Morgunblaðið - 12.12.2003, Side 75
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2003 75
DAGBÓK
Handklæði & flíshúfur
.
Fáið sendan
myndalista
Myndsaumur
Reykjavíkurvegur 62
220 Hafnarfjörður
Sími 565 0488
www.myndsaumur.is
Jólatilboð
Flíspeysur,
& flísteppi
Afmælisþakkir
Innilegar þakkir til allra þeirra sem glöddu
mig með gjöfum, blómum og skeytum á 90 ára
afmæli mínu þann 24. nóvember sl.
Guð blessi ykkur öll.
Dagbjartur Gunnarsson
frá Marteinstungu,
dvalar- og hjúkrunar-
heimilinu Grund.
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
BOGMAÐUR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert heillandi og líkamleg/
ur og átt auðvelt með að
skilja líkamlega tjáningu
annarra. Þú ert komin/n
að krossgötum og þarft
að gera það upp við þig
hvaða leið þú vilt fara.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Einhver mun hafa áhrif á
þig í dag. Þú gætir jafnvel
hitt sterkan einstakling sem
breytir lífsviðhorfum þín-
um.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Nýttu þær auðlindir sem þú
hefur aðgang að til að bæta
umhverfi þitt, bæði í
vinnunni og á heimilinu.
Losaðu þig við skuldir og
hvers konar drasl.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú gætir lent í átökum við
einhvern sem reynir að
beita þig of miklum þrýst-
ingi. Þú snýst ósjálfrátt til
varnar.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú þarft sennilega að gera
einhvers konar lagfæringar
í vinnunni í dag. Það verður
fyrirhafnarinnar virði því
árangurinn fer fram úr þín-
um björtustu vonum.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú gætir orðið yfir þig ást-
fangin/n í dag. Þetta er
bara þannig dagur.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Helltu þér út í tiltekt og
hreingerningar. Hentu því
sem þú hefur ekki lengur
þörf fyrir á heimilinu og
komdu skipulagi á hlutina.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú getur sannfært svo til
hvern sem er um næstum
hvað sem er í dag. Mundu
að vogin er merki lögfræð-
innar.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú vilt eyða tekjunum þín-
um í gagnlega hluti og jafn-
vel gera breytingar á því
hvernig þú aflar þeirra.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þig langar allt í einu til að
komast í betra form. Þú vilt
vera heilbrigð sál í hraust-
um líkama.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú ert að velta fyrir þér
flóknum hlutum á borð við
þróun, endurholdgun og til-
gang lífsins.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú gætir hitt einhvern sem
þú tengir ómeðvitað við
breytingar og jafnvel
hnignun. Þetta er hugs-
anlega einhvers konar
ógæfumaður.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Forðastu stjórnsama yf-
irmenn og aðra yfirboðara í
dag. Það er hætt við að
áhrifamikið fólk sýni öðrum
yfirgang í dag.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
HULDA
Jeg hverf til ykkar, helgu rökkurstundir,
í hópinn únga kríng um fróðan gest,
því gott var forðum ykkar vængjum undir
og enn er laungum þetta skjólið best,
þið vinir ástar, vinir allra ljóða
og verndarenglar huldulandsins góða.
Þið kunnið ennþá allar mínar sögur
og alt er geymt, sem mjer var forðum kært,
og orðin streyma ennþá létt og fögur
og allar raddir kveða hreint og skært,
og jeg er sjálfur, ungur eins og forðum
og alt er það í sínum gömlu skorðum.
Jeg man hve fyrri fyrir sjónum mínum
í fögrum ljóma álfabygðin stóð,
er hæðir Saga drap úr dróma sínum
og dularhamur leið af bjargaslóð
og sem úr móðu háar hallir runnu,
þar sem hulduljósin öllum kvöldum brunnu
- - - -
Þorsteinn Erlingsson
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
GULLBRÚÐKAUP. Í dag, föstudaginn 12. desember, eiga
50 ára hjúskaparafmæli heiðurshjónin Hannesína Tyrfings-
dóttir og Andrés M. Eggertsson, Fífumóa 21, Reykja-
nesbæ.
BRIDS
Umsjón Guðm. Páll
Arnarsson
EF spaðakóngurinn gæti tal-
að myndi hann skemmta hirð
sinni með sögunni af því þeg-
ar hann hafði þrjá spilara við
borðið að fíflum – blindur
undanskilinn. En kóngurinn
er mállaus og við verðum að
styðjast við frásögn Bart
Bramleys, sem var eitt af
„fíflunum þremur“.
Austur gefur; AV á hættu.
Norður
♠ Á6
♥ D865
♦ 987
♣ÁD32
Vestur Austur
♠ G109874 ♠ K32
♥ 972 ♥ ÁG3
♦ 104 ♦ ÁG62
♣K8 ♣965
Suður
♠ D5
♥ K104
♦ KD53
♣G1074
Spilið er frá Live Masters
tvímenningnum í New Or-
leans í síðasta mánuði.
Bramley var í suður og varð
sagnhafi í tveimur gröndum
eftir þessar sagnir:
Vestur Norður Austur Suður
-- -- 1 tígull Pass
1 spaði Dobl Pass 2 grönd
Pass Pass Pass
Þessi vafasami samningur
stefndi rakleiðis í tvo niður
þegar vestur hóf vörnina
með spaðagosanum. Lítið úr
borði og ... fyrsta fórnarlamb
kóngsins féll í valinn. Austur
lét lítinn spaða og Bramley
átti slaginn á drottninguna!
Spilarinn í austur er ekk-
ert flón og hann hafði góð
rök fyrir því að bíða með
kónginn. Hann var að gera
út á þá líklegu stöðu að suður
ætti Dxx í spaða og yrði að
sprengja út báða rauðu ás-
ana. Áætlun austurs var sú
að leggja spaðakónginn næst
undir ásinn og eiga svo
þriðja spaðann eftir til að
spila makker sínum inn.
Víkur þá sögunni til
Bramleys. Hann gekk út frá
því sem gefnu að vestur ætti
kónginn í spaða, en það
þýddi að hann gat ekki verið
með punkt til hliðar – þá ætti
austur ekki opnun. Bramley
spilaði því laufi í öðrum slag
og stakk upp ÁS í borði!
Fórnarlamb númer tvö.
Bramley spilaði laufi
áfram og hrökk illilega við
þegar vestur fékk slaginn.
En Bramley tók gleði sína
strax aftur, því vestur spilaði
hjartaníu um hæl! Spaða-
kóngurinn var þar enn að
verki: Vestur taldi víst að
suður ætti fósa og sá enga
framtíð í frekari spaðasókn.
Þriðja fórnarlambið.
Sem sagt: eftir að spaða-
kóngurinn hafði dregið þrjá
spilara á asnaeyrunum fóru
leikar svo að sagnhafi fékk
níu slagi og 150 fyrir spilið.
Bramley og félagi hans Sidn-
ey Lazard áttu von á góðu
skori fyrir þá niðurstöðu, en
fengu aðeins miðlung. Skýr-
ingin lá í opnunardobli norð-
urs. Á öðrum borðum hafði
norður yfirleitt passað yfir
einum spaða og AV því oft
farið 2-3 niður í spaðabút.
Sanngjörn niðurstaða,
þegar á allt er litið.
60 ÁRA afmæli. KarlÁsgeir Sigur-
geirsson á Hvammstanga
er sextugur í dag, föstudag-
inn 12. desember.
Karl er framkvæmda-
stjóri Forsvars ehf. og
fréttaritari Morgunblaðs-
ins. Hann verður í vinnunni
í dag, en að heiman í kvöld.
80 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 12. des-
ember, er áttræður Magnús
E. Baldvinsson, úrsmiður í
Reykjavík. Magnús og eig-
inkona hans Unnur Bene-
diktsdóttir dvelja í dag á
heimili dóttur sinnar Guð-
rúnar.
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4
4. Rf3 c5 5. g3 cxd4 6. Rxd4
O-O 7. Bg2 d5 8.
Db3 Bxc3+ 9.
Dxc3 e5 10. Rb3
dxc4 11. Ra5 Rd5
12. Dxe5 Dxa5+
13. Bd2 Db5 14.
Bxd5 Da6 15. Bc3
Dg6 16. Bxc4 Rc6
17. Df4 Bh3 18. O-
O-O Hac8 19. Hd5
h6 20. Bd3 De6 21.
Hd6 Dg4
Staðan kom upp
í alþjóðlegu móti
sem lauk fyrir
skömmu í Dóm-
íníska lýðveldinu.
Rússneski stór-
meistarinn Alexander Mois-
eenko (2618) hafði hvítt
gegn Pablo Zarnicki (2513).
22. Hxh6! Dxf4+ 23. gxf4 og
svartur gafst upp enda yrði
hann mát eftir 23... gxh6 24.
Hg1+.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Vel heppnað opið
hús hjá BSÍ
Það var góð stemmning á opnu
húsi hjá Bridssambandi Íslands á
sunnudag þótt stórfiskarnir hefðu
mátt vera fleiri. Alls mættu 22 pör
sem spiluðu Monrad Barometer und-
ir stjórn Sigurbjörns Haraldssonar.
Öruggir sigurvegarar kvöldsins
voru Þórir Jóhannsson og Edda
Svavarsdóttir en baráttan um næstu
sæti var mjög jöfn. Efstu þrjú pörin
fengu bókaverðlaun.
Lokastaðan:
Þórir Jóhannsson – Edda Svavarsdóttir 59
Ólöf Inga Klemensd. – Guðm. Magnúss. 35
Inda Hrönn Björnsd. – Bjarni Einarsson 32
Sigríður Ásgrímsd. – Vilhjálmur Sig jr. 29
Örn Arnþórsson – Björg Þórarinsdóttir 28
Rúna Baldvinsd. – Sigrún Þorvarðard. 27
Ómar Freyr Ómarss. – Hlöðver Tómass. 20
Sigríður Laufey Einarsd. – Elín Davíðsd. 12
Ásgeir Ingvason – Lilja Sigurðardóttir 12
Bridsdeild Barðstrendinga
og bridsfélag kvenna
Mánudaginn 8. desember lauk
þriggja kvölda Butler-tvímenningi fé-
lagsins á dramatískan hátt. Friðrik
Jónsson og Eiríkur Sigurðsson, sem
voru efstir lengi vel, gáfu eftir á loka-
sprettinum þó að litlu hafi munað í
lokin. Þegar síðasta umferðin var
reiknuð út, voru tvö pör efst og jöfn í
fyrsta sætinu, Unnar Atli Guðmunds-
son – Sveinn Ragnarsson og Guðjón
Sigurjónsson – Hermann Friðriks-
son. Miðað við þau úrslit hefði inn-
byrðis viðureign þeirra ráðið, en þar
höfðu Unnar og Sveinn betur með
þremur impum. Hins vegar kom í ljós
að ein talan í síðustu umferð hafði
verið rangfærð, 500 í AV. Sú tala átti
að vera 800 og lækkuðu Unnar Atli og
Sveinn um eitt stig við leiðréttinguna.
Lokastaðan í þessari dramatísku
keppni varð því þannig:
Guðjón Sigurj. – Hermann Friðrikss. 131
Unnar A. Guðm. – Sveinn Ragnarss. 130
Friðrik Jónsson – Eiríkur Sigurðsson 127
Snorri Sturluson – Ingólfur Hlynsson 64
Sigrún Pétursdóttir – Gróa Guðnadóttir 50
Hjálmar S. Pálsson – Árni Már Björnss. 45
Eftirtalin pör náðu hæsta skorinu á
síðasta spilakvöldinu:
Hermann Friðriksson – Guðjón Sigurj. 62
Ásmundur Örnólfss. – Gunnl. Karlss. 50
Karl Ómar Jónsson – Sigurður Ólason 31
Sigulaug Bergvinsd. – Sveinn Símonars. 18
Hjálmar S. Pálsson – Árni Már Björnss. 14
Arngunnur Jónsd. – Daníel Már Sig. 14
Síðasta keppni félagsins á spila-
árinu verður eins kvölds tvímenning-
ur, mitchell. Sigurvegarar í hvora átt
mega eiga von á því að taka heim með
sér jólaglaðning.
Gullsmárabrids
Bridsdeild FEBK Gullsmára spil-
aði tvímenning á tólf borðum mánu-
daginn 8. desember. Miðlungur 220.
Efst vóru:
NS
Sigtryggur Ellertss. – Þórarinn Árnas. 277
Auðunn Bergsv. – Ingólfur Viktorss. 257
Aðalsteinn – Leó Guðbrandssynir 238
Ernst Backmann – Róbert Sigmundss. 238
AV
Ruth Pálsdóttir – Elís Kristjánsson 251
Sigurpáll Árnas. – Sigurður Gunnl. 249
Sigríður Ingólfsd. – Sigurður Björnss. 240
Steindór Árnason – Tómas Sigurðsson 234
11. desember: Tvímenningur. 15.
desember: Stuttur Jólatvímenningur
og Aðventukaffi.
Bridsdeild Samiðnar
Tvímenningskeppni um Járn-
smiðabikarinn er lokið.
Úrslit:
Sveinn Ragnarss. – Unnar Guðmundss. 308
Ólafur Ingvarsson – Zarioh Ómar 282
Garðar Ólafsson – Óskar Baldursson 264
Fyrsta sveitakeppni vetrarins,
Bíliðnafélags/Félags blikksmiða-
bikarinn er næst á dagskrá.
Spilað verður 11. og 18. des. 2003 í
Borgartúni 30 kl. 19.30. Félagar Sam-
iðnar velkomnir.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Það var góð stemmning á opnu húsi hjá Bridssambandinu á sunnudag.