Guðlaugur Vikt-
orsson. Léttmessa kl. 20. Sigríður Rún
Tryggvadóttir starfsmaður í barnastarfi
kirkjunnar prédikar, séra Sigurður Arn-
arson þjónar fyrir altari. Tónlistin verður
með óhefðbundnum hætti. Unglingakór
kirkjunnar syngur undir stjórn Oddnýjar J.
Þorsteinsdóttur. Hljóðfæraleik annast þeir
Hörður Bragason organisti, Hjörleifur Vals-
son á fiðlu og Birgir Bragason á kontra-
bassa.
HJALLAKIRKJA: Lofgjörðarguðsþjónusta
kl. 11 á Kristniboðsdaginn. Sr. Íris Krist-
jánsdóttir þjónar. Kjartan Jónsson kristni-
boði prédikar. Þorvaldur Halldórsson leiðir
létta og skemmtilega tónlist. Barnaguðs-
þjónusta kl. 13. Þorvaldur leiðir tónlistina.
Við minnum á bæna- og kyrrðarstund á
þriðjudag kl. 18 og Opið hús á fimmtudag
kl. 12. Prestarnir.
KÓPAVOGSKIRKJA: Barnastarf í safn-
aðarheimilinu Borgum kl. 11 í umsjón
Dóru Guðrúnar, Bóasar og Önnu Kristínar.
Guðsþjónusta kl. 11. Jazzmessa: Sálmar
Lúthers verða fluttir af kvartett Björns
Thoroddsens sem spilar á gítar; saxófónn
Stefán Stefánsson; bassi Jón Rafnsson;
og trommur Eric Qvick. Dr. Sigurjón A. Eyj-
ólfsson héraðsprestur þjónar fyrir altari og
segir frá afstöðu Lúthers til tónlistar. Björn
Thoroddsen hefur unnið að þessu verkefni
um nokkurt skeið ásamt séra Sigurjóni. Sr.
Ægir Fr. Sigurgeirsson.
LINDAKIRKJA í Kópavogi: Kristniboðdag-
urinn. Guðsþjónusta í sal Lindaskólakl.
11. Leifur Sigurðsson kristniboði prédikar,
sr. Guðmundur Karl Brynjarsson þjónar fyr-
ir altari. Kanga kvartettinn syngur afrísk
lög og sálma ásamt Kór Lindakirkju. Org-
anisti Hannes Baldursson. Sunnudaga-
skóli fer fram í kennslustofum á meðan
guðsþjónustan fer fram. Að lokinni guðs-
þjónustu bjóða börn úr 10. bekk Linda-
skóla kaffiveitingar á vægu verði. Sæta-
ferðir frá Vatnsenda og Salahverfi. Allir
velkomnir.
SELJAKIRKJA: Kristniboðsdagur. Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Hressandi söngur,
sögur og lifandi samfélag! Guðsþjónusta
kl. 14. Afríkubúar segja frá kristniboði.
Sýning á munum frá Afríku í anddyri kirkj-
unnar.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Morgunguðs-
þjónusta kl.11. Þar verður fræðsla og
samfélag fyrir börn og fullorðna. Lesin
verður kveðja frá kristniboðum í Eþíópíu.
Kl. 20 samkoma með mikilli lofgjörð og fyr-
irbænum. Friðrik Schram predikar, en
hann er nýkominn frá stuttri kristniboðs-
ferð til Filippseyja. Þáttur kirkjunnar „Um
trúna og tilveruna“ verður sýndur á sjón-
varpsstöðinni Ómega kl. 13.30.
BOÐUNARKIRKJAN, Hlíðasmára 9, Kóp.:
Samkomur alla laugardaga kl. 11. Bæna-
stund alla þriðjudaga kl. 20. Biblíufræðsla
allan sólarhringinn á Útvarpi Boðun FM
105,5. Allir alltaf velkomnir.
FÆREYSKA SJÓMANNAHEIMILIÐ: Sam-
koma á morgun kl. 16.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Kl. 19.30 bæna-
stund. Kl. 20 hjálpræðissamkoma. Um-
sjón majórarnir Inger Dahl og Harold Rein-
holdtsen. Mánudagur: Kl. 15
heimilasamband. Valgerður Gísladóttir tal-
ar. Allar konur velkomnar.
FRÍKIRKJAN KEFAS, Vatnsendabletti
601: Sunnudaginn 9. nóv. er samkoma kl.
14. Helga R. Ármannsdóttir talar. Lofgjörð
og fyrirbænir. Tvískipt barnastarf fyrir 1-6
ára og 7-12 ára börn á samkomutíma. Á
samkomunni verða tekin samskot til að
blessa Hvítasunnukirkjuna á Vopnafirði
sem er að safna fyrir sendi til að ná úsend-
ingum Lindarinnar. Stöndum saman með
trúsystkinum okkar og hjálpum þeim að
njóta blessunar kristilegs útvarps. Kaffi og
samfélag eftir samkomu. Allir eru hjart-
anlega velkomnir. Nánari upplýsingar á
www.kefas.is.
KFUM og KFUK v/Holtaveg: Samkoma kl.
17. Hátíðarsamkoma á Kristniboðsdegi.
Þar tala fulltrúar frá kirkjunni okkar í Ken-
ýa, Solomon Madanyang og Irene Doomo
og segja frá lífi og starfi í Pókot. Hinn vin-
sæli Kanga kvartett syngur og Ómar Ragn-
arsson fréttamaður segir frá ferð sinni til
Eþíopíu en hann heimsótti kristniboðana
þar í haust ásamt eiginkonu sinni. Tekið er
á móti gjöfum tilkristniboðsins. Eftir sam-
komuna gefst fólki tækifæri til að smakka
eþíópiskan mat á vægu verði. Fræðsla fyrir
börn 2-14 ára í aldurskiptum hópum. Sam-
koman er öllum opin og við vonumst til að
sjá ykkur.
VEGURINN: Fjölskyldusamkoma kl. 11,
mikið fjör og gaman, Gunni og Dolli,Lubba-
trúður, leikrit og brúður, allar deildir saman
á þessari stund. Allir hvattir til að mæta,
léttur hádegisverður á vægu verði á eftir.
Bænastund kl. 19.30. Almenn samkoma
kl. 20, Shawn Foster fráYouth Storm pre-
dikar, lofgjörð, vitnisburðir, fyrirbænir; kök-
ur, kaffi og samfélag á eftir í kaffisalnum.
Minnum á safnaðarfund á morgun mánu-
dag kl. 20, safnaðarmeðlimir hvattir til að
mæta. Sími fyrir fyrirbænarefni er
564 2355 eða á netfangið vegurinn@veg-
urinn.is - heimasíða okkar er www.veg-
urinn.is
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Reykjavík – Kristskirkja í Landakoti, dóm-
kirkja og basilíka. Sunnudaga: Hámessa
kl. 10.30. Messa á ensku kl. 18. Alla virka
daga: Messa kl. 18. Laugardaginn 8. nóv-
ember: Hátiðarhöld í tilefni af aldarafmæli
starfs montfortreglumanna á Íslandi. Bisk-
upsmessa kl. 10.30.Trúfræðsla barna kl.
13 í Landakotsskóla og barnamessa kl.
14 falla niður í dag. Sunnudaginn 9. nóv-
ember kl. 16: Tónleikar á vegum Caritas Ís-
lands í Kristskirkju.
Reykjavík – Maríukirkja við Raufarsel.
Sunnudaga: Messa kl. 11. Laugardaga:
Messa á ensku kl. 18.30. Virka daga:
Messa kl. 18.30
Riftún í Ölfusi. Sunnudaga: Messa kl. 16.
Miðvikudaga kl. 20.
Hafnarfjörður, Jósefskirkja: Sunnudaga:
Messa kl. 10.30. Miðvikudaga: Messa kl.
18.30.
Karmelklaustur. Sunnudaga: Messa kl.
08.30. Virka daga: Messa kl. 8.
Keflavík, Barbörukapella, Skólavegi 38:
Sunnudaga: Messa kl. 14.
Stykkishólmur, Austurgötu 7. Alla virka
daga: Messa kl. 18.30. Sunnudaga:
Messa kl. 10.
Ísafjörður. Sunnudag: Messa kl. 11.
Flateyri. Laugardag: Messa kl. 18.
Bolungarvík. Sunnudag: Messa kl. 16.
Suðureyri. Sunnudag: Messa kl. 19.
Akureyri, Kaþólska kirkjan, Péturskirkja,
Hrafnagilsstræti 2: Laugardag: Messa kl.
18. Sunnudag: Messa kl. 11.
BRAUTARHOLTSKIRKJA á Kjalarnesi:
Barnaguðsþjónusta kl. 11 f.h. Gunnar
Kristjánsson sóknarprestur.
LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum: Kl. 11
sunnudagaskóli á Kristinboðsdegi kirkj-
unnar. Allir krakkar fá Biblíumynd. Rebbi
fær brúðuheimsókn. Mikill söngur, bænir
og Biblíusaga. Sr. Þorvaldur Víðisson og
barnafræðararnir. Kl. 14 guðsþjónusta á
Kristinboðsdegi kirkjunnar. Kór Landa-
kirkju syngur undir stjórn Guðmundar H.
Guðjónssonar organista. Fermingarbörn
lesa ritningarlestra. Prestur sr. Þorvaldur
Víðisson. Kl. 20.00 Æskulýðsfélag Landa-
kirkju og KFUM&K. Helgistund, leikir og
söngur. Sr. Þorvaldur Víðisson, Esther
Bergsdóttir æskulýðsfulltrúi og leiðtog-
arnir.
LÁGAFELLSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Kristniboðsdagurinn. Prédikun Guðlaugur
Gunnarsson kristniboði. Tekið á móti fram-
lögum til Kristniboðssambandsins. Kirkju-
kór Lágafellssóknar. Organisti Jónas Þórir.
Sunnudagaskóli í safnaðarheimilinu kl.
13. Jón Þorsteinsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Fjöl-
skylduhátíð kl.11. Báðir sunnudagaskólar
kirkjunnar sameinast. Allir leiðtogarnir
mynda hljómsveit og spila undir hressileg-
um söng. Unglingakórinn syngur undir
stjórn Helgu Loftsdóttur. Eftir hátíðina í
kirkjunni er boðið upp á nammiveislu í
safnaðarheimilinu. Kirkjurútan ekur eins
og venjulega. Auk þess fer strætisvagn frá
Hvaleyrarskóla kl.10.55 og heim aftur
rúmlega 12. Gospelguðsþjónusta kl. 20.
Kvennakór Hafnarfjarðar syngur undir
stjórn Hrafnhildar Blomsterberg. Antonia
Hevesi organisti leikur undir. Eftir stundina
bjóða fermingarbörn öllum kirkjugestum til
kaffiveislu í safnaðarheimilinu.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Skemmtileg stund
fyrir alla fjölskylduna. Guðsþjónusta kl.
14. Kór Víðistaðasóknar syngur undir
stjórn Úlriks Ólasonar. www.vidi-
stadakirkja.is
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Barnasamkoma
Guðspjall dagsins:
Konungsmaðurinn.
Kristniboðsdagurinn.
(Jóh. 4.)
UMRÆÐAN
GUÐ gekk inn í fjölskyldu manns-
ins í manninum Jesú Kristi og við
getum gengið inn til fjölskyldu Guðs
í gegn um þær sömu
dyr. Sú fjölskylda
nær að minnsta kosti
til allra þeirra lífs og
liðinna sem játað
hafa trú á Drottin.
Það er mikilvægt að
tilheyra þeirri fjöl-
skyldu og þess virði að að því sam-
bandi sé hlúð. Það er okkar verkefni
og hlutverk. Það er mikilvægt að
vita sig tilheyra Guði og fjölskyldu
hans, ekki hvað síst þegar líkaminn
veðrast og þrótturinn þverr, hallar
undan fæti og endalokin nálgast
hvað þennan heim áhrærir. Þá er
gott að vita sig í þeim hópi, eins og
segir í negrasálminum fræga. Þegar
hinir heilögu ganga fram vil ég vera í
þeirra hópi. „When the saints go
marching on, I want to be on that
number.“ Það er sú fjölskylda sem
þekkir engan dauða og enga gröf, en
lifir og lofsyngur á himni og á jörð.
Við tilheyrum þeirri fjölskyldu í trú.
Þessi trú er innsigluð með hinu sýni-
lega tákni skírninni, inngöngunni í
söfnuðinn. Við erum Guðs börn í ei-
lífu ríki hans. Trygging fyrir því að
við séum með. Skírnin er því okkur
og okkar trú mikilvæg. Það er æski-
legt að fjölskylduböndin séu sterk
og samfélagið gott.
Engan dóm megum við þó fella yf-
ir þeim sem lítið eða ekkert leggja af
mörkum til þess að styrkja þau
bönd. Við höfum ekki nokkra hug-
mynd um hvað Kristur á marga
lærisveina eða hvar í hjarta blundar
þrá eftir samfélagi við Guð. Eitt er
víst að sá fjöldi er stærri en við ætl-
um, en dauðinn er alvörumál og þar
á gálgahúmor eða flimtingar ekki
við. Við finnum það trúlega best
prestarnir sem alltaf stöndum við
dánarbeð og fylgjum ástvinum í
gegn um sorgarferli stundum eftir
ótímabæran og sviplegan dauða. Þar
er okkur falið að halda ljósinu á loft
þannig að það lýsi öllum í húsinu.
Við verðum varir við mörg önnur
villuljós og þurfum að stríða við þau
þannig að það er sjálfsagt eðlilegt að
við séum viðkvæmari fyrir því en
aðrir, vegna þess að villuljósin
brenna á okkur. Það eru óneitanlega
mismunandi viðhorf sem koma fram
í ólíkum trúarbrögðum og lífsskoð-
unum. Sumir telja að öllu sé lokið við
dauðann. Aðrir að við séum send
hingað aftur og aftur til þess að læra
meira þar til við einhvern tímann
eftir mörg líf náum fullkomnun og
losnum út úr hringrásinni. Aðrir
ímynda sér líf eftir þetta líf eins og
hliðstæðu við það líf sem við lifum
hér og nú. Sumir reyna að skyggn-
ast á bak við þá hulu sem skilur líf og
dauða, reyna að ná sambandi við dá-
ið fólk til þess að fá fréttir af því
hvernig því líður og hugsanlega leið-
sögn í þessu lífi. Það getur jafnvel
leitt til þess að sumir lifa í gervi-
heimi sem á sér enga stoð í veru-
leikanum og tefur fyrir því að fólk
nái nýjum og heilbrigðum takti við
lífið eftir sorgaráfall og taki gleði
sína á ný. Þetta er nú vinsælt sjón-
varpsefni á okkar dögum. Lýsingar
frá skyggnu fólki á lífinu eftir dauð-
ann eru mismunandi allt frá því að
fólki líði vel og til þess að það búi við
skelfilegt hlutskipti, eins og þar sem
drykkjusjúklingar að handan hanga
á börum öldurhúsa sjúgandi lífs-
kraftinn úr fyllibyttum. Það er tölu-
verð breidd í þeim hugmyndum sem
mæta okkur prestunum í daglegum
störfum og okkur er ekki sama. Það
er ekki bjart yfir öllum hugmyndum
um líf eftir dauðann.
Á allraheilagramessu minnumst
við allra þeirra milljóna sem gengn-
ar eru í Drottni og við minnumst
allra þeirra sem við þekktum og
allra ástvinanna. Það skal vera okk-
ur huggun að vita okkur og þau í
einni og sömu fjölskyldunni. Að við
fyrir upprisuna vitum að þau hafa
ekki verið skilin eftir í kirkjugarð-
inum, þau reika heldur ekki um ráð-
villt og húsnæðislaus þar til ein-
hverjum dettur í hug að byggja yfir
þau og selja að þeim aðgang. Það er
ekki það fyrirheit sem við eigum
kristnir menn og ekki sú sýn sem
sjáandinn sá, heldur hafa þau gengið
fram með hinum heilögu og eru á
undan okkur, vita meira og skilja
meira en við getum vonast eftir sem
nú gistum þessa jörð. Þegar síðan
röðin kemur að okkur er það okkar
von og trú að við sameinumst þeim
hópi, hinni himnesku kirkju Drottins
vors Jesú Krists í nýrri veröld sem
Guð gefur þar sem Guð mun þerra
hvert tár af augum þeirra og dauð-
inn ekki framar til vera, hvorki
harmur né vein né kvöl er framar til.
Hið fyrra er farið því sá sem í hásæt-
inu sat sagði: Sjá ég gjöri alla hluti
nýja.
Á allraheilagramessu 2003
Eftir Úlfar Guðmundsson
Höfundur er prófastur
á Eyrarbakka.
NÚ stendur yfir landssöfnun til kaupa á húsnæði fyrir fyrirhugaða þjón-
ustumiðstöð í þágu barna með ýmiss konar sérþarfir og fjölskyldur þeirra.
Að þessu standa fern félagasamtök, sem sameina nú krafta sína í þessum
tilgangi. Hlutverk þessarar miðstöðvar verður að leiðbeina
og veita ráðgjöf fjölskyldum þeirra fjölmörgu barna, sem
þurfa á sérstakri aðstoð að halda vegna langvinnra sjúk-
dóma, þroska- og hegðunarfrávika eða fatlana.
Ýmsar þjónustustofnanir ríkis og sveitarfélaga hafa lög-
bundið hlutverk í þjónustu við þessi börn. Af stofnunum,
sem ríkið starfrækir, má nefna barna- og unglingageðdeild
Landspítalans, barnadeildir sjúkrahúsanna með Barnaspít-
ala Hringsins í farabroddi, Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, Heyrnar-
og talmeinastöð Íslands, Sjónstöð Íslands, Tryggingastofnun ríkisins og
svæðisskrifstofur málefna fatlaðra víða um land. Af stofnunum sveitarfé-
laga má nefna félagsþjónustur þeirra, grunnskóla og leikskóla, svo og ráð-
gjafarmiðstöðvar þeirra. Þá leita margir foreldrar til ýmissa sérfræðinga,
sem starfa á eigin vegum.
Flestar þessar stofnanir hafa afmarkað og skilgreint hlutverk og byggja
á sérþekkingu á sínu sviði. Aðrar veita afmarkaða þjónustu við stærri hóp.
Vegna þessa er ekki alltaf augljóst í byrjun hvert leita skal vegna barns
með sérþarfir, en auk þess þurfa flest barnanna á þjónustu fleiri en einnar
stofnunar að halda. Þá er ótalinn sá stóri hópur, sem stofnanir þessa ná
ekki að þjóna innan þess ramma, sem hlutverk þeirra og fjárveitingar
sníða þeim.
Starfsemi Sjónarhóls verður mikilvægur hlekkur í ráðgjöf til fjölskyldn-
anna við að fóta sig í því oft flókna kerfi, sem að ofan er nefnt. Að auki mun
Sjónarhóll vegna sjálfstæðis síns geta orðið öflugur málsvari barnanna og
fjölskyldna þeirra við að leita eftir lögbundnum rétti þeirra til þjónustu.
Greiningarstöðin styður heils hugar þá uppbyggingu, sem framundan er
í ráðgjafarþjónustu Sjónarhóls og hvetur landsmenn til að veita verkefninu
brautargengi með framlagi í söfnunina. Við væntum góðs af samvinnu við
ráðgjafarþjónustuna og bjóðum Sjónarhól velkominn til leiks til hagsbóta
fyrir skjólstæðinga okkar, sem og önnur börn með sérþarfir og fjölskyldur
þeirra.
Af nýjum Sjónarhóli
Eftir Stefán J. Hreiðarsson
Höfundur er forstöðumaður Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins.