Morgunblaðið - 10.12.2003, Qupperneq 49
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2003 49
FÓLK
JÓHANNES Karl Guðjónsson,
landsliðsmaður í knattspyrnu,
segist vera tilbúinn til að spila
hvar sem er á vellinum, svo
framarlega sem hann fái tæki-
færi í byrjunarliði Wolves í
ensku úrvalsdeildinni. Jóhannes
Karl hefur mátt víkja þegar
miðjumennirnir Colin Cameron,
Paul Ince og Alex Rae eru allir
heilir heilsu, og sat t.d. allan
tímann á bekknum þegar lið
hans mætti Tottenham um síð-
ustu helgi.
Jóhannes Karl lék hinsvegar
sem hægri bakvörður þegar
Wolves tapaði fyrir Arsenal í
deildabikarnum nokkrum dögum
áður.
„Ég hafði aðeins spilað þessa
stöðu einu sinni áður, í leik í
Hollandi fyrir nokkrum árum, en
er vanur því að verjast. Stjórinn
veit að ég get skilað þessu hlut-
verki svo það var ekkert vanda-
mál. Þetta var góð reynsla en ég
hefði eflaust getað verið sókn-
djarfari. Ég sagði stjóranum að
ég myndi gera mitt besta, og það
geri ég alltaf, sama hvar ég
spila,“ sagði Jóhannes við stað-
arblaðið Evening Mail í Birm-
ingham í gær.
Jóhannes Karl hefur leikið
átta af tólf deildarleikjum Wolv-
es síðan hann kom til félagsins í
láni frá Real Betis í lok ágúst,
fimm þeirra í byrjunarliði.
Jóhannes Karl vill
spila hvar sem er
Jóhannes Karl
MIKHAIL Ashvetia, sóknarmaður
Lokomotiv Moskva, segir að það geti
reynst sínu liði hættulegt að leika
stífan varnarleik gegn Arsenal þegar
liðin mætast á Highbury í Meist-
aradeild Evrópu í kvöld. Rússunum
dugar jafntefli til að komast í 16-liða
úrslit keppninnar.
„Ef við leggjumst í vörn er það
uppskriftin að tapi,“ segir Ashvetia,
sem mætir til leiks ásamt félögum
sínum frá Spáni en þar hefur rúss-
neska liðið dvalið um hríð. Rússnesku
deildakeppninni lauk fyrir fimm vik-
um og Lokomotiv hefur ekki spilað
leik frá því það vann Dynamo Kiev í
næstsíðustu umferð meistaradeild-
arinnar 25. nóvember.
Rússarnir óttast mest Thierry
Henry. „Henry er aðalmaðurinn,
sennilega besti knattspyrnumaður
heims um þessar mundir, en ef við
látum tvo menn gæta hans, mun það
gera okkur auðveldara fyrir,“ sagði
Jacob Lekgetho, varnarmaður Lo-
komotiv. Arsene Wenger, knatt-
spyrnustjóri Arsenal, segir að það sé
erfitt að átta sig á því hvaða áhrif
hvíldin hefur haft á leikmenn Loko-
motiv. „Þeir gætu mætt frískari til
leiks fyrir vikið, en eins getur það
haft slæm áhrif á þá að hafa ekki tek-
ið á í alvöru leikjum að undanförnu.“
Arsenal verður að sigra til að vera
öruggt með sæti í 16-liða úrslitunum.
Geri liðið jafntefli, verður það að
treysta á að sömu úrslit verði í leik
Dynamo Kiev og Inter.
Hættulegt að leggjast
í vörn á Highbury
NM 17 ára
seinkað
um ár
BREYTING hefur verið gerð
á hvar og hvenær Norð-
urlandamót knattspyrnu-
landsliða karla 17 ára og
yngri verða haldin næstu árin.
Þetta er gert að beiðni Finna
sem áttu að halda mótið á
næsta ári. Þeir hafa hins veg-
ar tekið að sér að halda úr-
slitakeppni EM kvenna 19 ára
og yngri næsta ár og báðust
því undan því að halda hitt
mótið líka. Færeyingar halda
því NM karla næsta ár, Finnar
árið 2005 og 2006 verður mót-
ið haldið hér á landi, ári síðar
en áður var gert ráð fyrir.
VIGGÓ Sigurðsson, þjálfari Íslands-
meistara Hauka í handknattleik,
hefur fengið góða sendingu frá Degi
Sigurðssyni, landsliðsfyrirliða og
þjálfara Bregenz í Austurríki. Breg-
enz lék gegn Créteil frá Frakklandi í
Evrópukeppni bikarhafa fyrir
skömmu og Dagur sendi Viggó
myndband með leikjum liðanna og
tveimur leikjum Créteil til viðbótar.
„Þetta var sannkallaður drauma-
pakki frá Degi sem ég fékk í hrað-
sendingu í gærkvöld. Þetta eru fjór-
ir leikir og Dagur er búinn að vinna
þetta vel og klippa niður þannig að
ég get skoðað einstök atriði í leik
Créteil á mjög þægilegan hátt. Þessi
sending frá Degi á eftir að koma
okkur mjög vel og ég mun grand-
skoða franska liðið áður en við höld-
um utan,“ sagði Viggó við Morg-
unblaðið í gær.
Haukarnir fara til Frakklands á
föstudaginn en leikur liðanna fer
fram í Créteil, úthverfi Parísar, á
sunnudag. Að sögn Viggós eru allir
leikmenn Hauka heilir og tilbúnir í
slaginn við Frakkana, svo fram-
arlega sem þeir sleppa í gegnum
FH-leikinn í kvöld.
Créteil vann báða leikina gegn
Bregenz, 24:22 í Austurríki og 19:16
í Frakklandi. Þar á undan unnu
Frakkarnir lið Sviesa-Savanoris Vil-
nius frá Litháen auðveldlega í tveim-
ur leikjum, 27:17 og 28:19, en þeir
fóru báðir fram á heimavelli Créteil.
FH-ingar þurfa aftur á móti nauð-synlega á stigi eða stigum að
halda til að eiga möguleika á að kom-
ast í úrvalsdeildina eftir áramótin.
Tapi þeir leiknum, er næsta víst að
þeir leika í 1. deildinni – nema þeir
vinni HK í lokaumferðinni og Stjarn-
an tapi stigi eða stigum gegn Breiða-
bliki.
Fyrir Hauka er óhagstætt að vinna
leikinn við FH. Þá fer Stjarnan
örugglega áfram en það þýðir að
Haukar færu í úrvalsdeildina með 5
stig, á eftir Stjörnunni sem kæmist
þangað með 6 stig.
Ef leikurinn endar með jafntefli
fara Haukar áfram með 6 stig, svo
framarlega sem FH tekst að vinna
HK í lokaleik sínum. Þá færi FH
áfram með 3 stig og staða Hauka í
upphafi úrvalsdeildarinnar væri
sterkari.
„Best að hringja í Tobba“
Viggó Sigurðsson, þjálfari Hauka,
sagði við Morgunblaðið að þetta væri
vissulega sérstök staða. „Ætli sé ekki
best að hringja í Tobba (Þorberg Að-
alsteinsson, þjálfara FH og fyrrum
félaga Viggós hjá Víkingi) og semja
um jafnteflið. Nei, við hugsum að
sjálfsögðu ekki þannig. Við viljum
FH-ingum ekkert illt í þeirra baráttu,
en við mætum í leikinn af fullum heil-
indum, enda væri annað ekki boðlegt
öðrum liðum. Við förum í þennan leik
af krafti, ætlum að vinna hann eins og
aðra leiki og það á ekki að skipta okk-
ur höfuðmáli hvort við förum með 5
eða 6 stig í þessa úrvalsdeild. Þar
blasir hvort eð er við okkur að við
þurfum að vinna ÍR-inga tvisvar og
gera vel gegn öðrum liðum til þess að
ná markmiðum okkar,“ sagði Viggó.
Hafnarfjarðarslagurinn hefst
klukkan 20 á Ásvöllum. Haukar unnu
fyrri leik liðanna sem fram fór í
Kaplakrika, 24:23.
Morgunblaðið/Ásdís
Viggó Sigurðsson, þjálfari Hauka, og Þorbergur Aðalsteinsson, þjálfari FH.
Haukar tapa á
því að sigra FH
Viggó fékk
drauma-
pakka
frá Degi
HAUKAR eru í þeirri ein-
kennilegu stöðu fyrir Hafn-
arfjarðarslaginn gegn FH í suð-
urriðli Íslandsmóts karla í
handknattleik sem fram fer á
Ásvöllum í kvöld að þeir tapa á
því að vinna leikinn. Jafntefli
yrði þeim góð búbót en tap yrði
líka óhagstætt.
WATFORD datt í lukkupottinn
með því að dragast gegn Chelsea í
3. umferð ensku bikarkeppninnar.
Liðin mætast á Vicarage Road í
Watford hinn 3. janúar og nú ligg-
ur fyrir að Watford fær 265 þús-
und pund, um 43 milljónir króna,
frá sjónvarpsstöðinni Sky vegna
beinnar útsendingar. Að auki er
öruggt að uppselt verður á leikinn
en Vicarage Road rúmar um 21
þúsund áhorfendur. Þetta er kær-
komið fyrir Watford sem hefur átt
í miklum fjárhagsörðugleikum.
Félagið tapaði um 1.300 millj.
króna á árinu 2002 en þá um
haustið forðuðu leikmennirnir því
frá því að lenda í fjárhagslegri
gjörgæslu með því að taka á sig 12
prósenta launalækkun.
Watford hagnast vel
ÞÝSKA sundkonan Franziska
van Almsick, heimsmethafi í 200
metra skriðsundi, hefur hætt við
keppni á Evrópumeistaramótinu í
25 metra laug sem hefst í Dublin
fimmtudaginn. Hún er lítillega
meidd og verður því ekki með, en
hún ætlaði að nota mótið til að búa
sig sem best undir Ólympíuleikana í
Aþenu næsta sumar, en það verður
líklega hennar síðasta mót þar sem
hún hyggst hætta keppni eftir það.
MIKLAR líkur eru á því að Ron-
aldinho, Brasilíumaðurinn snjalli,
geti leikið með Barcelona á ný um
næstu helgi þegar lið hans mætir
nágrönnum sínum, Espanyol, í
spænsku 1. deildinni. Ronaldinho
hefur verið frá keppni í fimm vikur
og Barcelona hefur ekki unnið leik
á meðan.
RONALDINHO reif vöðva í læri í
leik gegn Real Betis 9. nóvember og
hefur síðan verið frá æfingum og
keppni. Á heimasíðu Barcelona í
dag kom fram að hann væri orðinn
heill heilsu. Auk þess að missa af
öllum deildaleikjum á þessum tíma
gat Ronaldinho ekki leikið með
Brasilíu gegn Perú og Uruguay í
undankeppni HM í síðasta mánuði.
JÖRGEN Pettersson, landsliðs-
maður Svía í knattspyrnu, er á för-
um frá FC Köbenhavn í Danmörku.
Hann fer þó ekki langt, rétt yfir
Eyrarsundið og gengur þar til liðs
við Landskrona, lið Auðuns Helga-
sonar, sem leikur í sænsku úrvals-
deildinni. Pettersson, sem er 28 ára,
hefur áður leikið með Mönchen-
gladbach og Kaiserslautern í þýsku
1. deildinni, og hefur skorað 8 mörk
í 27 landsleikjum fyrir Svía.
ALEXANDER Walke, markvörð-
ur 20 ára landsliðs Þýskalands í
knattspyrnu, féll á lyfjaprófi sem
tekið var eftir leik Þjóðverja í
heimsmeistarakeppninni í þessum
aldursflokki sem nú stendur yfir í
Sameinuðu arabísku furstadæmun-
um. Alþjóða knattspyrnusamband-
ið, FIFA, tilkynnti þetta í gær og
jafnframt að í ljós hefði komið að
Walke hefði neytt eiturlyfsins
marijúana.
WALKE er fyrsti knattspyrnu-
maðurinn sem fellur á lyfjaprófi á
móti á vegum FIFA frá því Diego
Maradona varð uppvís að neyslu
alls konar örvandi lyfja á HM í
Bandaríkjunum árið 1994.
FIFA staðfesti í gær fyrri ákvörð-
un sína um að Fabian Barthez,
markvörður Manchester United,
fengi ekki að leika með Marseille í
Frakklandi fyrr en í janúar, en
hann er þar í láni frá enska félag-
inu. Marseille áfrýjaði úrskurði
FIFA í málinu sem lá fyrir 30. októ-
ber. Barthez hefur æft með Mars-
eille síðan í haust en hann fór til fé-
lagsins eftir 1. september og er þar
með ekki löglegur fyrr en um ára-
mót.