Morgunblaðið - 10.12.2003, Síða 10
FRÉTTIR
10 MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness úrskurðaði í gær
tvo 19 ára pilta í gæsluvarðhald til 23. desember
vegna vopnaðs ráns í verslun Bónuss að Smiðju-
vegi í Kópavogi í fyrrakvöld. Piltarnir hafa játað á
sig ránið og heldur rannsókn málsins áfram hjá
lögreglunni í Kópavogi.
Ránið í Bónus er fyrsta ránið í hinni gríðarlegu
ránshrinu á þessu ári, þar sem saklausu fólki er
ógnað með skotvopnum, en hingað til hafa hnífar
einkum komið við sögu. Jafnframt er þetta fyrsta
málið þar sem lögregla krefst gæsluvarðhalds yfir
hinum grunuðu. Alls hefur lögreglan í Kópavogi
nú þrjú ránsmál til rannsóknar og er málið í fyrra-
kvöld hið langalvarlegasta.
Hinir grunuðu eru báðir 19 ára gamlir og voru
handteknir á flóttabíl sínum við Hafravatn um
klukkan 20:30 í fyrrakvöld. Að sögn Friðriks
Gunnarssonar yfirlögregluþjóns í Kópavogi er
m.a. til rannsóknar hvort afsöguðu haglabyss-
urnar sem drengirnir ógnuðu fólki með, hafi verið
hlaðnar. Haglaskot fundust í bílnum hjá þeim og
sýndu þeir ekki mótþróa við handtökuna.
Samkvæmt upplýsingum Friðriks voru fjórir
starfsmenn við störf þegar ránið var framið, tveir
piltar og tvær stúlkur. Þremur þeirra var haldið í
gíslingu á meðan ein stúlknanna var neydd til að
afhenda peninga.
„Það verður ekki framhjá því litið að ránstilvik-
um hefur fjölgað undanfarið og hafa komið upp
nokkuð oft þetta árið,“ segir Friðrik. Ekki er vitað
hvort haglabyssurnar voru hlaðnar við ránið en sá
þáttur sætir rannsókn sem fyrr segir.
Lögreglan hafði hendur í hári drengjanna að-
eins hálfri klukkustund eftir ránið og segir Friðrik
lögreglutilkynningu yfir allt höfuðborgarsvæðið
og víðar hafa skipt miklu um það. Gefin var lýsing
á bíl og hinum grunuðu, þótt lýsingin á bílnum
sjálfum hafi verið óljós. Lögreglumenn sem voru á
ferðinni við Hafravatnsveg höfðu afskipti af
drengjunum.
Alvarlegasta málið í ránshrinu sem á sér ekki fordæmi hérlendis
Í tveggja vikna gæsluvarð-
hald fyrir ránið í Bónus
Morgunblaðið/Júlíus
Þessi skotvopn voru notuð við ránið í Bónus og
eru nú í vörslu lögreglunnar. Um er að ræða af-
sagaðar haglabyssur. Byssurnar eru afsagaðar
til að þær séu meðfærilegari, en auk þess eru
þær mun hættulegri vopn eftir breytingarnar.
SYSTURNAR ungu, Kristín Sóley og Elisabeth Katr-
ín Mason, horfðu hugfangnar á glæsileg og kræsileg
piparkökuhúsin sem kepptu í piparkökuhúsakeppni
Kötlu í Kringlunni í gær. Móðir þeirra Erna Jóns-
dóttir var þeim til halds og trausts og hún gætir þess
að þær bursti tennurnar vandlega fram að jólum og
yfir hátíðirnar sem og endranær. Því þótt sælgæti,
kökur og kruðerí séu góð á bragðið er ekkert grín
að fá þá þaulsætnu gesti Karíus og Baktus í munn-
inn.
Morgunblaðið/Ómar
Kræsilegar nýbyggingar
HIN mikla hrina rána á höfuð-
borgarsvæðinu á undanförnum
vikum og mánuðum hefur haft
það í för með sér að nær daglega
er nú hringt í SVÞ, Samtök
verslunar og þjónustu, til að
komast á námskeið sem kallast
Varnir gegn vágestum. Fyrir fá-
einum dögum gerðu SVÞ samn-
ing við öryggisgæslufyrirtækið
Securitas um að annast fræðslu á
námskeiðunum fyrir verslunar-
fólk.
Að sögn Emils B. Karlssonar
hjá SVÞ taka samtökin mjög al-
varlega öll ránin sem framin hafa
verið á árinu. „Okkur þykir þetta
auðvitað mjög alvarlegt og sjáum
að þróunin hérlendis er svipuð og
annars staðar,“ segir Emil.
„Ránin eru að verða alvarlegri og
virðast vera framin með æ skipu-
lagðari hætti. Þetta er stöðugt í
umræðu innan okkar samtaka og
beinskeyttasta ráðið sem við höf-
um gripið til er verkefnið Varnir
gegn vágestum, sem rekið er í
samstarfi við lögregluna í
Reykjavík. Verkefnið er unnið að
skandinavískri fyrirmynd, en það
hefur verið reynt í Svíþjóð og
Noregi. Þar hefur það sýnt sig að
rán og hnupl hafa minnkað veru-
lega hjá þeim verslunum sem
hafa farið í gegnum námskeiðið.
Um er að ræða þríþætt nám-
skeið, þar sem fjallað er um
nauðsynlegan öryggisbúnað og
þess gætt að aldrei sé mikið af
peningum í afgreiðslukössum. Þá
er fræðsla fyrir alla starfsmenn
sem gerir þá miklu hæfari en ella
í að taka á málum og þekkja þá
úr sem ætla sér eitthvað illt. Þá
er haldin ránsæfing og farið í
gegnum öryggi á hverjum vinnu-
stað. Að lokum kannar lögreglan
þekkingu fólks og búnað og vott-
ar viðkomandi verslun ef allt er í
lagi.“
Hefur reynst vel
Búið er að votta um 50 versl-
anir, en Bónusbúðirnar eru ekki
þeirra á meðal, enda hefur fyr-
irtækið sína eigin öryggisdeild að
sögn Emils.
„Varnir gegn vágestum hafa
reynst mjög vel og við höfum
dæmi um verslanir hlið við hlið
sem voru rændar sinn daginn
hvor. Í annarri þeirra var stolið
10 þúsund krónum en í hinni 100
þúsund. Starfsfólk fyrrnefndu
verslunarinnar hafði tekið nám-
skeiðið Varnir gegn vágestum.“
Margir vilja komast á
þjófavarnanámskeið
ÍSLANDSBANKI hefur sent
erindi til Samkeppnisstofnunar
vegna meintra ólögmætra við-
skiptahátta Landsbanka Ís-
lands. Tilefni kærunnar eru
auglýsingar Landsbankans
sem birtar hafa verið undan-
farið undir fyrirsögninni „Besti
netbankinn á Íslandi 2003.“
Í erindi Íslandsbanka segir
meðal annars. „Í auglýsingun-
um gefur Landsbankinn í skyn
að netþjónusta bankans hafi
verið valin betri en annarra
banka hér á landi. Svo er ekki.“
Íslandsbanki telur þannig að
um villandi auglýsingaefni sé
að ræða af hálfu Landsbank-
ans. Þá segir í erindinu að
Landsbankinn hafi einn ís-
lenskra banka sótt um þátt-
töku í vali tímaritsins Global
Finance, sem útnefndi net-
banka Landsbankans „Besta
netbankann á Íslandi.“
Ósk um að stöðva birtingu
Kristján Guðmundsson,
markaðsstjóri Landsbankans,
sagðist ekki vilja tjá sig um
málið, enda væri það í höndum
Samkeppnisstofnunar. „Mér
finnst ekki eðlilegt að tjá mig
efnislega um málið meðan það
er til afgreiðslu hjá Samkeppn-
isstofnun. Hins vegar treysti
ég stofnuninni vel til að úr-
skurða um þetta mál á sann-
gjarnan hátt,“ segir Kristján.
Anna Birna Halldórsdóttir,
forstöðumaður markaðsmála-
sviðs hjá Samkeppnisstofnun,
segir að erindið hafi verið sent
Landsbanka til umsagnar.
„Málsmeðferðarreglur okkar
gera okkur að senda þeim
þetta til umsagnar og bjóða
þeim að tjá sig og við fórum
þess á leit við Landsbankann
að birta ekki auglýsingarnar á
meðan á málsmeðferð stæði.
Auglýsandi verður að geta sýnt
fram á að fullyrðing standist, á
auðveldan hátt. Landsbankinn
vísar þarna til útnefningar
tímaritsins Global Finance og
þeir hafa tilkynnt að svar ber-
ist okkur í dag. Á föstudaginn
mun liggja fyrir niðurstaða í
málinu.“
Kæra
auglýs-
ingu
Lands-
banka
Íslandsbanki
HÁLFÞRÍTUGUR maður var
dæmdur í 14 mánaða fangelsi í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur í gær fyrir
fjölda þjófnaða, hylmingarbrot, ölv-
unarakstur og fíkniefnabrot. Þá var
hann sviptur ökurétti í 3½ ár.
Maðurinn játaði öll brotin sem
hann var ákærður fyrir en þjófnað-
arbrotin fjögur framdi hann öll í
október sem leið. Í einu þeirra stal
hann veski sem innihélt snyrtivörur,
greiðslukort og skilríki, samtals að
verðmæti 30.213 krónur. Sama dag
fór hann inn í bifreið við bensínaf-
greiðslustöð og stal dvd-spilara að
verðmæti 130.000 krónur. Á bíla-
stæði við aðra bensínafgreiðslustöð
braust hann inn í bíl og stal leður-
skólatösku sem innihélt skólabækur,
stílabækur, vasareikni, pennaveski
og tölvudisk, samtals að verðmæti
um 35.000 kr. Þriðja brotið af þessu
tagi framdi hann um miðjan október
er hann fór í heimildarleysi inn í bíl á
bifreiðastæði og stal geislaspilara að
verðmæti 29.900 kr.
Þá var hann ákærður fyrir tvö
hylmingarbrot í ár og í fyrra þar sem
hann tók við skartgripum, geislaspil-
urum og sjónauka sem honum mátti
vera ljóst að aflað hafði verið með
auðgunarbrotum. Ennfremur var
maðurinn sakfelldur fyrir þrjú um-
ferðarlagabrot, framin í mars, apríl
og maí, en í öllum tilvikum var um
ölvunarakstur að ræða. Í síðast-
nefnda tilfellinu ók hann utan í bif-
reiðar og grindverk og síðan á lög-
reglubifreið sem veitti honum
eftirför. Loks var maðurinn dæmdur
fyrir fíkniefnabrot í mars sl., en þá
var hann með í vörslu sinni 14,83 g af
hassi sem lögregla fann við leit í íbúð
í Reykjavík.
Til frádráttar fangelsisrefsing-
unni kemur gæsluvarðhald sem
maðurinn hefur setið í frá 16. októ-
ber sl.
Fékk 14 mánaða
fangelsisdóm
ELDUR kom upp í einbýlishúsi í
Bolungarvík um klukkan 4 aðfara-
nótt mánudags. Reykskynjari vakti
heimilisfólk í húsinu og tókst því
fljótlega að slökkva eldinn en þá var
talsverður reykur kominn í íbúðina.
Eldurinn virðist hafa komið upp í
ferðaútvarpstæki sem var tengt við
rafmagn í eldhúsi.
Slökkvilið Bolungarvíkur reyk-
ræsti íbúðina en nokkrar skemmdir
urðu af sóti og reyk. Þrennt var í
húsinu og segir lögreglan í Bolung-
arvík ljóst að reykskynjarinn kom í
veg fyrir að ekki fór verr enda var
fólk í fastasvefni er eldurinn kom
upp.
Reykskynjari
bjargaði í
Bolungarvík
ELDUR kom upp í mannlausri íbúð í
Hrafnhólum í Breiðholtií gær.
Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins
var gert aðvart um eldinn kl. 16:02
og slökkti eldinn, en áður hafði verið
reynt að ráða niðurlögum hans með
handslökkvitæki. Grunur er um
íkveikju en eldur kom upp í glugga-
tjöldum í eldhúsi íbúðarinnar. Eng-
an sakaði. Grunur lék á að börn væru
innandyra, en svo reyndist ekki vera.
Skemmdir af völdum reyks og
slökkvidufts voru talsverðar.
Grunur um
íkveikju í íbúð
♦ ♦ ♦