Morgunblaðið - 08.11.2003, Síða 55
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2003 55
Rangt föðurnafn
Torfi Lárus Karlsson var rang-
nefndur í frétt og myndatexta á for-
síðu blaðsins í gær. Rétt var farið
með nafn hans í umfjöllun á miðopnu
í blaðinu. Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.
Fundur Heilsuhringsins
16. nóvember
Fundur Heilsuhringsins verður
haldinn sunnudaginn 16. nóvember í
Norræna húsinu en ekki sunnudag-
inn 9. nóvember eins og sagt var frá í
Morgunblaðinu í gær.
Markvert á húsið
Í frétt Morgunblaðsins á dögunum
var ranglega sagt frá því að Verð-
bréfastofan væri eigandi að húsnæð-
inu við Stillholti 2 á Akranesi, áður
Rauða myllan. Hið rétta er að fyr-
irtækið Markvert ehf. keypti hús-
næðið með samþykki lánardrottna
til að byggja húsnæði fyrir aldraða.
Beðist er velvirðingar á mistökun-
um.
Guðjón, ekki Guðni
Guðjón Hjörleifsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjör-
dæmi, var rangnefndur Guðni í
myndatexta á þingsíðu blaðsins sl.
fimmtudag og er beðist velvirðingar
á þeim mistökum.
LEIÐRÉTT
Fótboltahátíð fyrir stelpur verð-
ur haldin í Egilshöll í dag, laugar-
daginn 8. nóvember kl. kl. 13–18.
Allar stúlkur eru velkomnar á há-
tíðina. Ýmislegt verður á boð-
stólum s.s. knattþrautir, hver get-
ur haldið knettinum lengst á lofti,
fótboltatrúðurinn skemmtir, lög-
reglan mælir skothörku stúlkn-
anna og stjörnuleikur þar sem
mætast Reykjavík og landið.
Knattspyrnuráð Reykjavíkur
(KRR) stendur fyrir hátíðinni í
samvinnu við Orkuveitu Reykja-
víkur, Egils, og Mastercard. Há-
tíðin er liður í útbreiðsluátaki
KRR og KSÍ. Markmið átaksins er
að fjölga kveniðkendum í knatt-
spyrnu.
Lionshátíð á Eir í dag, laugardag-
inn 8. nóvember kl. 14. Hátíðar-
dagskrá á Torginu: Krakkakór
Grafarvogskirkju syngur, stjórn-
andi Oddný Þorsteinsdóttir, undir-
leik annast Hörður Bragason.
Lionsmaðurinn Ómar Ragnarsson
fréttamaður skemmtir og syngur.
Boðið verður upp á heitt súkkulaði
og veitingar. Lionsklúbbarnir Fold
og Fjörgyn sjá um hátíðina.
SAMFOK fundar um stærðfræði-
kennslu SAMFOK (samband for-
eldrafélaga og foreldaráða í grunn-
skólum Reykjavíkur) stendur fyrir
umræðu um stærðfræðikennslu í
grunnskólanum í Reykjavík. Fund-
urinn fer fram í dag, laugardag kl.
10–13, í Engjaskóla, Vallengi 14.
Erindi halda: Haraldur Ólafsson,
stjórnarmaður í SAMFOK, Þórunn
Kristinsdóttir aðstoðarskólastjóri
Hvassaleitisskóla, Guðbjörg Páls-
dóttir, aðjúnkt í stærðfræði-
menntun KHÍ og Aðalsteinn Ragn-
arsson frá Íslensku menntasam-
tökunum. Boðið verður upp á létta
morgunhressingu. Þingið er opið
öllum foreldrum grunnskólabarna
og er aðgangur ókeypis.
Verslunin GuSt og dísjón á
Laugavegi 39 á eins árs afmæli um
helgina, og verður afmælisfagn-
aður í versluninni í dag, laugar-
daginn 8. nóvember með veitingum
og lifandi músík.
Í DAG
Húsmæðrafélag Reykjavíkur
heldur basar á morgun, sunnudag-
inn 9. nóvember, kl. 14 á Hallveig-
arstöðum við Túngötu. Þar verður til
sölu úrval af handavinnu, s.s. sokk-
ar, vettlingar, barnapeysur, inni-
skór, dúkar, leikföng, púðar, jóla-
föndur o.fl. Einnig eru á boðstólum
lukkupokar fyrir börn. Allur ágóði af
sölu basarmuna rennur til líkn-
armála.
Þýska og breska sendiráðið
minnast látinna hermanna Í tilefni
af minningardegi (Volkstrauertag,
Remembrance day) um látna her-
menn, sem er á morgun, sunnudag-
inn 9. nóvember, kl. 10.45 mun þýska
sendiráðið minnast dagsins með
breska sendiráðinu í hermannagraf-
reitnum í Fossvogskirkjugarði. At-
höfnin er haldin til að minnast þeirra
sem létu lífið í fyrri og síðari heims-
styrjöldinni. Séra Arngrímur Jóns-
son stjórnar athöfninni og eru allir
velkomnir.
Félagið Ísland-Palestína boðar til
fundar í Norræna húsinu sunnudag-
inn 9. nóvember kl. 15.30, þar sem
mótmælt verður aðskilnaðarmúrn-
um sem verið er að reisa í Palestínu.
Sýnd verður heimildarmyndin End-
ing Occupation – voices for a Just
Peace. Erindi halda: Björk Vil-
helmsdóttir borgarfulltrúi, Sveinn
Rúnar Hauksson læknir, Sigrid
Valtingojer grafíklistamaður og Við-
ar Þorsteinsson, varaformaður FÍP.
Einnig verða umræður um frekari
stuðning við baráttu Palestínu-
manna fyrir mannréttindum og
frelsi.
Á MORGUN
Hryggiktarnámskeið – að lifa
með hryggikt Námskeið um
hryggikt er að hefjast hjá Gigt-
arfélagi Íslands í húsnæði félags-
ins að Ármúla 5, annarri hæð, þar
sem áhersla er lögð á þætti sem
tengjast því að lifa með hryggikt.
Um er að ræða þrjú kvöld, einu
sinni í viku, og byrjar námskeiðið
miðvikudaginn 19. nóvember kl.
19.30. Á námskeiðinu verður
fjallað um sjúkdóminn, einkenni
hans og áhrif á daglegt líf, mik-
ilvægi þjálfunar o.fl.
Leiðbeinendur á námskeiðinu
verða Árni Jón Geirsson gigtarsér-
fræðingur, Hrefna Þórðardóttir
sjúkraþjálfari, Unnur Stefanía Al-
freðsdóttir iðjuþjálfi og Svala
Björgvinsdóttir félagsráðgjafi.
Upplýsingar og skráning á nám-
skeiðið er á skrifstofu Gigtarfélags
Íslands.
Námskeið um endurræktun
grasflata og annað sem skiptir
máli varðandi gras og umhirðu
þess verður haldið í Garðyrkju-
skólanum 14. nóvember nk. Erindi
halda: Árni Snæbjörnsson, jarð-
vegsráðunautur hjá Bændasam-
tökum Íslands, Björn Gunnlaugs-
son, tilraunastjóri Garðyrkju-
skólans, Kristinn H. Þorsteinsson,
garðyrkjustjóri Orkuveitu Reykja-
víkur, Margeir Vilhjálmsson, fram-
kvæmdastjóri Golfklúbbs Reykja-
víkur, Oddgeir Þór Árnason,
garðyrkjustjóri Mosfellsbæjar,
Magnús Jóhannsson, sérfræðingur
frá Landgræðslu ríkisins, og Bald-
ur Gunnlaugsson, garðyrkjustjóri
útisvæða Garðyrkjuskólans.
Námskeiðið verður haldið í húsa-
kynnum Garðyrkjuskólans en
skráning og nánari upplýsingar
um það fást á skrifstofu skólans
eða á heimasíðu hans, www.reyk-
ir.is
Fyrirlestur og kynning á Jemen
og Jórdaníu Fimmtudagskvöldið
13. nóvember verður kvöldnám-
skeið hjá Mími símennt þar sem
Jóhanna Kristjónsdóttir verður
með fyrirlestur og kynningu á
Jemen og Jórdaníu. Verður eink-
um talað um sögu landanna frá
fyrri heimsstyrjöldinni en einnig
frá fyrri tímum. Þá verða sýndar
myndir og flutt tónlist frá þessum
löndum. Viku síðar, 20. nóvember,
verður sams konar kynning á Sýr-
landi og Líbanon.
Á NÆSTUNNI
BORGARSKJALASAFN Reykja-
víkur efnir til sýningar í dag, laug-
ardaginn 8. nóvember, kl. 10–18, í
verslunarmiðstöðinni Kringlunni, í
tilefni af Norrænum skjaladegi.
Sýnd verða gömul frumskjöl úr
skjalasöfnum íþróttafélaga sem
varðveitt eru á Borgarskjalasafni,
meðal annars um knattspyrnu, golf,
hnefaleika og sund.
Einnig má sjá skjöl sem tengjast
heilbrigðismálum Reykjavíkur áður
fyrr, meðal annars um lýsis- og
mjólkurgjafir í skólum, ljósaböð, eft-
irlit borgarinnar með hollustuhátt-
um á heimilum og fyrirtækjum og
fleira mætti nefna. Textar gefa stutt
ágrip af sögu íþrótta og heilsu í
Reykjavík.
Öllum gestum verður boðið upp á
lýsi og geta þeir spreytt sig á get-
raun tengdu efni dagsins, með
spennandi vinningum.
Í tengslum við skjaladaginn vekur
Borgarskjalasafn Reykjavíkur at-
hygli á mikilvægi þess að skjölum
íþróttafélaga í Reykjavík sé komið til
safnsins. Þeir sem vilja koma skjöl-
um til safnsins eru beðnir um að hafa
samband við starfsmenn þess.
Sýning á göml-
um skjölum
í Kringlunni
HRINGURINN heldur sinn árlega
handavinnu– og kökubasar í Perl-
unni sunnudaginn 9. nóvember kl.
13. Þar verða til sölu margir mun-
ir og heimabakaðar kökur. Basar-
munir eru til sýnis í glugga
Herragarðsins, Laugavegi 13.
Jólakort Hringsins árið 2003
verða einnig til sölu í Perlunni.
Kortið er hannað af myndlistar-
konunni Jónínu Magnúsdóttur/
Ninný. Allur ágóði af fjáröflun fé-
lagsins rennur í Barnaspítalasjóð
Hringsins.
Hringskonur vilja þakka öllum
velunnurum félagsins bæði
einstaklingum og fyrirtækjum
fyrir stuðning og traust sem fé-
laginu hefur verið sýnt í gegnum
árin.
Morgunblaðið/Ásdís
Jólabasar Hringsins