Morgunblaðið - 07.03.2004, Síða 58
DAGBÓK
58 SUNNUDAGUR 7. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Freri kemur í dag
Ontika fer í dag.
Fréttir
Fjölskylduhjálp Ís-
lands Eskihlíð 2–4 í
fjósinu við Miklatorg.
Móttaka á vörum og
fatnaði, mánudaga kl.
13–17. Úthlutun mat-
væla og fatnaðar,
þriðjudaga kl. 14–17.
Sími skrifstofu er
551 3360, netfang dal-
ros@islandia.is, GSM
hjá formanni 897 1016
Mannamót
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Leikfélagið
Snúður og Snælda
sýna „Rapp og renni-
lása“ í dag kl. 15. Mið-
ar seldir við inngang-
inn. Dansleikur í kvöld
kl. 20 Caprí-tríó leikur
fyrir dansi.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Félags-
heimilið er opið virka
daga frá kl. 9–17, alltaf
heitt kaffi á könnuni.
Félagsstarf eldri
borgara í Mosfellsbæ.
Púttkennsla í Íþrótta-
húsinu Varmá, á
sunnudögum kl. 11–12.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Föstudaginn
12. mars kl. 16 opnar
Eðvaldína M. Kriis-
tjándóttir listmuna-
sýningu, m.a. syngur
Gerðubergskórinn
undir stjórn Kára
Friðrikssonar, léttar
veitingar.
Vesturgata 7. Fram-
talsaðstoð frá skatt-
stjóranum í Reykjavík
verður veitt á Vest-
urgötu 7 mánudaginn
15. mars. Upplýsingar
og skráning í síma
535 2740.
NA (Ónefndir fíklar).
Neyðar- og upplýs-
ingasími 661 2915.
Opnir fundir kl. 21 á
þriðjudögum í Héðins-
húsinu og á fimmtu-
dögum í KFUM&K,
Austurstræti.
Kvenfélag Breiðholts
heldur fund þriðjudag-
inn 9. mars kl. 20,
gestur fundarins verð-
ur Elín Pálmadóttir.
Styrkur. Opið hús
verður í Skógarhlíð 8
þriðjudaginn 9. mars
kl. 20. Helgi Bene-
diktsson hjúkr-
unarfræðingur segir
frá starfi heimahlynn-
ingar Krabbameins-
félagsins.
Skátamiðstöðin við
Hraunbæ. Endur-
fundir skáta eru annan
mánudag í mánuði.
Næsta samverustund
verður mánudaginn 8.
mars kl. 12. Súpa og
brauð. Jóhanna Krist-
insdóttir segir frá ferð
íslenskra kvenskáta á
skátamót í Finnlandi
sumarið 1949.
Kvenfélag Bústaða-
sóknar heldur fund í
safnaðarheimilinu
mánudaginn 8. mars
kl. 20. Spilað bingó.
Minningarkort
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúkl-
inga fást á eftirtöldum
stöðum: Vesturland:
Penninn Bókabúð
Andrésar, Kirkjubraut
54, Akranesi, s.
431 1855 Dalbrún ehf,
Brákarbraut 3, Borg-
arnesi, s. 437 1421,
Hrannarbúðin, Hrann-
arstíg 5, Grundarfirði,
s. 438 6725 Verslunin
Heimahornið, Borg-
arbraut 1, Stykk-
ishólmi, s. 438 1110
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúkl-
inga fást á eftirtöldum
stöðum: Vestfirðir:
Jón Jóhann Jónsson,
Hlíf II, Ísafirði, s.
456 3380 Jónína
Högnadóttir, Esso-
verslunin, Ísafirði, s.
456 3990 Jóhann Kára-
son, Engjavegi 8, Ísa-
firði, s. 456 3538 Krist-
ín Karvelsdóttir,
Miðstræti 14, Bolung-
arvík, s. 456 7358
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúkl-
inga fást á eftirtöldum
stöðum: Norðurland:
Blómaskúrinn, Kirkju-
vegi 14b, Ólafsfirði, s.
466 2700 Hafdís Krist-
jánsdóttir, Ólafsvegi
30, Ólafsfirði, s.
466 2260 Blómabúðin
Ilex, Hafnarbraut 7,
Dalvík, s. 466 1212
Bókabúð Jónasar,
Hafnarstræti 108, Ak-
ureyri, 462 2685 Bóka-
búðin Möppudýrið,
Sunnuhlíð 12c, Ak-
ureyri, s. 462 6368
Penninn Bókval, Hafn-
arstræti 91–93, Ak-
ureyri, s. 461 5050
Blómabúðin Akur,
Kaupangi, Mýrarvegi,
Akureyri, s. 462 4800
Blómabúðin Tamara,
Garðarsbraut 62,
Húsavík, s. 464 1565
Bókaverslun Þórarins
Stefánssonar, Garð-
arsbraut 9, Húsavík, s.
464 1234, Skúli Jóns-
son, Reykjaheiðarvegi
2, Húsavík, s. 464 1178
Skúli Þór Jónsson,
Boðagerði 6, Kópa-
sker, s. 465 2144
Rannveigar H. Ólafs-
dóttur, Hólavegi 3,
650. Laugum, s.
464 3181.
Minningarkort Hvíta-
bandsins fást í Kirkju-
húsinu, Laugavegi 31,
s. 562 1581 og hjá
Kristínu Gísladóttur,
s. 551 7193 og Elínu
Snorradóttur, s.
561 5622.
Í dag er sunnudagur 7. mars, 67.
dagur ársins 2004, Æskulýðsdag-
urinn. Orð dagsins: Fégirndin er
rót alls þess, sem illt er. Við þá
fíkn hafa nokkrir villst frá trúnni
og valdið sjálfum sér mörgum
harmkvælum.
(1. Tím. 6, 10.)
Björn Bjarnason fjallarum málsvara frjáls-
hyggjunnar og Uppreisn
frjálshyggjunnar, bók
sem kom út fyrir 25 ár-
um, á vef sínum bjorn.is.
Björn segir: „Líklegasegir það meira en
flest annað um áherslur
íslenskra fjölmiðla, að í
fyrsta sinn í sögu ljós-
vakamiðla fengu tveir
frjálshyggjumenn að
sitja saman fyrir svörum
hjá Agli Helgasyni í
þættinum Silfur Egils á
Stöð 2 sunnudaginn 22.
febrúar 2004 og ræða
pólitískar hugsjónir sín-
ar.
Í þættinum ræddu þeirdr. Hannes Hólm-
steinn Gissurarson pró-
fessor og Jón Steinar
Gunnlaugsson, hæsta-
réttarlögmaður og pró-
fessor, við Egil í tilefni
af því, að hinn 19. febr-
úar voru 25 ár liðin frá
útgáfu bókarinnar Upp-
reisn frjálshyggjunnar.
Kjartan Gunnarsson, nú-
verandi framkvæmda-
stjóri Sjálfstæðisflokks-
ins og þáverandi
formaður Heimdallar,
stóð að útgáfu bók-
arinnar.
Egill Helgason á heiðurskilinn fyrir að leiða
þessa tvo góðu málsvara
frjálshyggjunnar fram í
þætti sínum og gefa
þeim tækifæri til að
segja skoðun sína og
leggja mat á þróun þjóð-
félagsins, án þess að ein-
hver yfirlýstur vinstri-
eða ríkisforsjársinni tæki
einnig þátt í umræðun-
um.
Þeir Hannes Hólm-steinn og Jón Steinar
hafa látið mikið að sér
kveða í umræðum og
hugmyndafræðilegri bar-
áttu íslenskra þjóðfélags-
mála undanfarna ára-
tugi. Þeir nálgast
viðfangsefnið frá líkum
sjónarhóli en nýta krafta
sína á ólíkum sviðum.
Þeir hafa báðir gefið útfræðilegar bækur og
veita aðhald með skýrum
og þaulhugsuðum mál-
efnalegum rökum. Hvor-
ugur þeirra hefur farið á
mis við þær mannorðs-
árásir, sem hvað eftir
annað hafa verið gerðar
að málsvörum Davíðs
Oddssonar og félaga
hans á vettvangi Sjálf-
stæðisflokksins.
Það er til marks umnæma tilfinningu Eg-
ils Helgasonar fyrir mik-
ilvægum straumum í ís-
lensku þjóðlífi að kalla
þá Hannes Hólmstein og
Jón Steinar til viðtals um
þróunina frá útgáfu
Uppreisnar frjálshyggj-
unnar.
Íslenska þjóðfélagið hef-ur tekið miklum breyt-
ingum undanfarin 25 ár,
ekki síst fyrir tilstilli
þeirra, sem komu að
þessu riti.“
STAKSTEINAR
Aðhald með málefna-
legum rökum
Víkverji skrifar...
Víkverji hefur lengi verið mikillaðdáandi ensku knattspyrn-
unnar, eins og knattspyrnuunn-
endur víða um heim. Vagga knatt-
spyrnunnar er í Englandi og þar í
landi er boðið upp á eina mestu leik-
sýningu heims, sem stendur yfir í tíu
mánuði með öllu tilheyrandi – mikilli
spennu, glæsilegum tilþrifum,
skemmtilegum augnablikum og
mörkum í öllum regnbogans litum.
Knattspyrnuunnendur um víða ver-
öld fylgjast með beinum sjónvarps-
útsendingum frá Englandi, eða þá
bregða sér til Englands til að fara á
völlinn, þar sem uppselt er á flesta
leiki.
Það er sorglegt til þess að vita að
nokkrir dómgreindarlausir knatt-
spyrnumenn, sem hafa himinhá laun
– milljónir króna á viku – upphæðir
sem almenningur í Englandi þekkir
ekki, skuli leyfa sér að setja svartan
blett á lið sín í Englandi og knatt-
spyrnuna þar í landi. Upp er að
koma kynslóð leikmanna, sem kunna
sér ekki hóf – menn sem bera ekki
virðingu fyrir neinu. Telja að þeir
geti leyft sér hvað sem er í skjóli
frægðar og nýfengins fjár. Þar á við
máltækið „margur verður af aurum
api“. Mörg atvik undanfarin ár
styðja þetta – of mörg til að telja upp
hér. Og nú í vikunni tók steininn úr
þegar hópur leikmanna úrvalsdeild-
arliðsins Leicester City réðst inn á
herbergi hjá þremur stúlkum í La
Manga á Spáni.
Með athæfi sínu færðu leikmenn-
irnir fréttir af sér og liði sínu af bak-
síðum blaðanna – íþróttasíðunum –
yfir á forsíður.
Það grátlegasta við framkomu
þeirra er að forráðamenn Leicester,
sem er í fallsæti í ensku úrvalsdeild-
inni, ákváðu að fara með þá til Spán-
ar til að efla liðsandann fyrir hina
hörðu fallbaráttu sem framundan er
hjá Leicester. Það skiptir liðið miklu
máli fjárhagslega að halda sæti sínu
í úrvalsdeild. Leikmennirnir, sem
hafa gert lítið af því að skemmta
stuðningsmönnum sínum á knatt-
spyrnuvöllum í Englandi, hófu
Spánardvölina með því að
„skemmta“ sjálfum sér fyrsta kvöld-
ið sem þeir voru á La Manga.
Þeir leyfðu sér að haga sér eins og
villimenn. Ferðin, sem átti að þjappa
leikmönnum saman og létta and-
rúmsloftið fyrir átökin, sem fram-
undan eru, endaði með martröð.
Þeir eru búnir að skaða nafn Leic-
ester. Borgarbúar standa agndofa
og hörðustu stuðningsmenn liðsins
hafa fengið nóg. Reiðin er mikil í
Leicester og víða um England.
Víkverji skilur það vel. Það er fyr-
ir löngu búið að benda á að launa-
greiðslur til knattspyrnumanna séu
komnar úr böndunum. Það eru því
miður margir sem kunna ekki að
höndla það – að vera allt í einu
komnir með fullar hendur fjár.
Reuters
Leikmenn Leicester hafa ekki efni
á að fagna þessa dagana.
Hver kannast við
fólkið á myndinni?
ÞESSI mynd var tekin á
Landakotsspítala í kring-
um árið 1954. Kristbjörn
Tryggvason barnalæknir
var með þessi börn. Þeir
sem gætu sagt til um hverj-
ir eru á myndinni eru beðn-
ir að hafa samband við Erlu
í síma 864 5576.
Servíettur með
mynd af fiðlu
NÚ er ég að athuga hvort
einhver getur hjálpað mér.
Fyrir svona hálfu ári rakst
ég á servíettur með mynd
af fiðlu og nú er komið að
fermingu þar sem ferming-
arbarnið langar að hafa
þannig servíettur. Því lang-
ar mig að biðja þá sem vita
hvar ég fæ svoleiðis serví-
ettur, í búntum, að hafa
samband við Vordísi í síma
861 3929.
Tapað/fundið
Hjól í óskilum
ÞETTA hjól hefur verið
lengi í óskilum í Bökkun-
um. Þeir sem kannast við
hjólið hafi samband í síma
587 2622.
Dýrahald
Mollý er týnd
MOLLÝ er svör tmeð
hvítar loppur og bringu.
Hún er með rauða ól og
merkt. Hún týndist sl.
þriðjudag frá Hamravík í
Grafarvogi. Þeir sem hafa
orðið varir við hana hafi
samband í síma 586 1093
eða 691 3010.
Kettir
fást gefins
TVEIR kolsvartir eins árs
fresskettir (bræður) fást
gefins á gott heimili vegna
sérstakra aðstæðna. Upp-
lýsingar í síma 552 5859 og
847 1064.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT
1 skær, 4 kinnungur á
skipi, 7 illvirki, 8 bunga,
9 miskunn, 11 lengd-
areining, 13 seðill, 14 fyr-
irgangur, 15 halarófa, 17
afkimi, 20 gljúfur, 22
mastur, 23 misteygir, 24
ákveð, 25 gleðskapur.
LÓÐRÉTT
1 formæla, 2 drykkjulæti,
3 tanginn, 4 veiðidýr, 5
jarði, 6 bræði, 10 leiti á,
12 veiðarfæri, 13 til
skiptis, 15 ferma skip, 16
vinningur, 18 tunna, 19
mannsnafn, 20 hleðslu,
21 ófögur.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 rembingur, 8 ruddi, 9 ræður, 10 kór, 11 seyra,
13 asnar, 15 glans, 18 slæða, 21 kút, 22 terta, 23 iðinn,
24 skætingur.
Lóðrétt: 2 Eldey, 3 blika, 4 narra, 5 urðin, 6 hrós, 7
grær, 12 Rán, 14 sál, 15 gati, 16 afrek, 17 skart, 18
stinn, 19 ætinu, 20 Anna.
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16