Morgunblaðið - 29.02.2004, Blaðsíða 16
16 SUNNUDAGUR 29. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Einkennilega brothætt þetta / snögga tillit tveggja augna … segir á einum stað í
ljóðabálki Gyrðis Elíassonar, Blindfugl/Svartflug. Ljósmyndarinn sem þeytist
um landið er sífellt að leita að áhugaverðum sjónarhornum, brothættum augna-
blikum; … sífellt / að leita lífrænna forma blandaðra / lita …
Mörg myndbrot hanga vart saman, molna og fjúka á brott, á meðan önnur ná að bregða ljósi á veröldina sem við
hrærumst í og á hversdagslíf landsmanna. Ljósmyndarinn skrásetur sögu lands og þjóðar, ekki bara hin frétt-
næmu augnablik, heldur fangar hann ekki síður brot úr straumi hversdagslífsins; brot sem geta glitrað sem
sjálfstæðar og áhugaverðar smámyndir, en öðlast jafnframt merkingu sem heimildir um hverfult núið.
Morgunblaðið/Rax
Undir vegg: Daginn lengir nú hratt og líklegt að hrossin hlakki til vorsins, eins og mannfólkið.
Morgunblaðið/Jim Smart
Og sprautað: Í slippnum er beitt stórvirkum tækjum við málningarvinnuna.
Morgunblaðið/Sverrir
Óskilamunir: Í kassa með hlutum sem hafa
orðið viðskila við eigendur sína í janúar
trónir efst loftlítil skjaldbaka.
Morgunblaðið/Sverrir
Vörðurinn: Bjarni Valtýsson, sundlaugarvörður í Sundhöllinni í Reykjavík, krækir í aðskotahluti í djúpu lauginni.
Morgunblaðið/Ásdís
Danslist: Á öskudag mættust kynslóðirnar í kátum dansi á elliheimilinu Grund.
Morgunblaðið/Ásdís
Málað: Þeir eru íbyggnir nemendurnir í Langholtsskóla, þar sem þeir velja réttu litina í listaverkin.
Rispur
„ÞETTA er nú fyrst og fremst eftirlit – maður
er bara að horfa á fólkið. Svo þarf stundum að
háfa eitthvað upp úr lauginni,“ segir Bjarni
Valtýsson, sundlaugarvörður í Sundhöll
Reykjavíkur. Hann hefur starfað í Sundhöll-
inni í rúmt ár og segir sama fólkið koma dag
eftir dag, margir hafa komið í áraraðir. „Mað-
ur passar að ekkert komi fyrir, enginn fari sér
að voða og farið sé eftir reglunum. Dagurinn
byrjar með morgunleikfimi í lauginni, þá tekur
skólasundið við og loks eru íþróttafélögin með
hluta laugarinnar, alveg til níu á kvöldin.
Meirihluti gesta er ellilífeyrisþegar og ör-
yrkjar. Það er mikið spjallað og oft fer maður
fróðari heim úr vinnunni,“ segir Bjarni.
Horft og
hreinsað
STARFIÐ| Sundlaugarvörður