Morgunblaðið - 12.12.2003, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 337. TBL. 91. ÁRG. FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Jól allan
ársins hring
Í́ heimsókn í jólabúðum þar sem er
opið allt árið Daglegt líf
Lofsamlegar
umsagnir
Breska pressan hælir plötu Einars
Arnar Benediktssonar Fólk í fréttum
Fólkið
Bíóvor Fjöldi forvitnilegra
mynda væntanlegur á nýju ári
Tónleikar Muse og Mínus tróðu
upp í Laugardalshöllinni
FRUMVARP um eftirlaun æðstu
ráðamanna hefur sett kjaraviðræður
í uppnám og var efnt til mótmæla
vegna þess á Austurvelli í gær. Flóa-
bandalagið, Starfsgreinasambandið,
Samiðn, Rafiðnaðarsambandið og
verslunarmenn hafa frestað kjara-
viðræðum í kjölfar frumvarpsins.
Grétar Þorsteinsson, forseti Al-
þýðusambands Íslands, segir að
launþegahreyfingin muni breyta
kröfugerð sinni í komandi kjaravið-
ræðum verði frumvarp um eftirlaun
æðstu embættismanna ekki dregið
til baka. Hann segir hugsanlegt að
áherslur varðandi lífeyrisréttindi
breytist. Ari Edwald, framkvæmda-
stjóri Samtaka atvinnulífsins, segir
að hækki kröfugerð launþega verði
enn erfiðara að ná samningum. Ög-
mundur Jónasson, formaður BSRB
og þingmaður Vinstri grænna, segist
algjörlega á móti frumvarpinu.
Tímabært sé að endurskoða lífeyr-
isréttindi þingmanna en launabreyt-
ingar eigi að vera hjá Kjaradómi.
Halldóra Friðjónsdóttir, formaður
Bandalags háskólamanna, segir
þingmenn taktlausa og viðbrögð
launþegahreyfingarinnar skiljanleg.
Ari Edwald segir frumvarpið
koma fram á óheppilegum tíma og að
það sé, auk annarra mála sem hafa
komið upp undanfarið, slæmt inn-
legg í kjaraviðræðurnar.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
sagði á Alþingi í gær að teldu for-
svarsmenn á vinnumarkaði að frum-
varpið gæti raskað horfum í kjara-
samningum kæmi það fram á
hárréttum tíma. Hann benti á að hér
væri ekki verið að gera breytingar á
launum þingmanna og kvaðst telja
að koma myndi á daginn að þetta mál
snerti ekki almenna kjarasamninga.
Fundað fram á nótt
Allsherjarnefnd Alþingis sat á
fundi um frumvarpið í allt gærkvöld
og stóð hann enn þegar Morgunblað-
ið fór í prentun í nótt. Stefnt er að því
að afgreiða frumvarpið fyrir vikulok.
Launþegahreyfingin bregst hart við frumvarpi um eftirlaun æðstu ráðamanna
Kjaraviðræðum frestað
Markmiðið/10/ Óánægðir/11
Viðræður/44–45/Leiðari/44
Stjórnarandstaðan að bregðast, segir Grétar Þorsteinsson Slæmt innlegg
í kjaraviðræðurnar, segir Ari Edwald Þingmenn taktlausir, segir Halldóra
Friðjónsdóttir Kemur fram á hárréttum tíma, segir Davíð Oddsson
Morgunblaðið/Kristinn
NOKKUR hundruð manns söfn-
uðust saman á Austurvelli í gær til
að mótmæla frumvarpi um hækkun
eftirlauna helstu ráðamanna. Meðal
viðstaddra var fundið að því að
frumvarpið kæmi fram í kjölfar
annarra mála þar sem skerða ætti
réttindi láglaunafólks, atvinnu-
lausra og öryrkja. „Mér finnst það
eigi að vera jöfnuður í samfélag-
inu,“ sagði Reynir Hlíðar Jóhanns-
son, sem var á Austurvelli. „Þetta
stuðlar ekki að jöfnuði.“
Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ,
ávarpaði mannfjöldann og sagði að
launþegahreyfingin myndi breyta
kröfugerð sinni í komandi kjara-
viðræðum yrði frumvarpið ekki
dregið til baka.
Mótmælt á
Austurvelli
GEORGE W. Bush, forseti Banda-
ríkjanna, varði í gær þá ákvörðun að
banna fyrirtækjum í Frakklandi,
Þýskalandi og Rússlandi að bjóða í
verk í Írak og sagði að peningarnir
ættu að fara til þeirra ríkja sem
lögðu til hermenn í Íraksstríðinu.
„Þetta er mjög einfalt: fólkið okk-
ar hætti lífi sínu; fólk bandamanna
okkar hætti lífi sínu. Samningarnir
munu endurspegla þetta. Og þetta er
það sem bandarískir skattgreiðend-
ur búast við,“ sagði Bush.
Gerhard Schröder, kanslari
Þýskalands, fordæmdi ákvörðun
bandarískra stjórnvalda og dró í efa
að hún stæðist alþjóðalög.
Jean Chretien, forsætisráðherra
Kanada, sagði að Bush hefði fullviss-
að sig um að ekkert væri hæft í frétt-
um um að kanadísk fyrirtæki fengju
ekki að bjóða í verk í Írak.
Fréttastofan AFP hafði eftir emb-
ættismanni í Washington í gær-
kvöldi að endurskoðendur varnar-
málaráðuneytisins hefðu komist að
þeirri niðurstöðu að KBR, dóttur-
félag bandaríska stórfyrirtækisins
Halliburton, hefði sett upp of hátt
verð fyrir bensín sem selt var banda-
ríska hernum í Írak. Halliburton var
undir stjórn Dicks Cheneys, varafor-
seta Bandaríkjanna, til ársins 2000.
Bush hvikar ekki í útboðsdeilu
Halliburton setti
upp of hátt verð
Washington. AFP.
Sáttatilraunir/18
EITT af þekktustu málverkum
Rembrandts, Næturvörðurinn, var
flutt í gær úr listasafni í Amst-
erdam í aðra byggingu þar sem það
verður geymt vegna viðgerða á
safnhúsinu. Umstangið var svo mik-
ið þegar þetta ómetanlega listaverk
var flutt að blaðamenn höfðu á orði
að engu væri líkara en verið væri
að skjóta geimflaug á loft eða færa
verndað vitni í dómhús til að vitna
gegn mafíuforingja. Málverkið var
í umgjörð með ýmsan hátæknibún-
að, svo sem 215 kg hitaeinangrun
og rakavörn.
Reuters
Ómetanleg-
ur farmur
NOKKRIR ungir þingmenn í
Danmörku hafa krafist þess að
vinnutilhögun þingsins verði
breytt þannig að þeir þurfi ekki
að bíða langt fram á kvöld eftir
því að komast til fjölskyldna
sinna.
Þingmennirnir vilja t.a.m. að
atkvæðagreiðslur fari ekki
fram á þinginu eftir klukkan
fjögur e.h. og þeir safna nú
undirskriftum til að reyna að
knýja fram breytingar.
Rikke Hvilshøj, þingkona í
Venstre-flokknum, segir að
kvöldfundir þingsins séu leifar
gamla tímans þegar konur
þingmanna voru heima og sáu
um allt heimilishaldið.
Christian Mejdahl, forseti
þingsins, kvaðst vera undrandi
á uppreisninni en taldi það ekki
með öllu óhugsandi að gaml-
ingjarnir vendu sig af kvöld-
fundunum.
Uppreisn
gegn gaml-
ingjunum