Morgunblaðið - 10.12.2003, Blaðsíða 54
54 MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 15.30
3D
gleraugu
fylgja hverjum
miða
Sýnd kl. 8 og 10.10.
Stranglega bönnuð innan 16 ára!
Kvikmyndir.com
Skonrokk FM909
ÞÞ FBL
HJ MBL
HK DV
Kl. 4, 6 og 8. B.i. 10. Kl. 10. B.i. 16.
Sýnd kl. 4.
Medallían er annað
öflugasta vopn í heimi.
Hann er það öflugasta!
Frábær mynd stútfull af
gríni og spennu!
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 10.
Will Ferrell
Kvikmyndir.com
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 4 og 6.
Með íslensku tali.
Sýnd kl. 5, 8 og 10.50. B.i. 14.
kl. 5, 8 og 10.50. B.i. 14 ára
Matrix No! Master Yes!
Rolling Stone
Roger Ebert
Chicago Sun-Times
Boston Herald
Washington Post
Los Angeles Daily News
Master-ful!
New York Post
Ein magnaðasta stórmynd ársins loksins
í bíó! Russell Crowe hefur aldrei
verið betri. Missið ekki af þessari!
HJ MBL
"Flott og vönduð
stórmynd"
ÞÞ FBL
Sýnd kl. 6. Með ísl. tali.
Will Ferrell
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 10. B.i. 16.
Frábær
skemmtun fyrir alla
fjölskylduna
Sýnd kl. 6.
Sýnd kl. 8.
Frábær grínmynd um strák sem skilinn er eftir
heilt sumar hjá tveim snarklikkuðum frænd-
um sínum. Stórleikararnir Michael Caine,
Robert Duvall og Osment úr Sixth Sense
fara á kostum.
Kl. 8 og 10.30. B.i. 14.
Matrix No! Master Yes!
Rolling Stone
Roger Ebert
Chicago Sun-Times
Boston Herald
Washington Post
Los Angeles Daily News
Master-ful!
New York Post HJ MBL
"Flott og vönduð
stórmynd"
ÞÞ FBL
Ein magnaðasta stórmynd ársins
loksins í bíó! Russell Crowe hefur aldrei
verið betri. Missið ekki af þessari!
R E Y K J A V Í K & A K U R E Y R INánari upplýsingar á www.fujifilm.is
S k i p h o l t i 3 1 , R e y k j a v í k , s : 5 6 8 0 4 5 0 ı K a u p v a n g s s t r æ t i 1 , A k u r e y r i , s : 4 6 1 2 8 5 0
M y n d s m i ð j a n E g i l s s t ö ð u m ı F r a m k ö l l u n a r þ j ó n u s t a n B o r g a r n e s i ı F i l m v e r k S e l f o s s i
Fujifilm stafrænar myndavélar, framúrskarandi myndgæði – frábært verð.
MYNDARLEGT TILBOÐ
3.24 milljón virkir dílar.
Ljósnæmi ISO 100.
6x aðdráttarlinsa (38-228mm).
Hægt að fá víðvinkil (30mm) og enn
meiri aðdrátt (342mm).
Tekur allt að 200 sek kvikm. með hljóði.
Hægt að tala inn á ljósmyndir allt að 30
sek á hverja mynd.
Notar nýju x-D minniskortin.
Hægt að taka allt að 300 skot á
venjulegar AA Alkaline rafhlöður!
Allt sem þarf til að byrja fylgir
Verð kr. 59.900,-
S304
4 kynslóð af Super CCD HR.
3.1 milljón virkir dílar sem gefa allt að
2816x2120 díla myndir 6.0 milljón díla!
Fjöldi myndatökumöguleika; s/h, króm,
runur osfrv.
Ljósnæmi ISO 200-800.
3x aðdráttarlinsa (38-114mm) auk
stafræns aðdráttar.
Með F hnapp sem auðveldar allar
myndgæða stillingar.
Tekur kvikmyndir 320x240 díla,
10 rammar á sek., upp í 120 sek í einu.
Hægt að tala inn á myndir.
Lithium Ion hleðslurafhlaða og
hleðslutæki fylgir.
Notar nýju X-D minniskortin.
165 g án rafhlöðu.
Verð kr. 49.900,-
F410
4 kynslóð af Super CCD HR.
3.1 milljón virkir dílar sem gefa allt að
2816x2120 díla myndir 6.0 milljón díla!
Ljósnæmi ISO 100/200/400/800 (800 í 1M).
3x aðdráttarlinsa (38-114mm).
Hægt að taka allt að 250 skot á
venjulegar AA Alkaline rafhlöður!
Tekur allt að 120 sek kvikmynd (án hljóðs).
Notar nýju x-D minniskortin.
Hægt að fá vöggu.
Allt sem þarf til að byrja fylgir.
155 g án rafhlöðu.
Verð kr. 35.500,-
A310
Ný send
ing
komin
Framkö
llun
á 25 sta
frænum
myndum
fylgir hv
erri
seldri m
yndavél
í septem
ber!
ROKKARINN Ozzy Osbourne liggur á sjúkrahúsi eftir
að hafa slasast á fjórhjóli. Hann lá á gjörgæsludeild í
fyrrinótt, að sögn læknis á Wexham Park-sjúkrahúsinu
í Slough. Ozzy, sem er 55 ára, gekkst undir skurð-
aðgerð en hann braut viðbein, átta rifbein og hálslið í
slysinu.
Kallað var á sjúkrabíl að heimili hans í Berkshire
klukkan 14.20 á mánudag. Yfirmaður sjúkrahússins,
Dick Jack læknir, segir að hann sé ekki lífshættulega
slasaður.
Í yfirlýsingu frá umboðsmanni Osbournes sagði að
aðgerð hefði verið gerð til að lyfta viðbeininu sem
klemmdi æð og hindraði blóðflæði í annan handlegg-
inn. Einnig hefði blætt inn á lungu hans.
Osbourne fæddist í Birmingham á Englandi og varð
frægur þegar hann söng með hljómsveitinni Black
Sabbath. Hafa sjónvarpsþættir um hann og fjölskyldu
hans notið mikilla vinsælda að undanförnu.
Ozzy Osbourne illa slasaður eftir fjórhjólaslys
Braut viðbein, átta rifbein og hálslið
Reuters
Ozzy Osbourne lenti í fjórhjólaslysi og liggur á
sjúkrahúsi í Englandi og er fremur þungt haldinn.
HVAÐ er ástin eiginlega, þessi
langvinni kvilli sem leggst jafnt á háa
sem lága, snýr tilveru þeirra á hvolf,
ber í senn einkenni kvalræðis og al-
sælu, breytir snarlega allri forgangs-
röðun og er kannski þegar öllu er á
botninn hvolft það sem gefur lífinu
gildi? Ástin í sínum ólíkustu og keim-
líkustu myndum, er einmitt umfjöll-
unarefnið, sem breski handritshöf-
undurinn og leikstjórinn Richard
Curtis, gerir skil svo um munar í kvik-
myndinni Love Actually, eða Ást í
reynd. Curtis er enginn viðvaningur í
handritsgerð, enda komið að smellum
sem ná allt frá Black Adder gaman-
þáttaröðunum, til kvikmynda á borð
við Fjögur brúðkaup og jarðarför,
Notting Hill, Dagbók Bridget Jones
og fleiri samstarfsverkefnum, m.a.
með hinum óborganlega Rowan Atk-
inson. Í þetta sinn leikstýrir Curtis
ásamt því að skrifa og hér er ætlunin
greinilega sú að fara alla leið í að
skemmta, gleðja og syrgja, að búa til
rómantíska gamanmynd sem enginn
getur staðist, meiri háttar ástarsögu
sem í þokkabót á sér stað rétt fyrir
jól.
Ást í reynd er kannski best lýst
sem nokkurs konar jólahlaðborði ást-
arsagna, en í handritinu er tvinnað
saman sögum nokkurra para og ein-
staklinga sem eiga það sameiginlegt
að hafa orðið fórnarlömb ástar-
guðsins knáa sem skýtur örvum sín-
um að því er virðist nær stefnulaust í
allar áttir. Meðal þeirra sem fengið
hafa að kenna á skotgleði Amors eru
hryggbrotinn rithöfundur leikinn af
Colin Firth, sem finnur ástina einmitt
þegar hann reynir að fela sig fyrir
henni, (enda skilur Amor ekki hug-
takið landamæri); stjúpfeðgarnir
Daniel (Liam Neeson) og Sam
(Thomas Sangster) sem glíma á sama
tíma við missi og alvarlega hvolpaást
drengsins; og breskur forsætisráð-
herra (Hugh Grant) sem stígur á
fyrsta degi embættis síns inn á Down-
ingstræti 10 og verður ástfanginn. Í
lífi hjónanna Harrys (Alan Rickman)
og Karenar (Emma Thompson) snýst
ástin upp í mesta mögulega sársauka,
og í næsta hverfi reynir Mark (And-
rew Lincoln) að lifa með óendurgold-
inni ást til eiginkonu besta vinar síns.
Fleiri persónur koma við sögu, og í
kringum þær rótast upp ýmis kurl
sem gera ástina ýmist mögulega eða
ómögulega, frelsandi eða lamandi.
Þess á milli skýtur Rowan Atkinson
upp kollinum og fær áhorfandann til
að hlæja að öllu saman.
Í þessari athugun á ástinni leikur
Curtis fimlega með tvær víddir í
skilningi á ástinni og tekst með dálít-
illi lagni að sætta þetta tvennt, þannig
að áhorfandinn getur sleppt báðum
fótum af jörðinni og notið ferðarinnar
um mátulega ljúfsárar og loftkenndar
lendur ástarinnar. Þetta eru annars
vegar Stóra Ástin, óbilandi og upp-
hafið viðfangsefni ástarsagna, popp-
slagara og rómantískra bíómynda, og
öllu óáþreifanlegri birtingarmynd
ástarinnar, sú sem veldur því að við
sýnum tryggð og fórnarlund, og
sækjum fólkið okkar út á flugvöll. En
í meðförum Curtis er Stóra Ástin al-
veg jafn gjaldgeng og raunveruleg og
ástin í hversdeginum, hún er kannski
löngu orðin að klisju en sönn engu að
síður.
Ýmsir fleiri þættir gera það að
verkum að uppskriftin að þessum
mikla ástarrúsínugraut gengur upp.
Leikhópurinn er að því er virðist
endalaus runa hæfileikaríkra sjarm-
öra, þar sem allir fá að njóta sín og
enginn skyggir á. Í meðförum hrein-
ræktaðs Hollywood-afkvæmis hefði
verkefni á borð við þetta eflaust runn-
ið hratt og örugglega út í sandinn, en
hér er það breska skopskynið sem
heldur skipinu á öruggri siglingu.
Tóninn að þessari bíræfnu en vel
heppnuðu tilraun slær Curtis reyndar
í upphafi myndarinnar, með sköpun
einnar af fyndnustu persónum henn-
ar, útjaskaða rokksöngvaranum Billy
Mac, sem verður í meðförum leikar-
ans Bill Nighy að nokkurs konar
millistigi af Iggy Pop og Keith Rich-
ards. Sá ákveður í félagi við umboðs-
mann sinn að freista þess að ná lagi
inn á jólavinsældalistann með því að
endurvekja gamlan ástarslagara og
setja orðið „jól“ inn í staðinn fyrir
„ást“. Auðvitað er þetta samblanda
sem enginn stenst og lagið fer beint á
toppinn.
Amor í essinu sínu
KVIKMYNDIR
Sambíóin, Háskólabíó
Leikstjórn og handrit: Richard Curtis.
Kvikmyndataka: Michael Coulter. Aðal-
hlutverk: Hugh Grant, Emma Thompson,
Alan Rickman, Liam Neeson, Colin Firth,
Laura Linney, Bill Nighy, Keira Knightley,
Martine McCutcheon, Billy Bob Thornt-
on, Rowan Atkinson o.fl. Lengd: 135
mín. Bretland/Bandaríkin. Universal
Pictures, 2003.
LOVE ACTUALLY / ÁST Í REYND Hugh Grant og Martine
McCutcheon í Ást í reynd.
Heiða Jóhannsdóttir