Morgunblaðið - 10.12.2003, Síða 1
STOFNAÐ 1913 335. TBL. 91. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Kunnugleg
andlit?
Gunnar Karlsson hannar jóla-
sveinamerki RKÍ Daglegt líf
Feðgar með
uppistand
Laddi og sonur hans skemmta á
Kringlukránni Fólk í fréttum
Bílar
Reynsluakstur Nýr Renault
Scénic og öðruvísi Peugeot
Formúla 1 Ralf Schumacher
í samningsþrætu við Williams
VLADÍMÍR Pútín, forseti Rúss-
lands, fullyrti í gær að ekki væri á
dagskránni að breyta stjórnarskrá
landsins. Virðist sem forsetinn hafi
með yfirlýsingu sinni viljað kveða
niður þann orðróm að hann hygðist
beita sér fyrir því að nýkjörið þing
samþykkti stjórnarskrárbreytingar
er myndu gera honum kleift að sitja
lengur á forsetastóli en ella.
„Við þurfum að binda enda á allar
umræður um nauðsyn þess að breyta
stjórnarskránni og einbeita okkur í
staðinn að því að viðhalda stjórnar-
skránni og nýta þau tækifæri sem
hún gefur til að þróa samfélag okkar
áfram,“ sagði Pútín á fundi í Kreml
sem haldinn var til að minnast þess
að tíu ár eru liðin frá því að núgild-
andi stjórnarskrá var sett.
Pútín ætlar ekki að
breyta stjórnarskránni
Moskvu. AP.
FRUMVARP um afnám sjómannaafsláttarins í
áföngum á árunum 2005–2008 verður lagt fram í
vikunni að því er forystu Sjómannasambandsins
var tjáð á fundi sem fjármálaráðherra boðaði hana
til í gær. Fjármálaráðuneytið fékkst ekki til að stað-
festa við Morgunblaðið í gær að frumvarpið yrði
lagt fram.
800–1.000 milljóna kjararýrnun
Sævar Gunnarsson, formaður sambandsins, seg-
ir að tíðindin hafi í raun ekki komið sér verulega á
óvart miðað við fyrri yfirlýsingar fjármálaráðherra
en tímasetningin komi á óvart og lýsir Sævar
megnri óánægju með frumvarpið. Það muni ekki
um án atbeina ríkisins í gegnum skattkerfið. „Þetta
fyrirkomulag, sem á rætur að rekja áratugi aftur í
tímann, er að mínum dómi úreltur arfur frá þeim
tíma þegar ríkið var að reyna að niðurgreiða launa-
kostnað útgerðarinnar. Sjómannaafslátturinn hef-
ur minnkað að raungildi undanfarin ár vegna fækk-
unar sjómanna og er áætlað að hann nemi um 1,1
milljarði króna á næsta ári. Frá mínum bæjardyr-
um séð snýst málið um að flytja þennan kostnað frá
ríkissjóði með samkomlagi sjómanna og útgerðar-
manna í milli,“ sagði fjármálaráðherra á aðalfundi
LÍÚ.
liðka fyrir komandi kjarasamningum og alls sé ver-
ið að tala um kjararýrnun upp á 800–1.000 milljónir
kr. fyrir sjómenn á fiskiskipum.
Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ,
segir að það sé alveg ljóst að ef sjómannaafslátt-
urinn verði felldur niður muni útgerðin ekki taka
við og greiða aukin laun sem þeirri upphæð nemur.
Úreltur arfur
Geir H. Haarde fjármálaráðherra lýsti því yfir á
aðalfundi LÍÚ í haust að hann teldi tímabært að
huga að afnámi sjómannaafsláttarins. Sagði hann
að um væri að ræða hluta af kjörum sjómanna sem
eðlilegt væri að samningsaðilar kæmu sér saman
Sjómenn gagnrýna væntanlegt frumvarp um afnám sjómannaafsláttar
Útgerðin ætlar ekki að
taka á sig kostnaðinn
Liðkar ekki/6
HRÍMÞOKAN lá yfir öllu og myndaði sér-
kennilega stemmningu í vetrarstillunum við
Öskjuhlíð í gær. Víða var hálka og hiti rétt undir
tíu stiga frosti síðdegis. Annað kvöld er spáð
suðaustan kalda og dálítilli snjókomu vestantil,
að því er segir á heimasíðu Veðurstofunnar.
frostmarki. Í dag er spáð norðlægri átt og éljum,
einkum norðan- og austanlands. Með deginum
mun fara kólnandi og víða má búast við fimm til
Vetrarþoka í Öskjuhlíðinni
Morgunblaðið/Þorkell
MIKIL hrina rána á höfuðborgar-
svæðinu undanfarnar vikur og mán-
uði hefur vakið óhug meðal verslun-
areigenda og er nú hringt nær
daglega í Samtök verslunar og þjón-
ustu til að grennslast fyrir um nám-
skeiðin „Varnir gegn vágestum“.
Guðmundur Arason, fram-
kvæmdastjóri Securitas, segir fyrir-
tækið ráðleggja verslunum um þrjú
meginatriði. „Í fyrsta lagi að búa við
góðar varnir, í öðru lagi að hafa sem
minnst af verðmætum til að stela og í
þriðja lagi að ná myndum til að auð-
veldara sé að góma menn nái þeir
einhverjum verðmætum.“
Ránið í Bónus er langalvarlegasta
málið sem komið hefur upp til þessa,
en fólki hefur hingað til ekki verið
ógnað með skotvopnum.
Mikið spurt
um námskeið
í þjófavörnum
Mikil ásókn/10
AL Gore, fyrrver-
andi varaforseti
Bandaríkjanna,
lýsti í gær yfir
stuðningi við
Howard Dean í
forsetakosning-
unum sem fara
fram í Bandaríkj-
unum á næsta ári.
Stuðningur Gore,
sem var frambjóðandi demókrata í
síðustu forsetakosningum, er talinn
mikilvægur fyrir Dean og er hann nú
sagður afar líklegur til að tryggja sér
útnefningu sem frambjóðandi Demó-
krataflokksins í forsetakosningunum.
Stuðningsyfirlýsing Gores kom flest-
um í opna skjöldu, þó sennilega eng-
um meira en Joe Lieberman, sem
keppir við Dean um útnefninguna.
Lieberman var varaforsetaefni Gore í
kosningunum 2000.
Gore segist
styðja Dean
Framboð Deans/16
Al Gore
MINNA en helmingur íbúa Evrópu-
sambandsríkjanna telur nú jákvætt
að eiga aðild að ESB. Þetta kemur
fram í nýrri könnun Eurobarometer
en stuðningur við aðild hefur ekki
verið minni í ESB-ríkjunum í sex ár.
Rúmlega 16.000 manns tóku þátt í
könnuninni. Mælist stuðningur við
ESB-aðild nú 48% og hefur hrapað
um sex prósentustig frá því í sam-
bærilegri könnun í vor. 46% að-
spurðra sögðust telja að aðild að
ESB væri þeim persónulega til hags-
bóta en sl. vor voru 50% þeirrar
hyggju. Minna en helmingur er
hlynntur stækkun ESB til austurs.
Dregur úr
ánægju
með ESB
Brussel. AP.
♦ ♦ ♦