Morgunblaðið - 10.12.2003, Síða 39
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2003 39
KIRKJUSTARF
Hin langa þraut er liðin,
nú loksins hlaustu friðinn,
og allt er orðið rótt,
nú sæll er sigur unninn
og sólin björt upp runnin
á bak við dimma dauðans nótt.
(V. Briem.)
Elsku langamma. Ég þakka þér
fyrir árin sem við áttum saman.
GUÐNÝ ÓLAFÍA
EINARSDÓTTIR
✝ Guðný ÓlafíaEinarsdóttir
fæddist í Klapparkoti
í Miðneshreppi 20.
október 1917. Hún
andaðist á hjúkrun-
arheimilinu Garð-
vangi í Garði 29. nóv-
ember síðastliðinn og
var útför hennar
gerð frá Keflavíkur-
kirkju 9. desember.
Nú líður þér vel hjá afa
og englunum hjá Guði.
Þinn
Viktor Smári
Hafsteinsson.
Elsku langamma okk-
ar, með þessum orðum
langar okkur til þess að
kveðja þig.
Hjartkæra amma, far í friði
föðurlandið himneskt á
Þúsundfaldra þakka njóttu
þínum litlu vinum frá.
Vertu sæl um allar aldir
alvaldshendi falin ver,
Inn í landið unaðsbjarta
englar drottins fylgi þér.
Hvíl í friði.
Þín
Rúnar Ingi, Ólöf Edda og
Eðvarð Már Eðvarðsbörn.
Bústaðakirkja. Starf eldri borgara. Kl.
13–16.30. Handavinna, spilað, föndr-
að. Óvæntur gestur.Þeir sem óska eftir
að láta sækja sig fyrir samverustund-
irnar láti kirkjuverði vita í síma
553 8500.
Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10.
Léttur málsverður á eftir. Prestarnir
taka við fyrirbænum í síma 520 9700.
Grensáskirkja. Jólasamvera aldraðra
kl. 12.10. Helgistund, jólamatur, happ-
drætti o.fl. Aðgangseyrir 1.500 kr.
Hallgrímskirkja. Morgunmessa kl. 8.
Hugleiðing, altarisganga, léttur morg-
unverður. Opið hús fyrir foreldra ungra
barna kl. 10–12. Samverustund fyrir 6
ára kl. 14.30. Samverustund fyrir 7–9
ára kl. 15.30. Samverustund fyrir 10–
12 ára kl. 17. Tólf sporin – andlegt
ferðalag kl. 20.
Háteigskirkja. Bænaguðsþjónusta kl.
11. Súpa og brauð borið fram í Setrinu
kl. 12. Brids í Setrinu kl. 13–16. Kvöld-
bænir kl. 18.
Langholtskirkja. Kl. 12.10 Kyrrðar-
stund og bænagjörð með orgelleik og
sálmasöng. Kl. 12.30 Súpa og brauð
(kr. 300). Kl. 13–16 Opið hús eldri
borgara. Söngur, tekið í spil, upplestur,
föndur, spjall, kaffisopi o.fl. Allir eldri
borgarar velkomnir. Þeir sem ekki kom-
ast á eigin vegum geta hringt í kirkjuna
og óskað eftir því að verða sóttir. Sím-
inn er 520 1300.
Laugarneskirkja. Mömmumorgunn kl.
10 undir stjórn Aðalbjargar Helgadótt-
ur. Nýjar mömmur velkomnar með börn-
in sín. Gönguhópurinn Sólarmegin legg-
ur af stað frá kirkjudyrum kl. 10.30 alla
miðvikudagsmorgna. Kirkjuprakkarar
kl. 14.10, jólafundur. Starf fyrir 1.–4.
bekk. Umsjón Aðalheiður Helgadóttir,
hjónin Kristjana H. Þorgeirsdóttir Heið-
dal og Geir Brynjólfsson auk sr. Bjarna.
Neskirkja. Foreldramorgunn kl. 10–12.
Lýðheilsa fyrir alla. Þorgerður Ragnars-
dóttir framkvæmdastjóri Áfengis- og
vímuvarnaráðs fjallar um efnið.
Umsjón Elínborg Lárusdóttir. 7 ára starf
kl. 14.30. Sögur, söngur, leikir og fönd-
ur. Opið hús kl. 16. Kaffi og spjall.
Upplestur og umræður kl. 17. Umsjón
sr. Örn Bárður Jónsson. Fyrirbæna-
messa kl. 18. Prestur sr. Örn Bárður
Jónsson.
Seltjarnarneskirkja. Kyrrðarstund í há-
deginu kl. 12. Altarisganga. Léttur há-
degisverður eftir stundina. Allir vel-
komnir.
Fríkirkjan í Reykjavík. Í hádegi er fólki
boðið til bænastunda í kapellu safn-
aðarins á annarri hæð í safnaðarheim-
ilinu. Sérstök áhersla er lögð á bæn og
íhugun, en einnig flutt tónlist og textar
til íhugunar. Koma má bænarefnum á
framfæri áður en bænastund hefst.
Árbæjarkirkja. Kl. 12 kyrrðarstund í há-
deginu. Léttur málsverður í safnaðar-
heimilinu að stundinni lokinni. Kl. 13–
16 opið hús í safnaðarheimilinu. Þor-
valdur Halldórsson kemur í heimsókn
fyrsta miðvikudag hvers mánaðar.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund í dag kl.
12. Tónlist, altarisganga, fyrirbænir.
Léttur málsverður í safnaðarheimilinu
eftir stundina. Kirkjuprakkarar, starf fyr-
ir 7–9 ára börn, kl. 16.30. TTT-starf fyr-
ir 10–12 ára kl. 17.30. Æskulýðsstarf
á vegum KFUM&K og kirkjunnar kl. 20.
Grafarvogskirkja. Kyrrðarstund kl. 12.
Fyrirbænir og altarisganga. Boðið er
upp á léttan hádegisverð á vægu verði
að lokinni stundinni. Allir velkomnir.
KFUM fyrir drengi á aldrinum 9–12 ára
kl. 17.30–18.30.
Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar kl. 10.
TTT (10–12 ára) starf kl. 17. Tólf spora
námskeið kl. 20.
Lindakirkja í Kópavogi. Unglingadeild
KFUM og K í Lindasókn í safnaðarheim-
ilinu, Húsinu á sléttunni kl. 20. Allir
krakkar í 9. og 10. bekk velkomnir.
Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund í
dag kl. 18. Beðið fyrir sjúkum. Allir
hjartanlega velkomnir. Tekið á móti fyr-
irbænaefnum í kirkjunni í síma
567 0110. SELA eldri deild kl. 20–22.
Vídalínskirkja. Foreldramorgnar kl. 10–
12 með Nönnu Guðrúnu í Vídalíns-
kirkju.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung
börn og foreldra þeirra í Vonarhöfn,
safnaðarheimili Strandbergs, kl. 10–
12. Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12,
íhugun, orgelleikur, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur hádegisverður kl. 12.30 í
Ljósbroti Strandbergs.
Víðistaðakirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund í dag kl. 12. Góður kostur fyrir þá
sem vilja taka frá kyrrláta og helga
stund í erli dagsins til að öðlast ró í
huga og frið í hjarta. Hægt er að koma
fyrirbænaefnum til sóknarprests eða
kirkjuvarðar. Boðið er upp á súpu og
brauð í safnaðarheimilinu að kyrrðar-
stund lokinni. Opið hús fyrir eldri borg-
ara í dag kl. 13. Verið velkomin í viku-
legar samverur í safnaðarheimili
kirkjunnar í spil, spjall, góðar kaffiveit-
ingar og fleira.
Bessastaðasókn. Miðvikudagur er dag-
ur kirkjunnar í Haukshúsi. Foreldra-
morgnar eru frá kl. 10–12. Þar koma
saman foreldrar ungra barna á Álfta-
nesi með börnin og njóta þess að hitt-
ast og kynnast öðrum foreldrum sem
eru að fást við það sama, uppeldi og
umönnun ungra barna. Opið hús eldri
borgara er síðan frá kl. 13–16. Dag-
skráin verður fjölbreytt en umfram allt
eru þetta notalegar samverustundir í
hlýlegu umhverfi.
Þorlákskirkja. Barna- og foreldra-
morgnar í dag kl. 10–12.
Lágafellskirkja. AA-fundur kl. 20.30 í
Lágafellskirkju. Unnið í 12 sporunum.
Keflavíkurkirkja. Kirkjan opnuð kl. 12.
Kyrrðar- og fyrirbænastund í
kirkjunni kl. 12.10. Samverustund í
Kirkjulundi kl. 12.25 – súpa, salat og
brauð á vægu verði – allir aldurshópar.
Umsjón: Ólafur Oddur Jónsson (síðasta
skipti fyrir jól).
Myllubakkaskóli kemur til kirkju kl.
10.30 (1.–4. bekkur),
Kl. 11 (5.–7. bekkur) og kl. 11.30 (8.–
10. bekkur).
Æfing Barnakórs Keflavíkurkirkju kl.
16–17 og Kórs Keflavíkurkirkju frá 19–
22.30.
Stjórnandi: Hákon Leifsson.
Sauðárkrókskirkja. Kyrrðarstund kl.
21.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl.
17.30 TTT yngri og eldri saman, 9–12
ára krakkar í kirkjunni, komnir í jóla-
skap. Sr. Fjölnir Ásbjörnsson, Esther
Bergsdóttir og leiðtogarnir.
Kl. 20 opið hús í annarri viku aðventu,
hjá Æskulýðsfélagi Landakirkju og
KFUM&K í félagsheimili KFUM&K. Est-
her Bergsdóttir æskulýðsfulltrúi, sr.
Fjölnir Ásbjörnsson og leiðtogarnir.
Kl. 20 Sorgin og jólin. Fyrirlestur og um-
ræður um sorg og sorgarviðbrögð. Sr.
Halldór Reynisson prestur og fræðslu-
stjóri flytur erindi um sorgina og jóla-
tímann. Hann leiðir svo fyrirspurnir og
umræður. Allir eru velkomnir.
Um er að ræða samstarfsverkefni Fé-
lagsþjónustunnar, Heilbrigðisstofnunar
og Landakirkju. Hugsanlega verður
þetta kvöld upphafið á frekara sam-
starfi á þessum vettvangi hér í Eyjum.
Akureyrarkirkja. Mömmumorgunn kl.
10–12. Jólaföndur með börnunum.
Glerárkirkja. Hádegissamverur alla
miðvikudaga kl. 12. Opin fræðslukvöld
eru í kirkjunni á miðvikudagskvöldum
kl. 19.30. Léttur kvöldverður, fræðsla,
umræður og bænastund. Námskeiðið
er ókeypis. Allir velkomnir.
Hjálpræðisherinn, Akureyri. Kl. 20
Hjálparflokkur, allar konur velkomnar.
Kletturinn, kristið samfélag. Kl. 20.30
Bænahópar í heimahúsum. Upplýsing-
ar í síma 565 3987.
Kefas. Samverustund unga fólksins kl.
20.30. Samvera, lofgjörð, fræðsla og
lestur orðsins. Nánari upplýsingar á:
www.kefas.is.
Kristniboðssalurinn, Háaleitisbraut 58.
Samkoma í kvöld kl. 20.
„Undirbúningur hátíðar“ Lúk. 7.24–35.
Ræðumaður Kjartan Jónsson. Frásaga
um William Carey í umsjón Þorgils H.
Þorbergssonar.
Kaffiveitingar eftir samkomuna. Allir
hjartanlega velkomnir.
Safnaðarstarf
SAMVERA eldri borgara í Laug-
arneskirkju er alltaf uppörvandi og
skemmtileg. Nú er komið að jóla-
fundinum okkar og þá eru allir
eldri borgarar hverfisins hvattir til
að mæta og njóta, fimmtudaginn
11. desember kl. 14. Samkvæmt
venju fáum við höfund einnar jóla-
bókarinnar til að koma, og að þessu
sinni er það höfundur bókarinnar
Frægð og firnindi, Gísli Pálsson,
sem les úr verki sínu og greinir frá
tilurð bókarinnar. Bók hans fjallar
um Vilhjálm Stefánsson land-
könnuð og verður áhugavert að
heyra það sem Gísli hefur fram að
færa.
Þá mun flautukór frá Laugarnes-
skóla leika listir sínar undir stjórn
Sigríðar Ásu Sigurðardóttur, Torfi
Jónsson, fyrrv. rannsóknarlög-
reglumaður, mun flytja ljóð og
Gunnar Gunnarsson leikur á píanó.
Þjónustuhópur Laugarneskirkju
annast viðurgjörning í samvinnu
við kirkjuvörð, en Bjarni Karlsson
sóknarprestur fer með Guðs orð og
stýrir samkomunni.
Helgihald í Stóra-
Núpsprestakalli
á jólum 2003
Á JÓLANÓTT verður guðsþjónusta
í Stóra-Núpskirkju og hefst hún kl.
23.30.
Hátíðarguðsþjónusta verður í
Ólafsvallakirkju á jóladag kl 11.00.
Sunnudagskvöldið, milli jóla og
nýárs, hinn 28. desember verður
boðið til „stjörnuljósasunds“ í Nes-
laug, kl. 20.30. Það fer þannig fram
að synt er með stjörnuljós og hug-
anum leitt að þvíhvað það nú er að
vera ljós heimsins. Þetta verður
skemmtileg og innihaldsrík stund –
vatn og eldur, þú og stjörnuljósið.
Þeir sem ekki fara ofan í fá einnig
stjörnuljós. Frítt ofan í.
Á gamlársdag 2003 verður aftan-
söngur í Ólafsvallakirkju kl. 16.00.
Á nýársdag 2004 verður guðs-
þjónusta í Stóra-Núpskirkju kl.
14.00.
Ég vil hvetja sóknarbörnin til að
sinna helgihaldi á aðventu og um
jólin (sem fyrr) hvort sem er með
kirkjugöngu eða þá heima fyrir.
Megi þið eiga gleðiríka jólahátíð og
árið nýja verða okkur öllum bless-
unarríkt og bjart.
Fjárhagsaðstoð
fyrir jólin
EINS OG undanfarin ár mun
Hjálpræðisherinn leitast við að
aðstoða þá sem eru hjálpar þurfi
fyrir þessi jól. Til þess að geta orðið
öðrum að liði þarf Hjálpræðis-
herinn eins og endranær að reiða
sig á örlæti almennings. Jólapottur
okkar mun vera á Glerártorgi frá
12. desember, þar sem fólk getur
sett framlög sín. Þeir sem ætla að
sækja um styrk er bent á að hringja
mánudaginn 15. og þriðjudaginn
16. desember kl. 19 til 20 í síma
462-4406. Styrkir verða svo
afgreiddir fimmtudaginn 18.
desember milli klukkan 17 og 19.
Hjálpræðisherinn Hvannavöllum
10, Akureyri.
Jólafundur
eldri borgara
í Laugarnes-
kirkju
Morgunblaðið/Árni SæbergLaugarneskirkja.
Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er
sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disklingi þarf út-
prentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnu-
síma og heimasíma). Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda
þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn
einstakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar
skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17
dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er
hægt að senda örstutta kveðju. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki
stuttnefni undir greinunum.
sér. Þegar ég hugsa tilbaka er mér
tvennt efst í huga, söknuður og þakk-
læti. Ég mun sakna gleðinnar, hlát-
ursins og léttleikandi píanóleiksins.
Lögin hans Fúsa, söngleikjalög, jass
og dægurlög níunda áratugarins, allt
gat Gyða numið nánast samstundis og
spilað af fingrum fram. Hvílíkt tón-
eyra! Ég er þakklátur fyrir spila-
mennskuna, bæði fyrir að hafa notið
tónlistarflutnings hennar og líka að
hafa getað spilað með henni af og til.
Tónlist Gyðu endurspeglaði óbilandi
jákvæðni og hreina lífsgleði. Mættu
margir taka sér hana til fyrirmyndar.
Ragnar, Magga og Jón Ágúst:
Megi Guð gefa ykkur styrk á þessum
erfiðu tímum. Við getum huggað okk-
ur við það að Gyða lifði góðu lífi og
gerði okkur öll ríkari fyrir bragðið.
Nú er hún Gyða eflaust umkringd
góðum hópi, leikandi á hvíta flygilinn í
„Paradís“ á himnum.
Örn Almarsson.
Það er söknuður og tómleiki, Gyða
okkar er dáin. Það þykir kannski hár
aldur að vera 80 ára en það átti ekki
við Gyðu. Þessi yndislega, stórkost-
lega og stórmerkilega kona átti sér
engan líka. Við unnum saman í 30 ár,
vorum vinkonur sem aldrei neitt
skyggði á. Gyða var falleg kona, alltaf
brosandi og vel tilhöfð. Fyrst unnum
við saman í Rammagerðinni á Loft-
leiðum, þar var Gyða um helgar. Þótt
úti væri snarvitlaust veður mætti
Gyða alltaf, stundum varð hún að
ganga að heiman frá sér frá Miklu-
brautinni, en mín var sko komin fyrir
kl. 8. Hún stoppaði aldrei í vinnunni.
Ullina handlék hún eins og enginn
annar gat gert, þó vinnutíma lyki kl. 2
þá lét Gyða það ekki trufla sig ef eitt-
hvað var eftir að gera. Svona var
Gyða öll næstu 32 árin.
Við unnum saman síðustu tíu árin
daglega í Islandiu í Kringlunni og því-
lík fyrirmynd. Óstöðvandi lífsgleði, já-
kvæðni og dugnaður. Það er bara eitt
ár síðan Gyða hætti að vinna og samt
kom hún í sumar og hjálpaði mér við
verkefni sem enginn annar gat gert
eins og hún. Hún stóð mér alltaf við
hlið í gegnum súrt og sætt. Ég elskaði
Gyðu. Við Bjarni, Hanna og Svana
biðjum æðri mátt að vernda Gyðu.
Ragnari, Margréti, Magnúsi og
Jóni sendum við innilega samúðar-
kveðju.
Ásta Jóhannsdóttir.
Elsku Gyða mín, hvað það er erfitt
að trúa því að hún sé farin frá okkur.
Hún Gyða mín var alveg einstök.
Ég gleymi því aldrei þegar ég sá hana
fyrst, sitjandi á litlu kaffistofunni okk-
ar, borðandi vínarbrauð og skellihlæj-
andi. Ég kom heim og sagði fjölskyld-
unni minni frá því að í nýju vinnunni
minni væri svo krúttleg kona með
lagt hárið, bleikan varalit, bláan
augnskugga og bleiklakkaðar neglur.
Svona var hún alla tíð vel til höfð, fal-
leg kona sem bar af sér mikinn þokka.
Ég var fljótlega sett í ullardeildina til
Gyðu þar sem við unnum saman og ég
lærði að „klappa“ ullinni eins og Gyða
en ég komst þó aldrei með tærnar þar
sem Gyða hafði hælana, (svo ég noti
nú eitt af spakmælunum hennar).
Gyða var sérlega vandvirk og dugleg
kona sem vann jafnan með bros á vör.
Þegar mikið var að gera vann hún
eins og herforingi og þýddi ekki að
tala um að hún færi heim fyrr en hún
væri búin með sitt, frekar vann hún
langt fram yfir sinn vinnutíma og
gerði það með glöðu geði. Að vinnu-
deginum loknum klappaði hún svo að-
eins ullinni og sagði „það væri verra
ef það væri betra“ eða „skítt með hæl-
ana ef tærnar glansa“.
Við Gyða urðum strax miklar vin-
konur og unnum nánast öll okkar
verk í sameiningu. Á meðan við unn-
um sagði hún mér oft sögur af æsku
sinni og sokkabandsárunum. Gyða
talaði mikið um systur sína sem henni
þótti afskaplega vænt um og leit mjög
upp til. Hún sagði mér t.d. frá því að
systir hennar hefði verið ein af fyrstu
konunum á Íslandi til að taka bílpróf
og hafði Gyða mikla ánægju af að
keyra um með systur sinni. Hún sagði
mér frá litla húsinu sem pabbi hennar
smíðaði handa henni í garðinum þeg-
ar hún var lítil og frá því þegar hún
kynntist Ragnari þegar hún var á
sokkabandinu, hann þá í löggunni og
hún að vinna í Útvegsbankanum.
Margt fleira ræddum við og ég á svo
sannarlega eftir að sakna þess að
heyra hana segja mér hinar og þessar
sögur úr Drápuhlíðinni, Lönguhlíð-
inni og af Miklubrautinni.
Við Gyða hringdumst stundum á á
kvöldin og þá hlógum við og blöðr-
uðum út í eitt, svo þegar við vorum að
kveðjast þá sagði hún, jæja, kyss,
kyss, Lilja mín, en þannig kvöddumst
við oftast. Ég var einstaklega heppin
að fá að kynnast henni Gyðu, þessari
hlýju, góðu konu sem smitaði allt í
kringum sig með glaðværð sinni og ég
verð heppin ef ég kemst einhvern
tímann með tærnar nálægt því sem
hún hafði hælana.
Fjölskyldu Gyðu; Ragnari, Möggu,
Magnúsi, Jóni og öðrum aðstandend-
um, sendi ég mínar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Elsku Gyða, söknuður minn er
ólýsanlegur, að ég geti ekki knúsað
þig og faðmað er hreynt óhugsandi og
það er með miklum trega að ég kveð
þig í hinsta sinn og segi kyss kyss,
elsku vinkona, þín
Lilja.