Morgunblaðið - 07.03.2004, Blaðsíða 51
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. MARS 2004 51
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
M
O
R
21
02
1
0
5/
20
03
Þú segir takk fyrir!
Auglýstu í Fermingablaði
Morgunblaðsins
Fermingablað fylgir Morgunblaðinu laugardaginn 13. mars. Meðal
efnisþátta eru: Fatnaður, hárgreiðsla, matur, blóm og skreytingar.
Auglýsendur, pantið fyrir kl. 16:00 mánudaginn 8. mars!
Allar nánari upplýsingar veita sölu- og þjónustufulltrúar á
auglýsingadeild Morgunblaðsins í síma 569 1111 eða augl@mbl.is
Søren vinur minn er aðflytja. Það er sunnudag-ur, hitinn rétt yfir frost-marki og himinninn heið-ur og blár yfir borginni
við sundið. Við erum mættir
nokkrar félagar hans og vinir til að
flytja með honum búslóðina. Eig-
inkonan unga hefur líka kallað
systur sínar á vettvang. Börnin
tvö, fjögurra og sjö ára, velkjast á
milli þess að vera æst, spennt,
hvefsin og innísig. Það er líka ein-
kennilegt fyrir fólk á þeirra aldri
að horfa upp á umhverfi sitt, her-
bergin tvö og eldhúsið, allt tómt og
autt. Rúmin, borðin og stólarnir
úti á gangstétt.
Og hvers vegna er Søren og fjöl-
skylda að flytja? Hann segir sjálf-
ur að það sé til að prófa eitthvað
nýtt. Víkka
sjóndeild-
arhringinn áður
en það er of
seint vegna
skólagöngu
barnanna. Upplifa einhvern annan
veruleika en þessa værukæru vel-
ferð, þetta dvínandi umburðarlyndi
og æ óbeinna lýðræði sem um-
kringir hann hér. Það er sífellt að
kvarnast úr gömlu góðu húm-
anísku gildunum í núningnum við
markaðsvæðinguna.
Sumir segja að Søren sé póli-
tískur flóttamaður. Aðrir að hann
sé bara óhamingjusamur. Það
fyrra virðist langsótt. Hið síðara
líka. Honum vegnar vel í sínu fagi
og hefur prýðilegar tekjur. Sem
listamaður hefur hann aðstæður og
tækifæri til að tjá sig um sam-
félagið og þróun þess. Ef hann er
óhamingjusamur, þá er það alltént
ekki í samræmi við alkunna skyn-
semi hans, að leita bóta við því
meini með því að flytja jafn langt
og hann ætlar. Það væri svo sann-
arlega að flytja langt yfir skammt.
En samt, kannski. Öll eigum við
einhverja ólögulega en ending-
argóða kassa af óhamingju sem
aldrei rata á haugana. Fylgja okk-
ur í öllum flutningum. Eða bíða
okkar í kjöllurum.
Søren er ekki verkstjóri af guðs
náð. Flutningakassarnir sem hann
keypti eru of fáir og lélegir, lausa-
munirnir of margir og þegar
mannskapurinn hefur komið öllu
út á gangstétt kemur í ljós að
sendibíllinn er ekki væntanlegur
fyrr en eftir klukkutíma. En það
er sól og skjól í bakgarðinum og
með því að setja rafmagnið aftur á
í íbúðinni er mögulegt að gæða sér
á kaffi og spá í gamla útikamarinn,
sem enn stendur, en gegnir nú
hlutverki áhaldageymslu. Í algeru
samræmi við skipulagshæfnina
stöðvast loks svo smá sendibifreið
utan við húsið að það rétt grillir í
bílþakið yfir kassastaflann og
tæmdu bókahillurnar á gangstétt-
inni. Bílstjórinn kallar á stærri bíl
af stöðinni.
Eftir einn kaffibolla og hálfa
kamarumræðu í viðbót kemur
stæðilegri bíll. Bílstjórinn hefur á
orði þegar hann heyrir hvert á að
aka, að þetta liggi í loftinu. Hann
hafi ekki gert annað allan morg-
uninn en að flytja búslóðir milli
Vesterbro og Nørrebro. Margir
séu greinilega að skipta um hverfi
í dag. En það á ekki við um Søren
og fjölskyldu í venjulegri merk-
ingu orðanna.
Rúmin, borðin og stólarnir, bæk-
urnar og tuskudýrin, þetta er að
vísu allt að flytja út á Nørrebro,
en ekki Søren. Søren er að vísu
vissulega að flytja á milli borg-
arhverfa. En hann er líka að flytja
milli landa. Reyndar milli heims-
álfa. Litla kjarnafjölskyldan sem í
ein sjö ár hefur búið á fjörutíu fer-
metrum með aðgangi að klósetti
og baði í þvottahúsinu í kjall-
aranum er að taka sig upp og flytj-
ast búferlum til Buenos Aires í
Argentínu. Tangó. Borges. Mara-
dona.
Søren hefur með sér slatta af
verkefnum. Það er hægt að skapa
hvar sem er, segir hann þegar
hann fær sér smókpásu eftir að
allt góssið er komið inn í kjall-
arageymslu hjá vinum og ætt-
ingjum á Ægirsgade. Svo dregur
hann upp gullgreiðslukortið, fyrstu
plastmynt fjölskyldunnar, og býð-
ur bjór á línuna á krá sem angar
af öli og tóbaki og ögn af hland-
remmu næst klósettganginum.
Við föðmumst eitt sjálfmeðvitað
andartak úti í ofurbjartri vetr-
arsólinni á eftir og nefnum tölvu-
póst og óvæntar heimsóknir. Svo
skiljast leiðir. Og ég er ánægður
fyrir Sørens hönd að vera að fara
svona langt burt. Og ég hef
áhyggjur af honum. Þannig er það
þegar vinir manns flytja yfir hálf-
an hnöttinn. Hvað er það sem þeir
flytja með sér? Hvað skilja þeir
eftir og hverju gleyma þeir? Hvað
er það sem bíður þeirra í kössum í
kjöllurum, alveg sama hvað þeir
eru langt og lengi í burtu? Hvers
vegna flytjum við? Hvers vegna
snúum við aftur?
Kassarnir bíða vitjunartímans í
kjallaranum. Í auðri íbúð í Buenos
Aires dansar tunglið tangó við
skuggann af þunnum gardínum.
Það er liðið á daginn. Hitinn
samt enn yfir frostmarki. Himinn-
inn samur og fyrr yfir borginni við
sundið. Heiður og blár.
Hvers vegna flytjum við?
Morgunblaðið/Magnús Valur
HUGSAÐ
UPPHÁTT
Eftir Sveinbjörn
I. Baldvinsson
Ítölskunámskeið Mánudaginn 22.
og miðvikudaginn 24. mars hefjast
síðustu ítölskunámskeið vetrarins
hjá Margréti Gunnarsdóttur, far-
arstjóra og bókasafns- og upplýs-
ingafræðingi.
Kennt er í 10 skipti, einu sinni í
viku, alls 20 kennslustundir. Lögð
er áhersla á að kenna það sem
ferðalangar geti nýtt sér á ferð um
Ítalíu. S.s. talæfingar, hlustun og
ýmis fróðleikur um Ítalíu eftir því
sem tilefni gefst. Nánari upplýs-
ingar á www.simnet.is/maggagu
Tungumálanámskeið hjá Nord-
klúbbnum Um miðjan mánuðinn
mun Nordklúbburinn, Ungmenna-
deild Norræna félagsins, halda
stutt tungumálanámskeið undir
heitinu „öldum saman“. Boðið verð-
ur upp á námskeið í norsku, græn-
lensku, finnsku og færeysku. Hvert
námskeið samanstendur af þremur
kvöldum frá kl. 19–20.45, samtals
sex kennslustundum í hverju
tungumáli. Ekki er ætlast til þess
að þátttakendur hafi kunnáttu í
málunum, aðeins áhuga.
Tungumálanámskeiðin eru félögum
Norræna félagsins að kostn-
aðarlausu, aðrir geta skráð sig í fé-
lagið og greiða þá sem nemur fé-
lagsaðild í eitt ár, 950 kr. fyrir 27
ára og yngri, 1.900 kr. fyrir eldri.
Nánari upplýsingar má finna á
heimasíðu Nordklúbbsins:
www.norden.is/nordklubb.
Stofnfundur Félags Frjálslyndra
í Hafnarfirði verður haldinn
þriðjudaginn 9. mars, kl.20, í Gútto
( Góðtemlarahúsinu) Suðurgötu 7.
Guðjón Arnar Kristjánsson og
Gunnar Örn Örlygsson flytja
ávörp.
Á NÆSTUNNI