Morgunblaðið - 10.12.2003, Side 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
FLÓÐLÝSING við Gullfoss er nú í undir-
búningi. Markmiðið er að hægt verði að
skoða fossinn í skammdeginu og lengja
þar með ferðamannatímabilið. Ragnar S.
Ragnarsson, sveitarstjóri í Bláskóga-
byggð, segir að hugmyndin hafi komið
upp við gerð aðalskipulags og hefur
byggðaráð Bláskógabyggðar samþykkt
hana.
Fjárlaganefnd Alþingis hefur verið send
ósk um fjárveitingu vegna undirbúnings-
vinnu og hefur þingmönnum Suður-
kjördæmis verið kynnt hugmyndin.
Ragnar segir að unnið sé að þessari
hugmynd af fullri alvöru. ,,Fossinn er nán-
ast í myrkri í a.m.k. sex mánuði á ári en
þarna koma rútur daglega og fólk kemur
þarna á nær öllum tímum. Markmiðið með
þessu er að lengja ferðamannatímabilið,“
segir hann. Að sögn Ragnars er ekki talið
að þörf sé á að fram fari mat á umhverfis-
áhrifum vegna flóðlýsingarinnar.
Í umfjöllun í Bændablaðinu í gær er haft
eftir Oddi Þ. Hermannssyni landslags-
arkitekt að koma mætti ljóskösturum
þannig fyrir að þeir yrðu huldir undir
vesturbrún gjárinnar. Segist hann sjá fyr-
ir sér að ljósgeislum yrði beint í foss-
brúnina á efri og neðri flúðinni, bjarmi
geislans dæi síðan út í fossflúðirnar og við-
héldi þeirri dulúð sem fossinn býr yfir.
Morgunblaðið/RAX
Gullfoss er tignarlegur í klakaböndum.
Undirbúa
flóðlýsingu
Gullfoss
LÖGMENN tveggja af þremur olíufélögum
segja frest sem Samkeppnisstofnun ætlar fé-
lögunum til andmæla of stuttan, og mun a.m.k.
Olíufélagið Esso sækja um lengri frest til að
svara síðari skýrslu Samkeppnisstofnunar um
meint samráð olíufélaganna. Félögin hafa 60
daga til að gera athugasemdir við skýrsluna og
rennur fresturinn út í byrjun febrúar.
„Við sjáum ekki að við náum að ljúka þessu á
þessum vikum sem okkur eru gefnar. Það er
augljóst að það verður óskað eftir að fá lengri
frest,“ segir Kristinn Hallgrímsson, lögmaður
Olíufélagsins Esso. Aðspurður hversu langan
frest félagið telji sig þurfa segir Kristinn að
verið sé að meta það núna.
Gísli Baldur Garðarsson, lögmaður Olís, tek-
ur undir orð Kristins, og segir ljóst að and-
mælafresturinn sé naumur. „Það er afar stutt-
ur frestur sem okkur er skammtaður miðað við
hvað skýrslan er stór og umfangið mikið,“ seg-
ir Gísli. Hann segist ekki geta sagt til um
hversu langan tíma Olís telji sig þurfa.
Enn ekkert reynt að semja
Lögmenn Olís hafa ekki reynt að semja við
Samkeppnisstofnun eftir að þeim var afhent
seinni skýrslan á föstudag, en Gísli segir ljóst
að menn vilji ljúka málinu sem fyrst, enda hafi
það tekið ógnarlangan tíma. Gísli útilokaði ekki
að fundað yrði með samkeppnisyfirvöldum
bráðlega til að reyna að semja um lausn máls-
ins.
Lögfræðingar Esso eru nú að ljúka fyrstu
yfirferð yfir skýrslu Samkeppnisstofnunar.
Kristinn segir að ekkert hafi verið reynt að
semja við Samkeppnisstofnun eftir að olíufé-
lögin fengu seinni skýrslu stofnunarinnar í
hendur til andmæla.
Gestur Jónsson, lögmaður Skeljungs, sagði
að engar viðræður hefðu átt sér stað síðan
Skeljungur fékk skýrsluna í hendur á föstudag.
Hann vildi að öðru leyti ekki tjá sig um sam-
skipti við Samkeppnisstofnun, eða um það
hversu langan tíma það myndi taka að svara
stofnuninni.
Skýrsla Samkeppnisstofnunar um meint samráð olíufélaganna
Munu sækja um lengri
frest til að andmæla
JÖRÐ er nú snævi þakin norðan
heiða og snjóaði látlaust í logni í
gærdag. Sú sjón sem við mönn-
um blasti var því í jólalegra lagi
eða eiginlega nákvæmlega eins
og margir gera sér ekta jóla-
veður í hugarlund. Greinar
grenitrjánna að sligast undan
þungum snjónum. Alveg er óvíst
hvort þær Guðrún Ösp Ólafs-
dóttir og Ásta Lilja
Harðardóttir hafa verið með
hugann við námsbækurnar á
leið heim úr skólanum í gær.
Líklegra að eitthvað annað hafi
verið þeim ofar í huga þar sem
þær ösluðu snjóinn yfir
Hamarskotstúnið.
Jólasnjórinn er kominn á Akureyri
Morgunblaðið/Kristján
ENN eitt meiriháttar fíkni-
efnasmyglið í Leifsstöð var af-
hjúpað á sunnudag þegar 24
ára íslensk kona var tekin með
1,2 kg af hassi. Tollgæslan á
Keflavíkurflugvelli fann hassið
og var málið sett í rannsókn
hjá lögreglunni á Keflavíkur-
flugvelli í kjölfarið.
Konan var að koma frá
Kaupmannahöfn og hafði límt
hassið tryggilega á líkama
sinn, innanverð læri og bak.
Tollgæslan uppgötvaði smyglið
við hefðbundið eftirlit og lagði
lögreglan fram gæsluvarð-
haldskröfu hjá Héraðsdómi
Reykjaness sem úrskurðaði
konuna í gæsluvarðhald til 11.
desember. Henni var þó sleppt
í gær þar sem málið telst upp-
lýst í kjölfar handtöku tveggja
karlmanna um þrítugt í Leifs-
stöð á mánudag. Hafa þeir við-
urkennt aðild sína að smyglinu.
Um er að ræða þriðja stór-
fellda fíkniefnasmyglið sem
tollgæslan á Keflavíkurflug-
velli afhjúpar í Leifsstöð á
vikutíma. Um 400 grömm af
kókaíni voru tekin af tveimur
mönnum í síðustu viku og karl-
maður á sextugsaldri var tek-
inn með 2 kg af hassi og dæmd-
ur í sex mánaða fangelsi fyrir
vikið.
Tekin með
rúmt kíló
af hassi
Enn eitt stórfellt
fíkniefnasmyglið
í Leifsstöð
„ÉG VAR mjög hrædd í fyrstu en nú hefur hræðsl-
an breyst í reiði,“ segir kona á höfuðborgarsvæðinu
sem varð fyrir barðinu á ótrúlega bíræfnum inn-
brotsþjófi á laugardagsmorgun. Hann sætti færis á
að komast inn í íbúð hennar og læsti hana inni á
baðherbergi og lét síðan greipar sópa. Hann stal
skartgripum, 30 geisladiskum auk muna eins og
farsíma, veski með ökuskírteini og debetkorti o.fl.
„Öll öryggistilfinning er horfin eftir þetta og ég
hef lítið getað sofið síðan þetta gerðist. Það versta
við innbrotið er sú vitneskja að maðurinn hafi verið
úti um allt inni hjá mér. Hann fór inn í fataskápinn
minn og tætti allt úr honum,“ segir konan.
Þetta virtist ætla að verða ósköp venjulegur laug-
ardagsmorgunn hjá henni þegar hún fór á fætur
klukkan 9.30 og fór í sturtu. „Þá heyri ég að það er
bankað fast á alla glugga og hélt kannski að það
væri nágranni minn læstur úti. Ég sá að enginn var
fyrir utan hjá mér og fór í sturtu. Þjófurinn hefur
séð ljós kvikna á baðherberginu og hefur þá nýtt
tækifærið til að troða sér inn um eldhúsgluggann.
Hann læsti því næst millihurð milli íbúðarinnar og
baðherbergisins þannig að ég var læst úti. Ég
heyrði vel í þjófinum og hljóp upp til leigusalans
sem brást skjótt við en þá var þjófurinn á burt.
Ég var mjög hrædd í fyrstu en nú er ég aðallega
reið. Hann tók ökuskírteinið og debetkortið og alla
lyklana mína. Mér finnst óþægilegt að vera í íbúðinni
eftir þetta en þó er komin þjófavörn á eldhúsglugg-
ann og búið að gera ráðstafanir við útidyrnar.“
Innbrotsþjófur læsti konu inni á baði og lét síðan greipar sópa
„Öll öryggistilfinning horfin“
SAMKVÆMT fjárhagsáætlun Kópavogs
fyrir árið 2004 verður útsvarið, tekjuskatts-
hlutfall sveitarfélagsins, hækkað úr 12,7% í
12,94%. Fjárhagsáætlunin var tekin til fyrri
umræðu á fundi bæjarstjórnar í gær.
Gunnar I. Birgisson, formaður bæjarráðs,
segir þetta gert til að standa undir mikilli
uppbyggingu í bænum og þjónustu við íbúa,
án þess að reka bæjarsjóð með halla eða
hækka skuldir.
Í nýframlagðri fjárhagsáætlun Reykjavík-
urborgar er ekki lagt til að útsvar hækki. Nú
er útsvarsprósentan 12,7% í höfuðborginni,
13,03% í Hafnarfirði og 12,46% í Garðabæ og
á Seltjarnarnesi. Samkvæmt lögum má út-
svarið ekki vera hærra en 13,03%.
Útsvar hækk-
ar í Kópavogi
Mikil uppbygging/19
♦ ♦ ♦