Morgunblaðið - 10.12.2003, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 10.12.2003, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2003 47 DAGBÓK STJÖRNUSPÁ Frances Drake BOGMAÐUR Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Gættu þess að lofa ekki ein- hverju í vinnunni sem þú munt sjá eftir. Þér finnst þú eiga heiminn í dag og því er hætt við að þú færist of mikið í fang. Naut (20. apríl - 20. maí)  Það er erfitt að segja til um það hvort bjartsýni þín í fjár- málum sé raunsæ. Þér hættir þó til þess að ýkja hlutina í dag. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú munt eiga góðar samræð- ur við maka þinn í dag. Þú ert tilbúin/n að gefa mikið eftir til að ná samkomulagi þannig að hægt sé koma hlutunum í verk. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú hefur orku og kraft til að hella þér út í það sem þú ætlar að gera í dag. Jákvætt hug- arfar þitt laðar fólk til sam- starfs við þig. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú ert örlát/ur og tilfinn- ingarík/ur í eðli þínu. Mundu að þú þarft ekki að borga brúsann fyrir alla þótt þú sért ákveðin/n í að skemmta þér. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Leggðu þig fram um að skilja sjónarmið annarra í dag. Þú ert svo upptekinn af þínum eigin skoðunum að það er hætt við þú gleymir að spyrja aðra álits. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Bjartsýni og framtakssemi einkenna daginn. Þú færð góðar hugmyndir og vilt fram- kvæma þær í hvelli. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Láttu ekki vinn þinn telja þig á að eyða of miklum peningum í dag nema þú sért viss um að þig langi sjálfa/n til þess. Það er munur á örlæti og óþarfa eyðslusemi. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Gættu þín á hvers konar óhófi í dag. Það er hætt við að þú of- metir hlutina. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú gætir fengið metn- aðarfullar hugmyndir um ferðalög eða einhvers konar útgáfustarfsemi í dag. Hafðu í huga að það getur verið erfitt að greina á milli þess sem er raunhæft og óraunhæft í dag. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú munt njóta góðs af árangri einhvers annars í dag. Hafðu augun opin fyrir tækifærum og nýttu þér alla þá fyr- irgreiðslu sem þér býðst. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú hefur kjark til að ráðast í verkefni sem þú myndir ekki alla jafna leggja í. Ef þér mis- tekst geturðu huggað þig við það að þú hafir að minnsta kosti reynt. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Afmælisbörn dagsins: Þig þyrstir í lærdóm og skilning á tilgangi lífsins. Þú átt spennandi ár framundan sem mun einkennast af alls konar nýjungum. VIÐ HREINDÝRAVATN Úr garði fór eg ungur, en gamall kom eg heim, frá skóginum og vatninu og skóganna anda. Þó liðið sé að hausti, er hugur minn hjá þeim, í heimi sinna gömlu veiðilanda. Þar reisti eg mér kofa og riðaði mín net, í skóginum hjá vatninu, hjá vatninu djúpa. Eg hvíldi þar í grasi og gleymdi hvað eg hét, en gróðrarregnið fann eg á mig drjúpa. Og engan skortir forða, sem einn í kofa býr, í skóginum hjá vatninu, hjá vatninu blíða. Því í því synda fiskar, og úr því bergja dýr, sem eiga þarna griðland – milli stríða. – – – Davíð Stefánsson frá Fagraskógi LJÓÐABROT ÁRNAÐ HEILLA 70 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 10. desember, er sjötugur Snorri Friðriksson fv. skip- stjóri. Hann og eiginkona hans, Steinunn Húbertína Ár- sælsdóttir, eru að heiman á afmælisdagin 80 ÁRA afmæli. Sigríð-ur Ágústsdóttir: Kæru ættingjar og vinir. Í tilefni af 80 ára afmæli mínu 12. desember ætla ég að bjóða ykkur að þiggja veit- ingar í Húsi aldraðra við Lundargötu á milli 14 og 17. Hlakka til að sjá ykkur án blóma og gjafa. ATVINNUMENNIRNIR á HM í Monte Carlo hittust aftur í New Orleans í lok síðasta mánaðar til að taka þátt í bandarísku haustleik- unum. „Takk fyrir síðast,“ hljómaði þar um alla spila- sali. Suður gefur; enginn á hættu. Norður ♠ K10963 ♥ 8 ♦ G1076 ♣K73 Vestur Austur ♠ 872 ♠ 5 ♥ KD32 ♥ 109764 ♦ 32 ♦ ÁKD95 ♣DG82 ♣65 Suður ♠ ÁDG4 ♥ ÁG5 ♦ 84 ♣Á094 Að kveðjum loknum tekur alvaran við. Ítalirnir Vers- ace og Lauria spila í sveit George Jakobs og þeir unnu opnu sveitakeppnina, en urðu í þriðja sæti í Reis- ingerkeppninni. Hér eru þeir að glíma við bronssveit- ina í Monte Carlo með Bobby Wolff í broddi fylk- ingar. Vestur Norður Austur Suður Versace Morse Lauria Wolff -- -- -- 1 grand Pass 2 lauf * 2 tíglar 2 spaðar Pass 3 spaðar Pass 4 spaðar Pass Pass Pass Á hinu borðinu höfðu Jac- obs og Katz tekið tíu slagi í fjórum spöðum, en Wolff gerði einum betur. Út kom tígull og Lauria tók þar tvo slagi og spilaði smáum tígli í þriðja slag. Wolff trompaði með gosa, fór inn í borð á trompníu og stakk fjórða tígulinn með ás. Yfirdrap svo spaðadrottningu og tók síðasta tromp vesturs. Næst tók Wolff ÁK í laufi og svo síðustu trompin tvö. Vers- ace réð ekki við þann þrýst- ing með hjónin í hjarta og valdið í laufi. Ellefu slagir og 2-0 fyrir Úlfinn og félaga. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson 1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. b3 b6 4. Bd3 d6 5. O-O Bb7 6. He1 Rf6 7. Bb2 Be7 8. Bb5+ Bc6 9. c4 Bxb5 10. cxb5 e5 11. b4 cxb4 12. d4 exd4 13. Rxd4 O-O 14. Rf5 Rbd7 15. Dd4 Rc5 16. Rd2 Ra4 17. Dxb4 Rxb2 18. Dxb2 He8 19. Rd4 Rd7 20. Rc6 Dc7 21. Hac1 Rc5 22. Dc2 a6 23. a4 Bg5 24. Hcd1 axb5 25. axb5 Bxd2 26. Dxd2 Rxe4 27. Dd4 Rf6 28. g3 d5 29. Ha1 Hxa1 30. Hxa1 h5 31. Kg2 Dd7 32. Ha7 De6 33. Hb7 De2 34. Df4 d4 35. Rxd4 Dc4 36. Dc7 Dd5+ 37. Rf3 He2 38. Dc6 Df5 39. Dc4 He6 40. Dc8+ Kh7 41. Hxf7 Dd5 Það kemur oft fyr- ir skákmenn sem hafa listina að lifi- brauði að allt fari í handaskolum í síð- ustu umferð. Standa þá menn uppi slypp- ir og snauðir frá mótinu þó að allt hafi gengið að óskum fram að lokaumferð- inni. Hannes Hlífar Stefánsson (2567) SKÁK Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. lenti í þessu á alþjóðlegu móti í Dómíníska lýðveldinu þegar hann hafði svart í stöðunni gegn kúbverska stórmeistaranum Neuris Delgado (2530). Kúbverjinn eitraði þjarmaði hægt og sígandi að svörtum eftir mistök hans í ellefta leik og nú var orðið tímabært að láta þolinmæðina bera ávöxt. 42. Dxe6! Dxe6 43. Rg5+ Kg6 44. Hxg7+! Kxg7 45. Rxe6+ hvítur er nú tveimur sælum peðum yfir og með gjörunnið ridd- araendatafl. 45...Kf7 46. Rc7 Ke7 47. Ra8 Rd5 48. Kh3 Kd6 49. Kh4 Kc5 50. Kxh5 Kxb5 51. Kg6 og svartur gafst upp. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúð- kaup, ættarmót og fleira lesendum sín- um að kostn- aðarlausu. Tilkynn- ingar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyr- irvara fyrir sunnu- dagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmæl- istilkynningum og/ eða nafn ábyrgð- armanns og síma- númer. Fólk getur hringt í síma 569- 1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík Nú er kominn nóvember. Lauk ekki sumarfríinu þínu í ágúst? BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 30. ágúst sl. í Háteigskirkju af sr. Vigfúsi Árnasyni Berglind Magn- úsdóttir og Jónas R. Jónsson. Heimili þeirra er að Suð- urhólum 28, Reykja- vík. Hugskot, ljósmyndastofa Ólafur Guðmundsson sölustjóri, Sími 533 4040 • Fax 533 4041 TRAUST OG ÖRUGG ÞJÓNUSTA jöreign ehf Ármúla 21 • Reykjavík Netfang: kjoreign@kjoreign.is Heimasíða: www.kjoreign.is FRÓÐENGI - M/BÍLSKÝLI Góð 5 til 6 herb. íbúð á tveimur hæðum ásamt stæði í sameiginlegu bílskýli. Tvennar suðursvalir. Gott útsýni. Húsið stendur við lokaðan botnlanga. Stutt í sóla og flesta þjónustu. Áhv. 7,0 millj. Verð 15,7 millj. Nr. 3583 HAFNARFJÖRÐUR Fjarðargötu 11  595 9095 halldor@holl.is Ykkar maður í Hafnarfirði Halldór sími 897 3196 halldor@holl.is Hóll - tákn um traust í fasteignaviðskiptum Vantar allar gerðir eigna á skrá, seljum fljótt og örugglega. Halldór S.595 90 95 Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. - www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17:30. Uppl. veita Bárður 896 5221, Ingólfur, 896 5222 og Þórarinn, 899 1882 Klukkuberg Hf. - Falleg 2ja herb. m. sérinngangi og frábæru útsýni Laus strax Í einkasölu falleg nýleg 2ja herb. íb. á jarðhæð með sérinngangi á frábærum stað í Hafnarfirði. Parket, flísar, þvottaaðstaða á baði, afgirt suðvestur timburverönd o.fl. Laus strax. Áhv. húsbréf ca 5,6 m. Verð 9,5 m. FRÉTTIR HALDIN verður samverustund á aðventu í Grensáskirkju sem er sérstaklega ætluð þeim sem misst hafa ástvin og vilja staldra við á aðventunni. Samveran er öllum opin og fer fram á fimmtudaginn klukkan 20. Jólin geta verið erfiður tími fyr- ir fólk sem misst hefur ástvini vegna þess að það er svo margt sem getur minnt okkur á þá sem fallnir eru frá, margir siðir sem tengjast þessum árstíma sem tengdir eru við ákveðið fólk. Þess vegna er það tilvalið að staldra að- eins við og undirbúa sig fyrir þennan tíma, segir Ragnheiður Sverrisdóttir, verkefnisstjóri á Biskupsstofu. „Ég finn að þetta gerir rosalega mikið gagn,“ segir Ragnheiður. Viðbrögðin frá fólki hafa verið mjög góð, og þetta er í fimmta skiptið sem þessi samverustund er haldin. Á samverustundinni verða sungnir jólasálmar, hlýtt á hug- vekju og jólasagan sögð. Einnig verður höfð minningarstund þar sem kveikt er á kertum og beðið fyrir látnum ástvinum. Organisti kirkjunnar og fiðluleikari spila, auk þess sem söngvarar syngja þrísöng. Að þessari samveru standa Heimahlynning Krabbameinsfé- lags Íslands, Hjúkrunarþjónustan Karítas, Landspítali - háskóla- sjúkrahús, Grensáskirkja og Bisk- upsstofa. Samverustund fyrir þá sem misst hafa ástvin „Finn að þetta gerir rosalega mikið gagn“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.