Morgunblaðið - 12.12.2003, Síða 38
38 FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
N
eðarlega við Laugaveg-
inn er lítil verslun,
Saumagallerí, JBJ.
Þar ræður ríkjum
Jóna Björg Jóns-
dóttir. „Ég vildi vera heima
hjá börnunum mínum og
það að barnaföt urðu fyr-
ir valinu réðst af stærð-
inni á eldhúsborðinu,
sem ég vann við,“ segir
Jóna. Hún segist alltaf hafa
gætt þess að fara sér hægt
og taka ekki of stór skref í
einu. „Ég var fyrst með bás í
Kolaportinu þegar það var til
húsa undir Seðlabankanum.
Seinna innréttuðum við þessa
líka fínu saumastofu og gall-
erí í bílskúrnum en svo frétti
ég af þessu húsnæði við
Laugaveginn, sem ég
keypti,“ segir hún. „Þetta
litla saumagallerí er með
minnstu búðum við
Laugaveginn en vonandi
með stærsta hjartað. Mér
líkar mjög vel að versla við Lauga-
veginn. Ég gæti ekki hugsað mér að
vera í gluggalausu rými þar sem
sama veðráttan ríkti allt árið. Ég get
ekki unnið nema vita hvernig viðrar.“
Mjúkar og ávalar línur
Framan við verslunina er gamall
barnavagn frá Kanada, sem Jóna not-
aði fyrir tvö yngri börnin sín. „Hann
vekur alltaf mikla athygli og er
myndaður í bak og fyrir af ferða-
mönnum,“ segir Jóna en ríflega 50%
viðskiptavinanna eru erlendir ferða-
menn. „Við segjum að á meðan barnið
er úti er búðin opin.“
Tvær dætra Jónu standa vaktina
þegar hún er við saumavélina heima í
bílskúrnum. Jóna leggur áherslu á að
þess sé alltaf gætt að velja vönduð og
endingargóð efni, meðal annars
finnsk náttúruefni sem eiga að koma í
veg fyrir ofnæmi hjá börnum og setja
má í þvottavél og þurrkara. Hönn-
unin er klassísk með góðri hreyfivídd
og hún notar mikið af einlitum efnum.
„Köflótt og rósótt efni í sömu flíkinni
er svo mikið áreiti fyrir sálina,“ segir
hún. „Ég vil miklu heldur mjúkar,
ávalar línur og fallega liti. Það getur
verið hin mesta hvíld að horfa á þann-
ig fatnað.“
Meðal þess sem er á boðstólum eru
matrósaföt, sem ekki hafa hækkað í
verði í þrjú ár og segist Jóna ekki
hafa undan að sauma þau auk kjól-
anna og sundfatnaðar á ungabörn.
„Oft er talað um að ekki fari saman
góð hönnun og sölumennska en í
mínu tilfelli finnst mér það auðvelt
því enginn veit betur en ég sjálf hvað
ég er með á milli handanna,“ segir
hún en viðurkennir um leið að það
geti oft verið erfitt að sinna öllum
verkum innan fyrirtækisins og mikil
vinna. „Til þess að það gangi verður
manni að finnast óendanlega vænt
um vinnuna.“
Óendan-
lega vænt
um vinnuna
Morgunblaðið/Ásdís
Barnaföt: Jóna Björg Jónsdóttir, eigandi
Saumagallerís JBJ, í verslun sinni.
Jóna Björg Jónsdóttir
ákvað fyrir fimmtán ár-
um að söðla um, hætta
að starfa sem meina-
tæknir og snúa sér að
framleiðslu barnafata
fyrir börn á aldrinum
0–4 ára.
krg@mbl.is
Sund: Sundföt
fyrir yngstu
sundkappana
í öllum regn-
bogans litum.
HÖNNUN|Framleiðir barnafatnað
V
erðmerkingar eru í
ólagi hjá 44% versl-
ana, samkvæmt könn-
un Samkeppnis-
stofnunar sem gerð
var í byrjun desember. Niður-
staðan er óviðunandi að mati
stofnunarinnar. „Með því að verð-
merkja ekki í sýningargluggum
gera kaupmenn sig seka um brot
á rétti neytenda. Samkvæmt sam-
keppnislögum er skylt að verð-
merkja í sýningargluggum í því
skyni að auðvelda neytendum
verðsamanburð og þar með stuðla
að samkeppni,“ segir í niður-
stöðum könnunarinnar.
Í Kringlunni reyndust 72%
verslana með óaðfinnanlegar verð-
merkingar og 62% verslana í
Smáralind. Verslanir við Lauga-
veg voru með óaðfinnanlegar verð-
merkingar í 57% tilvika. Verslun-
um við Skólavörðustíg hefur
fjölgað til muna á undanförnum
árum en aðeins 33% þeirra voru
með verðmerkingar í lagi.
Kannaðar voru verðmerkingar í
sýningargluggum 394 verslana og
var heildarniðurstaðan sú að þær
væru í lagi í 56% tilvika.
Beittu stjórnvaldssekt
„Í samkeppnislögum frá árinu
2000 er heimilt að beita sektum
við brotum af þessu tagi. Í því
sambandi er vert að geta þess að
á síðastliðnu ári lagði samkeppn-
isráð stjórnvaldssekt á Heilsu-
húsið vegna ófullnægjandi verð-
merkinga. Fyrirtækið sætti sig
ekki við þann úrskurð og skaut
málinu til dómstóla. Hæstiréttur
hefur nýverið fellt þann dóm að
það sé grundvallaratriði að verð
hverrar vöru sé sýnilegt og fyrir-
tækinu því gert að greiða stjórn-
valdssektina, auk málskostnaðar,
vegna brota á lögum og reglum
um verðmerkingar,“ segir Sam-
keppnisstofnun.
NEYTENDUR
Morgunblaðið/Ásdís
Verðmerking-
ar í ólagi hjá
44% verslana
7
"#$
5
. #! )&
Ómerkt vara: Verðmerkingar eru
víða í ólagi í verslunargluggum.
DAGLEGT LÍF