Morgunblaðið - 07.03.2004, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. MARS 2004 59
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
FISKAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert tilfinningarík/ur og
hlý/r og átt það til að vera svo-
lítið einræn/n. Þú átt stundum
erfitt með að finna þér
stað í lífinu en þegar það tekst
nýturðu yfirleitt velgengni
í því sem þú tekur þér
fyrir hendur.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú hefur verið að velta fyrir
þér umbótum í vinnunni og ert
komin/n með nokkrar hug-
myndir sem eru vel þess virði
að hrinda í framkvæmd.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú munt eiga líflegar samræð-
ur við vini þína í dag. Hlustaðu
eftir þeim góðu hugmyndum
sem eru á sveimi allt í kring
um þig.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Hikaðu ekki við að tala við
valdamikið fólk í dag. Það
mun koma þér á óvart hvað
það mun hlusta á þig af mikl-
um áhuga.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Áætlanir sem tengjast hóp-
ferðum, ráðstefnum eða fjöl-
skyldusamkomum líta vel út.
Þú átt auðvelt með að sam-
ræma aðgerðir annarra og því
er líklegt að þú verðir beðin/n
um að taka að þér einhvers
konar forystu.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú ert að velta fyrir þér leið-
um til að fjárfesta til fram-
tíðar. Farðu yfir þær upplýs-
ingar sem þú hefur og byggðu
ákvarðanir þínar bæði á þeim
og á innsæi þínu.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú gætir þurft að sannfæra
einhvern um eitthvað í dag.
Þú ættir ekki að eiga í neinum
erfiðleikum með það ef þú
heldur þig við staðreyndir og
heldur tilfinningunum í skefj-
um.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Hikaðu ekki við að sýna frum-
kvæði í dag. Ef þú færð tæki-
færi til að taka stjórnina í ein-
hverju máli, gríptu þá
tækifærið.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þetta er góður dagur til hvers
kyns íþróttaiðkunar. Þú þarft
að fá útrás fyrir orkuna.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Hikaðu ekki við að gefa öðrum
í fjölskyldunni fyrirmæli um
að taka til á heimilinu.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það er óvenjumikið að gera
hjá þér í dag. Þú ert tilbúin/n
að leggja hart að þér við það
sem þú ert að gera en vilt þó
heldur vinna ein/n en með öðr-
um.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú gætir fengið góðar hug-
myndir að einhvers konar
breytingum á heimilinu eða
innan fjölskyldunnar.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Ef einhver reynir að telja þér
hughvarf í dag muntu verja
afstöðu þína með kjafti og
klóm. Aðrir munu virða þig
fyrir að standa á þínu.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Frances Drake
HEIMÞRÁ
Reikult er rótlaust þangið,
rekst það um víðan sjá,
straumar og votir vindar
velkja því til og frá.
Fuglar flugu yfir hafið
með fögnuði og vængjagný,
hurfu út í himinblámann
hratt eins og vindlétt ský.
Þangið, sem horfði á hópinn,
var hnipið allan þann dag.
Bylgjan, sem bar það uppi,
var blóðug um sólarlag.
Jóhann Sigurjónsson
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
BRÚÐKAUP – SKÍRN. Hinn 3. janúar sl. voru gefin saman í
Strängnäs-dómkirkju Finnur Ingi Kristjánsson og Marica
Norrby. Með á myndinni eru bræðurnir Samúel og Gabriel
sem var skírður þennan dag. Heimili þeirra er í Strängnäs,
Svíþjóð.
BRIDSSAMBÖND flestra
Evrópuþjóða hafa komið sér
upp heimasíðum, þar sem
finna má gagnlegar upplýs-
ingar og ýmislegt skemmti-
efni, til dæmis spilaþrautir.
Þraut dagsins er fengin að
láni af dönsku heimasíðunni:
Suður gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠D
♥ÁG9843
♦Á653
♣ÁK
Suður
♠ÁKG6
♥D1075
♦8
♣DG102
Vestur Norður Austur Suður
– – – 1 hjarta
5 tíglar 6 hjörtu Pass Pass
Pass
Danir eru veikir fyrir því
að opna á spaða og hjarta
með fjórlit og sú er skýr-
ingin á hjartaopnun suðurs.
Það kemur sér vel þegar
vestur stekkur næst í fimm
tígla, því norður á auðvelt
með að segja slemmu með
sex-spila stuðning við hjart-
að og allan heiminn til hlið-
ar. Raunar á norður fyrir al-
slemmutilraun, en allar
vangaveltur um alslemmu
falla niður eftir fyrsta slag-
inn – vestur spilar út tíg-
ulkóng og austur trompar
ás blinds. Austur spilar
spaða til baka og vestur
fylgir lit. Nú eru tvö tromp
úti – kóngurinn og hundur –
og spurningin er hvort betra
sé að svína eða taka á ásinn.
Lesandinn ætti að hugleiða
málið áður en lengra er
haldið.
Norður
♠D
♥ÁG9843
♦Á653
♣ÁK
Vestur Austur
♠52 ♠1098743
♥K2 ♥6
♦KDG109742 ♦–
♣5 ♣987643
Suður
♠ÁKG6
♥D1075
♦8
♣DG102
Svarið er skemmtilegt:
Það á hvorki að svína né
toppa! Fyrst ætti að rann-
saka skiptinguna til hliðar
nánar. Sem er gert með því
að spila háspaða þrisvar.
Suður tekur sem sagt strax
á spaðaás og spilar svo
spaðakóng og hendir lauf-
kóng úr borði þegar vestur
fylgir lit. Svo kemur spaða-
gosi, og aftur fer lauf úr
borði ef vestur trompar
ekki. Þá má spila laufi tvisv-
ar til að kanna þann lit og
smátt og smátt teiknast upp
skipting vesturs. Hann
sýndi átta tígla í fyrsta slag,
svo fylgdi hann tvisvar lit í
spaða og einu sinni í laufi.
Þar með á hann tvö hjörtu
og því er rétt að svína.
BRIDS
Guðmundur
Páll Arnarson
1. c4 e5 2. Rc3 Bb4 3. Dc2
Rf6 4. e3 0-0 5. Rge2 He8 6.
a3 Bf8 7. g3 c6 8. Bg2 d5 9.
cxd5 cxd5 10. d4 Rc6 11. 0-0
Bg4 12. h3 Bxe2 13. Rxe2
exd4 14. exd4 Hc8 15. Dd3
Re4 16. Be3 Ra5 17. b3 Db6
18. Hfb1 Bd6 19. h4 Hc7 20.
Ha2 h5 21. Bxe4 dxe4 22.
Dd1 Db5 23. d5 b6 24. Hd2
Rb7 25. b4 g6 26. a4 Dd7 27.
Rd4 a5 28. bxa5 bxa5 29. Rb5
Hcc8 30. Ra7 Hc4 31.
Hc2 Hxa4 32. Rc6
Ha3 33. Dd4 Dh3 34.
Bh6 Bf8 35. Bxf8
Hxf8 36. Re7+ Kh7
Staðan kom upp í
lokuðu alþjóðlegu
skákmóti sem lauk
fyrir skömmu. Klaus
Bischoff (2.561) hafði
hvítt gegn Arkadij
Naiditsch (2.576). 37.
Rxg6! Mun einfaldari
og öflugri vinnings-
leið en 37. Hxb7 þar
sem eftir 37. – Hd3
38. Da1 e3 hefði
svartur mjög góð praktísk
færi fyrir manninn. 37. Kxg6
38. Dxe4+ Df5 39. Dxf5+
Kxf5 40. Hxb7 hvítur stend-
ur nú til vinnings enda peð
svarts á kóngsvæng dauðans
matur. 40. – Hd3 41. Hc5 a4
42. Ha7 a3 43. d6+ Kg6 44.
Hg5+ Kh6 45. Haa5 f5 46.
Ha6 Hf6 47. Ha8 Hf7 48.
Hh8+ Hh7 49. Hxh5+ Kxh5
50. Hxh7+ Kg6 51. Ha7 f4
52. g4 og svartur gafst upp.
Reykjavíkurskákmótið hefst
í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag
kl. 17.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik. Heimagisting á besta stað í bænum. Býður alla Íslendinga velkomna.
Geymið auglýsinguna.
www.lavilla16.dk
sími 004532975530 • gsm 004528488905
Kaupmannahöfn - La Villa
MEÐ MORGUNKAFFINU
Og hvað gerðist svo
þegar indíánarnir
voru búnir að um-
kringja vagnalest-
ina?
Reykjavíkurmót
í tvímenningi
Reykjavíkurmót í tvímenningi fer
fram helgina 13.–14. mars næstkom-
andi. Spilafjöldi og spilaform ráðast
af fjölda spilara. Spilatími er áform-
aður frá klukkan 11–20 laugardaginn
13. mars og frá 11–17 sunnudaginn
14. mars. Keppnisstjóri verður
Björgvin Már Kristinsson. Spila-
gjald verður krónur 3.000 á spilara.
Ástæða er til þess að vekja athygli
á breyttu fyrirkomulagi keppninnar,
en á þingi Bridssambands Íslands
var ákveðið að fella niður undan-
keppni Íslandsmóts í tvímenningi og
spila þess í stað um kvóta í svæða-
mótum landshlutanna. Kvóti
Reykjavíkur verður 23 pör (af sam-
tals 56 sem komast áfram í úrslita-
keppni Íslandsmótsins sem fram fer
helgina 30. apríl–2. maí). Nú geta pör
ekki lengur áunnið sér þennan rétt
með keppni í undankeppni Íslands-
móts, heldur verða að ávinna sér
réttinn í einhverju svæðamóti lands-
hlutanna.
Spilastaður í Reykjavíkurmótinu í
tvímenningi er Síðumúli 37. Skrán-
ing í keppnina fer fram á vef BR,
bridgefelag.is, vef BSÍ (bridge.is)
eða á skráningarlistum að Síðumúla
37. Skráningarfrestur til hádegis
föstudaginn 12. mars.
Bridsfélag Hreyfils
Hafinn er þriggja kvölda tvímenn-
ingur þar sem tvö bestu kvöldin
gilda til útreiknings. Þess vegna geta
ný pör hafið keppni nk. mánudag í
Hreyfilshúsinu kl. 19.30.
Staðan eftir fyrsta kvöldið er
þessi:
Magni Ólafsson – Randver Steinsson 95
Einar Gunnarsson – Ágúst Benediktss. 94
Áki Ingvarsson – Þorsteinn Héðinsson 91
Skafti Björnsson – Jón Sigtryggsson 90
Bridskvöld nýliða
Sunnudaginn 29. feb. spiluðu 7 pör
tvímenning.
Lokastaðan:
Svandís Hauksd. – Ingibjörg Hauksd. 12
Ingimar Halldórss. – Ómar F. Ómarss. 11
Guðmundur Gestsson – Þórir Jóhannss. 8
Stefán Óskarsson – Jórunn Kristinsd. 6
Spilað er öll sunnudagskvöld í
Síðumúla 37, 3. hæð og hefst spila-
mennska kl. 19.30. Allir sem kunna
undirstöðuatriðin í brids eru vel-
komnir. Umsjónarmaður er Sigur-
björn Haraldsson og aðstoðar hann
við að finna spilafélaga fyrir þá sem
mæta stakir.
Gullsmárabrids
Bridsdeild FEBK Gullsmára spil-
aði tvímenning á 14 borðum fimmtu-
daginn 4. marz. Meðalskor 264.
Beztum árangri náðu:
NS
Ásta Erlingsd. – Haukur Guðmundss. 329
Helga Helgad. – Þórhildur Magnúsd. 309
Dóra Friðleifsdóttir – Jón Stefánsson 293
Leifur Jóhanness. – Aðalbjörn Bened. 289
AV
Guðmundur Pálsson – Róbert Sigm. 340
Kristinn Guðm. – Guðmundur Magn. 315
Stefán Friðbjarnars. – Þóhallur Árnas. 292
Guðjón Ottóss. – Guðmundur Guðv. 290
Bridsdeild Félags eldri
borgara í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði Glæsibæ mánud. 1. mars. 2004
Spilað var á 11 borðum. Meðalskor
216 stig.
Árangur N-S:
Ragnar Björnss. – Friðrik Hermannss. 251
Jóhann M. Guðm. – Hjálmar Gíslason 236
Geir Guðmundss. – Ægir Ferdinandss. 224
Árangur A-V:
Hannes Ingibergss. – Sigurður Pálss. 261
Albert Þorsteinsson – Bragi Björnsson 249
Helgi Hallgrímsson – Jón Hallgrímss. 245
Tvímenningskeppni spiluð
fimmtud. 4. mars. Spilað var á 9
borðum.
Meðalskor 216 stig.
Árangur N-S:
Alda Hansen – Jón Lárusson 256
Júlíus Guðmundss. – Rafn Kristjánss. 252
Jón Karlsson – Sigurður Karlsson 246
Árangur A-V:
Albert Þorsteinsson – Bragi Björnsson 271
Eysteinn Einarss. – Kári Sigurjónss. 240
Hannes Ingibergss. – Sigurður Pálss. 225
Bridsfélag yngri spilara
Miðvikudagskvöldið 3. mars var
spilaður stórfiskaleikur hjá félaginu
þar sem vanir spilarar úr Bridsfélagi
Reykjavíkur mættu og kepptu með
yngri spilurum. Þátttaka var með
miklum ágætum og 17 pör spiluðu
monrad-barómeterkeppni, 6 um-
ferðir, 24 spil.
Keppni var lengst af mjög spenn-
andi um efstu sætin, en Ómar Freyr
Ómarsson og Jörundur Þórðarson
fengu mjög góða skor í síðustu um-
ferðinni sem tryggði þeim öruggan
sigur. Veitt voru bókaverðlaun til
yngri spilaranna fyrir 3 efstu sætin,
Græna bókin hans Guðmundar Páls
Arnarssonar um Standard sagnkerf-
ið. Lokastaða efstu para varð þann-
ig:
Ómar F. Ómarss. – Jörundur Þórðars. 49
Inda H. Björnsd. – Bjarni H. Einarss. 29
Halldóra Hjaltad. – Kristjana Steingr. 25
Hrafnhildur Ýr Matth. – Ljósbrá Bald. 24
Sigfús Einarss. – Sigurbjörn Haraldss. 20
Hjörtur Guðmundss. – Böðvar Magnúss. 10
Næsta keppni félagsins, 10. mars,
verður væntanlega monrad-baróme-
ter. Allir spilarar 30 ára og yngri eru
hvattir til þess að mæta. Spilagjald
er aðeins 200 á spilara.
Eykt vann sveitakeppni BR
Nú er aðalsveitakeppni Brids-
félags Reykjavíkur lokið. Lokastað-
an á efstu sveitunum:
Eykt 199
SS 178
Tempra 177
Sveitin mín 176
Grant Thornton 169
Ferðaskrifstofa Vesturlands 168
ROCHE 168
Spilarar í sveit Eyktar eru: Að-
alsteinn Jörgensen, Jón Baldursson,
Sverrir Ármannsson og Þorlákur
Jónsson.
Næsta keppni er 5 kvölda aðaltví-
menningur sem hefst hinn 9. mars og
verður spilaður Barómeter, nema ef
þátttaka verður óvenjulega mikil, þá
verður fundið annað fyrirkomulag.
Skrásetning er á www.bridgefelag.is
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Fyrir flottar konur
Bankastræti 11 • sími 551 3930
FASTEIGNIR mbl.is
mbl.isFRÉTTIR