Morgunblaðið - 07.03.2004, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. MARS 2004 13
Holtasmára 1 • 201 Kópavogur • Sími: 5 100 300 • Símbréf: 5 100 309
Netfang: langferdir@langferdir.is • Heimasiða: www.langferdir.is
Opnunartímar alla virka daga frá 10:00-17:00
Velkomin í ævintýraheim
Fe
rð
ab
æk
lin
ga
Ku
on
i
er
að
fin
na
á m
ör
gu
m
be
ns
ín
st
öð
vu
m
ES
SO
Lj
ós
m
yn
d
K
U
O
N
I
Tæland er sannarlega eitt besta
sólarland í heimi þar sem sólin,
sjórinn, gestrisnir heimamenn,
hagstætt verðlag og stórfeng-
legur menningararfur eru ávísun
á einstaka upplifun. Aldrei fyrr
hafa Tælandsferðir verið jafn
hagstæðar.*
Eftirfarandi dagsetningar eru í boði:
28. apríl (uppselt) • 5. maí (uppselt) • 26. maí
(uppselt) • 2. júní (4 sæti laus)
NÚ MÖGULEIKI Á 3 VIKUM Á AÐEINS
107.990 KR.
** Verð miðast við tvíbýli á City Beach Resort og staðgreiðslu
ferðakostnaðar innan viku frá bókun.
Ekki er unnt að framlengja dvöl í Tælandi eða í Kaupmannahöfn.
Verðdæmi til Tælands (2 vikur)
Sólarvinin Hua Hin
Frá Íslandi: 89.990 kr. - 2. júní
110.200 kr. - 28. júlí
107.900 kr. - 4. ágúst
Frá Khöfn: 78.900 kr. - 3. júní
84.700 kr. - 29. júlí
82.400 kr. - 5. ágúst
Gleðibærinn Jomtien
Frá Khöfn: 77.700 kr. - 2. júní
83.500 kr. - 28. júlí
Ferð til Phuket og Bangkok
Frá Khöfn: 85.900 kr. - 7. maí
88.200 kr. - 28. maí
89.400 kr. - 13. ágúst
Tvær vikur í sólarparadísinni
Hua Hin í Tælandi fyrir aðeins:
89.990 kr.
á mann** með öllum sköttum!
*Verðdæmi miðast við gengisskr.
12. febrúar 2004. Öll verðdæmi eru verð
á mann í tvíbýli og miðast við
upp gefnar brottfarir.
Íslenskur
fararstjóri
frá 1. apríl
BOULASSEL Belkacem hefur
upplifað bæði góða og slæma tíma í
Alsír á þeim 42 árum sem liðin eru
síðan hann fagnaði sjálfstæði lands-
ins. Frá því þjóðin braust undan
nýlendustjórn Frakka hefur hún
gengið í gegnum strangan sósíal-
isma, herstjórn, lýðræði og 12 ára
blóðuga íslamska uppreisn sem
hefur kostað 150 þúsund manns líf-
ið. Núna er þessi næstfjölmennasta
arabaþjóð heims tilbúin fyrir nýtt
tímabil er hún gengur að kjörborð-
inu í forsetakosningum 8. apríl.
„Þetta var tóm eymd. Við vorum
eins og dýr,“ segir hinn 67 ára
gamli Belkacem er hann minnist
sjálfstæðisbaráttu Alsírmanna sem
stóð yfir í átta ár. Ástandið er
kannski ekki eins og best verður á
kosið núna en Belkacem er ánægð-
ur þar sem hann selur sígarettur og
sykraðar hnetur á torginu. Dætur
hans sex eru allar giftar og synir
hans sex hafa allir vinnu. „Einn
þeirra er í fataiðnaðinum,“ segir
hann stoltur.
Margir af hinum 32 milljónum
íbúa landsins myndu líklega öfunda
Belkacem. Mikið atvinnuleysi og
húsnæðisskortur eru í landinu auk
þess sem spilling er mikil. Íbúunum
fjölgar ört og þrír fjórðu þjóðarinn-
ar eru undir þrítugu, að sögn AP-
fréttatofunnar. Bjartari tímar í
efnahagsmálum gætu þó verið
framundan að mati tímaritsins The
Economist. Landið er mjög auðugt
af olíu og gasi og líkur eru á að
heimsmarkaðsverð á olíu muni
haldast hátt á næstunni. Fram
kemur að langt sé í að ástandið geti
talist gott en blaðamaður ritsins
telur að þjóðin hafi komist yfir
versta hjallann og geti nú horft
fram á við.
Alsír slapp fyrir horn þegar ísl-
ömsk uppreisn braust út árið 1992,
eftir að her landsins ógilti kosning-
ar sem íslamskir harðlínusinnar
höfðu unnið. Þegar uppreisnin stóð
sem hæst á tíunda áratug síðustu
aldar voru um 1.200 manns drepnir
í hverjum mánuði. Blóðbaðið hefur
minnkað stórlega síðan þá en því er
ekki lokið. Á síðasta ári létu 600
manns lífið í átökum á milli ísl-
amskra uppreisnarmanna og ör-
yggissveita á vegum stjórnarinnar.
Herinn lofar að
grípa ekki inn í
„Alsírska þjóðin hefur náð að
standa versta veðrið af sér. Hún er
buguð og sár og almenningur hefur
miklar áhyggjur – en þjóðin stend-
ur enn í fæturna,“ segir Hugh Ro-
berts, sérfræðingur í málum Norð-
ur-Afríkuríkja við London School
of Economics.
Með kosningunum í apríl reynir
á hið brothætta lýðræði sem verið
hefur, reyndar með hléum, í Alsír.
Herinn, sem er mjög valdamikill,
hefur lofað að vera hlutlaus og ekki
grípa til aðgerða þrátt fyrir að ísl-
amskir frambjóðendur sigri. Flest-
ir stjórnmálaskýrendur telja að
leikurinn frá 1992 muni ekki end-
urtaka sig.
Forseti landsins, Abdelaziz
Bouteflika, hefur ekki tilkynnt að
hann muni bjóða sig fram en búist
er við því að hann geri það fljótlega.
Bouteflika, sem komst til valda árið
1999, hefur komið á nokkrum efna-
hagslegum umbótum, leyft tiltölu-
lega frjálsar þingkosningar og fjöl-
miðlar hafa að miklu leyti fengið að
vera frjálsir, að því er fram kemur í
The Economist.
Þar segir að Bouteflika hafi not-
að sér andstöðu gegn herskáum ísl-
ömskum hópum í heiminum og því
hafi farið lítið fyrir gagnrýni á
mannréttindabrot stjórnar hans að
undanförnu. Hann hefur staðið
með Bandaríkjamönnum í hinu svo-
kallaða stríði gegn hryðjuverkum
og hjálpað þeim að nálgast upplýs-
ingar.
Andstæðingar hans saka hann
um að traðka á lýðræðinu með því
að ráðast gegn fjölmiðlum, hindra
umbætur og safna um sig óþokk-
um. Talið er líklegt að hann verði
endurkjörinn í kosningunum í apríl.
Sumir mótframbjóðendur hafa
þegar hætt við að bjóða sig fram
gegn honum og segja að hann sé
ósigrandi á meðan hann hafi herinn
á bakvið sig.
Margir hryðjuverkamenn
frá Alsír
Sá mikli uppreisnarhugur sem
býr í sumum landsmönnum hefur
leitt til þess að Alsír hefur getið af
sér hryðjuverkamenn. Flestir þeir
sem handteknir hafa verið í Evrópu
vegna gruns um hryðjuverk hafa
komið frá Alsír. Þá var Ahmed
Ressam, alsírskur al-Qaeda-liði í
Kanada, sakfelldur fyrir að hafa
ætlað að koma fyrir sprengju á
flugvellinum í Los Angeles um ár-
þúsundaskiptin. Vitorðsmaður
hans er í gæsluvarðhaldi í Alsír. Á
tíunda áratug síðustu aldar komu
íslamskir uppreisnarmenn frá Alsír
fyrir sprengju í neðanjarðarlesta-
kerfi Parísarborgar sem olli dauða
átta manns og særði meira en tvö
hundruð.
Reuters
Ungar stúlkur í Alsír með spjöld, skreytt áletrunum úr Kóraninum. Þær biðu þess að Abdelaziz Bouteflika forseti
kæmi í heimsókn í skólann. Bouteflika hefur ekki enn skýrt frá framboði sínu en talið er víst að hann fari fram.
Reynir á brothætt
lýðræði í hrjáðu landi
Alsírbúar ganga til forsetakosninga eftir langt skeið blóðsúthellinga
Alsírska þjóðin hef-
ur náð að standa
versta veðrið af sér.
Hún er buguð og
sár og almenningur
hefur miklar
áhyggjur – en þjóð-
in stendur enn í
fæturna
ABU Musab al-Zarqawi, jórdanskur
al-Qaeda-foringi sem Bandaríkja-
menn telja að hafi skipulagt hryðju-
verkin í Bagdad og Karbala í vikunni,
lést í loftárásum Bandaríkjamanna
fyrir nokkru. Er þessu haldið fram í
yfirlýsingu 12 íraskra skæruliða-
hópa. Segja þeir jafnframt að bréf,
sem Bandaríkjamenn segja al-Zarq-
awi hafa ritað og snúist um að kynda
undir trúarstríði í Írak, sé falsað.
Í bréfinu, sem var dreift í borginni
Fallujah vestur af Bagdad, segir að
al-Zarqawi hafi látið lífið í loftárásum
Bandaríkjamanna í Sulaimaniyah-
fjöllum í Norður-Írak. Hafi hann ekki
getað forðað sér vegna þess, að hann
var einfættur og með gervifót. Undir
bréfið rituðu fulltrúar 12 skæruliða-
samtaka en Bandaríkjamenn hafa áð-
ur staðfest tilvist sumra þeirra.
Ekki kom fram í bréfinu nákvæm-
lega hvenær al-Zarqawi á að hafa lát-
ist en Bandaríkjamenn gerðu loft-
árásir á búðir kúrdísku
öfgasamtakanna Ansar al-Islam í
Sulaimaniyah-fjöllum í apríl í fyrra.
Í yfirlýsingu skæruliðanna sagði,
að al-Qaeda væri ekki að verki í Írak.
Þangað hefðu að vísu komið margir
arabar til að berjast við Bandaríkja-
menn en þeim hefði verið hjálpað úr
landi þar sem þeir hefðu verið byrði
fyrir írösku andspyrnuna.
Haft er eftir kunningja fjölskyldu
al-Zarqawis í heimabæ hans í Jórd-
aníu, að hann hafi verið í sambandi
við hana þar til fyrir fjórum mánuð-
um.
Segja al-Zarqawi vera látinn
Bagdad. AP.