Morgunblaðið - 10.12.2003, Side 14
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
14 MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
KALDBAKUR hf. hefur undirritað
lánssamninga við tvo íslenska við-
skiptabanka, Kaupþing Búnaðar-
banka og Landsbanka Íslands, sem
fela í sér möguleika á lántöku félags-
ins fyrir allt að 10 milljarða króna.
Með lánssamningum þessum hefur
Kaldbakur hf. endurfjármagnað nú-
verandi núverandi lántökur hjá
bönkum og tryggt sér aðgang að
lánsfjármagni til frekari fjárfestinga.
Að sögn Eiríks S. Jóhannssonar,
framkvæmdastjóra Kaldbaks, veitir
lánsfjármögnunin þeim möguleika á
fjárfestingum fyrir allt að tíu millj-
arða króna. Eiríkur tekur fram að
ekki liggi fyrir að fjárfesta fyrir tíu
milljarða strax, heldur hafi félagið nú
möguleika á því.
Á þessu ári hefur Kaldbakur verið
umsvifamikill í kaupum og sölu á
hlutabréfamarkaði. Félagið hefur
selt eignarhluta sína í
Íslenskum aðalverk-
tökum hf., Bústólpa
ehf., Akva ehf., Fjár-
stoð ehf., Nýju kaffi-
brennslunni ehf., Sam-
kaupum hf., Lyfjum og
heilsu hf., Hafnar-
stræti 83-85 ehf. og
Hafnarstræti 87-89
ehf. Með þessu hefur
félagið losað eignir fyr-
ir um þrjá milljarða
króna.
Á sama tímabili hef-
ur Kaldbakur keypt
eignarhluti í Trygg-
ingamiðstöðinni hf.,
Síldarvinnslunni hf., Sjöfn hf. og Ís-
landsbanka hf.
Eigið fé Kaldbaks hefur aukist frá
ársbyrjun um liðlega þrjá milljarða
og nemur nú um 8,5
milljörðum króna. Ei-
ríkur segir að þessir
lánasamningar við
Kaupþing Búnaðar-
banka og Landsbanka
sýni að Kaldbakur njóti
trausts og að félagið sé
tilbúið í frekari fram-
kvæmdir.
Lánasamningurinn
við Kaupþing Búnaðar-
banka hljóðar upp á
fimm milljarða króna
sem og samningurinn
við Landsbanka Ís-
lands.
Í tilkynningu frá
Kaupþing Búnaðarbanka kemur
fram að samningurinn sé einn sá
stærsti sem íslenskt fyrirtæki hefur
gert við einn íslenskan banka.
Kaldbakur gengur frá 10
milljarða lánasamningum
Eiríkur S. Jóhannsson
SAMKOMULAG hefur náðst með
dómsátt milli dótturfyrirtækis Öss-
urar, Össur North America Inc., og
Freedom Innovations Inc. um öll
málaferli fyrirtækjanna fyrir ríkis-
og alríkisdómstólum í Bandaríkjun-
um. Báðir aðilar lýstu ánægju með
niðurstöðuna, sem er trúnaðarmál
en felur m.a. í sér ákvæði um not-
endaleyfi, að því er fram kemur í
sameiginlegri tilkynningu frá félög-
unum.
Í mars á þessu ári hóf Össur
North America, Inc. málsókn gegn
Freedom Innovations Inc., vegna
brots á fjórum einkaleyfum, sem
bundin eru einkarétti Össurar.
Málshöfðunin beinist gegn gervifó-
talínu Freedom. Töldu forsvars-
menn Össurar að gervifótalína
Freedom líkist of mikið framleiðslu
Össurar.
Í níu mánaða uppgjöri Össurar
kom fram að fyrstu níu mánuði árs-
ins var varið tæplega 1,3 milljónum
Bandaríkjadala til málsóknar vegna
brota á einkaleyfarétti Össurar og
til málsóknar vegna samningsbrota,
þar af var kostnaðurinn 745.000 dal-
ir á þriðja ársfjórðungi. Þar kom
einnig fram að gert væri ráð fyrir
verulegum málskostnaði á síðustu
þremur mánuðum ársins.
Hugverk vernduð áfram
Í fréttatilkynningu er haft eftir
Eyþóri Bender, forstjóra Ossur
North America, „Össur fagnar því
að niðurstaða hefur nú fengist í deil-
unni við Freedom Innovations
þannig að fyrirtækið geti nú haldið
áfram að fjárfesta af krafti í
vöruþróun í þágu allra stoðtækja-
notenda. Við höfum þá sérstöðu í
þessari atvinnugrein að við fjárfest-
um 8% af tekjum okkar í rannsókn-
um og þróun og við munum halda
áfram að vernda hugverk okkar og
standa vörð um þessa fjárfestingu
okkar.“
Richard Myers, rekstrarstjóri
Freedom Innovations, segir í frétta-
tilkynningu: „Við erum afar ánægð
með niðurstöðu sáttarinnar og við
fögnum því að Össur skyldi reiðubú-
inn að fallast á viðskiptalega úr-
lausn á deilumáli okkar sem báðir
aðilar geta sætt sig við. Við teljum
að þessi niðurstaða sé báðum fyr-
irtækjum hagstæð og enn hagstæð-
ara er fyrir stoðtækjaiðnaðinn sjálf-
an að þessi málaferli skuli nú að
baki,“ að því er fram kom í frétta-
tilkynningu frá fyrirtækjunum.
Össur og
Freedom
ná sam-
komulagi í
dómsmáli
AFL fjárfestingarfélag hefur
selt ríflega helming eignar-
hluta síns í Fjárfestingarfélag-
inu Atorku. Afl átti áður 11,9%
í Atorku en á nú 5,3%. Styrmir
Bragason, sem er fram-
kvæmdastjóri bæði Afls og
Atorku, segir að tilgangurinn
með viðskiptunum sé að draga
úr tengslum milli félaganna,
en auk eignar Afls í Atorku á
Atorka rúmlega 39% í Afli.
Kaupendur eru meðal ann-
arra innherjar í Atorku. Félög
sem tengjast eða eru í eigu
stjórnarmannanna Þorsteins
Vilhelmssonar, Magnúsar
Jónssonar og Sigfúsar Ingi-
mundarsonar, auk stjórnarfor-
mannsins Margeirs Péturs-
sonar, juku hluti sína í Atorku
við sölu Afls á hlutabréfum
sínum.
Afl selur
í Atorku
ÍSLENSK-ameríska verslunar-
félagið ehf. hefur keypt Kexsmiðj-
una Bakstur ehf. á Akureyri og
munu nýir eigendur taka við rekstr-
inum í byrjun næsta árs.
Egill Ágústsson, framkvæmda-
stjóri Íslensk-ameríska, segir að
fyrirtækið hafi rekið kexverksmiðj-
una Frón undanfarin ár og Kex-
smiðjan Bakstur fari vel saman við
þann rekstur. Frón sé í hörðu kexi
en Kexsmiðjan Bakstur í mýkri
bakstri sem hafi skemmri ending-
artíma. Framleiðslan skarist því
ekki og samlegðaráhrif felist meðal
annars í því að nýta markaðs- og
söludeildir Íslensk-ameríska fyrir
vörur Kexsmiðjunnar Baksturs.
Ætlunin sé hins vegar að hafa fram-
leiðsluna áfram á Akureyri í
óbreyttri mynd.
Egill segir aðspurður að saman-
lagt velti Frón og Kexsmiðjan um
450 milljónum króna á ári og þar af
sé Frón með stærri hlut, en kaup-
verðið segir hann að sé trúnaðarmál.
Hann segir að Íslensk-ameríska
hafi viljað styrkja starfsemi sína
með því að kaupa innlend fram-
leiðslufyrirtæki og hafa þannig jafn-
vægi á milli innfluttra vara og eigin
framleiðslu. Nú sé tæplega helming-
ur veltunnar innlend framleiðsla
undir eigin merkjum. Gert er ráð
fyrir að velta Íslensk-ameríska verði
um það bil 2,5 milljarðar króna á ári.
Íslensk-ameríska
kaupir Kexsmiðj-
una Bakstur
FJÁRFESTINGARFÉLAGIÐ
Straumur hf. hefur sótt um starfs-
leyfi sem fjárfestingarbanki.
Stjórn félagsins hefur boðað til
hluthafafundar í félaginu sem
verður haldinn þann 18. desember
2003 klukkan 11.00 að Grand Hót-
el.
Á fundinum verða greidd at-
kvæði um breytingar á samþykkt-
um félagsins. Meðal annars að
breyta nafni félagsins í Straumur
Fjárfestingarbanki hf. Breytingu á
tilgangi félagsins er felur í sér að
hann verður að veita fjármálaþjón-
ustu.
Breytingu á orðalagi og aukna
heimild til handa stjórn til að gefa
út nýtt hlutafé.
Bann við lánveitingu út á bréf
félagsins felld niður.
Lagt verður til að stjórnar-
mönnum verði fjölgað úr fjórum í
fimm og að undirskrift þriggja
stjórnarmanna bindi félagið í stað
tveggja áður.
Jafnframt verður kjörin ný
stjórn hjá Straumi.
Stærsti hluthafinn í Straumi er
Sjóvá-Almennar tryggingar með
21,729%, MK-44 ehf., sem er í eigu
Magnúsar Kristinssonar, á 9,64%,
Íslandsbanki er þriðji stærsti hlut-
hafinn með 9,373%, Lífeyrissjóður
verslunarmanna er með 6,583%,
Lífeyrissjóður sjómanna á 6,413%,
Lífeyrissjóðir Bankastræti 7 eiga
6,251% og Straumur á 4,461% í
sjálfum sér, samkvæmt hluthafa-
lista frá 4. desember sl.
Í stjórn Straums sitja; Ólafur B.
Thors, formaður, Kristinn Björns-
son, Kristín Guðmundsdóttir og
Andri Sveinsson.
Straumur boðar
hluthafafund
Verður fjárfest-
ingarbanki og
fjölgað í stjórn
KÖGUN hf. keypti í gær allt hlutafé
hugbúnaðarfyrirtækisins Hugar hf.
af EJS Group hf., en greint var frá
viðræðum um kaupin í síðasta mán-
uði. Viðmiðunarkaupverð er 499
milljónir króna, sem verður fjár-
magnað af eigin fé Kögunar og með
lántökum. Endanlegt verð getur
breyst við lokauppgjör milli kaup-
anda og seljanda sem fer fram innan
sex mánaða frá undirskrift kaup-
samnings. Velta Hugar árið 2003 er
áætluð 670 milljónir króna. Starfs-
menn eru 80. Helstu vörur fyrirtæk-
isins eru ÓpusAllt viðskiptahugbún-
aður, tímaskráningarkerfin
Bakvörður og Útvörður, verslunar-
kerfið Auður og ýmsar lausnir á sviði
vörustjórnunar auk þess sem fyrir-
tækið selur XAL og Axapta við-
skiptahugbúnað frá Microsoft Bus-
iness Solutions. Þá hefur fyrirtækið
m.a. annast hugbúnaðargerð fyrir
Lánasjóð íslenskra námsmanna
(LÍN). Meðal viðskiptavina Hugar
eru mörg af stærstu fyrirtækjum
landsins, að því er fram kemur í til-
kynningu.
Kaupin á Hug eru liður í þeirri
stefnu Kögunar að efla starfsemi
samstæðunnar á sviði hugbúnaðar-
lausna og upplýsingatækniþjónustu
við fyrirtæki og stofnanir.
Gengið frá kaupum á Hugi