Morgunblaðið - 08.11.2003, Page 65
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2003 65
Dansleikur ársins!
Jazzhátíðardansleikur með fönksveitinni JAGÚAR
á NASA laugadag 8. nóvember kl. 00.30 - 04.00
Komið og skemmtið ykkur þar sem fjörið verður á laugardag!
Forsala aðgöngumiða í JAPIS Laugavegi og
UppplýsingmiðstöðFerðamanna, Aðalstræti 2. www.ReykjavikJazz.com/
Í kvöl
d
MYNDIR af hálendi Íslands
ásamt texta eru nýjasta verk
Ólafs Elíassonar sem birtist á
átta síðum í nóvemberhefti
breska tískutímaritsins i-D.
Fólk, líkamshlutar og nátt-
úra renna saman á myndum
Ólafs sem eru ljóðrænar og
þokukenndar, teknar í dumb-
ungsveðri og rigningu. Í text-
anum fjallar Ólafur um sam-
band menningar og villtrar
náttúru og hvernig mann-
fólkið metur ósnortin svæði
jarðarinnar. Hann er tölu-
vert pólitískur, kemur til
dæmis inn á álversfram-
kvæmdir Alcoa á Íslandi sem
hann nefnir sem dæmi um
hvernig von um skamm-
tímagróða geti ennþá fengið
fólk til að meta ósnortin
svæði lítils.
„Jafnvel þótt áhrif fram-
kvæmdanna á umhverfið væru ljós,
var almenna viðhorfið á þann veg
að fyrst enginn fari eða geri neitt á
þessu ákveðna svæði sé það einskis
virði,“ segir í lokakafla verksins.
Þá endar hann greinina á að segja
að ef reisa hefði átt orkuver í frum-
skógum Kongó hefði almennings-
álitið á Íslandi líklega verið annað
þar sem Íslendingar meti tré meira
en eldfjalla- og jöklaeyðimerkur.
Verk Ólafs Elíassonar í tímaritinu i-D
Náttúra og fólk á hálendinu