Morgunblaðið - 10.12.2003, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 10.12.2003, Blaðsíða 19
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2003 19 Glæsileg gjöf! Pottar - hraðsuðupottar - pönnur frá Borgartúni 28, símar 520 7901 og 520 7900 Nú bjóðum við síðustu sætin í sólina 13. janúar í eina, 2 eða 3 vikur til Kanaríeyja á hreint ótrúlegu verði. Beint flug til Kanarí og þú getur notið 25 stiga hiti á Kanarí í janúar, og hér er auðvelt að njóta lífsins við frábærar aðstæður. Spennandi kynnisferðir í boði á meðan á dvölinni stendur og að sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann. Síðustu sætin Skógarhlíð 18, sími 595 1000 www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Verð kr. 56.150 Verð fyrir mann, m.v. 2 í íbúð, gisting, skattar. Flug, gisting, skattar, Beach Flor. Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800. Kanarí 13. janúar frá 39.963 Verð kr. 42.362 Verð fyrir manninn, m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára., flug, gisting og skattar, Beach Flor. Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800. Bókunargjald kr. 2.000. Kópavogur | Gunnar Birgisson, for- maður bæjarráðs Kópavogs, segir fjárhagslega burði bæjarfélagsins til að standa undir framkvæmdum næsta árs góða. Einn mælikvarði á það sé að skoða svokallað veltufé frá rekstri. Sú upphæð sýni hvers Kópavogsbær sé megnugur og nemi samkvæmt fjárhagsáætlun næsta árs tæpum 1,7 milljörðum króna. Það er þó nokkru betri útkoma en í ár. Gunnar segir veltufé frá rekstri í Kópavogi 18% af skatttekjum en sambærileg tala sé samkvæmt fjár- hagsáætlunum nágrannasveitar- félaganna 10% í Reykjavík, 13% í Garðabæ og 9% í Hafnarfirði. Fjárhagsáætlum Kópavogsbæjar fyrir árið 2004 var lögð fram í bæj- arstjórn í gær til fyrri umræðu. Þar kemur fram að heildartekjur aukast um tæp 10% og nema 9,4 milljörðum króna. Þar af eru skatttekjur 7,1 milljarður. Kostnaður við rekstur málaflokka hækkar um 10% og nem- ur 7,8 milljörðum. Laun og launa- tengd gjöld eru 51% af útgjöldum bæjarsjóðs en 45% af útgjöldum bæjarins og fyrirtækja í hans eigu. Skuldir óbreyttar Gunnar segir að skuldir Kópa- vogsbæjar standi nánast í stað milli ára og nemi nú 13 milljörðum króna. Séu nettóskuldir bæjarins skoðaðar án lífeyrisskuldbindinga taki tæp sex ár að greiða þær niður með veltufé frá rekstri, sem sé góð nið- urstaða. Aðspurður segir hann út- svarið hækka úr 12,7% í 12,94% og skilar það bænum um 108 milljónum í auknu skattfé. Gunnar segir það gert til að sporna gegn skuldasöfn- un án þess að minnka þjónustu við bæjarbúa. Gífurleg uppbygging eigi sér stað á næsta ári á mörgum svið- um. Stærsti framkvæmdaliður Kópa- vogsbæjar á næsta ári er gatnagerð í nýjum hverfum, aðallega á Vatns- endasvæðinu. Gunnar segir áætlað að 714 milljónir króna fari í upp- byggingu gatna og göngustíga. Þá verði Hjallaskóli stækkaður og upp- bygging Salaskóla haldi áfram. Í grunn- og leikskólana fari alls 307 milljónir króna. Ný sundlaug í Salahverfi Íþrótta- og æskulýðsmálin fá líka vænan skerf af útgjöldum bæjar- sjóðs. Gunnar segir að ný sundlaug komi í Salahverfi á næsta ári og haf- ist verði handa við gerð nýs íþrótta- húss. Þá verði ný félags- og búnings- aðstaða HK í Fossvogsdal tilbúin í byrjun júní. Í skipulagsmálum verður 122 milljónum varið í yfirbyggingu Kópavogsgjár til að styrkja miðbæ- inn sem eina heild. Byrjað verður á nýrri vatnsveitu í Vatnsendakrika og bakki við höfnina lengdur. Nýtt sambýli verður reist í Roðasölum fyrir heilabilaða og MS-sjúklinga. „Það verður gífurleg uppbygging í Kópavogi á næsta ári og við teljum rekstrarniðurstöðu bæjarsjóðs góða,“ segir Gunnar Birgisson og að áætlanir séu raunhæfar. T.d. sé gert ráð fyrir 10,5% launahækkun á næsta ári sem sé verulega meira en nágrannasveitarfélögin reikna með. Hann segir rekstur sveitarfélaga sí- fellt að verða erfiðari og gerð sé krafa um aukna þjónustu við bæj- arbúa, sem stjórnendur bæjarins reyni að koma til móts við eftir fremsta megni. Til að þurfa ekki að reka bæjarsjóð með halla eða hækka skuldir hafi útsvarið verið hækkað. Útsvar hækkar í Kópavogi á næsta ári úr 12,7% í 12,94% Mikil uppbygging verður í nýjum hverfum Morgunblaðið/Þorkell Íbúar Kópavogs greiða hærri skatta næsta ár samkvæmt fjárhagsáætlun. Laugarnes | Sigríði Schram, kennara í Laugarnesskóla, og nemendum hennar í 5. L var afhentur Ljósberinn í gær, viðurkenning fyrir gagnrýni á kynferðislega tengingu í auglýs- ingum. „Við ræddum um auglýsingar og áhrif þeirra. Í þeim tíma fjölluðu krakkarnir um auglýsingar sem þeim finnst blasa alls staðar við vegna kyn- ferðislegrar tilvísunar,“ sagði Sigríð- ur. Þetta hafi verið auglýsingar í sjónvarpi, á strætó, í blöðum og víðar. „Í framhaldi af þessu kom í ljós að þeim þótti þetta óþægilegt og hálf- partinn blygðuðust sín. Sérstaklega þar sem sumum þessum auglýs- ingum var beint að þeim.“ Skrifuðu auglýsanda bréf Þann 27. október sl. skrifuðu nem- endurnir í 5.L bréf til Sælgætisgerð- arinnar Freyju sem notaði berar kon- ur til að auglýsa Freyju draum. Einnig fékk auglýsingastofan sent bréf og Jón Jósep Snæbjörnsson (Jónsi í Svörtum fötum), sem leikur í auglýsingunni. „Okkur finnst naktar konur ekki tengjast sælgæti og skilj- um ekkert í sælgætisgerðinni að vera með svona auglýsingu. Einu sinni var í tísku að nota berar konur í auglýs- ingum en nú finnst okkur það vera virðingarleysi við stelpur og konur, þar á meðal stelpur í bekknum okkar, systur okkar, mæður og allar konur,“ sagði í yfirlýsingu frá krökkunum sem lesin var upp í tilefni af því að þeim var afhentur Ljósberinn. Sögðu þau söngvarann fyrirmynd margra krakka og mörg þeirra væru með plaköt af honum í herbergjum sínum. „Okkur finnst ekki viðeigandi að hann glápi á naktar konur í aug- lýsingu um sælgæti, sérstaklega af því að það eru börn sem horfa á þetta. Þá halda þau að það sé eðlilegt að dreyma um berar konur. Okkur finnst óþægilegt að horfa á svona auglýsingar,“ sögðu krakkarnir í 5. L. Þeim hefur ekki enn borist svar við athugasemdum sínum. Óþægindatilfinning Sigríður sagði að það hefði komið sér á óvart hvað þau höfðu sterkar skoðanir á þessu máli og hve sterkt þau tjáðu tjáðu sig um óþæginda- tilfinninguna sem gripi þau við að sjá auglýsingarnar. Hún segir að krakk- arnir hafi verið himinlifandi yfir að fá þessa viðurkenningu. Í fyrra var Guðrúnu Gunn- arsdóttur afhentur Ljósberinn úr hópi fjölmiðlafólks, m.a. fyrir að neita að tala við klámmyndaleikara, sem kom hingað til lands. Í gær rétti hún kyndilinn yfir til fulltrúa kennara og nemenda. Samstarfshópur nokkurra aðila veitir einstaklingum Ljósberann fyr- ir að styrkja heilbrigðan lífstíl barna og unglinga. Í umsögn hópsins segir að val á Ljósbera úr hópi kennara í ár sé gott dæmi um það sem kennari geti gert til að styrkja gagnrýna hugsun nemenda og leiða þá til að gagnrýna með formlegum hætti þar sem við á. Nemendurnir fengu við- urkenningu fyrir að fylgja eftir gagn- rýni sinni. Morgunblaðið/Þorkell Nemendur í 5. L í Laugarnesskóla tóku við Ljósberanum 2003. Hér tekur Íris Einarsdóttir á móti viðurkenningunni fyrir hönd bekkjarins en Sigríður Schram kennari tók við viðurkenningu úr hópi kennara. „Virðingarleysi við stelpur“ Ljósberar ársins 2003 gagnrýndu nekt í auglýsingum Reykjavík | Rekstur og viðhald umferð- arljósa í Reykjavík er áætlað að kosti borgarbúa um 28 milljónir á næsta ári. Það er þremur milljónum krónum meira en ráðgert er að reksturinn kosti í ár. Frá árinu 1998 hefur umferðarljósum í Reykjavík fjölgað um 13. Það ár voru 125 umferðarljós við gatnamót í borginni en í fyrra voru ljósin 138. Þá var líka starfs- mönnum Gatnamálastofu Reykjavíkur, sem annast ljósin, fjölgað úr tveimur í fimm. Áætlað er að kostnaður við uppsetn- ingu og viðhald umferðarmerkja verði 32 milljónir á næsta ári. Gatnalýsing kostar 230 milljónir, gatnahreinsun 145 milljónir og snjóhreinsun og hálkueyðing 100 milljónir króna. 138 umferðarljós í Reykjavík !"#         * +,  &      '  -../01221 Grafarvogur | Húsnæði Víkurskóla við Hamravík í Grafarvogi var vígt og formlega tekið í notkun á föstu- dag. Borgarstjóri Reykjavíkur, Þórólfur Árnason, tók bygginguna formlega í notkun. Fyrsta skóflu- stungan að Víkurskóla var tekin 3. apríl 2000, en skólinn tók til starfa haustið 2001. Teikningin af skól- anum var sú sem varð í þriðja sæti í tveggja þrepa samkeppni um ein- setinn grunnskóla í Engjahverfi nokkrum árum áður. Þetta var til- laga Sigurðar Gústafssonar arki- tekts og var hún löguð að fyrirhug- uðum nemendafölda Víkurskóla en þar er gert ráð fyrir skóla með 300- 350 nemendum í 1.-10. bekk. Í skól- anum eru 16 heimastofur í þremur húsum, en hvert skólastig hefur sitt eigið hús, sem stendur við svokall- aða skólagötu. Skólinn er hugsaður sem smækkuð mynd af samfélaginu þar sem gatan og rýmið milli húsanna tengja íbúana saman. Við götuna eru einnig tengingar við þá starfsemi sem þetta samfélag þarf á að halda, s.s. íþróttahús, tækni- turn, verkmenntahús, hátíðarsal, mötuneyti, bókasafn og fleira. Nemendur í Víkurskóla eru nú 220 í 1.-10. bekk og starfsmenn 32. Skólastjóri er Árný Inga Páls- dóttir. Morgunblaðið/Árni Torfason Nemendur Víkurskóla sungu af mikilli innlifun við vígslu skólans. Víkurskóli vígður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.