Morgunblaðið - 08.12.2003, Side 31
HESTAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. DESEMBER 2003 31
BÁÐIR formannskandídatarnir
voru sammála um að það eitt að kos-
ið skyldi milli tveggja manna um for-
mannsstólinn hefði haft afar góð
áhrif á félagið og fundinn. Í kringum
fimmtíu manns mættu á fundinn sem
þykir gott hjá Félagi tamninga-
manna því aðalfundir síðustu ára
hafa verið afar fámennir og óhætt að
segja að nokkur félagsleg deyfð hafi
ríkt í félaginu um nokkurn tíma.
Þessi félagslega deyfð virðist eiga
rætur sínar að rekja til þess að mjög
margir félagsmenn hafa spurt sjálfa
sig til hvers þeir séu í félaginu og
hvað félagið í raun geri fyrir þá. Hef-
ur mörgum þótt sem það eina sem
félagið færði þeim væri innheimtu-
seðill með rukkun fyrir hátt í átta
þúsund króna félagsgjaldi.
Umræðan á fundinum nú þótti af-
ar lífleg og greinilegt að kosningarn-
ar hafi hleypt nýju lífi í mannskap-
inn. Nýkjörinn formaður Páll Bragi
sagði að því miður hefði dagurinn
verið of stuttur til að hægt hefði ver-
ið að afgreiða öll þau viðamiklu mál-
efni sem fyrir fundinum lágu.
Lengi vel leit út fyrir að Páll Bragi
yrði einn í kjöri en nokkrum dögum
fyrir fundinn ákvað Sigurður að taka
slaginn og gefa kost á sér á móti hon-
um. Páll naut stuðnings fráfarandi
formanns Ólafs Hafsteins Einars-
sonar. Sigurður kvað ástæðu fyrir
sínu framboði þá að allnokkrir hefðu
haft samband við sig og hvatt til
mótframboðs. Hann sagðist vissu-
lega ganga ósár frá leiknum og
kvaðst treysta Páli vel til verka, þar
færi góður drengur og dugnaðar-
forkur. „Ég held að Páll viti nú
mætavel hver aðalverkefnin verða
eftir hina fjörlegu umræðu á fund-
inum. Skilaboð fundarins voru mjög
skýr og var ég mjög ánægður með
umræðuna og svona eftir á að
hyggja held ég að það sé aðalmálið
að hún skyldi komast í gang á fund-
inum,“ sagði Sigurður.
Vel unnið út á við
Hinn nýkjörni formaður sagði að
þrátt fyrir að alltaf hafi mátt öðru
hverju heyra þessar gagnrýnisradd-
ir teldi hann að forystusveit félags-
ins síðustu árin hafi unnið mjög gott
starf út á við sem varðaði meðal ann-
ars hagsmuni á áhrif félagsins í
hestamennsku í sinni víðu mynd.
Nefndi hann þar til dæmis þátttöku í
átaksverkefni í hrossarækt og svo að
sjálfsögðu í Fagráði hrossaræktar.
Þar áður hefði félagið átt mikinn
þátt í að byggja upp námið á Hólum
og hefði ómældur tími farið í sam-
starfið við Hóla.
Þeir félagar Páll og Sigurður voru
sammála um að nú þyrfti að beina at-
hyglinni að endurmenntun eða sí-
menntun og það væru hin skýru
skilaboð aðalfundarins. Það væri
leiðin til að koma til móts fé-
lagsmenn svo þeir finndu verðugan
tilgang með veru sinni í Félagi tamn-
ingmanna.
„Það vantar greinilega betri að-
gang félagsmanna að hinni öru þró-
un sem á sér stað í reiðmennskunni
og hefur verið síðustu árin. Nú ligg-
ur fyrir að sett verði á laggirnar
nefnd í samvinnu við Hólaskóla sem
hafi það verkefni að gera tillögur um
endurmenntunarkerfi fyrir tamn-
ingamenn. Þörfin er mikil fyrir þetta
því ítrekað hefur komið fram áhugi
eldri félaga á að fá aðgang að þróun-
inni,“ sagði Páll Bragi.
Út með grófa reiðmennsku
Af öðrum málefnum sem fjallað
var um á fundinum má nefna aga- og
siðareglur félagsins sem verið hafa í
endurskoðun og munu verða áfram
fram að næsta aðalfundi. Þá var
samþykkt að skipa nefnd sem gerði
tillögur um vinnureglur fyrir kyn-
bótadómara í því augnamiði að hægt
verði að taka á grófri reiðmennsku í
kynbótasýningum. Þótt reiðmennsk-
an sé almennt í dag mun áferðar-
betri og faglegri en var til dæmis
fyrir 20 árum telja menn að gera
megi enn betur án þess að það komi
niður á afköstum hrossa og fegurð
þeirra í sýningum nema síður sé.
Staðreyndin er líklegast sú að þrátt
fyrir allar þessar stórstígu framfarir
megi bæta margt og langt í land sé
að einhverri fullkomnun sé náð.
Þessi vitneskja hefur komið sífellt
betur upp á yfirborðið eftir að ís-
lenskir tamningamenn fóru að gefa
klassískri reiðmennsku aukinn
gaum. Sú staðreynd blasir við að
alltof algengt er að sjá megi hrossum
riðið í sýningum með þéttstífu taum-
haldi þótt höfuð og háls sé í „góðri
stillingu“ og hrossunum bókstaflega
haldið í „fínum höfuðburði“. Við Ís-
lendingar erum greinilega ekki al-
veg eins góðir og við héldum í þess-
um efnum.
Á fundinum komu fram hugmynd-
ir um að félagsmenn FT fengju af-
slátt af aðgangi að Worldfeng en eft-
ir nokkra umræðu varð niðurstaðan
sú að þar sem margir félagsmenn
væru nú þegar með frían aðgang í
gegnum hrossaræktarsamböndin
væri eðlilegt að félagið byði sínum
félögum frían aðgang til reynslu í
eitt ár en það síðan endurskoðað á
næsta aðalfundi.
Vel heppnuð deildarskipting
Auk Páls voru kjörin í aðalstjórn
Svanhvít Kristjánsdóttir sem verður
gjaldkeri, Róbert Petersen sem
verður ritari, Friðdóra Friðriksdótt-
ir verður meðstjórnandi ásamt Atla
Guðmundssyni sem setið hefur í
stjórn FT svo lengi sem elstu menn
muna, eins og einn félagi hans orðaði
það. Allt þó í góðu meint. Þar að auki
sitja stjórnarfundi með tillögu- og
atkvæðisrétti formenn suður- og
norðurdeilda félagsins, Þórarinn
Eymundsson að norðan og Sigrún
Ólafsdóttir að sunnan. Deildaskipt-
ing félagsins í norður- og suðurdeild-
ir þykir enn sem komið er hafa gefið
góða raun. Deildirnar héldu nýlega
aðalfundi sína og þar flutti fráfar-
andi formaður Ólafur Hafsteinn Ein-
arsson erindi um félagið í nútíð og
framtíð.
Formannskosningar í fyrsta sinn í langan tíma hleypa nýju lífi í Félag tamningamanna
Endurmennt-
un tamninga-
manna mál
málanna
Tamningamenn héldu aðalfund um helgina
sem var nokkuð sögulegur. Í fyrsta sinn í
langa tíð var kosningaslagur um stöðu for-
manns þar sem Páll Bragi Hólmarsson bar
sigurorð af Sigurði Sæmundssyni en mjótt
var það því aðeins munaði einu atkvæði.
Valdimar Kristinsson ræddi við nokkra
tamningamenn að fundinum loknum.
Morgunblaðið/Vakri
Páll Bragi Hólmarsson, nýkjörinn formaður Félags tamningamanna, á
hryssunni Röst á landsmóti hestamanna á Vindheimamelum.
MÖRG stór orð hafa verið viðhöfð að
loknu heimsmeistaramótinu í Hern-
ing í Danmörku í sumar. Gildir þar
einu hvort verið var að tala um hest-
ana, knapana, keppnina, stemm-
inguna eða umgjörð mótsins. Eftir
að hafa rennt nokkrum sinnum í
gegnum nýútkomna myndbandspólu
frá mótinu er ekki annað að sjá en öll
stóru orðin standi áfram óhögguð.
Á myndbandinu nær Sveinn M.
Sveinsson í Plúsfilm, sem er pottur-
inn og pannan í gerð þessarar spólu,
vel að fanga andrúmsloftið í Herning
og sýna alla þætti samkomunnar
eins og greinarhöfundur upplifði
hana þessa funheitu daga í ágúst-
mánuði. Ætla má að myndin færi þá
sem ekki áttu þess kost að fylgjast
með mótinu á staðnum eins nærri
raunveruleikanum og kostur er.
Uppbygging myndarinnar tekst
prýðilega þar sem dagskrárliðirnir
eru teknir fyrir í kórréttri röð eftir
mikilvægi. Sveinn er sjálfur þulur
myndarinnar og ferst honum það
hlutverk engu síður úr hendi en
kvikmyndun og klipping. Nær hann
að byggja upp ágæta spennu þótt
auðvitað sé löngu ljóst hvernig lyktir
mála urðu í keppninni. Góð innskot
eru milli keppnisgreinanna þar sem
fjallað er um mannlífið á mótsstað,
víkingasýningu og mótsbraginn.
Sveinn hefur fyrir allnokkru skip-
að sér fremst á bekk í gerð heim-
ildamynda um hestamót og má heita
að hann sé einráður í gerð slíkra
mynda á Íslandi. Hann hefur þegar
aflað sér mikillar reynslu, þekkir
mótin og uppbyggingu þeirra, veit
nákvæmlega um hvað hlutirnir snú-
ast og það þykir hestamönnum ákaf-
lega mikilvægt; að fjallað sé um hlut-
ina af þekkingu.
Samanburður er kannski ekki
réttmætur en mikið má vera ef hér
er ekki á ferðinni ein best heppnaða
mynd sem gerð hefur verið um
hestamót með íslenskum hestum.
Hún rennur afar ljúflega í gegn og
þegar manni finnst sýningartíminn
mun styttri en hann er í raun þá er
eitthvað gott á boðstólum.
Hið rétta andrúmsloft og
upplifun á myndbandi
Morgunblaðið/Vakri
Myndataka á hrossunum sem fram komu á mótinu er með ágætum en hér
getur að líta Hlyn frá Kjarnholtum og Guðmund Björgvinsson.
Morgunblaðið/Vakri
Stemmningin á áhorfendapöllum heimsmeistaramótsins var stórfengleg.
ÞEGAR síðast var fjallað um fylj-
unartölur stóðhesta í hestaþætt-
inum kom fram að hjá Þyrni og Þór-
oddi frá Þóroddsstöðum væri fyljun
hjá þeim báðum um 75%. Þessar töl-
ur voru fengnar frá dýralæknum og
standast í sjálfu sér en hjá eiganda
hestanna Bjarna Þorkelssyni feng-
ust þær upplýsingar að ekki væri
staðfest fyl í nokkrum hryssum sem
ekki voru skoðaðar og verða ekki
skoðaðar úr því sem komið er.
Fjörutíu hryssum var haldið undir
Þyrni og sagði Bjarni að búið væri
að staðfesta fyl í þrjátíu þeirra.
Staðfest væri að tvær væru án fyls
en átta hryssur eru óskoðaðar.
Sagði Bjarni það vera mestmegnis
hryssur frá honum sjálfum og taldi
hann nokkuð víst að þær væru fylj-
aðar. Svona í framhjáhlaupi má
geta þess að talsvert var af góðum
hryssum hjá Þyrni í sumar og skal
þar fyrsta fræga telja Gleði frá
Prestbakka, þá var þar Gullveig frá
Feti, Þöll frá Efri-Brú og systurnar
Gígja og Vordís frá Auðsholtshjá-
leigu og Lukka frá Víðidal sem var
því miður önnur þeirra sem reynd-
ist ekki fylfull. Ekki voru þar með
upptaldar hrakfarir hennar því svo
óheppilega vildi til að hún missti
einnig folaldið sem undir henni var
í girðingunni. Eigandi hryssunnar
Kristinn Valdemarsson sagðist þó
ekki alveg úrkula vonar um að
Lukka væri með fyli því Þyrnir
hefði sést fara á hana eftir ómskoð-
unina.
Undir Þórodd fóru þrjátíu og sjö
hryssur og hefur verið staðfest fyl í
tuttugu og þremur hryssum. Engin
hryssa hefur verið staðfest fyllaus
af þeim sem skoðaðar hafa verið en
þrettán hryssur eru sem sagt
óskoðaðar. Það er því staðfest 75%
fyljun hjá Þyrni og allar líkur á að
hún sé allnokkuð hærri samkvæmt
mati Bjarna. Hjá Þóroddi er stað-
fest 62% fyljun en einnig má gera
ráð fyrir að hún sé nokkuð hærri
hjá honum.
Þá er Sær frá Bakkakoti með
frjósemina í mjög góðu lagi en hann
fékk til sín sjötíu og þrjár hryssur
og fyljaði allar nema tvær að sögn
Hafliða Halldórssonar umsjón-
armanns hestsins og gerir það rétt
ríflega 97% fyljun. Í fyrra var hann
með um 90 hryssur að því er Hafliði
segir fyljaði allar nema fjórar
þeirra. Það má því segja að fari
saman miklir hæfileikar og góð
frjósemi hjá Sæ.
Morgunblaðið/Vakri
Þyrnir frá Þóroddsstöðum virðist prýðilega frjósamur hestur, hefur fyljað
75% staðfest og eigandinn telur að talan muni slaga hátt í hundraðið þegar
öll kurl verða til grafar komin. Daníel Jónsson situr hestinn á landsmóti.
75% fyljun staðfest hjá
Þyrni og Þóroddi