Morgunblaðið - 12.12.2003, Side 79
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2003 79
ÖRN Arnarson, sundmaður úr
Íþróttabandalagi Reykjanesbæjar,
hafnaði í fimmta sæti í 200 metra
baksundi á Evrópumeistaramótinu
í sundi í 25 metra laug í Dublin í
gær. Örn synti á 1.53,40 mínútum
sem er sekúndu frá Íslands og Evr-
ópumótsmeti frá síðasta ári. Slóv-
akinn Blaz Medvezek sigraði í
sundinu en hann kom í mark á
1.52,60 mín.
Jakob Jóhann Sveinsson úr Sund-
félaginu Ægi endaði í 14. sæti í 100
metra bringusundinu. Jakob synti í
milliriðlinum og fékk 14. besta tím-
ann en hann synti á 1.00.69 mín-
útum en í undanrásunum synti
hann á 1.00,63 mín. Jakob á Íslands-
metið í greininni, 1.00,52 mín sem
hann setti í Antwerpen í Hollandi
hinn 13.12. árið 2001.
Jón Oddur Sigurðsson, ÍRB,
keppti einnig í 100 metra bringu-
sundi og náði sér ekki á strik og
kom síðastur í mark á 1.03,98 mín
en 41 keppandi tók þátt.
Hafdís Erla Hafsteinsdóttir úr
Ægi endaði í síðasta sæti í 200
metra fjórsundi. Hún synti á 2.25,70
mínútum.
Sigrún Benediktsdóttir úr Óðni
frá Akureyri varð í síðasta sæti af
48 keppendum í 100 metra skrið-
sundi, en hún kom í mark á 1.00,63
mín. Ragnheiður Ragnarsdóttir úr
SH, tók einnig þátt í 100 m skrið-
sundi. Hún varð í 45. sæti og kom í
mark á tímanum 57,66 sekúndum.
Örn Arnarson varð
fimmti á EM í Dublin
DAVID Pleat mun stýra liði Tott-
enham út leiktíðina en hann var ráð-
inn tímabundið í starf knattspyrnu-
stjóra eftir að Glenn Hoddle var
látinn hætta. Undir stjórn Pleats
hefur Tottenham unnið sjö leiki og
gert tvö jafntefli í þeim tólf leikjum
sem hann hefur verið við stjórnvöl-
inn.
HEIMASÍÐA körfuknattleiks-
deildar Tindastóls greinir frá því að
Svavar Atli Birgisson, sem leikið
hefur með Þór í Þorlákshöfn í vetur,
muni leika með Tindastól eftir ára-
mótin. Félagaskipti Svavars verða
send inn til KKÍ í dag og verður hann
væntanlega löglegur með liðinu þann
15. janúar er Tindastóll leikur gegn
KFÍ.
SVAVAR hefur leikið 5 tímabil
með Tindastól, síðast 2000-2001, tvö
ár með Hamarsmönnum og nú síðast
með Þór frá Þorlákshöfn.
FRAM kemur á sömu vefsíðu að
Gunnlaugur Erlendsson, sem einnig
hefur leikið með Þór í vetur, hafi hug
á því að skipta yfir í Tindastól á nýj-
an leik.
SCOTTIE Pippen sem varð m.a.
sex sinnum NBA-meistari með Chic-
ago Bulls segir við bandaríska fjöl-
miðla í gær að hann verði jafnvel að
leggja skóna á hilluna. Pippen hefur
átt í vandræðum vegna meiðsla á hné
en hann fór í aðgerð á hné í mars s.l.
og hefur ekkert getað leikið síðan þá.
Pippen sem er 38 ára gamall gerði
tveggja ára samning við Bulls í sum-
ar en hann hafði áður verið leikmað-
ur Portland Trailbazers. Pippen
fær um 380 milljónir ísl. kr. á ári frá
Bulls.
FRANK Johnson var sagt upp
störfum í gær sem þjálfari NBA-liðs-
ins Phoenix Suns en undir hans
stjórn tapaði liðið sex af sjö síðustu
leikjum sínum. Vinningshlutfallið er
8/13 eins og staðan er í dag. Johnson
er fyrrum leikmaður liðsins og var
ein af hetjunum sem lék til úrslita
um NBA titilinn gegn Chicago Bulls
á árum áður.
MIKE D’ANTONI, ítalskur að-
stoðarmaður Johnson, tekur við lið-
inu tímabundið en hann var aðal-
þjálfari Denver Nuggets tímabilið
1998-1999 en fékk aðeins að sanna
sig í nokkrar vikur þar á bæ. Mike
D’Antoni er einn þekktasti körfu-
knattleiksmaður Ítala fyrr og síðar.
FYRRVERANDI leikmaður
skoska landsliðsins og Liverpool,
Gary McAllister, hefur fengið tíma-
bundið leyfi frá störfum sínum sem
leikmaður og knattspyrnustjóri
enska 1. deildarliðsins Coventry.
Eiginkona McAllister á við alvarleg
veikindi að stríða og segir Mike
McGinnity formaður félagsins að
McAllister fái þann tíma sem hann
þurfi með fjölskyldu sinni á næstu
misserum. Eric Black mun stýra lið-
inu í næstu leikjum.
FÓLK
ÞÝSKA karlasveitin setti
heimsmet í 200 metra fjór-
sundi á á Evrópumeistara-
mótinu í 25 metra laug sem
hófst í Dublin á Írlandi í gær.
Þjóðverjarnir komu í mark á
tímanum 1.34,46 mínútur og
bættu eigið met um 26/100 úr
sekúndu frá EM í fyrra.
Thomas Rupprath, Mark
Warnecke, Fabian Friedrich
og Carsten Dehmlow syntu að
þessu sinni fyrir Þjóðverja.
Fimmfaldur Evrópumeist-
ari í sundi, Franziska van Alm-
sick, varð að draga sig frá
keppni á Evrópumeistara-
mótinu í 25 metra laug sem
hófst í Dublin á Írlandi í gær.
Almsick er 25 ára gömul og
er frá Þýskalandi en læknar
þýska liðsins ráðlögðu henni
að taka ekki þátt í mótinu að
þessu sinni.
„Ég er mjög vonsvikin að
geta ekki tekið þátt. Það var
markmiðið að hafa gaman af
því að keppa í Dublin. Ég mun
því einblína á Aþenu á næstu
vikum í undirbúningi mínum
fyrir Ólympíuleikana,“ sagði
Almsick sem missti af leik-
unum í Barcelona, Atlanta og
Sydney.
KR-ingar léku ágætlega í gær-kvöldi og miðað við hvernig
liðið lék er nokkuð furðulegt að það
skuli aðeins vera í
fimmta sæti deildar-
innar, en einn besti
maður vallarins í
gær, Magni Haf-
steinsson hefur skýringu á því: „Við
erum búnir að vera ein sog jó, jó í
vetur. Við leikum einn frábæran
leik og svo í þeim næsta erum við
ömurlegir. Nú verðum við að taka
okkur saman í andlitinu og ná góð-
um leik á móti þessum stóru liðum,“
sagði hann. Spurður hvort KR væri
ekki eitt af stóru liðunum, sagði
hann: „Jú, að sjálfsögðu.“
Leikurinn var í járnum framan af
þó svo að allt virtist miklu auðveld-
ara hjá KR en hjá gestunum. Bar-
áttan í Hamarsmönnum var mikil,
enda hefur það verið aðal liðsins og
á því var enginn breyting í gær-
kvöldi – ekki framan af. En leik-
mannahópur Hvergerðinga er ekki
stór og því má liðið ekki við miklum
skakkaföllum. Baráttan kostaði
sitt, villurnar hrúguðust upp og
Svavar Pálsson fékk sína þriðju
villu þegar staðan var 5:4 og Fa-
heem Nelson sína fjórðu villu þegar
staðan var 29:29 um miðjan annan
leikhluta. Hann kom ekkert við
sögu fyrr en í þriðja leikhluta á ný
og lauk síðan leik undir lok hans
með fimm villur og munar um
minna fyrir Hamar.
Lokakafli KR í öðrum leikhluta
var frábær. Staðan var 29:34 og
35:36 þegar Vesturbæingar tóku til
sinna ráða og gerðu 18 stig í röð.
Staðan í leikhléi því 53:36.
Vandamál Hvergerðinga að
þessu sinni var að stóru mennirnir í
liðinu lentu í villuvandræðum og við
því mátti liðið alls ekki.
KR-ingar voru kampakátir í leik-
hléinu eftir góðan endasprett í lok
fyrri hálfleiks og þriðji leikhluti var
sá besti í leiknum, af hálfu beggja
liða. Ágætis varnir og þéttur leikur
hjá öllum aðilum. Hann endaði
23:20 en annar leikhluti endaði
35:19 og sá fjórði 22:34. Hamars-
menn gerðu sem sagt tveimur stig-
um færra í síðasta leikhluta en þeir
gerðu allan fyrri hálfleikinn.
Síðasti leikhlutinn leystist upp í
hálfgerðri vitleysu. KR-ingar gáfu
eftir og Hamarsmenn, eða réttara
sagt Chris Dade, gekk á lagið. Stað-
an eftir þriðja leikhluta var 76:56 og
KR náði 25 stiga forystu áður en
sýning Dade hófst. Hann kom með
boltann fram völlinn, fór að þriggja
stiga línunni, oft laglega, og skaut.
Ungu strákarnir sem hefðu áttu að
fá að reyna sig á þessum kafla, þar
sem útilokað var að Hamarsmenn
næðu að sigra, horfðu á og fengu
varla að koma við knöttinn. Slíkt
kann vart góðri lukku að stýra til
langframa. En sýning Dade var
skemmtileg engu að síður.
Magni átti stórgóðan leik fyrir
KR, 20 stig, 10 fráköst, fimm stoð-
sendingar og bolta var stolið fimm
sinnum. Skarphéðinn var sterkur,
Woods einnig og þeir Jesper Sören-
sen og fyrirliðinn Steinar Kaldal
áttu fínan leik. Ólafur M. Ægisson
hitti vel á tímabili.
Hjá Hamri voru Nelson og Dade
sterkir, baráttuandi heimamanna í
Hveragerði hefur smitað út frá sér
og þeir eru báðir mjög duglegir.
Nelson varði sex skot og gerði 15
stig í þær 20 mínútur sem hann náði
að leika. Lárus Jónsson átti líka fín-
an leik, gaf 13 stoðsendingar og stal
boltanum fimm sinnum.
Morgunblaðið/Þorkell
Ingvaldur Magni Hafsteinsson var stigahæstur í liði KR og hér treður framherjinn knettinum í
körfuna en Svavar Pálsson varnarmaður úr liði Hamars fylgist vel með tilþrifum Magna.
Skotsýning Dade gegn
KR hófst fullseint
KR-INGAR kræktu sér í tvö stig í efstu deild karla í gærkvöldi þegar
þeir tóku á móti Hamarsmönnum úr Hveragerði. Vesturbæjarliðið
hefur löngum átt í vandræðum með Hvergerðinga í körfunni, sér-
staklega á heimavelli sínum, en í gær náðu þeir að hrista gestina af
sér þó svo að munurinn í lokin yrði aðeins átta stig, 98:90.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
Heimsmet
hjá Þjóð-
verjum
í Dublin