Morgunblaðið - 10.12.2003, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 10.12.2003, Blaðsíða 50
ÍÞRÓTTIR 50 MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ WILLIAM Dreher þjálfari og leikmaður úrvalsdeildarliðs Þórs frá Þorlákshöfn hefur samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins sagt upp störfum hjá félaginu. Liðið vann fyrstu tvo leiki sína í Int- ersportdeildinni en hefur nú tapað átta leikjum í röð. Að auki var samningi við Banda- ríkjamanninn Raymond Lee Robins rift og mun skarð hans verða fyllt með banda- rískum bakverði á næstunni. Bandaríkjamaðurinn Leon Brisport verður áfram í her- búðum liðsins en ekki er vitað hver verður þjálfari liðsins. Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því að framherjinn Svavar Birgisson muni leika með Tindastól á nýju ári en Gunnlaugur Erlendsson mun líklega ekki leika með Þór það sem eftir er leiktíðar. Svavar hefur leikið fjóra leiki með Þór Þ. og skorað að með- altali 18,5 stig. Svavar lék með Hamarsmönnum á síð- ustu leiktíð en hann var áður í liði Tindastóls. Ekki náðist í forsvarsmenn Þórs í gærkvöldi en næsti leikur liðsins er gegn granna- liðinu Hamar þann 18. desem- ber. Upplausnarástand hjá Þór Þorlákshöfn ÚRSLIT Halldór B. Jónsson formaðurmótanefndar KSÍ og Eyjólfur Sverrisson, þjálfari ungmennalands- liðsins, sáu um að draga í töfluröðina og sagði Halldór að keppni í Lands- bankadeildinni hæf- ist helgina 16.-18. maí og lokaum- ferðin yrði á dagskrá helgina 18. eða 19. september. FH-ingar, silfurliðið frá síðustu leiktíð, eiga strembið verkefni í fyrstu umferðunum. Þeir sækja KR- inga heim í fyrstu umferðinni og mæta Fylki í Árbænum í 2. umferð- inni. Fylkir tekur á móti KR í lokaumferðinni Í lokaumferðinni mætast risarnir Fylkir og KR í Árbænum og enn og aftur leiða ÍA og ÍBV saman hesta sína í síðustu umferðinni. Þau mætt- ust í 18. og síðustu umferðinni í haust og einnig árið 2001 í hreinum úrslita- leik í Eyjum þar sem leiknum lyktaði með 2:2 jafntefli sem dugði ÍA til sig- urs á mótinu. Í fyrstu umferð hjá körlum mæt- ast þessi lið: ÍA - Fylkir Grindavík - ÍBV Fram - Víkingur KA - Keflavík KR- FH 2. umferð: Fylkir - FH ÍA - Grindavík ÍBV - Fram Víkingur - KA Keflavík - KR 17. umferð: ÍBV - Fylkir Víkingur - ÍA Keflavík - Grindavík FH - Fram KR - KA 18. umferð: Fylkir - KR ÍA - ÍBV Grindavík - Víkingur Fram - Keflavík KA - FH „Ég var svona að vonast til að fá KR-ingana í heimsókn í fyrstu um- ferðinni en mér varð ekki að ósk minni og við mætum Fram í Laug- ardalnum. Það eru hörkuskemmti- legir leikir á dagskrá strax í fyrstu umferðinni eins og leikur KR og FH og ÍA og Fylkis,“ sagði Sigurður Jónsson, þjálfari nýliða Víkings, en hann var eini þjálfarinn úr efstu deild sem var viðstaddur dráttinn. „Hver einasti leikur hjá okkur í sumar verður upp á líf og dauða en að sjálfsögðu ætlum við að tolla í deild þeirra bestu. Það er auðvitað ómögulegt að spá um næsta sumar enda á margt eftir að breytast en ef ég ætti að tippa á þessum tímapunkti um hvaða lið koma til með að berjast um titilinn þá nefni ég KR, Fylki, FH og ÍA,“ sagði Sigurður. KR-konur hefja titilvörn gegn nýliðunum Hjá konunum hefja KR-ingar tit- ilvörn sína gegn nýliðum Fjölnis en átta lið skipa Landsbankadeild kvenna. 1. umferð: ÍBV - Breiðablik FH - Valur KR - Fjölnir Stjarnan - Þór/KS/KS 2. umferð: ÍBV - FH Valur - KR Fjölnir - Stjarnan Breiðablik - Þór/KA/KS 14. umferð: ÍBV - Valur FH - Fjölnir KR - Þór/KA/KS Breiðablik - Stjarnan Í 1. deild karla mætast þessi lið í 1. umferð: Valur - Þór, HK - Fjölnir, Haukar - Stjarnan, Njarðvík - Breiðablik, Völsungur - Þróttur R. Í lokaumferðinni eigast þessi lið við: Þór - Völsungur, Valur - Fjölnir, HK - Stjarnan, Haukar - Breiðablik, Njarðvík - Þróttur R. Í 2. deild karla mætast þessi lið í 1. umferðinni: Víðir - Afturelding, KFS - KS, Leiknir R. - ÍR, Tindastóll - Víkingur Ó., Selfoss - Leiftur/Dalvík. Dregið í töfluröð á Íslandsmótinu í knattspyrnu fyrir næsta sumar Titilvörn KR hefst gegn FH KR-ingar hefja titilvörnina á Íslandsmóti karla í knattspyrnu gegn FH-ingum á heimavelli sínum við Frostaskjól en dregið var í töfluröð á Íslandsmótinu í höfuðstöðvum Knattspyrnusambands Íslands í Laugardal í gær. Íslandsmeistararnir fá þar með gott tækifæri til að hefna ófaranna frá því í lokaumferð Landsbankadeildarinnar í haust en FH-ingar gjörsigruðu þá KR-inga í Kaplakrika, 7:0. Guðmundur Hilmarsson skrifar MAGNUS Andersson, fyrrverandi leikstjórnandi sænska landsliðsins í handknattleik, hefur tekið fram skóna um stundarsakir til að hjálpa liði Nordhorn í þýsku 1. deildinni. Hann lék með liðinu gegn Flens- burg í gærkvöldi og verður síðan með gegn Magdeburg á Þorláks- messu og Eisenach á annan í jólum. Andersson, sem er 37 ára, spilar hins vegar ekki þrjá aðra leiki Nordhorn á næstu dögum, tvo Evr- ópuleiki gegn Zeleznicar Nis frá Serbíu-Svartfjallalandi og deilda- leik gegn Gummersbach. Landi Anderssons og samherji í sænska landsliðinu um árabil, Ljubomir Vranjers, er frá vegna meiðsla næstu vikurnar og And- ersson á að bjarga málunum fyrir Nordhorn um stundarsakir. Andersson, sem varð tvisvar heimsmeistari og þrisvar Evr- ópumeistari með Svíum, hefur þjálfað Drott í Svíþjóð undanfarin tvö ár en hætti að spila sjálfur síð- asta vor. Hann stýrði liðinu af bekknum í Evrópuleikjunum tveim- ur gegn HK í síðasta mánuði. Ola Lindgren, annar félagi And- erssons úr sænska landsliðinu um langt árabil, er þjálfari Nordhorn og hann taldi Andersson á að koma og hjálpa sér. Sjálfur var Lindgren í búningi á varamannabekk Nordhorn í síðasta leik, án þess þó að skipta sjálfum sér inn á. Magnus Andersson með Nordhorn á ný um tíma HANDKNATTLEIKUR Íslandsmót karla, RE/MAX-deildin, suðurriðill: Ásgarður: Haukar - FH.............................20 KÖRFUKNATTLEIKUR Bikarkeppni Evrópu, B-riðill vesturdeildar: Keflavík: Keflavík - Toulon ..................19:15 Í KVÖLD KNATTSPYRNA Meistaradeild Evrópu E-RIÐILL: Manchester Utd - Stuttgart.....................2:0 Ruud van Nistelrooy 45., Ryan Giggs 58. - 67.141 Rangers - Panathinaikos .........................1:3 Michael Mols 28. - Raimondas Zutautas 32., Angelos Basinas 62., Michalis Konstant- inou 80. - 48.588. Lokastaðan: Man. Utd 6 5 0 1 13:2 15 Stuttgart 6 4 0 2 9:6 12 Panathinaikos 6 1 1 4 5:13 4 Rangers 6 1 1 4 4:10 4  Manchester United og Stuttgart í 16-liða úrslit, Panathinaikosí UEFA-bikarinn. F-RIÐILL: Partizan Belgrad - Marseille ..................1:1 Andrija Delibasic 79. - Ahmed Mido 61. - 35.000. Real Madrid - Porto..................................1:1 Santiago Solari 9. - Vanderlei Derlei (vítasp.) 34. - 25.000. Lokastaðan: Real Madrid 6 4 2 0 11:5 14 Porto 6 3 2 1 9:8 11 Marseille 6 1 1 4 9:11 4 Partizan 6 0 3 3 3:8 3  Real Madrid og Porto í 16-liða úrslit, Marseille í UEFA-bikarinn. G-RIÐILL: Besiktas - Chelsea ....................................0:2 Jimmy Floyd Hasselbaink 77., Wayne Bridge 85. - 55.350. Sparta Prag - Lazio..................................1:0 Marek Kincl 90. - 17.825. Lokastaðan: Chelsea 6 4 1 1 9:3 13 Sparta Prag 6 2 2 2 5:5 8 Besiktas 6 2 1 3 5:7 7 Lazio 6 1 2 3 6:10 5  Chelsea og Sparta Prag í 16-liða úrslit, Besiktas í UEFA-bikarinn. H-RIÐILL: AC Milan - Celta Vigo ..............................1:2 Ricardo Kaka 41. - Mora Nieto Jesuli 42., Saenz Jose Ignacio 71. - 36.207. Club Brugge - Ajax...................................2:1 Rune Lange 27., Bengt Sæternes 83. - Wesley Sonck (vítasp.) 41. - 28.041. Lokastaðan: AC Milan 6 3 1 2 4:3 10 Celta Vigo 6 2 3 1 7:6 9 Club Brugge 6 2 2 2 5:6 8 Ajax 6 2 0 4 6:7 6  AC Milan og Celta Vigo í 16-liða úrslit, Club Brugge í UEFA-bikarinn. Deildabikarkeppni KSÍ Dregið hefur verið í riðla í Deildabikar- keppni KSÍ og eru átta lið í hvorum riðli í efri deild karla. Liðin sem léku til úrslita í fyrra, ÍA og Keflavík, drógust saman í riðil. A-RIÐILL: Fylkir, Grindavík, Haukar, KA, KR, Njarðvík, Víkingur og Þór. B-RIÐILL: FH, Fram, ÍA, ÍBV, Keflavík, Stjarnan,Valur og Þróttur. NEÐRI DEILD Neðri deild karla skiptist í fjóra riðla. A-RIÐILL: BÍ, Fjölnir, Leiknir, Léttir, Sindri og Víðir. B-RIÐILL: Breiðablik, ÍR, KFS, Númi, Reynir Sandgerði og Selfoss. C-RIÐILL: Afturelding, HK, KS, Skalla- grímur, Vaskur og Víkingur Ólafsvík. D-RIÐILL: Fjarðarbyggð, Hetti, Leiftri/ Dalvík, Magna Tindastóli og Völsungi. KONUR Hjá konunum er skipt í efri og neðri deild. EFRI DEILD: Breiðablik, FH, ÍBV, KR, Stjarnan og Valur. NEÐRI DEILD: Fjölnir, Keflavík, Sindri, Tindastóll, Þór/KA/S og Þróttur. HM U20 í Sameinuðu fursta- dæmunum 16-liða úrslit: Brasilía - Slóvakía .....................................2:1 Paraguay - Spánn......................................0:1 Ástralía - Sameinuðu furstadæmin .........0:1 Írland - Kólumbía......................................2:3  Á föstudaginn mætast í 8-liða úrslitum: Kanada - Spánn og Kólumbía - Sameinuðu arabísku furstadæmin.  Sigurvegarar mætast í undanúrslitum. Bandaríkin - Argentína og Japan - Brasilía.  Sigurvegarar mætast í undanúrslitum. England 1. deild: Bradford - WBA........................................0:1 Cardiff - Preston .......................................2:2 Crystal Palace - Crewe.............................1:3 Sheffield United - Walsall ........................2:0 West Ham - Stoke City.............................0:1 Staða efstu liða: WBA 22 13 5 4 33:18 44 Sheff. Utd 22 12 4 6 35:24 40 Norwich 22 11 7 4 30:20 40 Ipswich 22 11 5 6 43:32 38 Reading 22 11 4 7 29:23 37 Cardiff 22 9 8 5 39:25 35 Sunderland 22 9 8 5 25:18 35 Wigan 22 9 8 5 29:23 35 West Ham 22 8 10 4 29:18 34 Preston 22 9 5 8 32:26 32 Crewe 22 9 4 9 25:26 31 Staða neðstu liða: Watford 22 6 7 9 23:27 25 Stoke City 22 6 5 11 25:32 23 Derby 22 5 7 10 24:36 22 Cr. Palace 22 5 7 10 25:38 22 Bradford 22 4 5 13 19:33 17 Wimbledon 22 4 2 16 23:49 14 KÖRFUKNATTLEIKUR 1. deild karla ÍS - ÍG.....................................................88:79 Staðan: Fjölnir 8 7 1 720:576 14 Valur 8 7 1 706:648 14 Skallagrímur 7 6 1 674:557 12 Stjarnan 7 4 3 561:569 8 ÍS 8 4 4 666:662 8 Þór A. 8 3 5 654:712 6 ÍG 9 3 6 753:805 6 Ármann/Þróttur 7 3 4 569:556 6 Höttur 8 1 7 566:678 2 Selfoss 8 1 7 654:760 2 HANDKNATTLEIKUR HM kvenna í Króatíu Milliriðill 1: Spánn - Austurríki ................................27:26 Frakkland - Suður-Kórea.....................25:27 Serbía-Svart. - Rússland ......................31:27 Staðan: Rússland 3 2 0 1 85:84 4 Frakkland 3 2 0 1 80:77 4 Suður-Kórea 3 2 0 1 88:82 4 Spánn 3 2 0 1 85:71 4 Serbía-Svart. 3 1 0 2 83:87 2 Austurríki 3 0 0 3 71:91 0 Milliriðill 2: Úkraína - Slóvenía.................................26:25 Noregur - Þýskaland ............................31:30 Rúmenía - Ungverjaland......................27:30 Staðan: Úkraína 3 2 1 0 84:82 5 Noregur 3 2 0 1 89:81 4 Ungverjaland 3 2 0 1 95:82 4 Þýskaland 3 1 0 2 88:87 2 Slóvenía 3 1 0 2 79:92 2 Rúmenía 3 0 1 2 76:87 1  Hvert lið tók með sér úrslit úr tveimur leikjum í undanriðli. Þýskaland Nordhorn - Flensburg ..........................32:33 Staða efstu liða: Flensburg 16 13 2 1 512:421 28 Lemgo 15 11 2 2 488:414 24 Magdeburg 14 11 0 3 426:352 22 Kiel 15 10 2 3 453:403 22 Hamburg 14 11 0 3 398:348 22 Essen 15 9 1 5 411:368 19  RÓBERT Gunnarsson, landsliðs- maður í handknattleik, átti enn einn stórleikinn með Århus GF í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gær. Róbert skoraði 12 mörk, þar af tvö úr vítaköstum, þegar Århus GF burstaði Bjerringbro, 42:32, á úti- velli eftir að hafa verið yfir í hálfleik, 21:12. Þorvarður Tjörvi Ólafsson skoraði eitt af mörkum Århus GF sem er í sjötta sæti af 14 liðum.  RÓBERT, sem leikur á línunni, er þar með orðinn markahæstur á nýj- an leik í dönsku 1. deildarkeppninni – hefur skorað 99 mörk í 13 leikjum, sjö mörkum meira en Micke Næsby hjá Fredricia.  ALFREÐ Gíslason og lærisveinar hans í Magdeburg voru heppnir þeg- ar dregið var til 8-liða úrslitanna í þýsku bikarkeppninni í handknatt- leik í gær. Magdeburg dróst gegn 2. deildarliðinu HSG Wanderup. Alex- ander Pettersons og félagar hans í HSG Düsseldorf mæta Kiel á heima- velli, Wilhelmshavener, liði Gylfa Gylfasonar, leikur við Hamburg og Flensburg tekur á móti Gummers- bach. Leikirnir fara fram 11. febr- úar.  DAGUR Sigurðsson, fyrirliði ís- lenska landsliðsins í handknattleik, og lærisveinar hans í Bregenz í Austurríki náðu í fyrrakvöld fimm stiga forystu í 1. deildinni í hand- knattleik þar í landi þegar þeir sigr- uðu Linz á útivelli, 31:28. Dagur skoraði 4 mörk í leiknum. Bregenz er með 23 stig, West Wien 18 og meistarar Alpla Hard eru með 17 stig en eiga tvo leiki til góða.  BJÖRN Þorleifsson, tækvondó- maður, tapaði fyrir heims- og ólymp- íumeistaranum Matos Fuentes frá Kúbu á ólympíuúrtökumóti í París um sl. helgi. Björn, sem keppir að því að tryggja sér sæti á Ólympíuleik- unum í Aþenu næsta sumar, keppir næst á úrtökumóti í febrúar í Azer- badjan.  FINNBOGI Llorens Izaguirre, 23 ára knattspyrnumaður úr Skalla- grími, er genginn til liðs við úrvals- deildarlið ÍA. Finnbogi lék með Skagamönnum í yngri flokkunum.  HÖRÐUR Arnarsson var á dögun- um kjörinn formaður IPGA, Sam- taka atvinnukylfinga á Íslandi, á að- alfundi samtakanna. Með honum í stjórn verða Magnús Birgisson, Der- rick Moore og Ólafur Jóhannesson, í varastjórn þeir David Barnwell, frá- farandi formaður og Árni Jónsson.  HIÐ virta bandaríska íþróttablað, Sports Illustrated, hefur valið „turnana tvo“, David Robinson og Tim Duncan frá NBA-liðinu San Antonio Spurs sem íþróttamenn árs- ins vestanhafs. Duncan er 27 ára og hefur tvívegis fagnað NBA-titlinum á sjö ára ferli en Robinson lagði skóna á hilluna í sumar er hann varð meistari í annað sinn á ferli sínum, 37 ára gamall. FÓLK FH-ingar halda enn í vonina um að danski framherjinn Allan Borgvardt, sem var krýnd- ur leikmaður efstu deildar í lokahófi KSÍ í haust, leiki áfram með liðinu á næstu leiktíð. Ólafur Jóhannesson þjálfari FH-inga sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að hann von- aðist til að Borgvardt kæmi aftur en ekki væri hægt að slá því föstu. Að sögn Ólafs hafa þrjú dönsk lið borið víurnar í Borgvadt, þar af eitt úrvalsdeildarlið, en verði ekkert af samn- ingum hans við eitthvert þessara liða þá hefur Daninn gefið FH-ingum góðar vonir um að leika með þeim á næsta sumri. Allan Borgvardt sló svo sannarlega í gegn með Hafnarfjarðarliðinu á síðustu leiktíð. Leikmenn völdu Danann leikmann ársins og þá varð hann efstur í einkunnagjöf Morg- unblaðsins. Þrjú dönsk lið á eftir Borgvardt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.