Morgunblaðið - 07.03.2004, Blaðsíða 19
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. MARS 2004 19
Meðgöngubelti
Eirberg
hjálpartæki og heilbrigðisvörur
Stórhöfða 25 • eirberg.is • 569 3100
Á SÍÐASTA ári hóf Heyrnartækni
ehf. að bjóða heyrnarskertum á Eg-
ilsstöðum og Ísafirði upp á heyrn-
armælingar og þjónustu vegna
heyrnartækja. Árni Hafstað, heyrn-
ar- og talmeinafræðingur, hefur sótt
þessa staði heim á eins til tveggja
mánaða fresti og verið við heyrnar-
mælingar og sölu á heyrnartækjum.
Árni hefur einnig séð um útibú
Heyrnartækni á Akureyri síðan árið
2001 en þar hafði ekki verið þjónusta
við heyrnarskerta til margra ára,
segir í fréttatilkynningu.
Þjónustunni hefur verið vel tekið
og hafa nú þegar á annað hundrað
manns fengið lausn á heyrnarvanda-
málum sínum. Heyrnartækni stefnir
að frekari þjónustu við landsbyggð-
ina, fyrirhugaðar eru ferðir um
Norðurland og til Vestmannaeyja ef
nægur áhugi er fyrir hendi.
Hægt er að kaupa heyrnartæki
með greiðsluþátttöku frá ríkinu.
Niðurgreiðsla nemur í dag 56.000
krónum vegna kaupa á tækjum í
bæði eyru ef skilyrði ríkisins eru
uppfyllt.
Þeim sem uppfylla ekki skilyrði
fyrir niðurgreiðslu eða vilja ekki bíða
eftir henni gefst kostur á að greiða
tækin fullu verði og fást þau þá af-
greidd innan mánaðar, segir í frétta-
tilkynningu frá Heyrnatækni.
Þjónusta við heyrnar-
skerta á landsbyggðinni
SÍMINN hefur nýverið gefið Sjálfs-
björg, landssambandi fatlaðra, 30
sérbyggð símtæki af gerðinni Tele
Danmark. Símarnir verða nýttir í
Sjálfsbjargarhúsinu að Hátúni 12.
Einnig hefur Sjálfsbjörg fest kaup
á stafrænni Nortel símstöð hjá
Grunni Gagnalausnum. Tækni-
menn Grunns hafa þegar sett upp
stöðina og hún hefur verið tekin í
notkun. Í Sjálfsbjargarhúsinu hafði
lengi verið rætt um að tími væri
kominn til að skipta um símaborð
þar sem langur tími er liðinn frá því
símakerfi Sjálfsbjargarhússins var
endurnýjað.
Að sögn Sigurðar Einarssonar,
framkvæmdastjóra Sjálfsbjargar,
mun nýja símstöðin breyta miklu
fyrir íbúa og starfsfólk Sjálfsbjarg-
arhússins. Nú gefst til dæmis í
fyrsta sinn kostur á beinu innvali
og eykur það heimilislegt yfirbragð
og einfaldar störf þeirra sem starfa
í húsinu. Ennfremur eru fleiri
möguleikar en áður á stillingu
tækjanna og símaborðsins, t.d. er
hægt að láta hvern sem er af starfs-
mönnunum sjá um símavörsluna í
stutta stund frá sínu vinnuborði,
auk þess sem símaborðið er mun
fyrirferðarminna en það sem áður
var.
Það er stefna Símans að vera öt-
ull styrktaraðili menntunar, menn-
ingar, listia og mannúðarmála og
er gjöfin liður í þessari stefnu fyrir-
tækisins. Viðskiptavinir Sjálfs-
bjargar eru frá öllu landinu og úr
öllum stigum þjóðfélagsins rétt eins
og viðskiptavinir Símans.
Eva Magnúsdóttir, upplýsinga-
fulltrúi Símans, afhendir Sigurði
Einarssyni, framkvæmdastjóra
Sjálfsbjargar, símana.
Gefur
Sjálfsbjörg
30 sérbyggð
símtæki
SMS
tónar og tákn
Fréttir
í tölvupósti