Morgunblaðið - 10.12.2003, Blaðsíða 15
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2003 15
Glæsileg gjöf!
Súkkulaði-, krydd- og
piparkvarnir frá
WILLIAM BOUNDS
Borgartúni 28, símar 520 7901 og 520 7900
AÐ MINNSTA kosti sex manns
biðu bana og fjórtán særðust í
sprengjutilræði í miðborg Moskvu í
gærmorgun. Yfirvöld sögðu að
a.m.k. ein kona hefði verið að verki
og grunur léki á að hún hefði ætlað
að gera árás á þinghúsið í Moskvu.
Lögreglan fann höfuð konu sem
talið er að hafi sprengt sig í loft
upp á gangstétt við Mokhovaja-
stræti skammt frá Kreml.
Sprengja, sem ekki hafði sprungið,
fannst á líki annarrar konu á gang-
stéttinni.
„Tilræðismennirnir voru ef til
vill tveir,“ sagði Júrí Lúzhkov,
borgarstjóri Moskvu.
Rússneskir embættismenn sögðu
að talið væri að konan, sem
sprengdi sig í loft upp, hefði ætlað
að gera árás á byggingu dúmunnar,
neðri deildar rússneska þingsins.
Fréttastofan ITAR-TASS hafði eft-
ir ónafngreindum embættismanni
að lögreglan hefði leitað að konunni
frá því í júlí vegna gruns um að hún
væri viðriðin hryðjuverkastarf-
semi. Konan hefði verið í þjálfunar-
búðum skæruliða í Tétsníu.
Rússneskir fjölmiðlar sögðu að
tvær konur hefðu ávarpað vegfar-
anda og spurt: „hvar er dúman?“
Sprengingin varð skömmu síðar.
Lögreglan í Moskvu kvaðst vera
að leita að manni sem talið væri að
hefði tekið þátt í árásinni.
Ekki var ljóst í gær hvort Vla-
dímír Pútín, forseti Rússland, var í
Kreml þegar sprengingin varð.
Sjónvarpsstöðvar sendu út ávarp
sem forsetinn flutti í Kreml í tilefni
af tíu ára afmæli rússnesku stjórn-
arskrárinnar á föstudag og hann
sagði að Rússlandi stafaði enn
hætta af hryðjuverkamönnum. Pút-
ín talaði um ávinninginn af lýðræði
og markaðsbúskap og bætti við:
„Að öllu þessu beinast aðgerðir
glæpamanna, hryðjuverkamanna,
sem við berjumst nú við, til dæmis í
dag.“
Pútín hóf seinna stríðið í Tétsníu
1999 þegar hann var forsætisráð-
herra. Hernaðurinn naut mikils
stuðnings meðal rússneskra kjós-
enda og stuðlaði að því að Pútín var
kjörinn forseti ári síðar. Síðan hef-
ur dregið úr stuðningnum við hern-
aðinn og flestir ríkisfjölmiðlarnir
fjalla lítið um hann þótt nokkrar
mannréttindahreyfingar áætli að á
hverjum degi falli allt að fimm
rússneskir hermenn í Tétsníu.
Sprengingin í gær varð við hót-
elið Le Royal Meridian National en
engir gesta þess eða starfsmenn
biðu bana í tilræðinu. Embættis-
menn sögðu að á meðal þeirra fjór-
tán sem særðust væru nokkrir
námsmenn við ríkisháskóla
Moskvu. Fimm særðust alvarlega.
Sakar rússnesku leyniþjón-
ustuna um hryðjuverkin
Mikill öryggisviðbúnaður hefur
verið við National-hótelið, enda
gista þar margir stjórnmálamenn
og fleiri sem eiga erindi við rúss-
nesk stjórnvöld. Hinum megin við
götuna er inngangurinn að Rauða
torginu.
Útlagastjórn Aslans Maskha-
dovs, fyrrverandi forseta Tétsníu,
gaf út yfirlýsingu í gær þar sem
hún sakaði leyniþjónustu rúss-
neska hersins um að hafa skipulagt
hryðjuverkin í Rússlandi í áróðurs-
skyni. Hún sagði að leyniþjónustan
fengi stundum menn af tétsenskum
uppruna til að fremja hryðjuverk
og rússnesk yfirvöld kenndu síðan
tétsenskum aðskilnaðarsinnum um
þau. Tétsenska þjóðin og leiðtogar
hennar bæru „enga ábyrgð á
hræðilegum glæpum stjórnvalda í
Kreml“. „Við áréttum að við for-
dæmum hvers konar hryðjuverk.“
Hryðjuverk í
Moskvu kostar
sex manns lífið
Rússnesk yfirvöld telja að gera
hafi átt sprengjuárás á þinghúsið
Moskvu. AFP.
Reuters
Rússneska lögreglan notar fjarstýrðan róbóta til að kanna skjalatösku við National-hótelið í miðborg Moskvu eftir
sprengjutilræði í gærmorgun. Rússnesk stjórnvöld saka tétsenska aðskilnaðarsinna um hryðjuverkin í Rússlandi.
!
! # $
%
& "
' (
)
" #
YFIRMAÐUR innri endurskoð-
unar í framkvæmdastjórn Evrópu-
sambandsins, Jules Muis, segir að
þörf sé á breyttum starfsanda inn-
an framkvæmdastjórnarinnar. Í
viðtali við breska ríkisútvarpið,
BBC, segir Muis að starfsfólk
stjórnarinnar sé fyrst og fremst
metið eftir hæfileikanum til að
viðhalda ríkjandi ástandi.
Umbætur innan stjórnarinnar,
sagði Muis, verði fremur fyrir
slysni en að yfirlögðu ráði.
Fátítt er að Muis veiti viðtöl, en
hann ræddi við BBC í kjölfar
rannsóknar á umfangsmikilli fjár-
málaóreiðu í hagdeild fram-
kvæmdastjórnarinnar, Eurostat.
Í viðtalinu sagði Muis m.a. að
störf skriffinna í Brussel væru
metin eftir því hversu leiknir þeir
væru í að gára ekki vatnið og
styggja engan. Innan fram-
kvæmdastjórnarinnar ríkti „kurt-
eisisamsæri“ og erfitt að segja
sannleikann. Það væru því yfirleitt
uppljóstrarar sem helst kæmu á
breytingum. Fréttaskýrandi BBC
segir það ekki nýtt að fram-
kvæmdastjórn Evrópusambands-
ins sæti gagnrýni, en ekki sé ólík-
legt að gagnrýni frá yfirmanni
innri endurskoðunar stjórnarinnar
hafi meiri áhrif.
Umbótum komið
á fyrir slysni