Morgunblaðið - 10.12.2003, Síða 27
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2003 27
ÓHÆTT er að segja að Felix
Bergsson sé þjóðkunnur fyrir vandað
barnaefni ýmisskonar og því er það
ekki undrunarefni að hann gefi út
barnabók. Ævintýrið um Augastein
er dálítið óvenjulega jólasaga sem
segir frá litlum dreng sem lendir á ör-
lagaríkan hátt í fangi Stekkjarstaurs
og í framhaldi af því uppi í helli hjá
jólasveinunum þrettán. Náttúruham-
farir setja strik í reikning jólaferða-
laga sveinanna og síðan gleyma þeir
sér allir vegna ástar á Augasteini litla
og enginn þeirra fer í sína árlegu ferð
til mannabyggða um jólin. Lífshásk-
inn er ekki langt undan en í sögulok
fáum við alveg nýja skýringu á því
hvers vegna jólasveinarnir færa börn-
um gjafir í skó úti í glugga.
Með sögunni af Augasteini gefur
Felix okkur nýja og skemmtilega sýn
á gömlu íslensku jólasveinana sem
þurfa að takast á við siðferðileg
vandamál þegar þeir sitja uppi með
krakkaskratta, sem þeir neyðast til að
sjá um og taka ábyrgð á. Samtöl
þeirra og samskipti eru kostuleg og
þeir eru breyskir, rétt eins og mann-
fólkið: Sumir huglausir og latir, aðrir
hugrakkir og duglegir. En allir læra
þeir eitthvað af reynslunni. Og þegar
Grýla og jólakötturinn
koma til sögunnar fær-
ist heldur betur spenna
í leikinn og er vel til
fundið að láta orðræðu
Grýlu vera með stór-
gerðu og líkt og hand-
skrifuðu letri, sem verð-
ur til þess að lesandinn
brýnir raustina. Eins
beitir Felix skemmti-
legum stíl hér og þar í
sögunni, þar sem hann
lætur orð ríma í miðri
prósafrásögn og gefur
það sérstakan takt í
lesturinn: „Þarna kom
hann arkandi, önugur
og þreyttur og skítugur og sveittur.“
(bls 19). „Þarna inni ægði nefnilega
öllu saman, bókum og myndum og
uppstoppuðum kindum.“ (bls 9).
Felix er meðvitaður um að börn
kunna vel að meta krassandi lýsingar
og því er hann blessunarlega ekki
með neinn tepruskap í orðavali. Hann
er til dæmis óhræddur við að segja að
„hellir Grýlu og Leppalúða sé ömur-
legt greni, þar sem skítafýla og trölla-
fýla og táfýla renna saman í eina risa-
skítafýlu.“ (bls 38).
Aftur á móti þótti mér ekki fara vel
á því þegar höfundur talaði stundum
beint til barnanna í fyrstu persónu,
því þá spratt fram sögumaður sem
truflaði innlifunina. Eflaust stafar
þetta af því að Felix skrifaði ævintýr-
ið um Augastein upphaflega sem leik-
rit fyrir börn í Bret-
landi. Og kannski er
sama ástæða að baki
löngum inngangi (eða
annarri sögu) áður en
hin eiginlega saga af
Augasteini hefst, en þar
segir frá Steini gamla
sem býr í útlöndum og
krumma sem til hans
kemur til að láta hann
segja sér jólasöguna frá
Íslandi. Að mínu viti
hefði alveg mátt sleppa
þessari sögu af Steini,
en hún hefur kannski
þjónað tilgangi fyrir
bresku börnin til að
tengja saman tvo heima. Sagan af
Augasteini litla stendur fyllilega fyrir
sínu, ein og sér, því þetta er yndisleg
saga, alveg mátuleg blanda af hryll-
ingi og fegurð. Felix er næmur á það
hvernig á að nálgast börn í gegnum
texta og skopskyn hans nýtur sín vel
þegar hann skapar persónur í bók.
Allt um vefjandi einlægni og kærleik-
ur gefa bókinni mikið gildi. Felix hef-
ur sprellifandi frásagnargáfu og von-
andi skrifar hann fleiri bækur í
framtíðinni.
Myndir Höllu Sólveigar Þorgeirs-
dóttur hafa yfir sér hlýlegan og gam-
aldags blæ sem gera bókina enn
skemmtilegri og hinn ríkjandi mó-
rauði tónn á vel við sauðalega svein-
ana.
Augasteinn í einum skó
Kristín Heiða Kristinsdóttir
BÆKUR
Börn
Felix Bergsson. 63. bls,
Myndir: Halla Sólveig Þorgeirsdóttir
Mál og menning 2003.
ÆVINTÝRIÐ UM AUGASTEIN
Felix Bergsson
LISTASAFN Árnesinga í Hvera-
gerði opnaði sl. sunnudag jólasýn-
ingu sem stendur til 4. janúar nk.
Auk þess að sýna verk í eigu safns-
ins eru til sýnis þrjú jólatré skreytt
af mismunandi aðilum. 6. bekkur
BES, Barnaskólanum Eyrarbakka
og Stokkseyri, skreytir eitt tré.
Bjarni Kristjánsson tréútskurð-
armaður og Guðrún Marinósdóttir
textílhönnuður skreyta sitt tréð
hvort auk þess að sýna nokkur
verk. Sif Ægisdóttir, gullsmiður og
dóttir Guðrúnar, sýnir einnig nokk-
ur verk.
Myndlistarfélag Árnesinga sýnir
27 verk eftir níu listamenn á
„Veggnum“ í forstofunni. Vegg-
urinn er hlaðinn verkum áhuga-
manna í myndlistarfélaginu og er
ætlunin að halda honum lifandi með
því að skipta út verkum nokkuð ört.
Þarna gefur að líta olíu-, vatnslita-
og pastelmyndir af öllum stærðum.
Allar myndir á „Veggnum“ eru til
sölu.
Morgunblaðið/Kári Jónsson
Frá jólasýningunni í Listasafni Árnesinga.
Jólatré barnanna
og listamannanna
Laugarvatni. Morgunblaðið.
Listaháskóli Íslands, Skipholti
1, kl. 12.30 Jóhann Breiðfjörð
hönnuður fjallar um skapandi
hugsun og hugarstarfsemi. Jóhann
starfaði í 5 ár sem hönnuður, hug-
myndasmiður og ráðgjafi hjá
danska leikfangafyrirtækinu
LEGO.
Hornið, Hafnarstræti, kl. 21
Listaveislan Skáldið sem dó &
skáldið sem lifir. Rúna K.
Tetzschner flyt-
ur ljóð sín og
Rúnars Kjart-
anssonar (1955–
1998). Einnig
koma fram El-
ísabet Jökuls-
dóttir og Einar
Már Guðmunds-
son. Gunnar
Randversson,
Kristrún Guð-
mundsdóttir, Benedikt Jóhann-
esson og Benedikt Lafleur lesa ljóð
sín og sögur. Jón Sigurðsson leikur
á píanó milli lestra. Yfir stendur
sýning Rúnu K. í minningu Þor-
geirs.
Næsti bar kl. 21 Gímaldin og Mar-
grét Lóa kynna nýútkominn geisla-
disk, Hljómorð. Margrét Lóa les
eigin ljóð á geisladiskinum við und-
irleik Gímaldins sem samið hefur
alla tónlistina. Einnig koma fram
Ásgerður Júníusdóttir, Didda, Eg-
ill Jóhannsson, Eyvindur P. Eiríks-
son, Kristian Guttesen, Mike Poll-
ock, Paul Lydon, Sigvarður Ari,
Sjón og Vilhjálmur Hjálmarsson.
Mál og menning, Laugavegi 18
kl. 17 Hannes Hólmsteinn Giss-
urarson les úr bók sinni Halldór.
Sýndar verða myndir eftir Pétur
Gaut Svavarsson.
Í DAG
Borgarleikhúsið kl. 10.30 Brot af
því besta. Dagskrá ætluð ungling-
um. Rithöfundar lesa úr bókum:
Sölvi Björn Sig-
urðsson og
Andri Snær
Magnason úr
bókum sínum.
Margrét Árna-
dóttir les úr
bókinni Brennd
lifandi, Embla
Ýr Bárudóttir
og Ingólfur R.
Björgvinsson
fjalla um teiknimyndasöguna Blóð-
regn – sögur úr Njálu í máli og
myndum.
Kl. 20.30 lesa rithöfundar úr bók-
um sínum. Hallgrímur Helgason,
Hlín Agnarsdóttir, Flosi Ólafsson,
Guðmundur Steingrímsson, Ævar
Örn Jósepsson og Sigurður Páls-
son. Inn á milli leika þeir Davíð Þór
Jónsson og Óskar Guðjónsson
djass af fingrum fram.
Dagskráin er í samvinnu Kringlu-
safns Borgarbókasafnsins, Borg-
arleikhússins og Kringlunnar.
Dagskráin fyrir unglinga verður
endurtekin á föstudagsmorgun kl.
10.30.
Hressingarskálinn við Austur-
stræti kl. 22 Havanasextett Tóm-
asar R. Einarssonar flytur lög af
nýlegum geisladiskiski hans, Ha-
vana, sem hann hljóðritaði í sam-
nefndri borg s.l. sumar. Íslenska
Havanabandið skipa auk bassaleik-
arans Tómasar básúnuleikarinn
Samúel J. Samúelsson, tromp-
etleikarinn Kjartan Hákonarson,
píanistinn Davíð Þór Jónsson,
trommuleikarinn Matthías M.D.
Hemstock og bongótrommuleik-
arinn Þórdís Claessen.
Listasetrið Kirkjuhvoli, Akranesi
kl. 20 Aðventukvöld við arineld.
Sex skagamenn lesa jólasögur að
eigin vali: Bragi Þórðarson, Elín
Sigurbjörnsdóttir, Guðjón Brjáns-
son, Hallbera Jóhannesdóttir, Ingi-
björg Pálmadóttir og Sveinn Krist-
insson.
Nemendur úr Tónlistaskólanum á
Akranesi flytja jólatónlist.
Á MORGUN
Sölvi Björn
Sigurðsson
Á ALÞJÓÐLEGA mannréttindadag-
inn, sem er í dag, heldur Íslandsdeild
Amnesty International tónleika kl.
20.30 í Neskirkju við Hagatorg. Tón-
leikar Amnesty International á
mannréttindadaginn eru orðnir fast-
ur liður á aðventunni og fólk sameinar
stuðning við mikilvægt málefni góðri
stund með fallegri tónlist. Í þetta sinn
munu KK (Kristján Kristjánsson),
finnski harmonikkuleikarinn Tatu
Kantomaa úr Rússibönunum og
Diddú, ásamt Önnu Guðnýju Guð-
mundsdóttur píanóleikara, sjá um
tónlistarflutninginn.
Miðaverð er 1.500 kr. Ágóðinn af
tónleikunum rennur óskiptur til
mannréttindastarfs Amnesty Int-
ernational. Forsala aðgöngumiða er í
verslun Skífunnar á Laugavegi 26,og
á skrifstofu Amnesty International í
Hafnarstræti 15.
Jólatónleikar Amnesty
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Anna Guðný Guðmundsdóttir og Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú.
Rúna K.
Tetzschner
Magnús Ólafsson
ljósmyndari
„Magnús var ljósmyndari Reykjavíkur
og hann veitti okkur fjölþættari sýn
á Reykjavík heldur en aðrir
ljósmyndarar.“
Inga Lára Baldvinsdóttir, Magnús Ólafsson og
framlag hans til íslenskrar ljósmyndunar, 2000.
„...grein Eiríks um ljósmyndarann
og heim hans heyrir til tíðinda
í íslenskri menningarrýni.
... Hann dregur saman ólíka
þræði tilvísana og kenninga,
undirbyggir hugmyndir sínar
jafnt á vísunum í Gröndal,
Barthes og Sontag, og
spinnur úr listavel skrifaðan
vef.“
Einar Falur Ingólfsson, Mbl.
„...tvímælalaust
einn merkasti þátttakandinn
í íslenskri ljósmyndasögu“
Einar Falur Ingólfsson, Mbl.
Yfir 100 myndir af gömlu Reykjavík
er að finna í bókinni ásamt vönduðum
greinum á íslensku og ensku eftir
Eirík Guðmundsson útvarpsmann
og Guðmund Ingólfsson ljósmyndara.
K
O
R
T
E
R