Morgunblaðið - 12.12.2003, Side 69
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2003 69
FJÖLMENNI var á jólatrés-
skemmtun Íslendingafélagsins í
New York sem haldin var nýlega.
Dagskráin hófst með guðsþjónustu
undir stjórn séra Sigríðar Guð-
marsdóttur, lesið var úr jóla-
guðspjallinu og sungin jólalög. Þá
var dansað í kringum jólatré, jóla-
sveinn kom í heimsókn og jólagjöf-
um var útbýtt. Á myndinni er séra
Sigríður að lesa jólasögu fyrir
börnin.
Jólatrésskemmtun Íslend-
ingafélagsins í New York
Ljósmynd/Guðrún Margrét
Tilboðs- og kynningardagar í
Austurveri Háaleitisbraut 68
verða dagana 12. til 14. desember
nk. Þar verða eftirfarandi fyr-
irtæki með vörukynningar og
margvísleg jólatilboð og uppá-
komur:
Nóatún, Ástund „Megastore“, Lyf
og heilsa, Landsbankinn, Meyj-
arnar, Blómacompany, Hans Pet-
ersen, Bakaríið og Ástund sér-
verslun.
Í DAG
Aðventustund Samtaka for-
eldra og aðstandenda samkyn-
hneigðra Samtök foreldra og að-
standenda samkynhneigðra, FAS,
bjóða til samverustundar á að-
ventu laugardaginn 13. desember
kl. 16–18 í Regnbogasal Samtak-
anna 7́8, Laugavegi 3, 4. hæð.
Hópar sem vinna að málefnum
samkynhneigðra segja frá starfi
sínu, flutt verður jólatónlist og
Felix Bergsson les úr nýútkominni
bók sinni „Ævintýrið um Auga-
stein“ og slær á létta strengi. Þá
verður heimasíða FAS formlega
opnuð. Ingibjörg S. Guðmunds-
dóttir, varaformaður FAS, leiðir
fundinn.
Fundurinn er öllum opinn sem
vilja kynna sér starfið.
Á MORGUN
ÍSLENSKU jólasveinarnir koma til
byggða þrettán dögum fyrir jól, þá
einn í einu. Þeir eiga lítið skylt við
Sankta Kláus en eru hrekkjóttir
pörupiltar sem eiga dálítið erfitt með
að átta sig í tæknivæddri nútímaver-
öld.
Sveinarnir eru vel klæddir og eru
fötin þeirra íslensk yst sem innst.
Fyrir nokkrum árum rann Grýlu til
rifja hvað þeir voru illa til fara og með
aðstoð íslenskra hönnuða og hand-
verksfólks fengu þeir og foreldrar
þeirra nýjan alklæðnað frá hvirfli til
ilja, úr vaðmáli, gærum, flóka og ís-
lenskri ull.
Í ár munu jólasveinarnir koma við í
Þjóðmenningarhúsinu í boði Þjóð-
minjasafns Íslands. Stekkjastaur
kemur fyrstur, hann kemur í dag,
föstudaginn 12. desember, kl. 10.30 og
svo einn af öðrum kl. 10.30 á virkum
dögum en kl. 14 um helgar. Sunnu-
daginn 14. desember kl. 14 koma
Grýla og Leppalúði við í Þjóðmenn-
ingarhúsinu til að líta eftir Stúfi.
Aðgangur að jólasveinadagskránni
er ókeypis og allir velkomnir.
Ráðlegt er að panta fyrir stærri
hóp.
Jólasveinarnir
koma til byggða
Stúfur.
Í FRÉTT frá Tölvutæknifélagi Ís-
lands (TTFÍ) segir að félagið hafi
kosið sér nýja stjórn. Í henni sitja:
Ragnar Hauksson hjá Almennu
verkfræðistofunni hf., Bjarni Þór
Ólafsson, Íslenskum aðalverktök-
um hf., Vilhjálmur Árni Ásgeirs-
son, VSÓ Ráðgjöf, Brynjar Ein-
arsson, Teiknistofu Ingimundar
Sveinssonar, og Þórður Sigfússon
hjá Snertli.
Ný stjórn
TTFÍ
FASTEIGNIR mbl.is