Vísir - 05.05.1981, Qupperneq 15
Þriðjudagur 5. mai 1981
VÍSIR
15
Söngur,
glens og grin
á Sólarkvöldi
Módelsamtökin sýndu sumar-
fatnað frá Verölistanum.
t,Þid ráóió hvaöa
konur þið takió með”
Það var mikið hlegið og
klappað á Sólarkvöldi Samvinnu-
ferða-Landsýnar, sem haldið var
siðastliðið sunnudagskvöld. Jazz-
leikur, h ö r k us p e n n a nd i
spurningakeppni, tiskusýning og
fjörugur körsöngur settu svip á
kvöldið.
Skemmtunin hófst með þvi að
hjónin Chris Woods og Lynett
Woods ásamt Guðmundi Ingólfs-
syni og Arna Scheving. léku nokk-
ur jazzlög. Fengu þau geysigóðar
undirtektir og vildu áheyrendur
ekki sleppa þeim úr salnum fyrr
en þau höfðu tekið eitt aukalag.
Að tiskusýningu Módelsamtak-
anna lokinni gengu ,,St júp-
bræður” syngjandi i salinn:
„...Bráðum kemur vor i huga og
hjarta...” o.s.frv. Voru þar
komnir allmargir úr kirkjukór
Lauganeskiricju með Jón Stefáns-
son stjórnanda i fararbroddi.
Skemmtu þeir um stund með söng
og gamanmálum, þar á meðal
bráðsmellnum kynningum.
Rusi'nan i pylsuendanum var
svo lokaatrennan i spurninga-
keppni fagfélaganna. Liðin sem
kepptu til úrslita voru frá Dags-
brún og Verslunarmannafélagi
Reykjavikur. Höfðu hvort um sig
þrjá sigra að baki. Aður en
keppnin hófst, vigbjuggust menn
ákaflega fóru Ur jökkum skóm og
sokkum og tóku sér stöðu. Keppn-
in var geysihörð og áttu
keppendur oft erfitt með að
hemja sig i sætunum meðan
spyrillinn endaði viðkomandi
spurningu. Vissu liðin svarið áttu
þau að þjóta og ná i kjuða einn
sterklegan og slá honum i.
Stundum náðu bæði liðin
kjuðanum og þá varð að draga
um hvort fengi að svara. Þegar
ein spurning var eftir. voru
keppendur jafnir að stigum en
þeir verslunarmenn urðu sneggri
á lokasprettinum og fengu að
svara hver væri stjórnandi
Hamrahliðakórsins. I hlut hvers
keppenda vinningsliðsins komu
þvi tveir miðar til London. ,,Þið
ráðið þvi hvaða konur þið takið
með”, sagði stjórnandinn, um
leið og hann afhenti verðlaunin og
tóku menn vel undir það —JSS
Umsjon:
Jóhanna Sig-
þdrsdóttir.
Cris heillaði áheyrendur upp úr skónum með saxafónleik sfnum. Lynett barði húöirnar og sannaöi svo
ekki varðum villst.að konur eru ekkert siður f stakk búnar til slfkra hluta en karlmenn. Heyriö þið það,
Grýlur?
.og brugðu á leik.auk þess sem þeir fluttu ýmis gamanmál.
Sigurglaðir VR-menn Sigfinnur Sigurðsson, Pétur Maack og Baldur
Óskarsson hampa verðlaununum. VisismyndirGVA
Og svo var þaö spurningakeppnin. Þátttakendur hlupu, hver sem betur
gat...
...og spurningin var bara hvor yrði á undan.