Morgunblaðið - 07.03.2004, Blaðsíða 22
22 SUNNUDAGUR 7. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
U
ndanfarin ár hafa
fjölmargir ís-
lenskir íþrótta-
menn látið að sér
kveða með
bandarískum há-
skólaliðum í ýms-
um íþróttagrein-
um. Skólagjöld vestanhafs eru oftar
en ekki mjög há og íslenskir íþrótta-
menn hafa fengið skólastyrki fyrir
það eitt að keppa fyrir hönd háskóla.
Jakob Sigurðarson, körfuknattleiks-
maður úr vesturbæ Reykjavíkur, hef-
ur fetað þessa braut en hann hélt utan
til náms í framhaldsskóla fyrir fjórum
árum og ári síðar fékk hann tilboð um
að leika með háskólaliði Birmingham-
Southern College í Alabamafylki.
Jakob, sem verður 22 ára 4. apríl
n.k., hefur látið mikið að sér kveða á
þessum þremur árum með BSC og
nýverið var hann valinn í fimm manna
úrvalslið Big South-deildarinnar.
Það er ekki á hverjum degi sem ís-
lenskur körfuknattleiksmaður nær
slíkum árangri og spurður segir Jak-
ob að vel hafi gengið í vetur en er hóg-
værðin uppmáluð.
„Þetta er fyrsta árið sem BSC-
skólinn er fullgildur sem 1. deildar-
skóli en í fyrra lékum við einnig í 1.
deild en þá vorum við nánast eins og
„gestalið“ þar sem skólinn hafði ekki
öðlast full réttindi til þess að leika í
efstu deild,“ segir Jakob en hann lék í
tvö ár með KR í úrvalsdeild hér á
landi, 1998–2000, og lét þá vita af sér
þrátt fyrir ungan aldur.
Gríðarlegur áhugi er á háskóla-
körfubolta í Bandaríkjunum og segir
Jakob að það sé nánast sama stemn-
ing á öllum leikjum liðsins og tíðkast á
úrslitaleikjum í bikarkeppni á Íslandi.
„Það voru 2000 áhorfendur á síð-
asta heimaleik okkar og það eru um
2000 nemendur í skólanum þannig að
það telst vera ágætt að fá svo marga,“
segir Jakob en BSC er smár í sam-
anburði við stærstu háskóla landsins
þar sem nemendafjöldinn getur verið
nálægt 100 þúsund.
Jakob er sonur Sigurðar Hjörleifs-
sonar sem flestir áhugamenn um
körfuknattleik á Íslandi ættu að
þekkja en Sigurður hefur þjálfað fjöl-
mörg lið í efstu deild, yngri landslið,
kvennalandsliðið og að auki hefur
Sigurður verið umboðsmaður
erlendra leikmanna sem hafa komið
til Íslands á undanförnum árum.
Jakob er nokkuð hávaxinn af bak-
verði að vera en hann er 1,93 metrar á
hæð og hefur að mestu leikið sem
leikstjórnandi hjá BSC en bregður
sér einnig í hlutverk skotbakvarðar
þegar það á við.
„Það tók mig langan tíma að kom-
ast inn í alla þá hluti sem skipta mestu
máli hér og ég þarf að kunna skil á
50–60 mismunandi leikkerfum.
Kanntu þau öll?
„Já, já, maður er búinn að læra þau
núna. En það tók sinn tíma en þjálfari
liðsins er einnig duglegur að kalla
leikkerfin sem hann vill að við notum.
Reyndar vill hann gera sem minnst af
því, og telur að við séum í stakk búnir
að taka ákvarðanir um slíka hluti. Það
á sérstaklega við um leiki á útivöllum
þar sem við heyrum ekkert hvað hann
er að segja á hliðarlínunni. Hávaðinn í
áhorfendum er það mikill.“
„Hljómsveitarútan er snilld“
Jakob leggur stund á nám í við-
skiptafræðum við BSC en hann þarf
líkt og aðrir háskólanemar að sýna
fram á námsárangur til þess að fá
leyfi til þess að taka þátt í leikjum í
NCAA-deildinni. „Við erum í skólan-
um alla daga frá morgni fram á miðj-
an dag og æfingarnar eru yfirleitt frá
16–19. Tveir til þrír tímar og þetta
tekur á ef maður ætlar að gera þetta
vel. Undirbúningstímabilið er gríðar-
lega erfitt þar sem við æfum þá tvisv-
ar á dag en það hægist aðeins á öllu
hjá þeim sem eru að spila mikið á
keppnistímabilinu. Þá er oft stutt á
milli leikja, ferðalögin taka sinn tíma
og við fáum að jafna okkur á æfing-
unum á milli leikja.“ Jakob segir að
ekið sé í flesta útileiki liðsins í „hljóm-
sveitarútunni“ eins og hann orðar
það. „Það er svefnpláss fyrir um 20 í
rútunni og maður setur á sig heyrn-
artólin og sofnar um leið og maður
kemur upp í hana. Íslensk lið myndu
fara hringferð um landið án þess að
kvarta ef þeir hefðu svona bíl. Algjör
snilld. En við flugum líka í leiki sem
við spiluðum í t.d. í Kansas og San
Francisco. En Bandaríkin eru gríð-
arlega stórt land og ég þyrfti að fara í
10 tíma bíltúr til þess að heilsa upp á
Jón Arnór í Dallas. En við höfum ekki
hist enn sem komið er.“
Skrifborðið heillar ekki
Jakob á eftir eitt ár sem námsmað-
ur í BSC áður en hann útskrifast
sumarið 2005 og segist hann ekki hafa
hug á því strax að setjast við skrif-
borð og starfa sem viðskiptafræðing-
ur.
„Ég stefni á það að reyna fyrir mér
sem atvinnumaður. Það hefur verið
draumurinn hjá mér að geta unnið við
það sem mér finnst skemmtilegast,
en það er að spila körfubolta.“
Hann játar því að hann eigi hauk í
horni á Íslandi sem gæti lagt inn gott
orð hjá umboðsmönnum í Evrópu.
„Já, pabbi þekkir markaðinn vel og
getur eflaust hjálpað mér eitthvað.
En fyrst og fremst vil ég komast
áfram á eigin verðleikum.“
Evrópa?, stefnir þú ekki á NBA
líkt og félagi þinn úr KR, Jón Arnór
Stefánsson?
„Ég veit að það gríðarlega erfitt að
komast í NBA-deildina og ætla ekki
að setja markið á hana í fyrstu at-
rennu. Jón Arnór og Logi Gunnars-
son hafa farið leið sem mér er að
skapi. Að fara í lið þar sem þeir fá að
spila og axla ábyrgð. Ég tel það væn-
legan kost og stefni á slíkt haustið
2005.“
Bandarísk háskólalið eru flest
þekkt fyrir að leggja áherslu á aga í
leik sínum. Aðstoðarmennirnir telja
hve mörg skot rata ekki rétta leið í
upphitun, leikkerfin ráða þar ríkjum
og hinn frjálsi og óheflaði leikur sem
ræður oft og tíðum ríkjum hér á Ís-
landi á ekki upp á pallborðið vestan-
hafs.
Beint á bekkinn
Jakob segir að aginn sé gríðarlegur
og menn geri sjaldan sömu mistökin
tvisvar í röð þar sem að þeim sé skipt
út af um leið og þeir gera mistök.
„Það er gríðarlegur agi hjá há-
„Allir leikir eru úrslitaleikir“
Jakob Örn Sigurðarson
hefur látið mikið að sér
kveða með liði sínu
Birmingham-Southern
College í háskólakeppni
körfuknattleiksliða í
vetur. KR-ingurinn ungi
afrekaði það að vera
valinn í fimm manna
úrvalslið Big South-
deildarinnar þar sem lið
hans varð í efsta sæti að
lokinni deildarkeppn-
inni. Jakob mun leika
með BSC í Bandaríkj-
unum á næstu leiktíð
en í samtali við Sigurð
Elvar Þórólfsson segir
Jakob að hugur hans
stefni á atvinnu-
mennsku í Evrópu.
Morgunblaðið/BSC Athletics
Jakob Sigurðarson hefur hug á því að reyna fyrir sér sem atvinnumaður í Evrópu.
Laugavegi 32 sími 561 0075