Vísir - 16.10.1980, Blaðsíða 19

Vísir - 16.10.1980, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 16. október 1980. vtsm w K-lykíllinn til ágóða fyrir endurhæfingar heímilí geösjúkra: TAKMARKIÐ ER AB SELJA 50 ÞOSUHD LYKLA A LAUGARDAG „Ariö 1974 seldum viö 38.000 lykla, ’77 seldum viö 43.000 og takmarkiö i ár er aö selja 50.000 lykla”, sagöi Eyjoifur Sigurös- son 1. varaforseti Evrópustjórn- ar Kiwanishreyfingarinnar á blaöamannafundi, sem haldinn var I tilefni K-dagsins nk. laug- ardag. Einkunnarorö dagsins veröa „Gleymum ekki geösjúkum”, og veröur þá aflaö fjár meö sölu lykilsins, til aö reisa endurhæf- ingarheimili fyrir geösjiika. Hefur einu sinni áöur veriö haldinn K-dagur til aö afla fjár fyrir heimiliö og nú hefur borist vilyröi borgarráös fyrir þvi aö Geöverndarfélagiö fái úthlutaö lóö undir bygginguna viö næstu reglulega Uthlutun. Er ráögert, aö hefjast handa viö fram- kvæmdir innan 6 mánaöa frá af- hendingu fjárins. Prófessor Tómas Helgason tjáöi blaöamönnum, aö brýn þörf væri fyrir heimili sem þetta. Hafa bæri i huga, aö þaö yröi ekki aöeins ætlaö Reykja- vikurbúum heldur einnig fólki úti á landi. beir ættu oft erfitt meö að fá húsnæöi, auk þess sem þaö torveldaöi þeim aö sækja nauösynlega meöferö á göngudeild. Skortur sá, sem væri á meö- feröarheim ili sem þvi er kiwanismenn safna nú fyrir, heföi oft i för meö sér aö sjúk- lingar útskrifuöust of snemma og þyrftu þá aö leggjast inn aftur, eöa þá aö þeir dveldu of lengi á deildunum. „Likamlega og andlega fatl- aöir þurfa aö berjast fyrir aö- stööu sinni og þaö er oft erfiö barátta”, sagöi prófessor Tómas. „Þeir vilja þvi oft veröa útundan. Margir öryrkjar búa við ófullkomnar aöstæöur úti I bæ. Ég vona aö þessi barátta Kiwanismanna skili góöum ár- angri fjárhagslega séö. Hins vegar veit ég aö hún skilar góö- um árangri viö aö efla skilning almennings á aöstööu þeirra sem eiga um sárt aö binda”. Þess má geta, aö barátta kiwanisklúbbanna fyrir þeim sem minna mega sin, er séris- lenskt fyrirbrigöi, þ.e. aö allir klúbbarnir starfi óskiptir aö einu verkefni. Arangurinn er þegar vel merkjanlegur þótt K- dagarnir séu ekki nema tveir, þ.e. vinnustofan Bergiöjan viö Kleppsspitala. Þar eru fram- leiddar hilseiningar, hellur o.fl. Fyrirkomulag sölu K-lykilsins veröur þannig háttaö, aö gengiö veröur I hús og mun m.a. skóla- F.v. Jón K. Ólafsson formaöur K-dagsnefndar, Birgir Vigfússon og Guömundur Óli Ólafsson umdæmisstjóri Kiwonishreyfingarinnar. fólk taka þátt i sölúnni. Þá veröa sendir söfnunarlistar i skip og báta, auk þess sem hægt er aö nota giróreikning nr 32331-4. Siöast en ekki sist er takrúarkiö aö vekja alrtienning til umhugsunar á málefnum geösjúkra og raunar fatlaöra i heild. —JSS Lögfræðlngar funda um pölitfska flöttamenn Lögfræöingafélag Islands gengst i kvöld fyrir almennum fundi um reglur islenskra laga um eftirlit meö útlendingum og framsal sakamanna. Þaö veröa þeir Jónatan Þórmundsson pró- fessor og Ragnar Aöalsteinsson sem munufjalla um þetta mál, en þeir hafa báöir kynnt sér þessi mál sérstaklega. Svo sem kunnugt er, er þaö i vaxandi mæli aö erlendir menn leiti hér landvistar, annaöhvort sem pólitiskir flóttamenn eöa af öörum orsökum. Veröur á fundin- um fjallaö um þaö hvenær heimilt er aö meina mönnum aö koma inn i landiö, hvaöa ástæöur geta leitt til þess aö mönnum sé visað Ur landi og hvaöa reglur gilda sam- kvæmt íslenskum lögum og þjóöarétti um skyldu rikja til þess aö taka viö pólitiskum flótta- mönnum. Styrkur til náms í Noregi A næsta ári veröa veittar fimm þúsund norskar krónur úr Minn- ingarsjóöi Olavs Brunborg, en til- gangur sjóösins er aö styrkja Is- lenska stúdenta og kandidata til náms i Noregi. Umsóknir um styrkinn ásamt upplýsingum um nám og fjár- hagsástæður sendist til skrifstofu Háskóla Islands fyrir 15. nóvem- ber 1980. Tekiö skal fram aö styrkurinn er aöeins veittur karlmönnum. Málfreyjur kynna Alþjóöasamtök Málfreyja kynna nú starfsemi sina víöa um landið, en stefna félagsins er aö efla frjálsa og fordómalausa um- ræöu og markmiö og aö efla tengsl og skilning manna á meöal um viöa veröld. Nýlega var stofnuö I Málfreyju- deild i Vestmannaeyjum, og kynningarfundir veröa i Sjálfs- bjargarhúsinu á Siglufiröi nk. laugardag og á sunnudaginn á Hótel Varöborg á Akureyri. ÞÆR ÞJONA' ÞUSUNDt JM! r ii:i,jrcK.,t * ju uu i i nimm.11 i-jtrgei Anægjuleg nýjung fyrir slitin og lek þök Wct-Jet er besta lausnin til endurnýjunar og þéttingar á slitnum og lekum þökum. Það inniheldur vatnsþétt- andi oliu til endurnýjunar á skorpnandi yfirborði þak- pappa og gengur niöur I pappann. Það er ryðverjandi og er þvi mjög gott á járnþök sem slíkt og ekki siður tii þétt- ingar á þeim. Ein umferð af WET-JET er nægilegt. Nú er hægt að þétta lekann, þegar mest er þörfin, jafnvel við verstu veöurskilyröi, regn, frost, er hægt að bera WET-JET á til aö foröa skaöa. WET-JET er framleitt af hinu þekkta bandarfska félagi PACE PRODUCTS INTERNATIONAL og hefur farið sigurför um heiminn, ekki sist þar sem veðurskil- yröi eru slæm. Notið WET-JET á gamla þakið og endurnýið það fyrir aöeins ca. 1/3 sem nýtt þak mundi kosta. ÞAÐ ER EINFALT AÐ GERA ÞAKIÐ POTT- ÞÉTT MEÐ WET-JET SlÐUMÚLA 15 - SlMI 33070 Allt undir einu þaki „Svo ég bauðst til að leika fótatak í fiarska eða bara skriáf i bréfi..." r Magnús Olafsson leikari i viðtali við SAMÚEL Missið ekki af viðtalinu við Magnús í nýjasta SAMÚEL Fæst um land te '<56. ’ . ’ \.<............................... ' þakjárn • þaksaumur plastbáruplötur • þakpappi Byggingavörudeild Jón Loftsson hf. Hringbraut 121 simi10600

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.