Morgunblaðið - 08.11.2003, Side 48
MINNINGAR
48 LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
LEGSTEINAR
Mikið úrval af legsteinum
og fylgihlutum
Sendum myndalista
MOSAIK
Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík, sími 587 1960
Marmari
Granít
Blágrýti
Gabbró
Líparít
Sérfræðingar
í blómaskreytingum
við öll tækifæri
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sími 551 9090.
Stig er farinn héðan,
af þessari jörð. En
hann er ekki dáinn.
Við fáum að sjá hann aftur á himn-
inum hjá Guði. Mikið hlökkum við
til.
Þangað til höfum við minningarn-
ar og þær eru ófáar. Frá Íslandi,
Danmörku og Bandaríkjunum. All-
ar góðar og skemmtilegar, eins og
hann var.
Við nutum þeirra forréttinda að
fljúga út til Danmerkur til að vera
við jarðarförina hans, ásamt öðrum
fjölskyldumeðlimum og vorum við
öll sammála um það, að hún hafi
verið alveg sérstök. Það var svo
augljóst hvað öllum þótti vænt um
Stig, kirkjan var troðfull af fólki, á
öllum aldri, komið til að heiðra
minningu hans og syrgja það að fá
ekki lengri tíma með honum hér á
jörðinni. Kistan hans bar blóm með
íslensku og dönsku fánalitunum.
Hann vildi hafa það þannig. Honum
þótti svo vænt um Ísland og sýndi
það t.d. með því að hann talaði og
skildi íslenskuna. Það virtum við
alltaf svo mikils við hann.
Stig var mikill fjölskyldumaður
og vinur vina sinna. Það var alltaf
tilhlökkunarefni að hitta þau Stig
og Siggu. Við heimsóttum þau
nokkrum sinnum til Danmerkur,
hittum þau oft á Íslandi og svo
heimsóttu þau okkur til Bandaríkj-
anna. Það var mikil upplifun fyrir
Stig, þar sem þau höfðu aldrei kom-
ið þangað áður. Í ferð okkar til New
York-borgar, átti hann alveg eins
von á að heyra sírenuvæl alla nótt-
ERIK STIG
HENRIKSEN
✝ Erik Stig Hen-riksen fæddist í
Give á Jótlandi 27.
mars 1949, en ólst
upp í Horsens. Hann
lést á heimili sínu í
Nordborg á Als í
Danmörku 25. októ-
ber síðastliðinn og
var útför hans gerð
frá Klausturkirkj-
unni í Horsens 31.
október.
ina, hróp og köll og elt-
ingarleik við glæpa-
menn, það er sú mynd
sem dregin er upp fyr-
ir okkur í sjónvarpinu,
sagði hann. New York
kom honum notalega á
óvart. Það var glampi í
augunum hans þegar
við fórum að sjá
söngleikinn Cats, á
Broadway. Hann var
nefnilega mikill tón-
listarmaður, samdi
bæði texta og lög. Eitt
þeirra var einmitt flutt
við jarðarförina, ber
nafnið Slutsangen. Hann hreifst af
söngleiknum og í kveðjugjöf gaf
hann okkur m.a. tónlistina á disk-
um.
Fjölskyldumaðurinn Stig átti
einn son, Halldor Stig, og hann var
svo stoltur af honum, sýndi okkur
oft pistla eftir hann, en hann rit-
stýrir dagblaði í Árósum. Við feng-
um líka að lesa frábæra MBA-rit-
gerð sem tengdadóttir hans, Stine,
hafði skrifað og vakti mikla athygli.
Já, hann var stoltur faðir og tengda-
faðir, svo fyrir fimm árum kom
fyrsta barnabarnið hans, hún
Agnes. Það ríkti mikil gleði á þeim
bæ þá. Nú eiga þau tvö barnabörn,
því Laurits kom þremur árum síðar,
þau voru augasteinarnir hans. Við
skoðuðum oft myndir af þeim og þá
sáum við kærleikann og áhugann í
augum hans fyrir þessum yndislegu
börnum sem nú hafa misst svo mik-
ið. Áður en þessi barnabörn komu
til, fengu önnur börn, t.d. okkar eig-
in barnabörn, að njóta kærleika
hans og áhuga fyrir lífinu og öllu því
góða í fari manneskjunnar. Maður
vissi alltaf hvar maður hafði Stig og
maður vissi alltaf að honum þótti
vænt um mann. Það kom fram í einu
og öllu.
Sigga, elsku Sigga okkar, hefur
misst svo mikið, þau voru svo sam-
rýnd og samstiga í lífinu. Við þurf-
um öll tíma til að átta okkur á því að
hann verður ekki lengur hluti af
hennar lífi eða okkar hinna, nema í
minningunum. Það sem gleður þó
hjarta okkar er, að við munum sjá
hann aftur. Hann var búinn að gera
allt klárt fyrir dauða sinn. Sáttur
við Guð og menn, kom hann heim af
spítalanum daginn sem hann dó.
Hafði þá verið á spítölum í allt sum-
ar. Hann vissi betur en aðrir að
hverju stefndi og gat ekki komist
heim nógu fljótt. Hann þráði bara
að komast í stofuna sína og halda í
hendur þeirra sem hann elskaði
mest. Það tókst, en þremur tímum
seinna hætti hann að anda og fór til
fundar við frelsara sinn, Jesú. Ekk-
ert dauðastríð. Það var eins og hann
og Guð væru búnir að ræða þetta.
Og nú er þjáning hans öll á enda.
Við erum þakklát fyrir þann tíma
sem við áttum með Stig, við erum
þakklát fyrir að hafa í minningunni
mann, fullan af gleði og lífi, tilbúinn
í allt sem var fróðlegt og skemmti-
legt. Við erum þakklát fyrir það
sem hann skilur eftir sig og það sem
við höfum lært af honum. Þakklát
fyrir hann og allt sem hann var okk-
ur og öðrum. Þakklát fyrir að fá að
hitta hann aftur, þar sem eilíf ham-
ingja, heilsa, líf og friður er.
Hann hafði beðið um að sunginn
yrði einn íslenskur söngur. Sigga og
Halldor Stig, sonur þeirra, völdu
lag og texta sem sonur minn hafði
nýlokið við að semja. Textinn segir
sem svo, „hvernig er það hægt, að
segja að þú (Guð), sért ekki til ...
þegar við horfum á sköpunina í svo
víðri og djúpri mynd“. Við erum
viss um að þetta er það sem Stig
myndi vilja koma til skila til okkar í
dag, þaðan sem hann er.
Við fjölskyldan, sem hittumst öll
til að vera við jarðarförina, upplifð-
um á nýjan hátt hversu dýrmæt við
erum hvert öðru. Brottför Stigs
héðan er þegar farin að bera ávöxt í
lífi okkar hinna sem eftir erum og
hann á enn eftir að hafa áhrif á okk-
ur til góðs.
Sigga, Halldor, Stine, Agnes og
Laurits, Stig lifir, hann er glaður og
hann myndi óska þess af öllu hjarta
að við sinntum hvert öðru og að við
héldum því striki sem hann hefði
haldið, að lifa. Sigga, þú sagðir mér
að hann hefði alltaf sagt: „Jeg vil
leve livet til det er forbi.“ Lífi hans
hér á jörð er lokið, en áhrifum hans
ekki. Stig lifir enn.
Halldór og Árný.
Í annað sinn á þessu
ári hefur maðurinn
með ljáinn höggvið
skarð í stóra systkina-
hópinn frá Langabotni. Í þetta sinn
er það hann Gísli Angantýr sem við
kveðjum hinstu kveðju.
Gísla voru æskustöðvarnar ætíð
mjög kærar og dvaldi hann þar
meira og minna flest sumur þar sem
hann undi sér við ýmsa iðju. Hann
GÍSLI ANGANTÝR
MAGNÚSSON
✝ Gísli AngantýrMagnússon
fæddist í Langabotni
í Geirþjófsfirði 16.
mars 1927. Hann lést
á Landspítalanum
við Hringbraut 25.
október síðastliðinn
og var útför hans
gerð frá Fríkirkj-
unni í Reykjavík 31.
október.
byggði þar sumarhús
ásamt fleiri systkinum
sínum, en lét ekki þar
við sitja heldur byggði
hann sér líka lítið hús
niðri við sjóinn sem er
bátaskýli með íveru-
stað á efri hæð. Eins
var hann oft í gamla
bænum sem hann og
Vésteinn bróðir hans
hafa haft til umráða
eftir að faðir hans féll
frá og jörðin var seld.
Hann var einkar hand-
laginn og gilti þá einu
hvort um var að ræða
að smíða, elda mat, sauma í, eða eins
og mamma orðar það: „Hann gat
bara allt, hann Gísli.“
Mínar fyrstu minningar um Gísla
eru þegar hann var að koma í heim-
sókn í sveitina að heimsækja
mömmu mína, systur sína. Þá var oft
glatt á hjalla og mikið hlegið. Gísli
var alltaf til í ýmiss konar uppátæki
til að skemmta sér og ekki síst okkur
krökkunum, brá sér þá stundum í
ýmis gervi og notaði þá bara það sem
fannst í geymslunni til að sem best
tækist til. Hann hafði líka gaman af
að segja sögur, ekki síst af skrýtnu
fólki sem hafði orðið á leið hans í líf-
inu.
Seinna, þegar ég var orðin ung-
lingur, var Gísli alltaf til í að skutla
mér og vinkonum mínum á böll eða
bara að rúnta og stundum fór hann
líka inn með okkur á böllin, borgaði
jafnvel fyrir okkur ef við áttum ekki
pening, og lét þá fara lítið fyrir sér
en fylgdist með okkur úr fjarlægð og
sá svo um að koma okkur heilu og
höldnu heim.
Hann lærði múraraiðn og einnig
nam hann búfræði á Bændaskólan-
um á Hvanneyri sem sjálfsagt hefur
komið sér vel þegar hann bjó
sveitabúskap á Hólum í Helgafells-
sveit um árabil ásamt Vésteini bróð-
ur sínum og hans fjölskyldu, þar sem
yngsta dóttir mín fékk að dvelja eitt
sumar.
Að leiðarlokum er mér og fjöl-
skyldu minni efst í huga þakklæti
fyrir að hafa átt Gísla fyrir frænda
og vin og sendum við fjölskyldu hans
og Lilju vinkonu hans innilegar sam-
úðarkveðjur.
Ingigerður Magnúsdóttir.
✝ Brynjar ÞórLeifsson fæddist
á Akranesi 7. ágúst
1936. Hann lést 6.
október síðastliðinn.
Foreldrar Brynjars
voru Hulda Eyjólfs-
dóttir húsmóðir og
Leifur Gunnarsson,
bílstjóri, ökukennari
og síðar verslunar-
maður í Reykjavík.
Þau eru bæði fallin
frá.
Brynjar kvæntist
1962 Jean Ann Leifs-
son. Börn þeirra eru
Bryndís Ann, fyrirtækjafulltrúi
hjá SPRON, f. í Reykjavík 1963,
og Bjarki Andrew, deildarforseti
við Tækniháskóla Íslands, f. í
Reykjavík 1966, kvæntur Úlfhildi
Helgu Guðbjartsdóttur. Barna-
börn Brynjars eru fimm.
Brynjar ólst upp á Akranesi þar
sem hann lauk grunnskólaprófi en
fluttist síðar til
Reykjavíkur ásamt
foreldrum sínum og
stundaði ýmis störf
þar. Rúmlega tvítug-
ur hélt Brynjar til
enskunáms á Suður-
Englandi þar sem
hann kynntist eftir-
lifandi konu sinn,
Jean Ann Leifsson.
Þau giftu sig á Eng-
landi 1962 og flutt-
ust sama ár til Ís-
lands þar sem
Brynjar hóf störf í
verslunarrekstri
ásamt föður sínum. Brynjar starf-
aði við verslun og stundaði eigin
verslunarrekstur um skeið en hóf
störf hjá S. Helgasyni hf. 1976 og
starfaði þar sem skrifstofustjóri
þar til hann dró sig í hlé um mitt
síðasta ár eftir 27 ára starf.
Útför Brynjars fór fram frá
Fossvogskapellu 17. október.
Kæri afi, nú ert þú horfinn úr
þessum heimi og á betri stað. Takk
fyrir að hafa verið svona góður afi,
ég vona að þér líði betur núna heldur
en þegar þú lást á sjúkrahúsinu. Ég
á eftir að sakna þín sárt, takk fyrir
allt, elsku afi.
Dýpsta sæla og sorgin þunga,
svífa hljóðlaust yfir storð.
Þeirra máli ei talar tunga,
tárin eru beggja orð.
(Ólöf Sigurðardóttir frá Hlöðum.)
Þinn
Elvar Bragi.
BRYNJAR ÞÓR
LEIFSSON
Elsku Sirra mín. Það
er sárt að þurfa að
kveðja þig, en ég
hugga mig við það að
nú eru þjáningar þínar
á enda. Okkar kynni
spanna orðið yfir 27 ár, eða allt frá
því er við fluttum í Heiðarlundinn,
ungar, hressar og bjartsýnar á lífið
og tilveruna.
Er ég lít til baka koma margar
góðar minningar upp í hugann. Oft
sátum við saman yfir kaffibolla og
ræddum alla heima og geima. Þá var
gjarnan slegið á létta strengi og
mikið hlegið, enda varst þú hlátur-
SIGRÍÐUR
JÓNSDÓTTIR
✝ Sigríður Jóns-dóttir fæddist á
Akureyri 19. júní
1948. Hún lést á
heimili sínu 26. októ-
ber síðastliðinn og
var útför hennar
gerð frá Akureyrar-
kirkju 31. október.
mild og skemmtileg
kona.
Hérna í Heiðarlund-
inum fæddust yngstu
börnin okkar og þegar
barnahópurinn var
saman kominn var oft
mikið líf og fjör.
Elsku Sirra mín, þú
varst ákaflega hlý og
góð og gott var að eiga
þig að þegar eitthvað
bjátaði á. Hafðu hjart-
ans þakkir fyrir allt og
allt. Góður guð geymi
þig.
Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð,
hjartans þakkir fyrir liðna tíð.
Lifðu sæl á ljóssins friðar strönd,
leiði sjálfur Drottinn þig við hönd.
(Guðrún Jóh.)
Innilegar samúðarkveðjur til allra
ástvina.
Heiða Björk og fjölskylda,
Heiðarlundi 3h.
Mig langar að minn-
ast hans Kidda mágs
míns með nokkrum
orðum.
Þótt aldursmunur væri nokkur á
okkur urðum við miklir vinir og grín-
uðumst mikið hvor í öðrum. Það er
margt sem kemur upp í huga mér
þegar ég minnist Kidda, öll orðatil-
tækin hans og fiktið í honum. Dæmi
um það er þegar ég kom til hans í
vinnuna, eins og ég gerði stundum
þegar ég var í landi, og hann bað mig
að opna húddið á bílnum hjá mér og
fór að athuga olíuna, ég sagðist hafa
verið að koma með bílinn úr smurn-
ingu en hann sá að bíllinn var olíu-
KRISTJÁN BERGUR
KRISTJÁNSSON
✝ Kristján BergurKristjánsson
fæddist í Fífu-
hvammi í Kópavogi
18. apríl 1942. Hann
lést á Landspítala –
háskólasjúkrahúsi
við Hringbraut 23.
október síðastliðinn
og var útför hans
gerð frá Digranes-
kirkju 31. október.
laus, það hafði gleymst
að setja olíu á bílinn.
Þegar við báðir byrj-
uðum að fitna sökum
aldurs komu viðurnefn-
in Fatti við sögu og
kölluðum við hvor ann-
an þessu nafni. Við
hjónin komum oft í
Birkihvamminn til
þeirra Kidda og Tótu
og sátum við oft lengi
við eldhúsborðið og
skeggræddum ýmsa
hluti. Það var alveg ein-
staklega gaman að sitja
og spjalla við Kidda,
hann var mjög fróður og var afar vel
lesinn um ferðalög og sóttum við oft í
viskubrunninn til hans ef við vorum
að fara eitthvað út í heim.
Með þessum fáu orðum kveðjum
við Gumma og börnin þig, elsku
Fatti, og þökkum fyrir árin sem við
áttum með þér. Guð geymi þig.
Elsku Tóta systir, Edda, Guðrún
og fjölskyldur, hugur okkar er hjá
ykkur.
Kveðja,
Ólafur Jakob.