Morgunblaðið - 10.12.2003, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
AFNEMA AFSLÁTTINN
Forysta Sjómannasambandsins
lýsir mikilli óánægju með að fjár-
málaráðherra ætli að leggja fram
frumvarp um afnám sjómanna-
afsláttar. Var forystumönnum sam-
bandsins tjáð á fundi í fjármálaráðu-
neytinu í gær að frumvarpið yrði
lagt fram.
Howard Dean fær stuðning
Al Gore, fyrrverandi varaforseti
Bandaríkjanna, styður framboð
Howards Deans, fyrrverandi ríkis-
stjóra í Vermont, vegna útnefningar
Demókrataflokksins fyrir forseta-
kosningarnar í Bandaríkjunum á
næsta ári. Gore lýsti þessu yfir í gær
en hann var sjálfur frambjóðandi
demókrata í síðustu forsetakosn-
ingum. Yfirlýsingin styrkir mjög
stöðu Deans.
Tekin með 1,2 kg af hassi
Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli
handtók 24 ára konu með 1,2 kg. af
hassi í Leifsstöð sl. sunnudag. Í kjöl-
farið voru svo tveir karlmenn hand-
teknir í Leifsstöð á mánudag og hafa
þeir viðurkennt aðild sína að smygl-
inu.
Vilja fá lengri frest
Lögmenn tveggja af þremur olíu-
félögum segja frest þann sem Sam-
keppnisstofnun ætlar félögunum til
andmæla vegna skýrslu um meint
samráð of stuttan og ætlar a.m.k. Ol-
íufélagið að sækja um lengri frest.
Ætlar engu að breyta
Vladímír Pútín Rússlandsforseti
hefur engin áform um að breyta
stjórnarskrá landsins þannig að
hann geti setið á forsetastóli lengur
en ella. Pútín greindi frá þessu í gær
en margir hafa haft uppi getgátur
um að slíkar breytingar væru líkleg-
ar í kjölfar sigurs stuðningsmanna
Pútíns í þingkosningum í Rússlandi.
Útsvar hækkar í Kópavogi
Útsvar í Kópavogi verður hækkað
úr 12,7% í 12,94% á næsta ári sam-
kvæmt fjárhagsáætlun sveitarfé-
lagsins sem tekin var til fyrri um-
ræðu á fundi bæjarstjórnar í gær.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Þjónusta 33
Viðskipti 13/14 Viðhorf 34
Erlent 15/17 Minningar 35/39
Heima 18 Kirkjustarf 39
Höfuðborgin 19 Skák 43
Akureyri 20 Bréf 44
Suðurnes 21 Dagbók 46/47
Landið 22/23 Sport 48/51
Daglegt líf 24/25 Fólk 52/57
Listir 26/28 Bíó 54/57
Umræðan 29/34 Ljósvakamiðlar 58
Forystugrein 30 Veður 59
* * *
Kynningar – Morgunblaðinu í dag
fylgir auglýsingablað frá Vestfirska
forlaginu. Blaðinu er dreift á höfuð-
borgarsvæðinu.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, fréttastjóri guna@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is
Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport-
@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA hefur
ákveðið að leggja ekki fram frumvarp
um að atvinnulausir fái ekki greiddar
bætur fyrstu þrjá daga í atvinnuleysi.
Þá verða og gerðar breytingar á frum-
varpi um fiskvinnslustöðvar sem er til
umfjöllunar í þinginu í kjölfar sam-
komulags við fulltrúa samtaka fisk-
vinnslustöðva og fulltrúa á matvæla-
sviði Starfsgreinasambandsins. Mun
ráðherra leggja til við félagsmálanefnd
Alþingis að frumvarpinu verði breytt í
takt við það samkomulag.
Heildarendurskoðun
mikilvægari
„Ég hef ákveðið að leggja frum-
varpið ekki fram að sinni og ég gerði
grein fyrir því í ríkisstjórn í morgun
[gærmorgun]. Ég geri þetta vegna
þess að ég tel mikilvægt, eins og ég
hef áður lýst yfir, að við göngum nú til
heildarendurskoðunar á lögum um
Atvinnuleysistryggingarsjóð og
vinnumarkaðsaðgerðir og lögum
þessar aðgerðir okkar að breyttu
samfélagi og breyttu mynstri í at-
vinnuleysi,“ segir Árni Magnússon fé-
lagsmálaráðherra.
Árni bendir á að atvinnuleysi hafi
verið að þróast frá því að vera mikið
skammtímaatvinnuleysi yfir í að vera
í ríkara mæli langtímaatvinnuleysi og
atvinnuleysi á meðal ungs fólks og
það sé áhyggjuefni. „Verkalýðshreyf-
ingin hefur sagt að hún sé ekki tilbúin
til að koma að samningaborðinu nema
hætt verði við frumvarpið þannig að
ég hef eftir vandlega umhugsun, við-
ræður við samráðherra mína, forystu-
menn í verkalýðshreyfingunni og
launþegaráð Framsóknarflokksins
tekið þá ákvörðun að það sé mikil-
vægara að ganga til þessarar heildar-
endurskoðunar en að afgreiða þetta
mál eitt og sér. Þetta mál er eftir sem
áður í mínum höndum og við munum
taka það til umræðu eins og annað.“
Árni segir að í gær hafi einnig tek-
ist að ná samkomulagi við fulltrúa
samtaka fiskvinnslustöðva og fulltrúa
á matvælasviði Starfsgreinasam-
bandsins um að gera ákveðnar breyt-
ingar á frumvarpinu um fiskvinnslu-
stöðvarnar, sem sé til umfjöllunar í
þinginu. Samkvæmt núgildandi lög-
um greiði Atvinnuleysistryggingar-
sjóður hluta af launum fiskvinnslu-
fólks í allt að 60 daga á ári.
Samkomulag um 45 daga
„Í frumvarpinu var lagt til að þetta
yrðu 30 dagar en samkomulag er nú
um það að frumvarpinu verði breytt
þannig að dagarnir verði 45.“
Árni segir að í lögunum sé einnig
grein þar sem gert er ráð fyrir að fyr-
irtæki, sem fullnægja ákveðnum skil-
yrðum, eigi rétt á greiðslum úr sjóðn-
um fyrir hvern heilan vinnudag að
undanskildum tveimur fyrstu dögun-
um á ári hverju. Í frumvarpinu hafi
verið gert ráð fyrir að fyrstu dögun-
um yrði fjölgað úr tveimur í fjóra, tvo
á hvorum árshelmingi. Niðurstaðan í
samkomulaginu sem nú hefur náðst
sé að þetta verði þrír dagar einu sinni
á ári. „Um þessi mál er nú sátt og ég
mun leggja til við félagsmálanefnd að
hún breyti frumvarpinu með tilliti til
þessa samkomulags,“ segir Árni.
Hætt við skerðingu
atvinnuleysisbóta HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi í gær 24 ára karlmann,
Jens Hjartarson, í 7 ára fangelsi
fyrir morðtilraun og ítrekaðar sér-
lega hættulegar líkamsárásir.
Ákærði hefur setið í gæsluvarð-
haldi frá því í maí. Var hann einnig
dæmdur til að greiða fjórum mönn-
um, sem hann réðst á, samtals um
2,3 milljónir króna í bætur.
Ein árásin var framin í mars á
þessu ári en þá sló ákærði annan
mann hnefahöggi í höfuðið svo
hann féll í gólfið, sló hann síðan
margsinnis með báðum hnefum og
með bjórkönnu í höfuðið.
Að morgni 10. maí lagði hann
með hnífi til þriggja manna, svo af
hlutust skurðir á höndum og hand-
leggjum þeirra og fór slagæð í
sundur í einu tilviki. Síðan stakk
hann þann fjórða ofarlega í kviðinn
svo af hlaust 10 sentimetra langur
skurður rétt yfir lifrinni. Þá skall-
aði hann fimmta manninn, með
þeim afleiðingum að tennur brotn-
uðu og skar hann síðan á hálsinn
svo af hlaust um 15 sentimetra
langur og nokkuð djúpur skurður
ofan við viðbein hægra megin. Eft-
ir að ákærði var fluttur í fanga-
klefa beit hann lögregluþjón.
Tilefnislausar árásir ákærða
Fram kemur í dómi héraðsdóms,
að ákærði hafi gerst sekur um
grófar tilefnislausar líkamsárásir
sem til þess voru fallnar að valda
stórfelldu líkamstjóni. Tilefni árás-
anna voru samskipti fyrrverandi
unnustu ákærða við aðra, en í
dómnum segir að þau samskipti
hafi með engu móti getað gefið til-
efni til slíkrar geðshræringar að
skýrt geti athæfi ákærða. Þvert á
móti virðist aðdragandi beggja til-
vikanna bera merki um staðfastan
ásetning að valda líkamstjóni.
Þá virðist ákærði, þrátt fyrir ölv-
un og fíkniefnaneyslu, hafa áttað
sig á stað og stund og gert sér ljós-
an alvarleika árásanna.
Fram kemur í dómnum að
ákærði hafi samþykkt bótakröfur
og játað hluta sakar. Þá sé ekki
dregið í efa það sem fram kom hjá
honum um að hann hafi tekið sig á
eftir atburðina, stundi vinnu reglu-
lega í gæsluvistinni og sé í áfengis-
og vímuefnameðferð. Hins vegar
var ekki hægt að virða honum það
til refsilækkunar vegna alvarleika
árásanna.
Málið dæmdi Valtýr Sigurðsson
héraðsdómari. Verjandi ákærða
var Brynjar Níelsson hrl. Málið
sótti Sigríður J. Friðjónsdóttir
saksóknari hjá ríkissaksóknara.
7 ára fang-
elsi fyrir
morðtilraun
VIÐ Hlyngerði 12 í Reykjavík stendur hús sem flestir
höfuðborgarbúar kannast við, enda verður á því mikil
breyting þegar líður að jólum. Sigtryggur Helgason,
húsbóndi að Hlyngerði 12, er löngu orðinn þekktur fyrir
glæsilegar jólaskreytingar sínar. Sigtryggur segist vera
mikið jólabarn og hafa gaman af jólaskreytingum.
Ljósin komin á jólahúsið í Hlyngerði
Morgunblaðið/Ásdís
JÓN Kristjánsson, heilbrigðisráð-
herra, hefur bent fjármálaráðherra á
að erfitt sé að reka heilbrigðisstofn-
anir samkvæmt fjárlögum nema
breytingar verði gerðar á fram-
kvæmd kjarasamninga.
Jón segir að í sumar hafi hann
bent fjármálaráðherra á að það kerfi
kjarasamninga og aðlögunarsamn-
inga, sem farið væri eftir samkvæmt
lögum um samninga við opinbera
starfsmenn, reyndist forstöðumönn-
um stofnana mjög erfitt. Kerfið virk-
aði þannig að samninganefnd ríkis-
ins sæi um að gerðir væru miðlægir
kjarasamningar og fengju stofnanir
fjárveitingu vegna þeirra. Í kjölfarið
væru gerðir aðlögunarsamningar við
einstakar stéttir inni á spítölunum
sem ætti að hagræða fyrir og ættu
ekki að leiða til kostnaðarauka.
„Þetta hefur reynst mjög erfitt,“
segir Jón og vísar til þess að bæði
hafi verið erfitt að hagræða og mikið
álag sé á forráðamenn stofnananna
að standast þennan þrýsting.
Heilbrigðisráðherra segir að fjár-
málaráðuneytinu hafi verið gerð
grein fyrir þessari stöðu. „Við erum
ekki að tala um að lækka launin,“
segir Jón en áréttar að nauðsynlegt
sé að ræða hvernig málum skuli hag-
að í framtíðinni. Hann segir að fjár-
málaráðherra hafi hugleitt þessar
hugmyndir en ekki stokkið á þær.
Einar Oddur Kristjánsson, varafor-
maður fjárlaganefndar, hafi hins
vegar tekið eindregið undir þær.
Heilbrigðisráðherra um fjárlög
Vill breytingar á
kjarasamningum