Morgunblaðið - 16.02.2004, Side 29

Morgunblaðið - 16.02.2004, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2004 29 DAGBÓK Laus staða bíleiganda ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S T O Y 23 69 8 0 2/ 20 04 Áhyggjulaus og örugg bílaviðskipti - Strangt skoðunarferli, 14 daga skiptiréttur, ókeypis skoðun eftir 1000 km, allt að 1 árs ábyrgð. Skoðaðu úrvalið á Nýbýlavegi 4, á www.toyota.is eða hringdu í 570 5070. Audi A4 Quattro Fyrst skráður: 09.2001 Ekinn: 20.000 km Vél: 1800 cc, 5 g Litur: Gullsanseraður Verð: 2.880.000 kr. Búnaður: Leður, sóllúga ofl. STJÖRNUSPÁ Frances Drake VATNSBERI Afmælisbörn dagsins: Þú ert hvatvís, sjálfstæð/ur og sveigjanleg/ur. Þú hefur miklar mætur á börnum og dýrum. Ást og vinátta munu setja svip sinn á komandi ár. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú gætir átt alvarlegar sam- ræður við yfirmann þinn eða annan yfirboðara í dag. Reyndu að líta sem best út. Það hjálpar alltaf að koma vel fyrir. Naut (20. apríl - 20. maí)  Ekki láta efasemdir um ný- legar ákvarðanir þínar ná tökum á þér. Það liggur ein- hver svartsýni í loftinu. Reyndu að ýta henni frá þér þannig að hún trufli þig sem minnst. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú gætir átt svolítið erfitt með að sýna öðrum örlæti í dag. Mundu að þú getur ekki vænst þess að aðrir sýni þér örlæti nema þú gerir það sama. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Tunglið er beint á móti merk- inu þínu og því þarftu virki- lega að leggja þig fram til að samskipti þín við aðra gangi snurðulaust í dag. Reyndu að vera vingjarnleg/ur og þol- inmóð/ur. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Reyndu að koma vel fyrir í vinnunni í dag. Samstarfs- menn þínir eru að fylgjast með þér. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú ert óhrædd/ur við að taka á þig aukna ábyrgð á börn- um. Þetta er af hinu góða. Barnauppeldi er eitt af mik- ilvægustu störfum okkar hér á jörðinni. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Láttu heimilið og fjölskyld- una hafa forgang í dag. Þú þarft að koma hlutunum á hreint og horfa til framtíðar. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Láttu það ekki slá þig út af laginu þótt hlutirnir líti ekki sem best út. Það finna margir til svartsýni þessa dagana en hún mun líða hjá innan skamms. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þú vilt fá sem mest fyrir pen- ingana þína í dag. Þú munt því ekki eyða í neina vitleysu heldur kaupa hluti sem munu nýtast þér í langan tíma. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Tunglið er í merkinu þínu og það veitir þér svolítið forskot á önnur merki. Reyndu að gera sem mest úr því. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú gætir fundið til einmana- leika í dag. Reyndu að ýta honum frá þér og njóta ein- verunnar. Félagslífið verður komið í samt lag innan tíðar. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú þarft tíma til að vera ein/n með sjálfri/sjálfum þér. Þú ert að hefja nýtt ár og ættir því að íhuga hvert þú stefnir. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. ÝSKELFIR Ég liljuriddarinn rakti við stjörnuskin hinn rökkvaða skóg með hjartað í bláum loga og sofandi jörðin hrökk upp við dimman dyn og dauðinn þaut í himinsins spennta boga. Allt líf var skuggi: úr moldinni myrkrið fló og máninn huldist skýi sem slökknað auga og tíminn villtist og vindurinn beit og sló er vofurnar báru gullið í sína hauga. Svo þung var öldin að allan skilning mig þraut og uglur vældu og loftið titraði af rógi: ég lagði höndina á himinbogann og skaut og hæfði fegursta dýrið í Goðaskógi. Í saklausri angist drúpti drottningin Hind er dreyrinn seytlaði úr brjósti konungsins Hjartar: í nótt var eðli mitt nakið og sál mín blind í nótt urðu hvítu liljurnar mínar svartar. Jóhannes úr Kötlum LJÓÐABROT ÁRNAÐ HEILLA 1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rc6 5. Rc3 Dc7 6. Be3 a6 7. Dd2 Rf6 8. O-O-O Bb4 9. f3 Re5 10. Rb3 b5 11. Bd4 Bb7 12. Df2 O-O 13. Rc5 d6 14. Rxb7 Dxb7 15. g4 Hac8 16. h4 Rfd7 17. Re2 Dc7 18. c3 Bc5 19. Kb1 b4 20. cxb4 Bxb4 21. Rc3 Da5 22. Hc1 Bc5 23. Bxc5 Rxc5 24. De3 Hb8 25. Hh2 Hb4 26. Hcc2 Hfb8 27. g5 g6 28. h5 gxh5 29. Hxh5 Da3 30. Hhh2 Ra4 31. Dc1 Rxf3 32. Hhf2 Rd4 33. g6 hxg6 34. Rb5 Hxb2+ 35. Hxb2 axb5 36. Df4 Rc3+ 37. Ka1 Hb7 38. De3 e5 39. Dg5 Ha7 40. Dd8+ Kg7 41. Df6+ Kg8 Staðan kom upp í alþjóðlegu móti sem lauk fyrir skömmu í Gíbraltar. Jonathan Row- son (2547) hafði með hvítu staðið höllum fæti alla skák- ina gegn John Emms (2501) en tókst með leik sínum að snúa á enska kollega sinn í stórmeistarastétt. 42. Bc4!! Kemur í senn í veg fyrir hót- un svarts Rd4-b3+ og hótar máti. Biskupinn er frið- helgur vegna mátsins á b8. 42...d5 43. Hh2 og svartur gafst upp enda óverjandi mát. SKÁK Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. SVEINN Rúnar Eiríksson er heimildamaðurinn á bak við spil dagsins, sem er frá aðalsveitakeppni Bridsfélags Reykjavíkur. Vestur gefur; AV á hættu. Norður ♠– ♥K10873 ♦8763 ♣KDG7 Vestur Austur ♠9 ♠K1074 ♥DG52 ♥94 ♦KG942 ♦ÁD10 ♣Á85 ♣10963 Suður ♠ÁDG86532 ♥Á6 ♦5 ♣42 Sveinn Rúnar og makker hans Erlendur Jónsson voru í NS og lyktir sagna urðu þær að Erlendur spilaði fjóra spaða doblaða. Í andstöðunni voru Þórður Sigurðsson og Randver Ragnarsson: Vestur Norður Austur Suður Randver Sveinn Þórður Erlendur 1 tígull 1 hjarta Dobl Redobl 2 tíglar Pass Pass 3 spaðar Pass 4 spaðar Dobl Allir pass Sveinn sagði hækkun sína í fjóra spaða taktíska leið til að forðast skammir, enda mætti auðveldlega færa rök fyrir því að þrír spaðar væru krafa að undangengnu re- dobli. Og Sveinn vildi ekki sitja undir ámæli (skömm- um) ef Erlendur ynni þrjá spaða með yfirslag. En það jók ekki á vinningsvonir sagnhafa að dobl Þórðar á einu hjarta sýndi kerf- isbundið fjórlit í spaða. Út kom tígull upp á ás og meiri tígull, sem Erlendur trompaði og spilaði laufi að blindum. Randver rauk upp með ásinn og spilaði enn tígli. Erlendur trompaði, spilaði laufi tvisvar og henti hjarta- ás heima! Stakk næst fjórða tígulinn. Eftir hjarta á kóng og hjartatrompun var staðan orðin þessi: Norður ♠– ♥1087 ♦– ♣G Vestur Austur ♠9 ♠K1074 ♥DG ♥– ♦K ♦– ♣– ♣– Suður ♠ÁDG8 ♥– ♦– ♣– Erlendur spilaði spaða- drottningu og uppskar laun erfiðis síns þegar vestur fylgdi lit með níunni. Austur á ekkert svar við þessu: ef hann drepur strax djúp- svínar sagnhafi áttunni næst, en ef austur dúkkar verður hann endaspilaður með spaðaáttunni. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson Skugginn/Barbara Birgis BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 6. desember sl. í Dómkirkjunni af sr. Hjálm- ari Jónssyni þau Eva Þor- steinsdóttir og Kristján Magnason. Skugginn/Barbara Birgis BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 17. janúar sl. í Graf- arvogskirkju af sr. Vigfúsi Þór Árnasyni þau Sonja Magnúsdóttir og Oddur Arnar Halldórsson. MEÐ MORGUNKAFFINU Ó, nei … Hvern fjandann gerði ég af mér í gærkveldi!!? MORGUNBLAÐIÐ birtir til- kynningar um afmæli, brúð- kaup, ættarmót og fleira les- endum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynn- ingar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyr- irvara fyrir sunnudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmæl- istilkynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og síma- númer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréf- síma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík KIRKJUSTARF Áskirkja. Hreyfi- og bænastund kl. 12 og kl. 17.30 í neðri safnaðarsal. Hallgrímskirkja. Æskulýðsfél. Örk kl. 20. Laugarneskirkja. Opinn 12 sporafundur kl. 18 í safnaðarheimilinu. Umsjón hefur Arnheiður Magnúsdóttir. Allt fólk velkom- ið. Vinir í bata. Tólf spora hópar koma saman kl. 20. Gengið inn um aðaldyr safn- aðarheimilisins. Umsjón hafa Gunnlaugur Ólafsson og Hafdís Margrét Einarsdóttir. Neskirkja. 6 ára starf kl. 13.40. Sögur, söngur, leikir og föndur.Uppl. og skráning í síma 511 1560. TTT-starf kl. 16.30. Starf fyrir 10–12 ára börn. Leikir, ferðir o.fl. Árbæjarkirkja. Mánudagar: Kl. 15 STN – starf með sjö til níu ára börnum í safn- aðarheimili kirkjunnar. Fella- og Hólakirkja. Opið hús fyrir full- orðna í safnaðarheimilinu kl. 13–15.30, spilað og spjallað. Kaffiveitingar. Þeir sem óska eftir akstri láti vita í síma 557 3280 fyrir hádegi. Fyrirbænastund í kapellu kirkjunnar kl. 15.30. Bænaefnum má koma til djákna, presta eða annarra starfsmanna kirkjunnar. Stúlknastarf fyrir 11–12 ára kl. 16.30. Æskulýðsstarf fyrir unglinga í 8., 9. og 10. bekk kl. 20–22. Umsjón Stefán Már Gunnlaugsson. Grafarvogskirkja. Kirkjukrakkar fyrir börn á aldrinum 7–9 ára kl. 17.30–18.30 í Engjaskóla. KFUK fyrir stúlkur á aldrinum 9–12 ára kl. 17.30–18.30. Seljakirkja. KFUK 9–12 ára kl. 17.30. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús fyrir 16 ára og eldri kl. 20–22. Ástjarnarsókn. Ponzý (unglingastarf ætl- að árg. 1990 og upp úr) á mánudögum kl. 20–22. Lágafellskirkja. Barnastarf kirkjunnar, Kirkjukrakkar, er í Varmárskóla. Bæna- stund kl. 19.45. Al–anon fundur kl. 21. Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 16 Æskulýðsstarf fatlaðra, yngri hópur. Helgi- stund og gott samfélag. Hulda Líney Magnúsdóttir æskulýðsfulltrúi og sr. Þor- valdur Víðisson. Kl. 20 Nærhópastarf í Landakirkju. Umsjónarfólk. Þorlákskirkja. Biblíufræðsla kl. 20. Borgarneskirkja. TTT-starf kl. 15.30– 16.30. Hjálpræðisherinn á Akureyri. Kl. 15 heim- ilasamband fyrir alla konur. Majór Anne Marie Reinholdtsen talar. Allar konur vel- komnar. Kl. 17 Örkin hans Nóa, fyrir 1., 2. og 3. bekk. Kl. 18 KK fyrir 4. og 5. bekk. Safnaðarstarf Morgunblaðið/Ásdís Hallgrímskirkja.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.