Morgunblaðið - 16.02.2004, Side 16

Morgunblaðið - 16.02.2004, Side 16
UMRÆÐAN 16 MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Kæri auglýsandi Sérblaðið bílar sem kemur út 18. febrúar verður helgað umfjöllun um jeppa, jeppaferðir og vélsleða. Sérblaðið bílar sem fylgir Morgunblaðinu, kemur út á miðvikudögum í 54.000 eintökum. Í blaðinu 18. febrúar verður ítarleg umfjöllun um jeppa, jeppaferðir og vélsleðaferðir. Blaðið er góður kostur fyrir þá sem vilja vekja athygli á vörum sínum og þjónustu og verðið er sérlega hagstætt. Pantanafrestur auglýsinga er fyrir kl. 16.00 mánudaginn 16. febrúar. Fulltrúar auglýsingadeildar Morgunblaðsins veita þér allar upplýsingar um auglýsingamöguleika og verð. Auglýsingadeild, sími 569 1111 - Netfang augl@mbl.is UNDANFARNA daga hefur kom- ið fram í fjölmiðlum, einkum vegna aðalfundar samtaka heildsala, Sam- tök verslunarinnar FÍS, að mikil fá- keppni ríki á einstökum smá- sölumörkuðum á Íslandi. Tilgreindir hafa verið m.a. mat- vörumarkaðurinn, lyfjasmásala, olíufélög og byggingavörusmá- sala. Jafnframt hafa samtök heildsalanna kvartað yfir því að smá- salar beiti einstaka heildsala afarkostum í valdi stærðar sinnar, en þar sem þeir óttist hefndaraðgerðir þá þori þeir ekki að koma fram undir nafni og greina frá þessum dæmum. Síðan hefur formaður um- ræddra heildsamtaka það sem fastan lið að ræða um að samtök hans hafi í 75 ár barist fyrir frelsi í verslun og viðskiptum og má skilja að þar hafi farið hrópandinn í eyðimörkinni. Já, ljótt er ef þetta væri nú allt svona. En vitaskuld er þetta ekki eins og þarna er lýst enda þótt Morg- unblaðið hafi því miður endurtekið í leiðaraskrifum gagnrýnislaust. Lítum aðeins nánar á sviðið. Þar eru vissulega fá og á íslenskan mæli- kvarða stór verslunarfyrirtæki með þorra smásöluverslunarinnar í mat- vöru, lyfjum og byggingarvörum. Vert er að geta þess jafnframt, að þessi fyrirtæki reka útsölustaði víða í landinu og hafa sjálf ákveðið að selja vörur á sama eða svipuðu verði um allt land. Þetta hefur opnað landsbyggðinni nýjan og hagstæðan að- gang að verslunarþjón- ustu á sama verði og neytendur í Reykjavík njóta og þar með yf- irleitt lækkað útgjöld þeirra. Samkeppni á smá- sölumarkaði er að sjálf- sögðu mismunandi eftir mörkuðum, en þó má al- mennt telja hana tölu- verða og jafnvel mikla sumstaðar (t.d. á matvörumarkaði). Yfirleitt ber mest á verðsamkeppni, en einnig getur samkeppnin tekið á sig aðrar myndir eins og t.d. punkta- kerfi (olíufélög) eða afsláttarkjör (lyfjaverslanir og byggingarvörusal- ar). Ekki verður séð að samkeppni sé öllu meiri á öðrum mörkuðum en til- vitnuðum smásölumörkuðum. Hrópað er orðið fákeppni eða fáok- un og má næstum skilja það svo að annars staðar í hagkerfinu sé slíkt óþekkt. Svo er nú aldeilis ekki, enda kalla allar aðstæður rekstrar hér á landi á fáa og þá um leið stærri rekstraraðila sem ná þeirri stærð að geta komið við einhverri stærð- arhagkvæmni. Þetta á jafnt við bæði framleiðendur, heildsala og smásölu- fyrirtæki. Viðskiptaráðherra orðaði það eitthvað á þá leið í blaði um helgina, að ekki væri hægt að banna fyrirtækjum að verða eða vera stór, en misbeiting markaðsráðandi stöðu væri hins vegar bönnuð með sam- keppnislögum. Beita stórir smásalar á mat- vörumarkaði (lesist Hagar, Kaupás og Samkaup) heildsala á sama mark- aði slíkum bolabrögðum að með ein- dæmum er og þora viðkomandi heild- salar ekki að segja frá af ótta við hefndaraðgerðir (6–7 heildsalar eru með þorra allrar heildsölu í matvöru í landinu og þar af eru tveir ekki fé- lagsmenn í samtökum heildsala og því varla vísað til þeirra af for- ystumönnum þeirra samtaka)? Slíkar fullyrðingar verða varla teknar alvar- lega nema viðkomandi aðilar eða samtök þeirra leggi slíkt fyrir eft- irlitsaðila með þessum markaði (Sam- keppnisstofnun) og kæri þetta athæfi. Ekki hefur komið fram að slíkar kær- ur hafi verið lagðar fram, en ekki þarf endilega að kæra undir nafni til stofn- unarinnar. Þetta hljómar því fremur sem hróp aðila sem eru í vandræðum með sinn rekstur og eru að biðja um opinbert skjól í einhverri mynd. Samtök heildsalanna, Sv FÍS, standa vörð um ákveðið versl- unarkerfi og umræður þeirra um ákveðið lágmarksverð er til þess að viðhalda því áfram. Það er hins vegar skylda smásölunnar sem stendur næst neytendum að leita stöðugt leiða til að geta boðið lægra verð og sætta sig aldrei við kyrrstöðu á mark- aði. Einmitt þess vegna hafa sum áð- urnefnd smásölufyrirtæki leitað í út- löndum að hagstæðari innkaupum en hér bjóðast hjá heildsölum og mörg dæmi eru um að mun hagstæðari kjör hafi boðist. Þegar svo átti að hefja innflutninginn var skyndilega haft samband og sagt að því miður væri ekki hægt að selja viðkomandi smá- sala vöruna beint heldur yrði hann að kaupa af heildsalanum á Íslandi. Hægt er að tilgreina fleiri en eitt og fleiri en tvö dæmi um þetta ef óskað er eftir því. Þetta er nú öll baráttan fyrir auknu frelsi í viðskiptum í 75 ár! Það er reynt með öllu móti að við- halda einkasölusamningum og um- boðsmannakerfi sem þó hafa verið úrskurðuð ógild á hinum evrópska efnahagssvæði og reyndar sé alþjóða viðskiptastofnunin á sama máli og hafi predikað slíka breytingu til að auka viðskiptafrelsi. Sem betur fer hefur smásölum, þrátt fyrir áðurgreinda tilburði heild- sala til að koma í veg fyrir frjáls við- skipti, tekist að lækka verð töluvert á vörum og þar með að auka sam- keppnishæfni við smásala í nágranna- löndum og löndum sem Íslendingar ferðast gjarnan til. Þannig hafa mat- vörur sem fluttar eru inn lækkað töluvert í verði og reyndar hafa af þeim sökum útgjöld heimila til mat- vörukaupa lækkað niður í 13,5% í mars 2003 úr 15,9% í nóv. 1992. Fatn- aður hefur einnig lækkað verulega um leið og framboðið hefur aukist mikið. Af þessum sökum hefur versl- un að nokkru færst aftur inn í landið. Ástæðulaust er að halda því fram að heildverslunin eigi engan þátt í þessu, að það er þó ætíð fyrst og fremst smásalan sem knýr á um lægra verð og betri kjör enda er það hennar hlut- verk og ekkert öðru vísi á Íslandi en annars staðar. Varðandi samskipti smásölunnar við heildsala má minna á að fyrir þrábeiðni samtaka heildsala kynnti Samkeppnisstofnun leiðbein- ingar um samskipti þessara aðila og ítrekaði að ef ekki væri farið eftir þeim gæti slíkt falið í sér brot á sam- keppnislögum. Ef heildsalar hafa yfir einhverju að kvarta varðandi hátt- semi einstakra fyrirtækja á mat- vörumarkaði þá hafa þeir þarna far- veg til úrbóta – jafnvel nafnlaust. Það er ósvífið og ástæðulaust af hálfu samtaka heildsala að ala stöð- ugt á sundurlyndi í versluninni með hálfkveðnum vísum og aðdróttunum í garð smásölunnar eins og for- ystumenn þar hafa gert að und- anförnu. Menn koma ekki svona fram við viðskiptavini sína! Ef umbjóð- endur þeirra hafa gildar ástæður til kvartana þá eiga þeir að nota hinn op- inbera eftirlitsaðila, Samkeppn- isstofnun, til að taka á þeim málum. Nær væri að samtök heildsalanna sneru sér að því að auka veg versl- unarinnar og draga fram gildi hennar fyrir hagkerfi samtímans, en að nýta aðferðir ónefnds Bandaríkjaforseta sem bar sakir á menn þótt hann vissi betur. Vilja opinbert skjól til að halda uppi verði Sigurður Jónsson skrifar um verðlagningu ’Vert er að geta þessjafnframt að þessi fyr- irtæki reka útsölustaði víða á landinu og hafa sjálf ákveðið að selja vörur á sama eða svip- uðu verði um allt land.‘ Sigurður Jónsson Höfundur er framkvæmdastjóri SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu sem eru landssamtök m.a. flestra smásölu- fyrirtækja, olíufélaga, vöruflytjenda og fjarskiptafyrirtækja.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.