Morgunblaðið - 10.12.2003, Blaðsíða 16
ERLENT
16 MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
AL Gore, fyrrum varaforseti Bandaríkjanna,
lýsti í gær yfir stuðningi við Howard Dean í
forsetakosningunum vestra á næsta ári.
Stuðningur Gore er talinn Dean mikilvægur
en hann berst nú fyrir því að verða útnefndur
frambjóðandi Demókrataflokksins í kosning-
unum næsta haust.
„Ég er stoltur af því að fá tækifæri til að
lýsa yfir því að ég styð Howard Dean til að
vera næsti forseti Bandaríkjanna,“ sagði Gore
á kosningafundi með Dean í New York. Sagði
hann að Howard Dean hefði einn þeirra sem
sækjast eftir útnefningu Demókrataflokksins
náð að kveikja þann áhuga í grasrót banda-
rískra stjórnmála sem nauðsynlegur væri til
að unnt reyndist að koma á breytingum í
Bandaríkjunum. „Við þurfum að endurskapa
Demókrataflokkinn, endurskapa Bandaríkin
og ná þeim aftur fyrir fólkið sem býr í þessu
landi,“ sagði Gore m.a. í ávarpi sínu.
Hann ræddi einnig framgöngu George
Bush forseta og stöðu mála í Írak og sagði
m.a: „Geta þjóðar okkar til að heyja stríðið
gegn hryðjuverkaógninni hefur minnkað
vegna þeirra hroðalegu mistaka sem Bush-
stjórninni urðu á með því að leiða okkur í
stríð í Írak.“
Howard Dean er fyrrverandi ríkisstjóri
Vermont, lítils ríkis í norðausturhluta Banda-
ríkjanna. Hann var lítt þekktur er hann hóf
baráttu fyrir því að verða útnefndur forseta-
frambjóðandi flokksins en nýtur nú mests
fylgis frambjóðenda demókrata ef marka má
skoðanakannanir.
Kosningabarátta Howards Deans þykir
hafa einkennst af mikilli hugkvæmni. Hefur
hann m.a. nýtt Netið með nýstárlegum hætti
sem margir vestra telja byltingarkenndan.
Gore er fyrsti þungavigtarmaðurinn innan
Demókrataflokksins sem opinberar afstöðu
sína til frambjóðendanna en þeir eru alls níu.
Sumir stjórnmálaskýrendur vestra sögðust
telja að líkur Deans á sigri í forkosningunum
hefðu aukist til mikilla muna og einhverjir
héldu því fram að keppninni væri í raun lokið.
Dean hefur andmælt kröftuglega árásinni á
Írak og var allt frá upphafi andvígur henni.
Þá hefur hann tekið upp nokkur gömul bar-
áttumál Gore sem einkum snúa að réttindum
launafólks í Bandaríkjunum.
Áfall fyrir Liebermann
Gore var í átta ár varaforseti Bills Clintons.
Gore var frambjóðandi Demókrataflokksins í
forsetakosningunum árið 2000 og tapaði þá
fyrir George Bush núverandi forseta. Svo
naumur var sigur Bush að vísa þurfti málinu
til Hæstaréttar. Gore íhugaði að fara fram á
ný gegn Bush á næsta ári en féll frá því í
fyrra.
Stuðningur Gore við Dean er talinn umtals-
vert áfall fyrir hina þá sem boðið hafa sig
fram í forkosningum Demókrataflokksins.
Einkum er yfirlýsing Gore talin áfall fyrir
Joseph Liebermann, sem var varaforseti
Gore í kosningunum árið 2000. „Þetta kom
mér gjörsamlega á óvart – mér barst engin
njósn af þessu,“ sagði Liebermann í sjón-
varpsviðtali í gær. „Ég frétti þetta í fjöl-
miðlum og það kom mér á óvart. En ég er
ákveðnari en nokkru sinni fyrr að halda
áfram baráttu fyrir því sem ég tel rétt fyrir
flokk minn og föðurland.“ Liebermann sagð-
ist ekki vilja ræða hollustu Als Gore en kvaðst
jafnan vera honum þakklátur fyrir að hafa
fengið tækifæri til að taka þátt í kosningabar-
áttu sem frambjóðandi til embættis varafor-
seta Bandaríkjanna.
Framboð Deans fær
byr undir báða vængi
Stuðningsyfirlýsing Als Gore þykir hafa aukið mjög sigurlíkur ríkis-
stjórans fyrrverandi í forkosningum demókrata í Bandaríkjunum
New York. AFP.
AP
Howard Dean, sem sækist eftir því að verða valinn forsetaefni demókrata, er læknir að mennt
og starfaði sem slíkur ásamt eiginkonu sinni, Judy, áður en hann hóf afskipti af stjórnmálum.
Hann sat á þingi Vermont á árunum 1982–1986, var kjörinn vararíkisstjóri 1986 og varð rík-
isstjóri 1991. Nú sækist hann eftir því að verða frambjóðandi Demókrataflokksins í forseta-
kosningunum vestra á næsta ári. Á myndinni ávarpar Dean stuðningsmenn sína í New York í
gær eftir að Al Gore, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, hafði lýst yfir stuðningi við hann.
RÍKISSTJÓRN Japans samþykkti í gær að
senda sveitir landhermanna til Íraks. Liðs-
aflanum er ætlað að sinna þar neyðaraðstoð.
Áætlunin er mjög um-
deild í Japan.
Gert er ráð fyrir að
600 hermenn verði
sendir til landsins. Ekki
liggur fyrir hvenær her-
mennirnir halda af stað.
Talsmaður Junichiro
Koizumi forsætisráð-
herra sagði að áætlunin
hefði verið samþykkt án
mótmæla á ríkisstjórn-
arfundi.
Koizumi sagði á fundi með fréttamönnum
að Japönum bæri skylda til að aðstoða
Bandaríkjamenn í Írak. „Japanar verða að
vera trúverðugir bandamenn Bandaríkj-
anna,“ sagði japanski forsætisráðherrann.
„Nú reynir á hugsjónir og staðfestu Japana.
Við erum ekki í þeirri stöðu að við getum
komist upp með að láta fjármuni af hendi
rakna og komist þannig hjá því að leggja
okkar af mörkum vegna þess að hættulegt
sé að halda til Íraks,“ bætti hann við.
Koizumi lagði ríka áherslu á að japönsku
hermönnunum væri ekki ætlað að taka þátt
í bardögum í Írak. „Þeir eru ekki á leið í
stríð og munu ekki beita valdi,“ sagði ráð-
herrann.
Hann bætti við að hann teldi sjálfsvörn
ekki jafngilda valdbeitingu. Kom fram í máli
hans að enn væri ekki ákveðið hvenær liðs-
aflinn yrði sendur til landsins. Það myndi þó
gerast innan árs frá 15. þessa mánaðar og
hámarksfjöldinn yrði 600 menn.
Sökuð um stjórnarskrárbrot
Nokkur fjöldi fólks mótmælti þessari
ákvörðun nærri embættisbústað Koizumis.
Sögðu andstæðingar stjórnarinnar að með
því að senda herlið til Íraks væru stjórnvöld
að brjóta gegn stjórnarskrá Japans sem
takmarkar mjög umsvif herafla Japana utan
heimalandsins. Nokkrir mótmælendur báru
skilti þar sem á stóð að Koizumi og banda-
menn hans væru „stríðsglæpamenn“.
Kyodo-fréttastofan kvaðst í gær hafa
heimildir fyrir því að 100 milljörðum jena,
andvirði tæplega 70 milljarða króna, yrði
varið til mannúðaraðstoðar í Írak.
Japanar hafa þegar orðið fyrir mannfalli í
Írak. Tveir japanskir sendifulltrúar voru
myrtir þar í liðnum mánuði.
Japanar hafa áður sent liðsafla til er-
lendra ríkja til að sinna þar mannúðarhjálp
og uppbyggingarstörfum. Á það m.a. við um
Kambódíu, Gólan-hæðir og Mósambík. Þá
hafa japanskir hermenn komið að eyðingu
tundurdufla á Persaflóa og aðstoðað Banda-
ríkjaflota á Indlandshafi. Þetta er hins veg-
ar í fyrsta skiptið sem Japanar senda her-
afla til lands þar sem segja má að
raunverulegt stríðsástand sé ríkjandi.
Japanar
senda
hermenn
til Íraks
Bagdad. Tókýó. AFP.
Junichiro Koizumi