Morgunblaðið - 10.12.2003, Síða 6

Morgunblaðið - 10.12.2003, Síða 6
FRÉTTIR 6 MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðinu í dag fylgir blað frá Bókaklúbbi Hemma Gunn og Vestfirska forlaginu FULLTRÚAR Starfsgreinasambands Íslands áttu fund í gærmorgun með fulltrúum Samtaka atvinnulífsins, þar sem rætt var hvort grundvöllur væri til áframhaldandi viðræðna á grundvelli fyr- irliggjandi kröfugerðar. Um miðjan dag í gær áttu svo fulltrúar Flóabandalagsfélaganna fund með fulltrúum SA. Óraunhæft að gera ráð fyrir samningum fyrir áramót Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, segir að samningaviðræður séu á frumstigi en ákveðið hafi verið að setja af stað vinnu við að fara yfir ákveðin atriði. Ari segist telja óraunhæft að ætla að samn- ingar náist fyrr en á nýju ári. Halldór Björnsson formaður starfsgreina- sambandsins, segir að viðbrögð SA við kröfugerð sambandsins sem lögð var fram í seinustu viku, hafi verið jákvæð. Samningaviðræðurnar eru enn á frumstigi en Halldór Björnsson gerir sér þó vonir um að skýr- ast muni fyrir áramót hvaða stefnu viðræðurnar taka. Rætt var á fundi SA og Starfsgreinasambands- ins um kröfur sambandsins um breytingar á launaflokkakerfinu. Að sögn Halldórs var ákveðið að setja á fót nefnd til að fara sérstaklega yfir það hvernig breytingar á launatöflunni kæmu út og hvaða leiðir væru færar. Þá var ákveðið að annar starfshópur færi yfir aðra efnisþætti. „Þetta er allt komið í fullan gang“ „Við byrjum núna í vikunni á að fara ofan í þessi taxtamál og efnisatriði samningsins að öðru leyti. Þetta er allt komið í fullan gang, hver svo sem nið- urstaðan verður,“ segir Halldór Björnsson. Forystumenn Samtaka atvinnulífsins og verkafólks ræða um nýja samninga Morgunblaðið/Þorkell Fulltrúar Flóabandalagsfélaganna og forsvarsmenn Samtaka atvinnulífsins hittust á samningafundi í húsnæði ríkissáttasemjara í gær. Fyrstu viðbrögð eru jákvæð FRIÐRIK J. Arngrímsson, fram- kvæmdastjóri LÍÚ, segir það al- veg ljóst og allir geri sér grein fyrir því að ef sjómannaafslátt- urinn verður felldur niður muni útgerðin ekki taka við og greiða aukin laun sem þeirri upphæð nemur. Friðrik segir að taka megi und- ir þau rök að þegar sjómanna- afslátturinn kom fyrst til sögunn- ar fyrir áratugum síðan hafi hann á þeim tíma verið niðurgreiðsla á kostnaði. Þá hafi sú staða verið uppi að erfitt var að manna ís- lenska flotann og margir útlend- ingar því á skipunum. Til að mæta þessu hafi verið ákveðið að taka afsláttinn upp til að koma til móts við kostnað sjómanna vegna hlífðarfatnaðar og fæð- ispeninga. „Aðstæður hafa gjör- breyst síðan þetta var og nú greiðir útgerðin bæði fæðispen- inga og hlífðarfatnað. Þessi rök eiga því ekki við í dag. Það hafa hins vegar einnig verið sett fram þau rök með sjómannaafslættin- um að sjómenn séu mikið fjarver- andi og nýti m.a. ekki samfélags- þjónustu með sama hætti og aðrir. Það eru vissulega rök en það er hins vegar alveg fráleitt að í þeim tilfellum skuli menn sem eru bara einhverja klukkutíma á sjó, t.d. þeir sem eru á hafnsögubátum og ferjum eða róa á dagróðrarbátum, njóta sjómannaafsláttar, svo ekki sé talað um beitningarmenn sem gera það líka. Það eru engin rök fyrir því að þetta fólk skuli njóta sjómannaafsláttar,“ segir hann. ,,Ef ríkið ætlar að fella niður sjómannaafsláttinn, þá er alveg ljóst að þar er um skattaafslátt til sjómanna að ræða, eins og felst í orðinu, en hann er ekki niður- greiðsla á útgerðarkostnaði.“ Framkvæmdastjóri LÍÚ um sjómannaafsláttinn Útgerðin mun ekki taka við og greiða kostnaðinn FORYSTA Sjómannasambands Ís- lands var boðuð á fund fjármálaráð- herra síðdegis í gær þar sem til- kynnt var að frumvarpið um afnám sjómannaafsláttarins yrði lagt fram í vikunni. Sævar Gunnarsson, formað- ur sambandsins, segir að tíðindin hafi í raun ekki komið sér svo veru- lega á óvart, miðað við yfirlýsingar ráðherrans á síðasta aðalfundi LÍÚ. Tímasetningin komi sér þó á óvart og lýsir Sævar yfir megnri óánægju með frumvarpið. Það komi ekki til með að liðka fyrir komandi samning- um sjómanna við útvegsmenn þar sem í heildina sé verið að tala um kjararýrnun upp á 800-1.000 millj- ónir króna fyrir sjómenn á fiskiskip- um innan LÍÚ. Ótaldir séu þá far- menn, hafnsögumenn, sjóliðar Landhelgisgæslunnar og Hafrann- sóknastofnunar og smábátasjómenn. Sjómenn sætta sig ekki við að þessi kjör verði skert ,,Mér finnst eins og að einn gang- inn enn sé verið að berja á puttana á okkur til að reyna að ljúka samning- um. Við sjómenn munum ekki sætta okkur við að þessi kjör okkar verði skert með einhliða valdboði. Það er klárt, og viðurkennt af fjármálaráð- herra, að afslátturinn hefur verið hluti af okkar kjörum og samning- um. Þess vegna vil ég sjá frumvarpið ná fram að ganga áður en ég fer að hafa stærri orð um hvernig ráðherra hyggst ljúka málinu,“ segir Sævar. Hann bendir á að sjómenn og út- vegsmenn hafi í tvö síðustu skipti ekki náð að ljúka sínum kjaradeilum með samningi. Frumvarpið auðveldi ekki samningavinnuna. Kröfur sjó- manna séu smámunir miðað við það sem fari burtu með afslættinum. Frumvarp um niðurfellingu sjómannaafsláttar Mun ekki liðka fyrir kjarasamningunum HNEFALEIKARINN Ari Ár- sælsson, sem fékk heilablæð- ingu í hnefaleikakeppni í Vest- mannaeyjum 29. nóvember, liggur enn á heila- og tauga- skurðlækningadeild Landspít- ala - háskólasjúkrahúss. Líðan hans er óbreytt og mun hann þurfa meiri tíma til að jafna sig á meiðslum sínum, samkvæmt upplýsingum frá spítalanum. Hnefaleik- ari enn á spítala SÉRA Sigríður Guðmarsdóttir telur að á sér hafi verið brotið þegar séra Sigurður Arnarson var ráðinn prestur í London og hefur vísað málinu til Jafnréttisnefndar þjóð- kirkjunnar. Í erindi sínu bendir Sigríður á að hún sé með lengri starfsreynslu og meiri menntun en Sigurður og að jafnréttislög hafi verið brotin með ráðningu Sigurðar. Jafnréttisnefnd þjóðkirkjunnar er skipuð af kirkjuráði og er úrskurð- araðili. Sigrún Óskarsdóttir, for- maður nefndarinnar, segir að hún hafi óskað eftir öllum gögnum varð- andi málið, en hafi fengið rökstuðn- ing hæfisnefndarinnar með erindi Sigríðar. Nefndin fari síðan yfir málið og meti á grundvelli jafnrétt- islaga og jafnréttisáætlunar kirkj- unnar. Komist nefndin að þeirri nið- urstöðu að brotið hafi verið á Sigríði verði sú umsögn send til hennar, sem meti síðan hvort hún fari áfram með málið til Jafnréttisráðs. Sigrún segir að vinnsla svona mála taki yfirleitt um þrjár til fjórar vikur. Ráðningu prests vísað til Jafnrétt- isnefndar RÍKISLÖGREGLUSTJÓRI hefur leyst frá störfum lögreglumennina tvo sem nýlega voru sakfelldir í Hér- aðsdómi Reykjavíkur af ákæru rík- issaksóknar fyrir tilefnislausar handtökur og rangar skýrslugjafir. Lögregluþjónarnir tveir voru leystir tímabundið frá störfum í apríl síðast- liðnum, en að fenginni niðurstöðu héraðsdóms, þar sem annar ákærðu var dæmdur í fimm mánaða fangelsi og hinn í tveggja, voru þeir leystir endanlega frá störfum. Lögreglumenn leystir frá störfum ♦ ♦ ♦ FREKAR erilsamt var í gærkvöld hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðis- ins. Tilkynnt var um eld í bifreið í Öskjuhlíð, skammt fyrir ofan veit- ingastaðinn Nauthól við Nauthóls- vík, um klukkan hálfátta. Tíu mín- útum síðar var kallað eftir aðstoð slökkviliðs í Espigerði 8 þar sem pottur hafði gleymst á heitri eldavél. Enginn eldur hafði myndast en þeim mun meiri reykur og var íbúðin reykræst. Vatnstjón Þá varð talsvert vatnstjón á Laugavegi 58, þar sem gleymst hafði að loka fyrir heitt vatn. Loks var kallað á slökkviliðið í hjólbarðaverk- stæðið Barðann en þar reyndist um bilaðan brunaboða að ræða. Erilsamt hjá Slökkvi- liðinu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.