Morgunblaðið - 07.03.2004, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 07.03.2004, Blaðsíða 44
SKOÐUN 44 SUNNUDAGUR 7. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ JÓHANNES Bjarnason, íþrótta- kennari, stórþjálfari í handbolta og framsóknarfursti í ofanálag, sendir mér heldur kaldar kveðjur í Morg- unblaðinu á mánudaginn. Þar sakar hann mig um „gífuryrði“ og „böl- sót“ í skrifum um málefni aldraðra á Akureyri og Útgerðarfélag Ak- ureyringa, engum til gagns. Í lokin hefur Jóhannes þó döngun í sér til að viðurkenna, að ég hafi átt minn þátt í að rjúfa þögnina um „óviðunandi“ ástand í málefnum aldraðra á Akureyri, þannig að loksins er farið að hilla undir úr- bætur. Einhver hefði nú kallað þetta þver- sögn Jói minn, en ég þakka lofið. En áður en ég fer nánar út í afglapahátt framsókn- armanna við stjórnun Akureyrar langar mig að þakka Jóhannesi fyr- ir frábært og óeigingjarnt starf fyr- ir handboltann á Akureyri. Hann hefur um langt árabil lagt drjúgan þátt að uppbyggingu þessarar íþróttagreinar innan KA, fyrst með þjálfun hjá yngri flokkum og núna síðustu árin hefur Jóhannes verið að gera góða hluti með meisturum meistaranna í meistaraflokki. Nú síðast lönduðu þeir bikarnum með því að rúlla yfir Framarana úr Safa- mýrinni, sem voru rétt eins og framararnir hans Jakob í bæj- arstjórninni, þungir, hægfara og silalegir. Enda sá ég ekki betur en Jóhannes KA-maður Bjarnason glotti við tönn þegar séð var hvert stefndi. Ég veit að Jóhannes var snarpur íþróttamaður á sínu „léttasta“ skeiði. Hann er það líka sem þjálf- ari, vill láta hlutina ganga. Þess vegna skil ég vel, að hann þurfi að temja sér mikla þolinmæði til að þola hægaganginn í bæjarpólitíkinni á Akureyri, ekki síst innan Fram- sóknarflokksins. Þar er Jakob Björnsson við stjórnvölinn og ekki þekktur fyrir að sigla hraðbyri til framfara. Jafnvel hugrakkir menn eins og Jóhannes hafa ekki þor til að halda því fram, nema þá í lög- reglufylgd! Ég veit að þetta pirrar Jóhannes, en það er algjör óþarfi Jói minn, að láta gremjuna bitna á mér. Ég hef ekki verið í bæj- arstjórninni; en mér ber engin skylda til að þegja yfir því sem ég tel að megi betur fara á þeim vett- vangi. Jóhannes kemur því að í grein sinni, að ég hafi af „lítillæti“ reynt að þakka mér þær bráðabirgðaað- gerðir sem bæjarstjórn hefur ákveðið til að leysa vanda aldraðra Akureyringa, sem þurfa hjúkrun. Það hef ég aldrei sagt. Hins vegar benti ég á, að greinarskrif mín áttu stóran þátt í að rjúfa þögnina um þennan málaflokk, eins og Jóhannes staðfestir – og raunar einnig tugir Akureyringa sem haft hafa sam- band við mig til að þakka þarfar ábendingar um vanda aldraðra. Fólk sem jafnvel hefur beðið ár eft- ir ár í þörf fyrir vist á hjúkr- unarheimili eða fólk sem á foreldra í þeirri stöðu. Þetta veit Jó- hannes. Hann veður hins vegar heldur bet- ur reyk þegar hann heldur því fram, að bæjarstjórnarflokk- urinn hafi verið búinn að taka ákvörðun um þessa bráðabirgða- lausn löngu áður en ég hóf „ófræging- arherferð“ mína gegn meirihlutanum í bæj- arstjórn. Jóhannes minn, þú veist það sjálfur í hjarta þínu, að þetta er bull. Ég var búinn að skrifa margar greinar og eiga við þig rimmur um þessi mál, þegar þið Kobbi og Co loksins „föttuðu upp á því“, eins og krakkarnir segja, að það mætti nota Skjaldarvík. Þetta skiptir mig hins vegar engu máli; hver gerði hvað fyrir hvern og hvenær. Það sem skiptir máli eru úrbætur í verki fyrir gamla fólkið. Mér virtist á skrifum Jóhannesar, að hann hafi alls ekki lesið þær greinar sem ég hef skrifað um mál- efni aldraðra á undanförnum árum, en kjarni þeirra er þessi:  Í hálfan annan áratug hefur ríkt vandræðaástand í þjónustu við aldr- aða á Akureyri, jafnvel neyðar- ástand þegar verst hefur látið.  Starfsfólk við heimahjúkrun, ásamt starfsfólki dvalarheimilanna og sjúkrahúsanna, hefur gert meira en skyldan býður til að gera gamla fólkinu og aðstandendum þess lífið bærilegra. Þetta hef ég margund- irstrikað, þótt það virðist hafa farið fram hjá Jóhannesi.  Þetta vandamál var komið til sögunnar þegar framsóknarmenn fóru með stjórn bæjarins með stuðningi krata í lok síðustu aldar. Ekkert var gert.  Sjálfstæðismenn áttu næsta kjör- tímabil með Samfylkingunni, sem fór með öldrunarmálin. Vandinn var að aukast, en ekkert stórtækt var gert til lausnar.  Framsóknarmenn státuðu sig af því að hafa „dregið“ Jóhannes Bjarnason inn í bæjarstjórn í síð- ustu kosningum, ekki síst vegna þess að þeir lofuðu úrbótum í öldr- unarmálum, eins og reyndar allir hinir flokkarnir.  Framsókn komst í meirihluta eft- ir kosningar og fékk málefni aldr- aðra í sinn hlut. Það gerðist ekkert fyrr en kom að alþingiskosningum. Þá fundu Jón Kristjánsson og Jak- ob Björnsson penna og skrifuðu undir samning um nýja álmu við Hlíð. Enn bólar ekki á fram- kvæmdum, þótt upphaflega hafi byggingunni verið lofað í byrjun næsta árs. Það er verið að hanna!  Einn góðan veðurdag uppgötvar einhver í bæjarkerfinu, að bærinn á miklar byggingar og stóra jörð sem heitir Skjaldarvík. Þar byggði ein- staklingur elliheimili á síðustu öld og gaf bænum. Þessi mannvirki hafa staðið tóm og engum til gagns á meðan á annað hundrað manns bíða eftir dvalar- eða hjúkr- unarrýmum á vegum bæjarins. Þar af eru um þrjátíu manns í sárri neyð. Loksins, í lok síðasta árs, er ákveðið að innrétta þar hjúkr- unardeild fyrir fimmtán manns. Ég hef raunar bent á, að í Skjaldarvík megi gera paradís fyrir unga sem aldna, með heimilum, útivist- arsvæði, golfvelli, smábátaútgerð og öðru tilheyrandi. Tími til kominn, að hefja umræðu um hvernig best verður að því staðið.  Nýbygging við Hlíð verður von- andi tilbúin í ársbyrjun 2006, þegar Jóhannes ætlar sér væntanlega að fá endurnýjun frá kjósendum til setu í bæjarstjórn. Þá verða liðin um tuttugu ár frá því að þörf var fyrir þessa byggingu.  Stjórnendur bæjarins hafa verið að áreita aldraða með því að þyngja þeim róður til afsláttar af fast- eignasköttum, með því að hækka gjöld í þjónustumiðstöðvum og seinagangi við uppbyggingu þeirra. Gamla fólkið veit þetta, finnur þetta allt brenna á eigin skinni. Orð Jó- hannesar Bjarnasonar um annað breyta þar engu. Þetta gera stjórn- endur bæjarins í trausti þess, að gamla fólkið þegi og þiggi þá bita sem detta af borðum herranna nöglunarlaust. En það er liðin tíð. Í lokin nokkur orð um Útgerð- arfélag Akureyringa. Það er að heyra á Jóhannesi Bjarnasyni, að það hafi verið mikið gæfuspor fyrir Akureyringa að selja Útgerðarfélag Akureyringa. Þar hafi fengist 2,3 milljarðar króna, sem hafi komið sér vel fyrir uppbyggingu í grunn- þjónustu bæjarins. Um leið reynir Jóhannes að þvo Jakob vin sinn af þessum „heiðri“ Aftur langar mig að benda Jóhannesi á nokkrar stað- reyndir:  Jakob Björnsson var oddviti framsóknarmanna og bæjarstjóri Aldraðir þegja ekki lengur Sverrir Leósson svarar Jóhannesi Bjarnasyni, bæjarfulltrúa á Akureyri ’Mér virtist á skrifumJóhannesar, að hann hefði alls ekki lesið þær greinar sem ég hef skrifað um málefni aldraðra.‘ Sverrir Leósson Moggabúðin Reiknivél, aðeins 950 kr. Moggabúðin Íþróttataska, aðeins 2.400 kr. ATVINNA mbl.is www.hofdi.is Runólfur Gunnlaugsson, viðskiptafræðingur, löggiltur fasteigna- og skipasali. Suðurlandsbraut 20 Sími 533 6050 Bæjarhrauni 22 Sími 565 8000 Hrísrimi 2 Opið hús í dag milli kl. 14 og 17 Smáralind - 1. hæð Opið 14-17 lau. og sun. Sími 565 8000 Erum með í sölu sérlega glæsilega 4ra herb. endaíbúð á neðri hæð í fallegu tveggja hæða fjölbýli. Sérinngangur og sértimburverönd úr stofu. Parket og flísar á öllum gólfum. Verð 13,9 millj. Gunnar og Helga taka vel á móti þér milli kl. 14 og 17 í dag. FASTEIGNASALA HÁTÚNI 6a SÍMI 512 1212 FAX 512 1213 Mjög skemmtilegt og vel skipulagt 205 fm (þar af 24 fm bílskúr) endaraðhús á tveimur hæðum á frábærum stað í Garðabæ. Þrjú til fjögur svefnherbergi. Ca 30 fm suðursvalir með fallegu útsýni. Rúmgóður bílskúr fylgir eigninni. Verð 29,8 millj. Björn tekur vel á móti væntanlegum kaupendum í dag frá kl. 16.00-18.00 Lerkiás 2 OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 16.00-18.00 Skólavörðust íg 13 Sími 510 3800 Fax 510 3801 www.husavik.net Reynir Björnsson lögg. fasteignasali Opið hús í dag frá kl. 14-16 Mjög glæsileg og nýleg 4ra herbergja 119 fm íbúð á 2. hæð í góðu lyftu- húsi, ásamt stæði í bílskýli, í Kópavogi. Íbúðin er öll innréttuð með falleg- um innréttingum og gólfefnum sem eru parket og flísar. Þrjú svefnherbergi með skápum, rúmgóð stofa með útgangi á suðaustur svalir. Þvottahús innan íbúðar. Fallegt útsýni til Esjunnar. Áhv. 9,2 millj. húsbr., greiðslub. ca 45 þús. á mán. Verð 17,9 millj. Eign sem vert er að skoða. (370) Ásgeir og Björg taka vel á móti gestum (bjalla 02-01) frá kl. 14-16. Teikningar á staðnum. Kórsalir 5 - bílskýli Frábærlega staðsett og skemmtileg 83 fm 3ja herbergja íbúð á jarðhæð/kj. með sérinngangi í góðu steinhúsi í Reykjavík. Íbúðin er björt (stórir glugg- ar) og með mikilli lofthæð sem gefur ákveðinn sjarma. Tvö rúmgóð svefn- herbergi. Eldhús með borðkrók. Þvottahús innan íbúðar. Eignin var sprunguviðgerð og máluð að utan árið 1999. Búið er að endurnýja þakjárn og opnanleg fög. Garður snýr í suður. Áhv. 8,5 millj. Verð 11,6 millj. (366) Henný og Kristján taka vel á móti gestum (gengið inn sunnanmegin) frá kl. 14-16. Teikningar á staðnum. Nýlendugata 27 - Sérinngangur husavík – þar sem gott orðspor skiptir máli Opið hús í dag frá kl. 14-16 Kristinn R. Kjartansson, RE/MAX, Suðurlandsbraut 12, símar 520 9312 - 897 2338 kiddi@remax.is Öflugt fyrirtæki óskar eftir glæsilegu ca 800-1000 fm skrifstofuhúsnæði til kaups með góðri aðkomu og bílastæðum. Æskileg staðsetning er stór- Reykjavíkursvæðið. Vantar fyrir öfluga fjárfesta og byggingarmeistara, byggingarlóðir (blokkar-, raðhúsa-, einbýlishúsa- og verslunarlóðir) á stór-Reykjavíkursvæðinu. Er með kaupendur að góðu skrifstofu-, iðnaðar- og atvinnuhúsnæði. Skoða og verðmet samdægurs. Fyrirtæki óskast: Öflugri matvöruverslunarkeðju vantar góðar matvöruverslanir til kaups. Mjög traustir aðilar Er með á skrá trausta fjárfesta sem vantar góð og öflug fyrirtæki til kaups. Fyrirtæki til sölu: Er með til sölu glæsilegan matsölustað miðsvæðis í Reykjavík. Staðurinn hefur aldeilis slegið í gegn. Frábært tækifæri fyrir fjárfesta og/eða matreiðslumeistara. Er með á skrá öflugt hótel í miðbæ Reykjavíkur. Hótelið er mjög þekkt og með fína viðskiptavild. Var að fá til sölu glæsilegan söluturn, sem rekinn er í eigin húsnæði. Fyrirtækið er staðsett hjá öflugum framhaldsskóla og er með fína viðskipta- vild. Toppdæmi.... Atvinnuhúsnæði - fyrirtæki Suðurlandsbraut Hrafnhildur Bridde lögg. fast.sali • • • • • • • •
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.