Morgunblaðið - 02.04.2004, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 02.04.2004, Blaðsíða 62
DAGBÓK 62 FÖSTUDAGUR 2. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 9 vinnustofa, bað og jóga, kl. 14 bingó. Árskógar 4. Kl. 9–12 handavinna, kl. 13– 16.30 smíðar. Bingó spilað 2. og 4. föstudag í mánuði. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8.30–12.30 bað, kl. 9–12 vefnaður, kl. 9–16 handavinna, kl. 13–16 vefnaður og frjálst að spilað í sal. Félagsstarfið, Dalbraut 18–20. Kl. 9 bað, kl. 14 söngstund. Félagsstarfið Dalbraut 27. Kl. 8–16 handa- vinnustofan opin, kl. 10–13 verslunin opin. Félagsstarfið Hæð- argarði 31. Opin vinnu- stofa kl. 9–16.30, gönguhópur kl. 9.30. Opnuð í dag sýning á myndverkum eftir Ágústu Sigurðardóttur, kl. 14. Söngdísirnar taka lagið undir stjórn Hjördísar Geirs. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 10– 12 verslunin opin, kl. 11 leikfimi, kl. 13 opið hús, spilað á spil. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Félagsvist í Garðabergi kl. 13 á veg- um FEBG. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist spiluð í Fannborg 8 (Gjábakka) kl. 20.30. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Opnað kl. 9, tréútskurður og brids kl. 13, billjard kl. 13.30. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Leikfélagið Snúður og Snælda sýna „Rapp og rennilása“ í dag kl. 14. Miðar seldir við innganginn. Ath., síðasta sýning. Gerðuberg, félagsstarf. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, m.a. fjölbreytt handavinna; kl. 10 létt ganga, frá hádegi spila- salur opinn; kóræfing fellur niður, kl. 14.30 leggur kórinn af stað í söngferð í Hraunbæ. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9.05 myndvefnaður, kl. 9.30 málm- og silf- ursmíði, kl. 13 bókband. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9 glerlist, kl. 10 ganga. Kl. 14 Gleðigjaf- arnir syngja. Hraunbær 105. Kl. 9 handavinna, útskurður, baðþjónusta, kl. 11 spurt og spjallað, kl. 14 verður spilað páska- bingó. Gerðubergskór- inn kemur og syngur. Norðurbrún 1. Kl. 10– 11 boccia, kl. 14 leik- fimi. Vesturgata 7. Kl. 9.15– 14.30 handavinna, kl.10–11 kántrý dans. Í dag kl. 13–16 verður handverksmarkaður, kl. 13.30 sungið við flyg- ilinn við undirleik Sig- urgeirs, kl. 14.30 syng- ur Viðar Jónsson hljóð- færaleikari og leikur á hljómborð fyrir dansi. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9 myndlist, kl. 9.30 bókband og morgun- stund, leikfimi, kl. 12.30 leir, kl. 13.30 bingó. Þjónustumiðstöðin, Sléttuvegi 11. Opið frá kl. 10–14. Félag eldri borgara í Gjábakka. Spilað brids kl. 19 þriðjud. og kl. 13.15 föstud. Hana-nú, Kópavogi. Laugardagsgangan á morgun. Lagt af stað frá Gjábakka kl. 10. Félag kennara á eftir- launum. Fræðslu- og skemmtifundur FKE verður laugardaginn 3. apríl í Húnabúð, Skeif- unni 11, og hefst klukk- an 13.30. Ræðumaður: Guðmundur Magn- ússon, fv. fræðslustjóri. Kvenfélag Langholts- sóknar. Hinn árlegi tertubasar Kvenfélags Langholtssóknar verð- ur í safnaðarheimili Langholtskirkju kl. 13. laugardaginn 3. apríl. Allur ágóði af sölunni rennur í gluggasjóð. Félag austfirskra kvenna. Fundur verður í Safnaðarheimili Grensáskirkju mánu- daginn 5. apríl kl 20. Hattakvöld – upplestur – danssýning. Framsóknarfélag Mos- fellsbæjar. Félagsvist í kvöld í Framsókn- arsalnum í Mosfellsbæ að Háholti 14, 2. hæð, kl. 20.30 . Tekin verða saman 5 efstu kvöldin af 8 ( frá 13. feb. til 2. apríl) og fyrir þau veitt- ur ferðavinningur. Félag einhleypra. Fundur á morgun kl. 21 í Konnakoti, Hverf- isgötu 105, nýir félagar velkomnir. Heitt á könnunni. Munið göng- una mánu- og fimmtu- daga Kvenfélagið Seltjörn, verður með kökusölu laugardaginn 3. apríl frá kl. 11 á Eiðistorgi, Seltjarnarnesi. Kvenfélag Grens- ássóknar, fundur mánudaginn 5. apríl kl. 20, páskabingó. Í dag er föstudagur 2. apríl, 93. dagur ársins 2004. Orð dagsins: Guð vonarinnar fylli yður öllum fögnuði og friði í trúnni, svo að þér séuð auðugir að voninni í krafti heilags anda. (Rm. 15, 13.)     Arnar Þór Stefánssonsegir í grein á Deigl- unni að rétt sé að endur- skoða löggjöf um kjör forseta Íslands. „Í stjórn- arskránni er þá reglu að finna í 5. grein að sá sem flest atkvæði fær í for- setakjöri skuli hljóta embættið. Getur reglan auðveldlega leitt til þeirr- ar niðurstöðu að sá sem nær kjöri hafi minnihluta þjóðarinnar á bak við sig. Þetta gerðist bæði árið 1980 og 1996. Árið 1980 var Vigdís Finn- bogadóttir kjörin með 33,8% gildra atkvæða og Ólafur Ragnar Grímsson árið 1996 með 41,4% gildra atkvæða. Hugsa mætti sér enn öfgafyllri dæmi þar sem frambjóð- endur væru margir og enginn skæri sig úr hvað fylgi varðaði. Þannig gætu menn náð kjöri með innan við 20% atkvæða að baki sér.     Fullyrða má að reglaþessi sé ekki alls kost- ar eðlileg, sérstaklega í ljósi þess að forseti fer ásamt Alþingi með lög- gjafarvaldið, skv. 2. gr. stjórnarskrár. Vegna þessarar reglu hafði ann- ar handhafi löggjaf- arvalds hérlendis minni- hluta þjóðarinnar á bak við sig á árunum 1980– 1984 og 1996–2000, eða þar til forsetarnir urðu sjálfkjörnir. Eðlilegra væri að forsetakjör færi fram í tveimur umferð- um, þannig að í seinni umferð yrði kosið milli tveggja efstu manna eftir fyrri umferð. Stjórn- arskrárnefnd Alþingis veturinn 1943-1944 at- hugaði þetta rækilega. Varð niðurstaða hennar sú regla sem nú gildir. Var tillaga um þá reglu flutt í trausti þess að þjóðinni tækist að fylkja sér þannig um forseta- efni að atkvæði dreifðust ekki úr hófi fram,“ eins og segir í áliti nefnd- arinnar.     Annað atriði sem gagn-rýna má er það hversu fá meðmæli þarf til að bjóða sig fram til embættis forseta. Skv. 1. mgr. 5. gr. stjórnarskrár- innar þarf forsetaefni meðmæli minnst 1500 en mest 3000 kosn- ingabærra manna. Ákvæði þetta var sett þegar Íslendingar voru tæplega 128.000 talsins. Nú eru Íslendingar vel yfir 290.000. Í ljósi þessa mætti halda því fram að forsetaefni ætti að þurfa nú um stundir um 4000 til 6000 meðmæli til að bjóða sig fram. Þá veltir Arnar Þór því fyrir sér hvort eðlilegt sé að kjör- gengi til embættis forseta Íslands miðist við 35 ára aldur og bendir á að kjör- gengisskilyrði til Alþing- is og sveitarstjórna sé 18 ár. „Af ofangreindu má sjá að það er sitthvað gagnrýnivert í núgild- andi löggjöf um kjör for- seta Íslands sem vert er að skoða ef og þegar stjórnarskráin verður endurskoðuð,“ segir Arn- ar Þór á Deiglunni. STAKSTEINAR Forseti verði kjörinn í tveimur umferðum Víkverji skrifar... Langþráður draumur Víkverja fráþví hann var róttækur unglingur hefur ræst. Loksins býr Víkverji í kommúnu. Kommúnulífið hefur reyndar að- eins staðið í vikutíma, en Víkverji gæti ekki verið hamingjusamari. Tveir vinir Víkverja, sem báðir eru fyrrverandi bekkjarfélagar hans úr grunnskóla, fluttu inn til hans fyrir síðustu helgi og hefur lífið verið sannkallaður dans á rósum síðan. Líf Víkverja hefur tekið algjörum stakkaskiptum. Frá því sambúðin hófst hefur á hverju kvöldi verið eld- aður dýrindis matur, en þá þrjá mán- uði á undan sem Víkverji hafði búið einn í nýju og stóru íbúðinni sinni, hafði hann aðeins eldað tvisvar sinn- um. Það var einhvern veginn alltaf skemmtilegra að fara bara heim til foreldranna eða með vinum á kaffi- hús, en sitja einn og borða yfir Kast- ljósinu. Kommúnúlífið er alveg jafn- skemmtilegt og Víkverji ímyndaði sér þegar hann hlustaði á Bítlatónlist sem unglingur, sem voru einmitt einnig uppáhaldshljómsveit foreldra hans, þegar þeir voru unglingar. Vík- verji var því svolítil tímaskekkja með sínar hippamussur og vonir um kommúnulíf um miðjan níunda ára- tuginn. x x x Ótvíræðir kostir sambýlisins komustrax í ljós í upphafi vikunnar þegar Víkverji lagðist í rúmið með magakveisu. Víkverji lá undir sæng og kveinkaði sér á meðan vinirnir hlupu til og frá, fóru út í búð til að kaupa epli og kók, ristuðu brauð og hituðu te allt eftir duttlungum Vík- verja. Það er nefnilega fátt verra en að vera veikur þegar maður býr einn. Víkverji og vinirnir eru af netkyn- slóðinni og eitt af því fyrsta sem komið var upp á heimilinu var þráð- laust netsamband svo allir á heim- ilinu gætu verið á Netinu á sama tíma, sem er náttúrulega afar nauð- synlegt. Borðstofan heima hjá Vík- verja lítur nú út eins og tölvuver í framhaldsskóla, þar eru þrjár far- tölvur í netsambandi og fannst Vík- verja sambúðin ná ákveðnu hámarki eitt kvöldið þegar vinirnir þrír sátu við sama borð, supu á bjór og spjöll- uðu saman í gegnum netforritið MSN. x x x Víkverja finnst kommúna vera van-metið sambýlisform. Allt sam- félagið miðast við pör og fjölskyldur með börn. Víkverji segir bara „ein- staklingar sameinist“, því það er al- veg jafnskemmtilegt og það lítur út fyrir í sænsku bíómyndinni „Tilsammans“ að búa í kommúnu. Þótt kommúnulífið sé kannski ekki eitthvað sem henti um aldur og ævi, er vissulega skemmtilegt að prófa. Það er svolítið eins og að fara í sum- arbúðir þegar maður er fullorðinn. Morgunblaðið/Árni Sæberg Víkverji mælir með kommúnulífinu sem er alveg jafnskemmtilegt og hann ímyndaði sér. Ef hraðbankinn gleypir kortið ÉG vil vekja athygli bank- anna á því að það eru engar upplýsingar um það hvað skal gera ef hraðbankinn gleypir kortið manns. Legg ég til að það séu settir mið- ar á alla hraðbanka með leiðbeiningum um hvert maður geti hringt og brugðist við þegar þetta kemur fyrir. Það er alveg óþolandi þegar þetta kemur fyrir og maður veit ekkert hvað skal gera. Hraðbankanotandi. Á ekki að fara að selja Símann? OG á þá að losa sig við við- skiptavinina fyrst? Ég gerði tilraun til að kaupa hjá Símanum í Smáralind gsm-síma sem var auglýstur í Morgun- blaðinu. Það tókst ekki bet- ur en svo að ég þurfti að fara í tvígang í Smáralind- ina vegna mistaka í af- greiðslu, tvígang í Símann Kringlunni vegna þess að ég fékk í tvígang afgreidd- an gallaðan síma og svo eina ferð í Símann Ármúla þar sem ég gat fengið af- greiddan fullhlaðinn síma sem virtist í lagi. En ég var búinn að fá nóg af þessu veseni, skilaði gallaða símanum og líklega verð ég nýr viðskiptavinur hjá Og Vodafone eftir ára- löng skilvís viðskipti við Símann. Ég sendi þjónustuveri Símans tölvupóst þar sem ég rakti raunir mínar í við- skiptunum við þá og svarið frá þeim var svona „Takk fyrir þetta. Ég kom þessari sögu til réttra aðila. Allar svona ábendingar eru vel þegnar, ef við fáum ekki svona þá getum við ekki bætt þjónustu okkar.“ En það sem vakti athygli mína neðst í skriflegu svari þeirra var „deleted by /.../ SalaOgViðskþj/SalaOgÞj/ Síminn“. Smári Guðmundsson. Vinsamlegt athvarf MIG langar til að þakka fyrir góða afgreiðslu í kaffi- stofunni í Kolaportinu. Þar er alveg sérstaklega vin- samlegt athvarf fyrir eldri borgara að fá sér kaffi. Þarna eru samankomnir bæði ungir sem aldnir. Eft- ir höfðinu dansa limirnir og er þetta vel rekin kaffi- stofa, þar er gott fólk og glaðlegt. Vil þakka alla að- stoð og velvilja við eldri borgara. Með þakklæti. Eldri borgari. Sammála Víkverja ÉG er hjartanlega sam- mála því sem Víkverji skrif- ar 30. mars sl. um hár ung- linga. Bendi ég foreldrum á að umbera allt, þetta geng- ur yfir. Mér finnst að allir eigi rétt á að ráða eigin hár- greiðslu, lit og sídd, 5–100 ára. Erla Sandholt hárgreiðslumeistari. Dýrahald Læðu vantar heimili HVÍTA 3ja ára læðu vantar gott heimili vegna ofnæmis barna á heimilinu. Uppl. í síma 822 8851. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is LÁRÉTT 1 sóða, 4 viðarbútur, 7 brotna, 8 öldugangurinn, 9 verkfæri, 11 formóðir, 13 elska, 14 misgerðin, 15 gauragangur, 17 fiska, 20 fljótið, 22 ein- skær, 23 duldi, 24 nemur, 25 fæddur. LÓÐRÉTT 1 samtala, 2 trú á Allah, 3 lund, 4 sæti, 5 goð, 6 vita, 10 hakan, 12 ílát, 13 dveljast, 15 gistihús, 16 víður, 18 valur, 19 ránfuglinn, 20 púkar, 21 feng. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 kuldablær, 8 lítil, 9 gatan, 10 aka, 11 týnir, 13 nýrað, 15 grunn, 18 hagga, 21 ála, 22 trauð, 23 fasta, 24 takmarkar. Lóðrétt: 2 urtin, 3 dalar, 4 bagan, 5 æstar, 6 blót, 7 anið, 12 iðn, 14 ýsa, 15 geta, 16 uxana, 17 náðum, 18 hafur, 19 gesta, 20 atar. Krossgáta  Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.