Morgunblaðið - 10.12.2003, Síða 52

Morgunblaðið - 10.12.2003, Síða 52
FÓLK Í FRÉTTUM 52 MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÍSLENSK jól eru bókajól og það á vitanlega einnig við um bækur á ensku, upplagt að glugga í slíkar bækur yfir jólin ekki síður en mærð- arþrungnar ævisögur eða nýstárleg bókmenntaverk. Ýmsar skemmtileg- ar bækur komu út á árinu sem von- legt er og á eftir fylgja nokkrar ábendingar um forvitnilegar bækur ársins 2003: Bill Bryson – A Short History of Nearly Everything Bill Bryson er frægur fyrir ferðasög- ur sem eru lýsandi og skemmtilegar í senn. Í þeirri bók sem hér er mælt með er hann aft- ur á móti með meira undir, í stað þess að ferðast um ókunnar og kunnar slóðir leitast hann við að varpa ljósi á ýmislega vísinda- lega þekkingu, leita svara við ýmsum spurningum um heiminn og lífið. Hann lýsir því sjálfur svo að hann hafi viljað finna svar við spurning- unni um hvernig mál atvikuðust svo að frá því að ekkert væri til var allt í einu til eitthvað og það eitthvað varð að okkur. Bókin er mikil að vöxtum, enda krefst viðfangsefni þess að ít- arlega sé farið í hlutina, en Bryson leitaði fanga hjá hundruðum vísinda- manna við efnisöflun. Eins og þeir vita sem lesið hafa fyrri verk Bry- sons segir hann skemmtilega frá og þó sumt af því sem hann segir frá sé frekar þurr fróðleikur lifnar það við í meðförum hans. Harry Potter – Order of the Phoenix Fjórða bókin í sagnabálkinum um Harry Potter er þykk og mikil en hún er líka að segja mikla sögu. Eftir því sem sögunni vindur fram, Harry eldist, verður frásögnin líka veigameiri, meiri alvara und- ir og atburða- rásin skelfilegri. Harry Potter verður líka sjálf- ur trúverðugri persóna, ekki eins óþolandi góður og réttsýnn og í fyrri bókunum, hann er kominn með netta gelgju og kominn með skap, oft ósanngjarn og afundinn eins og ung- linga er siður. Skemmtileg lesning fyrir alla. Jonathan Lethem – The Fortress of Solitude Ef marka má bókaumfjöllun í banda- rískum dagblöðum og netmiðlum er eitt helsta skáldverk sem kom út vestan hafs á síðasta ári þessi þroskasaga frá Brooklyn eftir Jon- athan Lethem, sem menn kalla nú Brooklyn- skáldið. Í bókinni segir Lethem frá ungum hvítum pilti sem elst upp hjá foreldrum sínum í blökku- mannahverfi í Brooklyn og gengur í skóla þar sem hann er eini hvíti nemandinn. Á end- anum eignast hann vin, blökkupilt sem er einnig nágranni hans og saga þeirra tveggja er um margt saga Brooklyn og New York á áttunda áratugnum, erfiðum tímum þegar stóra eplið, eins og borgin er gjarnan kölluð, rotnaði innan frá, hverfi borgarinnar urðu fyrir barðinu á eit- urlyfja- og glæpaöldu, íbúar börðust við fátækt og vonleysi en náðu þó að skapa menningu sem fékk hljóm- grunn víða um heim, pönk, hiphop, graff og framúrstefnulist. Fín bók og vel skrifuð. Neal Stephenson – Quicksilver Með merkilegustu bókum síðustu ára vestan hafs er Cryptonomicon, mikil skáldsaga eftir Neal Stephen- son sem segir mikla sögu. Um það leyti sem Cryptonomicon kom út lýsti Stephenson því að hann hygðist skrifa framhald hennar, sem síðar varð forleikur í þremur bindum. Stephenson er rit- fær vel og duglegur eins og sést af því að Quicksilver, sem er fyrsta bindi þríleiksins, er hátt í þúsund síður og væntanlega verður fram- haldið annað eins. Quicksilver hefst árið 1713 þar sem Enoch Root, sem menn kannast við úr Cryptonomicon, leitar uppi Daniel Waterhouse í frumgerð há- skóla í Massachusetts. Til sögunnar koma síðan fleiri merkilegri menn, Robert Hooke, Isaac Newton og Gottfried Wilhelm Leibniz svo fáein- ir séu nefndir, en bókin er eiginlega hugmyndasaga ekki síður en rismik- ið skáldverk. Dennis Lehane – Shutter Island Mikið er nú látið með spennusagna- höfundinn Dennis Lehane enda skrifaði hann bókina sem myndin magnaða Mystic River byggist á. Lehane hefur notið vel- gengni fyrir spennubækur sínar, ekki síst fyrir það hve hon- um hefur verið lagið að koma les- endum sínum á óvart. Á árinu kom út bók eftir hann sem vakti mikið umtal og jafnvel deilur Lethen-áhuga- manna, enda bregður hann útaf, skrifar margslungna bók um glæp og geðtruflanir sem kemur lesend- um í opna skjöldu. Bókin segir frá lögreglumanninum Teddy Daniels sem er á leið til Shutter-eyju skammt utan við Boston með félaga sínum, Chuck Aule, að grafast fyrir um dularfullt mannshvarf. Á eynni er fangelsi fyrir geðsjúka afbrota- menn og smám saman kemur í ljós að ekki er allt sem sýnist, söguper- sónurnar eru ekki þær sem lesand- inn heldur í upphafi og allra síst höf- uðpersónan, Teddy Daniels. Snúin bók. Alexander McCall Smith – The Full Cupboard of Life Enginn er svikinn af bókunum um Mma Ramotswe, einkaspæjara í Botswana, eftir skoska lagaprófess- orinn Alexander McCall Smith. Bækurnar um Mma Ramotswe eru orðnar fimm og óhætt að mæla með þeim öllum. Ekki þarf að lesa þær í röð, en vissu- lega skemmti- legra. Söguhetja bókanna, Mma Ra- motswe, heitir fullu nafni Precious Ramotswe, en þegar faðir hennar elskulegur deyr selur hún 180 naut- gripi hans og notar peningana til að stofna spæjaraskrifstofu, The No 1 Ladies’ Detective Agency. Glæpirnir sem Mma Ramotswe leysir eru iðu- lega ekki glæpir og þó hún hafi ríku- lega ályktunargáfu skiptir innsýn í hjörtu manna oftar meira máli en beinar rannsóknir. Dan Brown – The Da Vinci Code Engin spennubók hefur verið eins umdeild víða um heim og The Da Vinci Code eftir Dan Brown. Hún segir frá grimmilegu morði og alda- gömlu samsæri sem á sér rætur í frumkristni, en hún gengur með- al annars út á að Jesú Jósefsson og María Magdalena hafi eignast barn saman og af þeim sé kominn ætt- bogi. Söguhetja bókarinnar er bandaríski táknmyndasérfræðingur- inn Robert Langdon sem kallaður er fyrir tilviljun, að því er virðist, til að aðstoða við morð á forstöðumanni Louvre-safnins franska. Við sögu kemur einnig barnabarn forstöðu- mannsins, Sophie Neveu, dulmáls- fræðingur frönsku lögreglunnar, og þau Langdon og Neveu leggja á flótta undan lögreglunni og morðóð- um munki. Bókin er æsispennandi og hin besta dægrastytting hvort sem er á ensku eða íslensku. Jólalesning á ensku Mikið af bókum hefur borist hingað til lands á árinu og ekki annað að merkja en að áhugi á erlendum bókum sé að aukast. Árni Matthíasson mælir með nokkrum. LAU. 13/12 - KL. 18 UPPSELT LAU. 13/12 - KL. 22 ÖRFÁ SÆTI LAUS SUN. 14/12 - KL. 19 UPPSELT LAU. 20/12 - KL. 15 LAUS SÆTI SUN. 21/12 - KL. 15 LAUS SÆTI ATH! SÝNINGAR HÆTTA UM ÁRAMÓTIN ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA Leikhópurinn Á senunni nýtt barnaleikrit eftir Felix Bergsson Sun. 14. des. kl. 14. uppselt Sun. 21. des. kl. 14. Lau. 27. des. kl. 14. uppselt Lau. 27. des. kl. 16. uppselt Sun. 28. des. kl. 14. Sun. 28. des. kl. 16. örfá sæti Miðasala í síma 866 0011 www.senan.is Stóra svið Nýja svið og Litla svið LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren Lau 13/12 kl 14 - UPPSELT, Su 14/12 kl 14 - UPPSELT Lau 27/12 kl 14 - UPPSELT, Su 28/12 kl 14 - UPPSELT Lau 3/1 kl 14, Su 4/1 kl 14, Lau 10/1 kl 14, Su 11/1 kl 14 Su 18/1 kl 14, Lau 24/1 kl 14 Su 25/1 kl 14 - UPPSELT, Lau 31/1 kl 14 ÖFUGU MEGIN UPPÍ e. Derek Benfield Fö 9/1 kl 20 Miðasala: 568 8000 Nýr opnunartími: Mánudaga og þriðjudaga: 10:00 - 18:00 miðviku-, fimmtu- og föstudaga: 10:00 - 20:00 laugardaga og sunnudaga: 12:00 - 20:00 KVETCH e. Steven Berkoff í samstarfi við Á SENUNNI Fö 12/12 kl 20 AUKASÝNING Allra síðasta sýning SAUNA UNDER MY SKIN Gestasýning Inclusive Dance Company - Noregi Su 14/12 kl 20 www.borgarleikhus.is midasala@borgarleikhus.is Meira (en) leikhús! TIL SÖLU ALLA DAGA: LÍNU-BOLIR, LÍNU-DÚKKUR **************************************************************** LÍNU-LYKLAKIPPUR, HERRA NÍELS, HESTURINN **************************************************************** GJAFAKORT Á LÍNU LANGSOKK KR. 1.900 BROT AF ÞVÍ BESTA í samstarfi við KRINGLUSAFN BORGARGÓKASAFNSINS og KRINGLUNA Höfundar lesa úr nýútkomnum bókum: Hallgrímur Helgason, Hlín Agnarsdóttir, Flosi Ólafsson, Guðmundur Steingrímsson, Ævar Örn Jósepsson og Sigurður Pálsson Jóladjass: Davíð Þór Jónsson, Óskar Guðjónsson Fi 11/12 kl 20:30 - Aðgangur ókeypis SPORVAGNINN GIRND e. Tennessee Williams Forsýning fö 26/12 kl 20 - kr. 1.500 FRUMSÝNING lau 27/12 kl 20 - UPPSELT Su 28/12 kl 20, Fö 2/1 kl 20, Lau 3/1 kl 20 JÓLASÖNGVAR Kammerkórinn Vox academica Stjórnandi Hákon Leifsson Neskirkja v /Hagatorg laugardaginn 13. desember kl. 17 Aðgangseyrir 1.000 kr. Gríman 2003 „BESTA LEIKSÝNING ÁRSINS,“ að mati áhorfenda sjá nánari upplýsingar á www.sellofon.is Miðasölusími í IÐNÓ 562 9700 og sellofon@mmedia.is IÐNÓ Fim. 11. des. kl. 21.00. örfá sæti Þri. 30. des. kl. 21.00. Jólasýning LOKASÝNINGAR Á ÁRINU . AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 SKEMMUVEGI 36 Sími 557 2000 BLIKKÁS – ÞAKRENNUKERFI á öll hús – allsstaðar Vöggusæn gur vöggusett PÓSTSENDUM Skólavörðustíg 21  sími 551 4050  Reykjavík AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.