Morgunblaðið - 16.02.2004, Síða 33

Morgunblaðið - 16.02.2004, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2004 33 KRINGLAN Sýnd kl. 4, 6.30 og 9. ÁLFABAKKI kl. 3.45. Ísl. tal. ÁLFABAKKI kl. 3.40. Ísl. tal. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. KRINGLAN kl. 7. ÁLFABAKKI kl. 4, 6, 8 og 10. 4 Tilnefningar tilóskarsverðlauna AKUREYRI Sýnd kl. 6. Ísl. tal. KRINGLAN Sýnd kl. 4 og 5. Ísl. tal. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.30. AKUREYRI Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 8 OG 10.30. KEFLAVÍK Sýnd kl. 6. Ísl. tal. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4 og 6. Íslenskt tal. / Sýnd kl. 4 og 8. Enskt tal. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 6. Gamanmynd eins og þær gerast bestar !  Kvikmyndir.com Diane Keaton tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn í myndinni KEFLAVÍK Sýnd kl. 10. KEFLAVÍK Sýnd kl. 8. grams21  HJ MBL „Fínasta skemmtun“ B.Ö.S. Fréttablaðið Sannkölluð stórmynd sem hlotið hefur frábæra dóma og viðtökur um allan heim. Tom Cruise hefur aldrei verið betri! Kvikmyndir.is DV  ÓHT Rás 2 i i .i 4 Tilnefningar til óskarsverðlauna EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL.5. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 8.15 og 10. b.i. 14 . KEFLAVÍK Sýnd kl. 8 og 10.20. KRINGLAN Sýnd kl. 9. b.i. 14. Tilnefnd til Óskarsverðlauna sem besta teiknimyndin. Frábær teiknimynd frá Disney fyrir alla fjölskylduna með tónlist eftir Phil Collins! il f til r r l t t i i i . r r t i i fr i f rir ll fj l l t li t ftir il lli ! www.lyfja.is Kvikmyndir sem MAX FACTOR hefur séð um förðun eru m.a.: Mona Lisa Smile, LOVE actually, Chicago, Die Another Day (James Bond), About a Boy, Vanilla Sky, Bridget Jones´s Diary, Charlotte Grey, Chariles Angels I og II, Anna and the King, Notting Hill, Titanic, The English Patient, Evita, Bugsy Malone... MAX FACTOR förðun í söngleik VÍ SÓLSTING í Loftkastalanum, sjá solstingur.is, einnig notað í Made in USA/2003, Wake me up before you go go/2001. KYNNINGAR á nýja andlitsfarðanum frá kl. 14-17: • Mánudaginn 16. feb. LYFJA - LÁGMÚLA • Þriðjudaginn 16. feb. LYFJA - SMÁRATORGI • Miðvikudaginn 17. feb. LYFJA - SETBERGI • Fimmtudaginn 18. feb. LYJFA - LAUGAVEGI • Föstudaginn 19. feb. LYFJA - KRINGLUNNI • Laugardaginn 20. feb. LYFJA - SMÁRALIND KAUPAUKI á KYNNINGUM EKKI HYLJA NÁTTÚRULEG LITBRIGÐI COLOUR adapt AÐLAGAST HVERJUM OG EINUM ANDLITSTÓN NÝTT Í EINNI andrá tekur tilveran í litlu sjávarþorpi stökkbreytingum úr hversdagslegri lognmollu í fjar- stæðukennt skelfingarástand. Skip í höfninni er yfirtekið af vopnuðum ræningjum og mannskapurinn um borð í gíslingu. Montessori (Moses Rockman), annar glæpamannanna, hefur orð fyrir þeim, hann krefst þess að fá að tala við Láru (Elma Lísa Gunnars- dóttir) og fá tvær milljónir dala í reiðufé. Hákon (Hjalti Rögnvalds- son), yfirvaldið á staðnum, reynir að leysa málin ásamt hjálparmanni sín- um, Arnari (Þröstur Leó Gunnars- son). Þeir fá aðstoð frá bandarískum sérsveitarmanni (Glenn Conroy), og lögfræðingnum Esju (Guðfinna Rún- arsdóttir). Hákon byrjar á að yfir- heyra Láru, unga og fallega konu sem vinnur á bókasafni staðarins, og lætur lengi vel sem hún kannist ekk- ert við málið né Montessori, en smám saman kemur sannleikurinn upp á yfirborðið. Það er fyrst til að taka að Þriðja nafnið (gott heiti á bíómynd), er gerð fyrir sáralítið fé og ber því að líta á hana að einhverju leyti sem æfingu og tilraunastarfsemi af hálfu leik- stjórans og handritshöfundarins Einars Þórs, og reyndar kvikmynda- gerðarfólksins alls. Upphaflega byggðist hugmyndin utan um flug- vélarrán, en fæddist á óheppilegasta tíma – rétt áður en hryðjuverkaárásirnar voru gerðar á Bandaríkin. Hún var afskrifuð í hvelli og höfundarnir breyttu flugvélinni í vertíðarbát. Engin spurning að þau umskipti eru í alla staði til hins verra. Óhemju mikið er talað í Þriðja nafninu, jafnvel svo að á undan sýn- ingunni gantaðist höfundurinn með að verkið sitt væri fyrsta, íslenska talmyndin. Masið og lokað rýmið virkar leikhúslegt og skiptist á slen, sem einkennir dulúðina sem lengi vel svífur yfir vötnunum, og líflegri sprettir, sem byggjast einkum á fyndnum línum Þrastar Leós og Hjalta. Veldur hver á heldur. Sam- tölin eru allt frá því að vera heimspekileg í munni Montessori, niður undir vandræðamörkin, sérstaklega tilsvör og viðbrögð Láru. Fléttan í myndinni hefði að ósekju mátt vera þéttari, þó það sé ekki að- alatriði, og brennidepillinn Montes- sori mun skarpari. Það stafar ekki af honum sú ógn sem er áherslu verkn- aðarins nauðsynleg og útgeislun leikarans takmörkuð. Elma Lísa virkar heldur ekki sannfærandi með textann sinn en þrátt fyrir vankant- ana er að finna vísbendingar um að forvitnilegt verður að fylgjast með Einari Þór í bitastæðari og einkum fjárhagslega rýmri framtíð. Hljóðvinnslan er góð, einnig lýs- ing og stafræn kvikmyndatakan. Burðarásar Þriðja nafnsins eru þó, og skyldi engan undra, þeir mögn- uðu leikarar Hjalti Rögnvaldsson og Þröstur Leó. Það er unun að sjá þá galdra fram ljóslifandi persónur þó ekki sé mulið undir þá. Gutlandi í höfninni „Burðarásar“ Þriðja nafnsins eru „þeir mögnuðu leikarar“ Hjalti Rögn- valdsson og Þröstur Leó sem „unun“ er að sjá „galdra fram ljóslifandi per- sónur þó ekki sé mulið undir þá“, segir í umsögn um mynd Einars Þórs Gunnlaugssonar. KVIKMYNDIR Laugarásbíó Leikstjórn og handrit: Einar Þór Gunn- laugsson. Tónlist: Dimitri Kaklovski. Hljóð: Ian Bang. Framleiðendur Einar Þór Gunnlaugsson og Ian Bang. Aðalleik- endur: Moses Rockman, Elma Lísa Gunn- arsdóttir, Hjalti Rögnvaldsson, Þröstur Leó Gunnarsson, Glenn Conroy, Guðfinna Rúnarsdóttir. 90 mínútur. Passport Films. Ísland 2003 Þriðja nafnið Sæbjörn Valdimarsson KVIKMYNDIN Konungur ljónanna 1½ hefur selst í meira en þremur millj- ónum eintaka á DVD og VHS síðan hún var gefin út sl. þriðjudag. Myndin er, að sögn talsmanna Walt Disney, sú mest selda af þeim kvikmyndum sem ekki fara í kvikmyndahús heldur beint á sölumyndband eða DVD. Á út- gáfudegi hafði myndin selst í 1,5 milljónum eintaka. Konungur ljónanna 1½ er byggð á hinni vinsælu mynd Konungur ljón- anna sem kom út árið 1994 og hefur nú selst í meira en 55 milljónum ein- taka á DVD og VHS. Í myndinni sjáum við söguna frá sjónarhorni Tímons og Púmba, hreysikattar og vörtusvíns sem vöktu mikla hrifningu í fyrri myndinni. Konungur ljónanna 1½ nær metsölu LEIKSTJÓRINN Quentin Tarant- ino, sem gert hefur myndir á borð við Reservoir Dogs og Pulp Fict- ion, mun verða formaður dóm- nefndar á kvikmyndahátíðinni í Cannes sem fram fer í maí. Á Cannes-hátíðinni árið 1994 vann Tarantino hin virtu Palme d’Or-verðlaun, sem veitt eru fyrir bestu myndina. Það var kvik- myndin Pulp Fiction sem tryggði honum verðlaunin en hún naut mikillar hylli og lagði grunninn að vinsældum Tarantinos, sem einnig hlaut Óskarsverðlaun fyrir handritið að myndinni. „Stærsta augnablik tilveru minnar“ „Fyrir leikstjóra og kvikmynda- unnanda er ekki hægt að hugsa sér neitt betra en að vera með- limur í dómnefnd hátíðarinnar,“ sagði Tarantino í yfirlýsingu sem hann gaf út fyrir skömmu. „Að vera formaður dómnefndarinnar er mikill heiður en því fylgir einn- ig mikil ábyrgð. Þetta er stærsta augnablik tilveru minnar, sem eingöngu hefur verið tileinkuð kvikmyndum,“ sagði Tarantino. Kvikmyndahátíðin í Cannes hefst hinn 12. maí og henni lýkur 23. maí. Tarantino formaður dómnefnd- arinnar í Cannes Reuters Quentin Tarantino er mikill sprelli- gosi. Á Grammy-verðlaunahátíð- inni, sem fram fór fyrir skömmu, gerði hann gys að óknyttum Janet Jackson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.