Morgunblaðið - 16.02.2004, Blaðsíða 32
32 MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
KRINGLAN
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.30.
21
Sannkölluð stórmynd
sem hlotið hefur
frábæra dóma og
viðtökur um allan heim.
Tom Cruise hefur aldrei
verið betri!
Frábær gamanmynd
með frábærri tónlist.
Með hinni
efnilegu
Beyoncé
Knowles,
fimmföldum
Grammy
verðlaunahafa
og
Óskarsverðlaun
ahafanum Cuba
Gooding Jr.
HJ. MBL
ÓHT. Rás2
Sýnd kl. 7.15. B.i. 14 ára.
6
Tilnefningar til
óskarsverðlauna
m.a. besta mynd ársins
Sýnd kl. 10.10. B.i. 16.
Kvikmyndir.is
DV
4 Tilnefningar tilóskarsverðlauna
Sýnd kl. 5.30.
Heimur farfuglanna
Sýnd kl. 6 og 8.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 14 ára.
Mögnuð mynd með
Óskarsverðlaunahöfunum Ben Kingsley og
Jennifer Connelly
Tilnefningar til
óskarsverðlauna3
Sýnd kl. 6. ísl. tal. Sýnd kl. 10. 500 kr.-70 mín.
Frábær teiknimynd frá
Disney fyrir alla
fjölskylduna með tónlist
eftir Phil Collins!
Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. 12 ára.Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Kvikmyndir.com
HJ MBL „Fínasta
skemmtun“
B.Ö.S.
Fréttablaðið
Gamanmynd eins og þær gerast bestar !
Jack Nicholson, Diane Keaton, Keanu Reevesog Amanda Peet í Rómantískri
Gamanmynd frá Nancy Myers, leikstjóra „What Women Want“.
Roger Ebert
HJ MBL
ÓHT Rás2
Erótísk og örgrandi.
Leikur Óskarsverðlaunahafanna er magnþrungin.
Byggð á verðlaunaskáldsögu eftir Philip Roth.
í i
i l f i .
l l f i ili .
Söngkonan Christina Aquilera
reynir nú eftir fremsta megni að
ná sáttum við
æskuvinkonu
sína Britney
Spears en þær
kynntust þegar
þær komu sam-
an fram í Disney
þættinum The
Mickey Mouse
Club. Fyrir
skömmu sendi hún Britney bréf
þar sem hún leggur það til að þær
stöllur hittist og ræði málin.
Christina segist hafa miklar
áhyggjur af andlegu ástandi
Britney eftir skammvinnan hjú-
skap hennar og Jasons Alexand-
er. „Ég skrifaði Britney mjög per-
sónulegt bréf. Ég held að hún sé
góð stúlka en frægðin getur gert
það að verkum að fólk verði gagn-
tekið af einhverju sem skiptir ekki
máli. Farðu að einbeita þér að því
sem skiptir máli, Britney!,“ sagði
Christina í sam-
tali við The Sun.
Britney hefur
ekki svarað er-
indi Christinu.
... Stórleikarinn
Liam Neeson
mun að öllum
líkindum leika í
næstu kvikmynd
um Leðurblökumanninn. Samn-
ingaviðræður eru á lokastigi og
mun Neeson leika ónefndan þorp-
ara. Hjartaknúsarinn Christian
Bale fer með hlutverk Blaka og
Michael Caine leikur þjón hans.
Þá er Morgan Freeman orðaður
við hlutverk í myndinni. Framleið-
endur myndarinnar halda hlut-
verki Neesons leyndu og vilja ekk-
ert gefa upp um þá sem að
myndinni koma. ... Söngkonan
unga, Norah Jones, hefur sagt að
hún þurfi að fara í meðferð. Hún
náði miklum vinsældum eftir að
fyrsta plata hennar Come Way
With Me kom
út. Norah hefur
trú á því að sál-
fræðiaðstoð
myndi koma að
miklu gagni við
það að takast á
við frægðina.
„Sálfræðingur
gæti haft svörin
á reiðum höndum. Ég ætti að fara
til sálfræðings því ég þarf á
aðstoð að halda,“ sagði Norah.
Hún trúir því varla hversu miklum
vinsældum hún hefur náð vegna
þess að hún er ekki eins og flestar
poppstjörnur. „Ég hefði aldrei
trúað því að ég gæti orðið svo
vinsæl. Það sem er í sjónvarpi í
dag og er vinsælt er ekki í líkingu
við það sem ég hef fram að færa.
Ég er ekki góður dansari og hef
ekki í hyggju að sýna nafla minn í
sjónvarpi.“ ... Charles
Koppelman, sem er fram-
kvæmdastjóri hjá tónlistarmann-
inum Michael Jackson, vísar því
á bug að Jack-
son sé í fjár-
hagsvanda og
eigi í erfiðleikum
með að greiða
rúmlega fjög-
urra milljarða
króna bankalán
fyrir 17. febrúar.
Dagblaðið The
New York Times hefur greint frá
því að Jackson skuldi slíka fjár-
hæð og að fjárhagur hans sé
slæmur.
Koppelman segir að eigur hans
séu metnar hærri heldur en skuld-
ir, en neitar að fara nánar út í
fjárhag tónlistarmannsins, að sögn
ananova.com. Hann segir jafn-
framt að Jackson ætli að inna af
hendi umtalsverðar fjárhæðir á
næstu dögum. Koppelman telur
ekki að ásakanir á hendur söngv-
aranum um meint kynferðisofbeldi
gegn börnum eða tengsl við Þjóð
íslams hafi dregið úr möguleikum
hans til þess að afla fjár.
Koppelman neitar því jafnframt að
Þjóð íslams tengist á nokkurn hátt
fjármálum Jacksons.
FÓLK Ífréttum
SUNNEVA Sigurðardóttir stóð
uppi sem ótvíræður sigurvegari á
úrslitakvöldi Söngvarakeppni
Vestfjarða sem haldin var á Ísa-
firði á föstudagskvöld. Stigu fjór-
ir keppendur á svið lokakvöldið
og sungu við undirleik hljóm-
sveitar í sal tónlistarskólans.
Benedikt Sigurðsson, einn
skipuleggjenda, segir að ótrúleg-
ur áhugi hafi verið fyrir keppn-
inni frá því hún hófst 7. janúar sl.
Alls hafi verið keppt fimm kvöld
og troðfullt í hvert skipti.
Átta voru upphaflega valdir til
að taka þátt í keppninni eftir
áheyrnarprufur. Hvert keppn-
iskvöld duttu tveir keppendur út
og voru þeir valdir af sérstakri
dómnefnd. Hún treysti sér hins
vegar ekki til að fella tvo úr
keppni í undanúrslitum og því
voru fjórir keppendur á úr-
slitakvöldinu.
Síðasta kvöldið tóku áheyr-
endur þátt í að velja söngstjörnu
Vestfjarða og giltu þeirra at-
kvæði helming á móti atkvæðum
dómnefndar. Benedikt segir að
úrslitin hafi verið ótvíræð og allir
hafi verið sammála um hver sig-
urvegarinn væri.
Hann segir að Sunneva hefði
komist langt í Idol-keppninni
hefði hún tekið þátt í henni, svo
góð væri hún. Einn söngvari í
þeirri keppni var einmitt gesta-
dómari á lokakvöldinu, hún Ardís
Ólöf Víkingsdóttir.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns
Fremst á sviðinu stendur sigurvegarinn í Söngvarakeppni Vestfjarða, Sunneva Sigurðardóttir. Aðrir keppendur
voru Linda Pétursdóttir, t.v., Dagný Hermannsdóttir og Anna Birta Tryggvadóttir.
Sunneva Sigurðardóttir
söngstjarna Vestfjarða
KVENNAPÖNKSVEITIN Harum
Scarum hélt tvenna tónleika um
helgina. Á föstudagskvöldið léku
þær í Tónlistarþróunarmiðstöð-
inni á Granda. Mikill galsi var í
stúlkunum og fóru þær mikinn í
flutningi sínum á pönktónlist. Tón-
leikagestir voru vel með á nót-
unum og létu vel af kraftmiklum
flutningi Harum Scarum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Toni Gogin, leiðtogi sveitarinnar, fór mikinn á tónleikunum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tónleikagestum héldu engin bönd.
Kraftmikið
kvenna-
pönk