Vísir - 25.11.1980, Side 1
L J
w •2 :‘a ' t, ?ii J
Þriðjudagur 25. nóvember 1980/ 276. tbl. 70. árg.
ISLENDINGUM BOÐIÐ AÐ ANNAST FRÆGA FEGURÐARSAMKEPPNI:
UHGHIO ALHEMUR KRÝND
Á fSLANDI NÆSTA SUNIAR?
Forráðamenn bandariska
fyrirtækisins sem stendur fyrir
hinni árlegu fegurðarsam-
keppni Ungfrú Alheimur (Miss
Universe) hafa óskað eftir því
að islendingar haldi keppnina á
næsta ári. Keppnin og fram-
kvæmd hennar vekur jafnan
mikla athygli um allan heim og
er talið að um 600 milijónir
manna fyigist með úrslitum
hennar I beinni sjónvarpssend-
ingu um gervihnetti.
ívarGuðmundsson aöalræðis-
maður islands i New York stað-
festi I samtali við blaðamann
VIsis í gærkvöldi aö þetta boð
hefði komið fram, en sagöi mál-
iðvera á frumstigi. Ivar sagöist
mundu eiga fund I dag með for-
stjóra fyrirtækisins sem annast
keppnina. Ef likur virtust á að
hægtværiaðkoma þessu I kring
hér heima kæmu þeir báöir til
tslands eftir nokkra daga.
„Hvað varöar landkynningu
þá er þessu líkt við Ölympiu-
leikanaenda hefur almenningur
um allan heim jafnan fylgst
með öllum fréttum af keppn-
inni.Straxog búiðer að ákveða
i hvaða landi keppnin fer fram
fara fréttastofur að safna og
Gjaidbrot hjá Tré-
smlðju Austurlands:
Skuldirnar
á annaö
hundrað
milljónir
Samkvæmt upplýs-
ingum, sem Vísir hefur
aflað sér, mun hafa
verið tekinn um það
ákvörðun í gær að gefa
Trésmiðju Austurlands
upp til gjaldþrotaskipta.
Skuldir fyrirtækisins
munu nema á annað
hundrað milljónum
króna, þar af að miklum
hiuta lausaskuldir.
Trésmiöjan.sem starfrækt er á
Eskifirði, var á sinum tíma I
miklum rekstrarerfiðleikum, og
var þá yfirtekin af Búðarhreppi
og kaupfélaginu, og voru þá
skuldir gefnar eftir fyrir milli-
göngu Byggðasjóðs. Skuld fyrir-
tækisins við Byggðasjóð nemur
nú um 20 milljónum króna.
Trésmiðjan hefur um 6 manns I
fastri vinnu, og hefur að undan-
förnu séð um byggingu 12 ibúða
fjölbýlishúss á Eskifirði.
dreifa upplýsingum um viðkom-
andi land og þetta nær siðan há-
marki þær tvær vikur sem hún
stendur. Það er skilyrði fyrir að
halda keppnina að hægt sé að
sjónvarpa beint frá viðkomandi
landi um gervihnetti, en loka-
athöfnin tekur um tvær klukku-
stundir og i þeirri dagskrá er
jafnan skotið inn landkynn-
ingarefni,” sagði Ivar
Guðmundsson.
bessi fegurðarsamkeppni
hefurveriö haldinn á hverjuári
i 29 ár, en fyrstu 20 árin fór hún
Ungfrú Alheimur — Miss Universe — krýnd viðmikinn fögnuð. UPI— mynd.
fram I Bandarikjunum. Siöan
hefur hún verið flutt land úr
landi. Þátttakendur eru frá 70-
80 löndum og starfsmenn og
fylgdarlið er heldur fleira.
Framlag Islands yrðieinkum að
sjá þessu fólki, um 200 manns,
fyrir gistingu og fæði I þær tvær
vikur sem keppnin stendur. A
þeim tima eru fjórar kvöldsýn-
ingar þar sem stúlkurnar koma
fram auk heimsfrægra
skemmtikrafta. Þá sitja jafnan
frægar persónur i dómnefnd og
fréttamenn úr öllum heims-
hornum koma til að fylgjast
með og afla efnis frá keppninni
og landinu sem hún er haldin i.
Meö tilkomu jarðstöðvarinnar
Skyggnis verður hægt að sjón-
varpa beint héöan til annarra
landa.
tvar sagði að eflaust væri
mestur áhugi á þessu núna
meðal aðila er tengdust ferða-
málum en i heild yrði hér um
mikla landkynningu aðræða. Ef
af verður mun fegurðarsam-
keppnin fara fram hér i júni eöa
júli á næsta ári, en siðast fór hún
fram I Seoul i Suður-Kóreu.
—SG
Fíkniefnamálið:
Einn situr
enn í gæslu
Einn maöur situr eftir i gæslu
vegna fikniefnamáls, sem upp
kom I tengslum við hið umfangs-*
mikla fikniefnamál, sem skýrt
hefur verið frá að undanförnu i
Visi.
I upphafi voru tveir menn settir
inn vegna málsins. Þá var öörum
sleppt úr haldi, og sá þriðji tek
inn. Nú mun hann einn sitja eftir
inni.
Að sögn fikniefnalögreglunnar
er atburöarásin að verða ljós i
málinu. —AS.
r—v
Oþekktur kafbatur um
4 sjómílur frá lanfli
Skipverjar á nóta-
skipinu Vikingi frá
Akranesi sem statt var
út af Kópanesi sáu
■ ljóslausan kafbát um 4
I sjómilur frá landi á
| suðurleið.
Þeir höfðu tekið eftir kafbátn-
um i radarum klukkan 4 i fyrri-
nótt, og þar sem veður var hið
besta sáu skipverjar kafbátinn
með eigin augum sigla á um 12
mllna hraða I suðurátt.
Þegar Vikingur var þvert á
leiö þessa dularfulla farkosts,
sáu skipverjar ljósglætu I
glugga, en að öðru leyti voru
ekki ljós á kafbátnum.
Aðsögn Landhelgisgæslunnar
gátu skipverjar ekki gert sér
grein fyrir kennimerkjum á
bátnum, þeir sáu aðeins turn
hans og freyddi mikið
umhverfis hann.
Skipverjar tilkynntu Land-
helgisgæslunni um atburð þenn-
an og varðskip sem statt var
fyrir vestan grennslaðist nánar
fyrir um atvikið.
Kafbáturinnhafðisiðan horfið
sjónum skipverja á Vtkingi, á
leið suður með landinu.
— AS
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
1