Morgunblaðið - 07.03.2004, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 07.03.2004, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 SUNNUDAGUR 7. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ DAGFORELDRAR telja víst að hækka þurfi gjald fyrir fulla vistun um a.m.k. 13 þúsund krónur ef drög að reglugerð um daggæslu barna í heimahúsum verður samþykkt óbreytt og börnum á hvert dagfor- eldri fækkað úr fimm í fjögur. Ráð- gert er að hún taki gildi 1. apríl nk. en dagforeldrar hafa frest til 10. mars til að skila inn umsögn til fé- lagsmálaráðuneytisins. Fundur dag- foreldra og félagsmálaráðherra hef- ur verið boðaður á þriðjudag. „Fjögur börn standa ekki undir rekstrinum þegar allt er tekið með. Við þurfum að borga trygginga- gjöld, í lífeyrissjóð og félagsgjöld, fyrir utan fæði fyrir börnin, hita, rafmagn og síma, viðhald á húsnæði og leikföng,“ segir Inga Hanna Dag- bjartsdóttir sem sæti á í stjórn Barnavistunar, félags dagforeldra í Reykjavík. Dagforeldrar hafa lýst því yfir að viðbúið sé að fjölmargir skili inn leyfum verði reglugerðin samþykkt óbreytt. Dagforeldrar eru um 400 á landsvísu. Í Reykjavík einni eru ná- lægt 200 dagforeldrar með samtals 970 börn í sinni umsjá. Þeir segja að það muni óneitanlega bitna á sveit- arfélögunum ef fer sem horfir og þörfin fyrir leikskólapláss muni aukast til muna. Um hálfsárs til eins árs bið er víða eftir plássi hjá dag- foreldrum. Segir Inga Hanna að dagforeldrar veigri sér margir við að lofa foreldrum plássi í haust vegna óvissu um framhaldið. Hert eftirlit með starfseminni Hún segir að svo virðist sem þess misskilnings hafi gætt í túlkun ráðu- neytisins á nýju reglugerðinni að dagforeldrar þurfi ekki að útvega sérherbergi fyrir leikaðstöðu barnanna. Hins vegar sé skýrt kveð- ið á um í 13. gr. 6. lið að bæði leik- rými og hvíldaraðstaða skuli vera í fullnægjandi íbúðarherbergjum og er við það miðað að leiksvæði skuli að lágmarki vera 3 fermetrar að gólffleti fyrir hvert barn. Í eldri reglugerð var kveðið á um að rýmið skyldi vera 3,5 fermetrar að lág- marki en þá var átt við allt rými inn- andyra. Dagforeldrar benda einnig á að samhliða nýrri reglugerð sé verið að auka eftirlit með stafsem- inni. Þannig hafi Reykjavíkurborg sent dagforeldrum bréf í síðasta mánuði þar sem boðað sé að fenginn verði utanaðkomandi aðili til að sjá um eftirlit með starfseminni sem áð- ur var á hendi sk. daggæsluráðgjafa. Dagforeldrar fóru fram að breyting- arnar yrðu kynntar dagforeldrum en þær áttu að taka gildi í síðasta mánuði og þurfti að koma til kasta lögfræðings félagsins. Eftirliti með dagmæðrum hefur fram að þessu verið tvær heimsókn- ir daggæsluráðgjafa á ári og eftir þörfum umfram það. Nýjum um- sjónaraðila með eftirlitinu er hins vegar ætlað að fylla út sérstakan gátlista á staðnum við hverja heim- sókn sem dagforeldrar segja að lýsi með því vantrausti yfirvalda á starfsstéttina. Dagforeldrar segja fótum kippt undan rekstrargrundvelli með fækkun barna úr fimm í fjögur Erfitt að lofa foreldrum plássum í haust Morgunblaðið/Ásdís Hækka þarf gjald hjá dagforeldrum um a.m.k. 13 þúsund krónur ef ný reglugerð verður samþykkt. JÓN Hilmar Alfreðsson, settur landlæknir í máli foreldra sem misstu nýfætt barn sitt í sept- ember í fyrra og kvörtuðu yfir meintri rangri meðferð við fæð- ingu barnsins, segist ekki gera ráð fyrir að breyta álitsgerð sinni í málinu þar sem komist er að þeirri niðurstöðu að barnið hafi látist vegna áhrifa deyfilyfs- ins marcains. Hinsvegar séu við- bætur við álitsgerðina á leiðinni Dögg Pálsdóttir lögmaður foreldranna gerði fyrir þeirra hönd athugasemdir við drög að álitsgerð setts landlæknis, en drögin tóku engum efnislegum breytingum í endanlegri útgáfu og hefur settur landlæknir stað- fest það. Í athugasemdum for- eldranna var m.a. talið nauðsyn- legt að fjalla nánar um umrædda deyfingu sem ekkert hefði slegið á hríðarverki móð- urinnar. Telji foreldrarnir það vísbendingu um að deyfingin hafi farið beint í barnið og að það sé skýringin á því hvernig fór, auk þess sem lyfjablandan hafi verið mun sterkari en þörf var á. Þá komi fram í krufningsskýrslu að þrjú nálarstunguför hafi ver- ið á höfði barnsins og telji for- eldrarnir nauðsynlegt að settur landlæknir upplýsi eftir hvað þau voru. Jón Hilmar Alfreðsson sagði við Morgunblaðið í gær að vegna fyrirspurna foreldranna og óska þeirra um nánari út- skýringar, komi til greina að svara þeim að einhverju leyti með viðbótarkafla við álitsgerð- ina. „Ég geri ekki ráð fyrir að breyta álitsgerðinni, en það kemur viðbótarkafli þannig að hún lengist svolítið,“ sagði Jón Hilmar. Viðbætur við álits- gerð á leiðinni Settur landlæknir í máli vegna meintra læknamistaka LÖGREGLUNÁM verður alls þrjú ár, en ekki eitt, eins og er nú, auk þess sem lögreglunemar verða á launum allt námstímabilið, verði hugmyndir sem nú eru til skoð- unar í Lögregluskóla ríkisins að veruleika. Hugmyndirnar hafa verið kynntar fyrir dóms- málaráðherra sem vildi að áfram yrði unnið með þær. Gangi allt eftir verður næst tekið inn í skól- ann haustið 2005 og þá í samræmi við nýja námskrá. Arnar Guðmundsson, skólastjóri Lögregluskóla ríkisins, segir að grunnhugmyndin sé að fjölga kennslustundum úr u.þ.b. 1.200 í 2.100. Skólinn vilji auka kennslu í þeim greinum sem fyrir eru kenndar og eins athuga hvort nauðsynlegt sé að bæta við fögum. Einnig standi til að verja meiri tíma til þjálfunar og ýmissa verk- legra æfinga. Arnar telur skynsamlegt að lög- reglunemar fái greidd laun frá því þeir hefja nám. „Þannig að menn sæki um starf í lögreglunni um leið og þeir sækja um að komast í skólann og það sé gerður samn- ingur við þá í upphafi. Þetta skipt- ir máli varðandi agaspursmál og að menn læra alveg frá fyrsta degi að þeir eru lögreglumenn,“ segir Arnar. Hann bætir við að lögreglunemarnir geti þá aðstoðað við löggæslu, þegar miklar annir eru, og eins sé þetta mikilvægt vegna trygginga. Samkvæmt núverandi fyr- irkomulagi er fyrsta önnin ólaun- uð, en standist nemendurnir próf sem eru tekin að fjórum mánuðum liðnum hefja þeir starfsþjálfun, ganga vaktir og starfa við hlið fullgildra lögreglumanna yfir sum- arið. Um haustið ljúka þeir seinni önninni og eru á launum áfram þar til þeir eru brautskráðir rétt fyrir jól. Hugmyndirnar nú ganga út á að lengja námið úr einu ári upp í tvö og jafnvel að eins árs reynslutími bætist við að því loknu, áður en menn geta farið í skipaðar lög- reglumannastöður. Námið verði því alls þrjú ár. Yfir fyrstu tvö ár- in yrðu nemendur að auki í 12 mánuði samtals í starfsþjálfun, m.a. yfir sumartímann þegar helst er þörf á auknu starfsliði hjá lög- reglunni. Vonast til að hefja breytt nám að hausti 2005 Breytingarnar þurfa væntanlega að vera samþykktar á Alþingi, með breytingu á lögreglulögum. Arnar segir að það sé von skólans að hægt verði að taka inn nem- endur haustið 2005 eftir nýrri námskrá. „Það getur auðvitað frestast af ýmsum ástæðum, en við erum mjög ánægð með að hug- myndum okkar og kjarnanum af því sem við lögðum fram hefur verið vel tekið og við hvattir til að vinna það áfram,“ segir Arnar, en ríkislögreglustjóra og Lands- sambandi lögreglumanna, hafa að auki verið kynntar hugmyndirnar. Fáir ófaglærðir lögreglumenn í dag Námi lögreglumanna var breytt árið 1997, eftir að hafa verið eins í um þrjá áratugi og var fólki þá gert kleift að sækja um nám við skólann án þess að hafa unnið við löggæslu áður. Fyrst um sinn var námið tvö ár, en Arnar segir að árið 2000 hafi skólinn óskað eftir því að stytta tímabundna starfs- þjálfun með það fyrir augum að flýta fjölgun faglærðra lögreglu- manna. Starfið væri orðið það flókið að það væri ekki forsvar- anlegt að það sinntu því aðrir en þeir sem hefðu lokið námi frá grunndeild skólans. Síðan þá hef- ur námið verið eitt ár, frá janúar til desember. Arnar segir að nú heyri það aft- ur á móti til undantekninga að ófaglærðir lögeglumenn séu að störfum. „Þá er tímabært, eins og var reyndar alltaf stefnt að, að fara aftur í lengingu námsins,“ segir hann. Ríkislögreglustjóri ákveður hversu margir eru teknir inn í skólann hverju sinni, í samráði við lögregluskólann. Arnar segir að frá árinu 1997 hafa verið teknir inn 32–48 nemendur ár hvert. Fjöldinn hverju sinni sé háður fjárveitingum og þörf á nýliðun. Alls séu um 700 lögreglumenn að störfum á Íslandi. Breytingar fyrirhugaðar á námi lögreglumanna við Lögregluskóla ríkisins Morgunblaðið/Kristinn Arnar Guðmundsson, skólastjóri Lögregluskólans vonast til að hægt verði að hefja kennslu í skólanum samkvæmt nýrri námsskrá haustið 2005 en stefnt er að því að lengja námið í skólanum úr einu ári í alls þrjú ár. Námið verði þrjú ár og nemar verði á launum allan tímann
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.