Morgunblaðið - 02.04.2004, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 02.04.2004, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 FÖSTUDAGUR 2. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ Plúsfer›ir • Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100 Ma llorc a 34.142kr. Sama sólin - sama fríi› -en á ver›i fyrir flig! á mann miðað við að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja-11ára, ferðist saman. 41.730 kr. á mann ef 2 ferðast saman. Innifalið er flug, gisting í 7 nætur á Pil Lari Playa, 10.000 kr. bókunarafsláttur og ferðir til og frá flugvelli erlendis. HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt 37 ára karlmann, Agn- ar Víði Bragason, í tveggja ára fangelsi fyrir auðgunar-, fíkniefna- og umferðarlagabrot á árunum 2001-2003. Ákærði var einnig dæmdur til að greiða trygginga- félögum 6,7 milljóna króna í skaða- bætur og sviptur ökurétti ævi- langt. Þá voru gerð upptæk 17,44 grömm af amfetamíni og lítilræði af maríúana og tóbaksblönduðu hassi. Lögreglustjórinn í Reykjavík gaf út þrjár ákærur vegna fjöl- margra mála á hendur ákærða og játaði hann sakir að hluta en neit- aði m.a. einum stærsta hluta máls- ins, þ.e. úra- og skartgripaþjófnaði upp á 1,2 milljónir kr. í verslun Frank Michelsen á þorláksmessu 2001. Notaður var stolinn bíll og honum keyrt í gegnum búðar- gluggann. Aldursgreindi blóð í bílnum Lögreglan fann umræddan bíl og rannsakaði blóð sem fannst í honum og sendi í DNA-rannsókn. Lögreglan taldi sig geta fullyrt að blóðið gæti hafa verið frá því nokkurra mínútna gamalt upp í tveggja klukkustunda gamalt, en það mætti sjá á útliti blóðsins sem breytist við storknun með tíman- um. Að mati dómsins kom þessi ald- ursgreining á blóðinu vel heim og saman við líklega tímaröð inn- brotsins og með DNA-rannsókn væri sannað að blóðið væri úr ákærða. Málið gekk í héraðsdómi 16. mars og var dæmt af Guðjóni St. Marteinssyni héraðsdómara. Verj- andi ákærða var Sigurður Georgsson hrl. og sækjandi Dag- mar Arnardóttir fulltrúi lögreglu- stjórans í Reykjavík. Tveggja ára fangelsi fyrir stórfelld auðgunarbrot Blóðsletturannsóknir sanna gildi sitt í fyrsta dómsmálinu MÁLIÐ sem gekk í héraðsdómi 16. mars markar tímamót í saka- málarannsóknum hérlendis að því leyti að þetta er í fyrsta skipti sem niðurstöður aldursgreiningar á blóði, sem tilheyra svokölluðum blóðsletturannsóknum lögregl- unnar, eru lagðar fram sem sönn- unargagn í sakamáli og þær tekn- ar gildar fyrir dómi. Um er að ræða mjög sérhæfðar rannsóknaraðferðir sem lög- reglan í Reykjavík hefur nýlega tekið upp. Starfið er ekki bundið við höfuðborgina, heldur aðstoða rannsóknarlögreglumenn tækni- deildar lögreglunnar við rann- sóknir stærri sakamála um allt land. „Aldursgreining á blóði er enn ein nýjungin sem lögreglan í Reykjavík hefur tekið upp við rannsóknir sínar,“ segir Hörður Jóhannesson yfirlögregluþjónn. „Þessi aðferð er í sífelldri þróun hjá okkur í samvinnu við vís- indamenn og þetta mál sýnir að við erum á réttri leið hvað varðar nýjungar í rannsóknaraðferðum lögreglu.“ ÍSLENSK stúlka varð í öðru sæti í smurbrauðskeppni sem haldin var í Herning á Jótlandi á miðvikudag. Tinna Ólafsdóttir, sem er 23 ára, hefur verið við nám í þrjú ár í Hótel- og veitingahúsaskóla Kaup- mannahafnar þar sem hún hefur lært þá kúnst að smyrja smurbrauð og matreiða kalda rétti af öllu tagi. Hún hefur verið á samningi hjá smurbrauðsmeistaranum Idu Dav- idsen, sem er ein þekktasta smur- brauðsdama Danmerkur og er Ís- lendingum að góðu kunn fyrir gómsæt jólahlaðborð að dönskum hætti. Fjölbreytni í hráefnavali „Galdurinn við gott smurbrauð er að gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn og vera óhræddur að nota hvaða hráefni sem er,“ segir Tinna aðspurð hvernig gott smurbrauð eigi að vera. Það var þó ekki smurbrauð sem kom Tinnu í annað sæti í keppninni, sem er ætluð nemum sem eru í veit- ingageiranum, heldur heilt hlaðborð kræsilegra rétta. Tinna þurfti nefni- lega að útbúa máltíð fyrir tíu manns á þremur og hálfri klukkustund. „Við áttum að gera sex hlaðborðs- rétti. Við fengum að vita um ákveðin hráefni fyrirfram og gátum æft okk- ur á þeim, t.d. dádýrakótilettum og kræklingum. Út frá þessum hráefn- um áttum við að búa til uppskriftir og útbúa rétti fyrir tíu manns. Þeg- ar við mættum svo til keppni feng- um við þrjú hráefni í viðbót sem við þurftum að ákveða á staðnum hvernig við ætluðum að nota.“ Skólar senda lið til keppninnar og voru tveir og tveir saman í liði. Tinna segir að smurbrauðsáhug- inn sé ekki nýr af nálinni hjá sér og segist hafa haft áhuga á matargerð frá unglingsaldri. „Svo ákvað ég að skella mér í smurbrauð í staðinn fyr- ir kokkinn.“ Tinnu var boðið að taka þátt í keppninni og var hún eini fulltrúi Ís- lands í henni. Hún útskrifast úr skól- anum 14. apríl næstkomandi og stefnir að því að flytja heim í lok mánaðarins. „Hver veit hvað ég fer að gera heima, en vonandi hefur sig- urinn í keppninni þá þýðingu að fleiri atvinnutækifæri bjóðist,“ segir Tinna að lokum. Tinna Rut Ólafsdóttir sæl og glöð eftir að hafa hafnað í öðru sæti í smurbrauðskeppni í Danmörku. Ímyndunar- aflinu gefinn laus taumur OLÍUFÉLÖGIN hækkuðu í gær verð á bensíni og dísilolíu um 3 kr. lítrann og kostar lítrinn af 95 oktana bensíni í sjálfsafgreiðslu 98,70 kr. al- mennt eftir hækkunina og lítrinn af dísilolíunni 41,10 kr. Ástæður hækk- unarinnar eru sagðar miklar hækk- anir á heimsmarkaðsverði að undan- förnu og gengisþróun Banda- ríkjadals. Verð hjá Atlantsolíu er óbreytt. Sjálfsafgreiðsluverð hjá öllum stóru olíufélögunum Olís, Esso og Skeljungi var það sama 98,70 kr. fyr- ir lítrann af 95 oktana bensíni og verðið á dísilolíulítranum var 41,10. Bensínlítrinn hjá ÓB var 1,20 kr. ódýrari eða 97,50 lítrinn og sama verðið var hjá Esso Express og dísil- olíulítrinn var á 39,90 kr. Hjá Orkunni var lítraverðið 10 aurum ódýrara, 97,40 kr., fyrir 95 oktana bensín og 39,80 fyrir dísilolíu- lítrann, nema á Skemmuvegi í Kópa- vogi og á Selfossi þar sem verðið var 92,40 kr. fyrir 95 oktana bensín og í Hafnarfirði þar sem verðið var 93,40 og verðið á dísilolíunni 34,90 kr. Hjá Atlantsolíu var verðið óbreytt 92,50 kr. fyrir 95 oktana bensín og 35 kr. fyrir lítrann af dísilolíu. Bensínið hækkar um 3 krónur SÁ fáheyrði atburður gerðist á Fáskrúðsfirði í gærmorgun að jepplingur strauk frá eiganda sín- um. Hafði sá skilið bílinn eftir í gangi, í handbremsu þó, og brugðið sér inn í næsta hús. Tók jepplingurinn þá að renna aftur á bak um 100 metra langa leið og lá hún yfir aðalgötuna á Fáskrúðsfirði, utan í Hótel Bjarg og loks pompaði bifreiðin ofan í læk milli steinhleðslna einni götu neðar. Lögreglan í bænum kannar málsatvik en íbúum þótti atvikið svo furðulegt að þeir töldu fyrst að um aprílgabb væri að ræða. Hundur sem tók ferðalagið aftur á bak með bílnum slapp ómeiddur en skelkaður. Jepplingur strauk frá eigandanum Morgunblaðið/Albert Kemp Fáskrúðsfirði. Morgunblaðið MIKIL hætta skapaðist þegar lítil trilla, Hafdís GK 92, fékk í skrúfuna og rak aflvana að landi austur af Straumnesi rétt hjá Straumsvík, í gærmorgun. Tveir skipverjar voru um borð en björguðu sér með snarræði þegar þeim tókst að bakka trill- unni út og afstýra þannig stór- slysi. Neyðarkall kom frá Hafdísi kl. 9.29 í gegnum sjálfvirka tilkynn- ingarskyldukerfið um að veiðar- færi hefðu flækst í skrúfunni og drepist hefði á vélinni. Köstuðu akkerum og biðu aðstoðar björgunarsveita Rak trilluna stjórnlaust upp að klettaströnd og strandaði, en skipverjunum, Georg Má Bald- urssyni og Lúðvík Þór Nord- gulen, tókst á síðustu stundu að setja í gang aftur og bakka út. Þar köstuðu þeir akkerum meðan þeir biðu aðstoðar björgunar- sveita. Hraðbjörgunarbátur Björgun- arsveitar Hafnarfjarðar, Sigurjón Einarsson, kom á vettvang um kl. 10.10 og tók Hafdísi í tog til Hafnarfjarðar. Við komuna þangað skömmu fyrir kl. 12 sagði Lúðvík að björgunin hefði tekist mjög vel. „Það var mjög mikill veltingur í briminu,“ sagði hann í samtali við Morgunblaðið. Mikill viðbúnaður hjá sveitum Landsbjargar „Það var mikil hætta, við náð- um að bakka út og henda út akk- eri, annars hefði báturinn brotn- að í spón. Hann var búinn að fara upp á klettana. Við viljum þakka öllum þeim sem að björguninni komu. Það var mjög vel að henni staðið, hún tókst mjög vel og við erum afar þakklátir.“ Mikill viðbúnaður var hjá björgunarsveitum Slysavarna- félagsins Landsbjargar á höfuð- borgarsvæðinu vegna óhappsins og voru sendir þrír hraðbjörg- unarbátar á vettvang ásamt björgunarskipi. Þá var TF-LÍF, þyrla Landhelgisgæslunnar, send á vettvang stuttu eftir neyðar- kallið en ekki reyndist þörf á að- stoð hennar. Við komuna til Hafnarfjarðar var tekin lögregluskýrsla af skip- verjum og fer lögreglan í Hafn- arfirði með rannsókn málsins. Tveir skipverjar á þriggja tonna trillu hætt komnir við Straumsvík „Mikil hætta og veltingur“ Ljósmynd/Áhöfn TF-Líf Skipverjunum tókst að bakka Hafdísi frá klettafjörunni og bíða björg- unar skammt frá landi. Morgunblaðið/Sverrir Skipverjarnir Georg Már Baldursson og Lúðvík Þór Nordgulen koma í land eftir velheppnaða björgun í gær.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.