Morgunblaðið - 29.02.2004, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. FEBRÚAR 2004 29
árið. Baldwin hefur sópað til sín fjölda
verðlauna fyrir frammistöðu sína í
Kælinum, mynd um lánlausan mann
(William H. Macy) og viðskipti hans
Sparrow, í vinsælli þriggja stjörnu af-
þreyingarmynd. Undarlegt. Depp er
vafalítið sigurstranglegur (var að
vinna verðlaun Samtaka leikara í
Bandaríkjunum), og mun líklegri til
verðlauna en uppáhaldið mitt og von-
arpeningur, Bill Murray, sem ég set
efstan. Fyrir talsverðan klíkuskap, að
auki hefur þessi vanmetni leikari (og
víst ekkert sérlega vinsæli meðal koll-
eganna) sjaldan eða aldrei verið betri
en sem hinn svefnvana Bob í fram-
andi næturveröld Tókýó. Hvað þá
með Penn? Snillingurinn á enn einn
stórleik í Dulá, en er í vanþakklátu
hlutverki.
Þá er ógetið meistara Bens Kings-
leys sem fer langt með að gera betur í
hlutverki Íranans landflótta í Hús
byggt á sandi, en í Sexy Beast,
Gandhi, og öllum hinum. Hann er vel
að sigri kominn, ofangreindir leikarar
geta allir hæglega unnið. Jude Law á
minnstu möguleikana í ár.
Bill Murray
– Glötuð þýðing
Sean Penn
– Dulá
Ben Kingsley
– Hús byggt á sandi
(House of Sand and Fog)
Johnny Depp
– Sjóræningjar Karíbahafsins:
Bölvun Svörtu Perlunnar
(Pirates of the Caribbean:
Curse of the Black Pearl)
Jude Law
– Kaldbakur (Cold Mountain)
Hvern vantar? Russell Crowe
(M&S)
Besta leikkona í aðalhlutverki
Hér stendur maður frammi fyrir
þeim vanda að enn hafa ekki borist til
landsins tvær myndanna með til-
nefndum leikkonum í aðalhlutverki.
Þær eru breska gæðaleikkonan Sam-
antha Morton sem sögð er fara á
kostum í nýjustu mynd Jims Sher-
idan, Í Ameríku (sem mun hljóta þau
dapurlegu örlög að verða frumsýnd á
myndbandi hérlendis). Morton vann
Óskarinn fyrir bestan leik í aukahlut-
verki í hinni bráðsmellnu Sweet and
Lowdown (’99). Hin er Keisha Castle-
Hughes í Whale Rider, sem ekkert
bólar á. Keisha er aðeins 13 ára göm-
ul.
Sjálfsagt er óþarfi að hafa áhyggj-
ur af þessu því öfugt við aðal karlleik-
araflokkinn, er þessi sá auðveldasti
(frá mínum bæjardyrum). Charlize
Theron vinnur með glæsibrag. Það
skyggir engin á ótrúlega túlkun og
hamskipti hennar í Ófreskju, hrika-
legri mynd sem hún ber gjörsamlega
á bakinu. Heldur athygli manns og
sálarlífi í spennu frá því hún birtist á
tjaldinu, allt til loka. Glæðir skrímslið
sál og tilfinningum, þrátt fyrir öll
voðaverkin á hún í lokin samúð
manns óskipta. Það er mikið afrek
sem enginn átti von á frá hinni gull-
fallegu og hingað til atkvæðalitlu leik-
konu.
Naomi Watts er gæðaleikkona á
hraðri uppsveiflu eftir Mulholland
Drive. Hún á e.t.v. smásmugu við af-
hendinguna í kvöld. Gefum henni
1:10. Aðrar eiga litla möguleika sem
enga – jafnvel þó að enginn viti neitt.
Charlize Theron – Ófreskja(Mons-
ter)
Diane Keaton
– Eitthvað verður undan að láta
(Some Thing’s Gotta Give)
Naomi Watts
– 21 gramm (21 Grams)
Samantha Morton
– Í Ameríku (In America)
Keisha Castle-Hughes
– Whale Rider
Hverja vantar? Nicole Kidman
(The Human Stain)
Besti leikari í aukahlutverki
Dulá er ein best leikna mynd af
mörgum góðum á síðasta ári. Enginn
fannst mér betri en Tim Robbins,
þessi galdrakarl sem skilar öllum
hlutverkum svo fagmannlega frá sér.
Hann kemur við kvikuna á manni í
lágstemmdum leik Dave Boyle,
drengsins sem tekst ekki að ljúka við
að skrifa nafnið sitt í blauta steypu
gangstéttarhellunnar – þar sem líf
hans endar á vissan hátt. Fyrsta til-
nefning Robbins fyrir leik, þó furðu-
legt sé. Hann var hins vegar tilnefnd-
ur fyrir leikstjórn Dead Man
Walking, fyrir nokkrum árum.
Alec Baldwin er annar stórleikari í
miklum metum á þessum bæ. Senu-
þjófurinn er sagður í ámóta formi í
Kælinum og Glengarry Glen Ross um
við yfirmann sinn (Baldwin) í spilavíti
í Las Vegas. Vonandi fáum við að sjá
þessa umtöluðu mynd í bíó. Benicio
Del Toro stendur jafnan undir sínu
mikilúðlega nafni. Til alls vís því hann
á frábæran dag sem fangi á skilorði í
21 grammi. Aðrir eiga vafalaust tak-
markaðri möguleika.
Tim Robbins – Dulá
Alec Baldwin – Kælirinn
– (The Cooler)
Benecio Del Toro – 21 gramm
Ken Watanabe
– Síðasti samúræinn
(The Last Samurai)
Djimon Hounsou
– Í Ameríku
Hvern vantar? Albert Finney
(Sá stóri)
Besta leikkona í aukahlutverki
Hér er úr vöndu að ráða. Straum-
urinn liggur sjálfsagt til Zellweger
fyrir ábúðarmikinn leik í litríku hlut-
verki Rubyar í Kaldbak. Hún er nú
tilnefnd þriðja árið í röð. Marcia Gay-
Harden er einnig firnasterk sem
ekkjan í Dulá, en þessi mikilvæga
leikkona vann Óskarinn fyrir Pollock
árið 2000. Shohreh Aghdashloo er eft-
irminnileg í Hús byggt á sandi og hef-
ur hlotið fjölda verðlauna og tilnefn-
inga fyrir vikið. Patricia Clarkson og
Holly Hunter eiga minni möguleika.
Sú síðarnefnda er mistæk leikkona
sem á að baki þrjár tilnefningar og
vann árið 1994 fyrir frammistöðu sína
í The Piano.
Renée Zellweger – Kaldbakur
Marcia Gay-Harden – Dulá
Holly Hunter – Þrettán (Thirteen)
Shohreh Aghdashloo
– Hús byggt á sandi
Patricia Clarkson
– Brot úr apríl (Pieces of April)
Hverja vantar? Natalie Portman
(Kaldbakur).
Teiknimynd ársins
Það þarf enginn að leggja höfuðið í
bleyti yfir úrslitunum hér. Leitin að
Nemó ber höfuð og herðar yfir Björn
bróður og er afbragðsmynd í alla
SJÁ SÍÐU 30
Suður-afríska leikkonan Charlize Theron (t.h.) hefur fengið afbragðs dóma fyrir
leik sinn í Monster, sem fjallar um kvenkyns raðmorðingja.