Morgunblaðið - 02.04.2004, Blaðsíða 36
LISTIR
36 FÖSTUDAGUR 2. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Úthlutað hefur verið úr Menningar-borgarsjóði í fjórða sinn, en sjóð-urinn hefur úthlutað árlega fráárinu 2001. Að þessu sinni voru
26,5 milljónir til ráðstöfunar til 50 verkefna
víðs vegar um landið.
Ein milljón króna
Sex styrki að upphæð 1 milljón króna hlutu
Edda útgáfa og Höfuðborgarstofa vegna ljós-
myndasýninga á Ingólfstorgi á ljósmyndum
Sigurgeirs Sigurjónssonar af Íslendingum og
íslensku landslagi. Fræðslunet Suðurlands
vegna alþjóðlegu ráðstefnunnar „Náttúran í
ríki markmiðanna“. Hilmar Örn Hilmarsson
vegna verkefnisins Baman, samvinna ísl. raf-
tónlistarmanna og klassískra hljóðfæraleikara
við eldri tónlistarhefðir og tónlist frumbyggja í
Ástralíu. Landnámssetur Íslands og Borg-
arbyggð vegna verkefnisins Egilssaga sýnileg,
hönnun leiðbeiningakerfis um helstu sögustaði
Egilssögu. Svöluleikhúsið vegna tveggja dans-
verka eftir Auði Bjarnadóttur við tónlist eftir
Árna Egilsson og Hjálmar H. Ragnarsson og
Vesturfarasetrið á Hofsósi vegna verkefnisins
Þöguls leifturs, sýningar á ljósmyndum frá
1870–1910 af Vestur-Íslendingum eftir vestur-
íslenska ljósmyndara.
800 þúsund krónur
Þá voru veittir sex styrkir að upphæð 800
þús. kr.: Sex pör, stefnumót minja og lista um-
hverfis landið, samstarfsverkefni sex lista-
manna og sex safna. Caput ásamt sönghópnum
Vox Academica vegna tónlistarhátíðarinnar
„Ný endurreisn“. Eggert Gunnarsson vegna
sjónvarpsmyndarinnar 23:40 fyrir börn eftir
handriti Yrsu Sigurðardóttur. Kvikmynda-
félagið Umbi vegna kvikmyndar um Ragnar í
Smára. Sinfóníuhljómsveit Norðurlands vegna
skólatónleikahalds haustið 2004 og Þjóð-
lagahátíðin á Siglufirði vegna Þjóðlagahátíð-
arinnar 2004.
500 þúsund krónur
Þá voru veittir 23 styrkir að upphæð 500
þús. kr.: Byggðasafn Skagfirðinga vegna út-
gáfu leiðakorts og átaks til að merkja slóð
Sturlunga í Skagafirði. Dramasmiðjan vegna
uppsetningar nýrra íslenskra leikrita í Höf-
undaleikhúsi. Grettistak vegna Grettishátíðar
2004. Íslenski dansflokkurinn vegna dans-
smiðju á Íslandi. ÍsMedia vegna uppsetningar
á söngleiknum Kartöfluárásinni. Listasafn Ár-
nesinga vegna alþjóðlegs barnatvíærings.
Ljósmyndasafn Akraness vegna sýningar á
ljósmyndum Árna Böðvarssonar. Menningar-
miðstöðin Listagili, Akureyrarbær, vegna
Jónsmessuleiks 2004. Ævintýri barnanna.
Minjasafn Reykjavíkur, Árbæjarsafn vegna
þróunar á „gamaldags“ leiktækjum fyrir börn.
Níu ungir myndlistarmenn, Hlynur Hallsson
vegna verkefnisins „aldrei – nie – never“
myndlistarsýningar í þremur hlutum í Reykja-
vík, Berlín og á Akureyri. Ópera Reykjavíkur
vegna uppsetningar á Happy End eftir Kurt
Weill. Pétur Jónasson, Guðrún S. Birgisdóttir
vegna verkefnisins Við Djúpið, Tónlist-
arhátíðar á vordögum á Ísafirði, Súðavík, Flat-
eyri, Suðureyri og Bolungarvík. Ragnheiður
Ásgeirsdóttir vegna íslenskrar leiklestr-
arhátíðar í Brussel í mars 2004. Safna- og
menningarmálanefnd Stykkishólmsbæjar
vegna bæklings og skilta um gömlu húsin í
Stykkishólmi. Safnasafnið – Alþýðulistasafn
Íslands vegna verkefnisins Sumarsmella 2004.
Samstarfshópur um barnabókahátíðina „Gald-
ur úti í mýri“. Sauðfjársetur á Ströndum
vegna sumardagskrár Sauðfjársetursins. Sjón
og saga og Edda útgáfa vegna sýningar á ljós-
myndum og listaverkum um íslenska hestinn.
Skaftfell menningarmiðstöð vegna myndlist-
arsýningar ungra myndlistarmanna í Galleríi
Vesturvegg 2004. Skógrækt ríkisins, Gunn-
arsstofnun Skriðuklaustri, Hannes Lárusson
vegna Fantasy Island, alþjóðleg stórsýning
myndlistarmanna sumarið 2004. Strengjaleik-
húsið vegna barnaóperunnar Tígrisblómsins
eftir Mist Þorkelsdóttur og Messíönu Tóm-
asdóttur. Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar
vegna kynningarátaks og tónlistardagskrár v/
tónlistarhússins Laugarborgar og Þórbergs-
setur vegna uppsetningar á sýningum um Þór-
berg Þóðarson í Þórbergssetri á Hala í Suð-
ursveit.
300 þúsund krónur
Veittir voru 13 styrkir að upphæð 300 þús.
kr.: Blásarasveit Reykjavíkur vegna verksins
Konsert fyrir rafgítar og blásarasveit eftir
Hilmar Jensson. Félag um endurreisn lista-
safns Samúels vegna viðgerðar á verkum Sam-
úels í Selárdal. Ferðaleikhúsið vegna Light
Nights sumarið 2004. Ísafjarðarbær vegna
Tónlistarhátíðar alþýðunnar. Ísafold kamm-
ersveit vegna tónleikaferðar um landið og ný
tónlist í bland við meistaraverk síðustu aldar
kynnt. Kammerkór Suðurlands vegna frum-
flutnings á nýju verki eftir Sir John Tavener
og komu hans til Íslands. Leikfélag Dalvíkur
vegna 60 ára afmælissýningar sem byggð er á
menningararfinum. Nýja leikhúsið vegna upp-
setningar barnaleikritsins Líneik og Laufey í
nýrri leikgerð Ragnheiðar Gestsdóttur. Pjaxi
ehf. vegna menningarhátíðarinnar Hugverk
sunnlenskra kvenna. Skaftárhreppur vegna
kammertónleika á Kirkjubæjarklaustri 2004.
Sumartónleikar við Mývatn, kór- og hljóm-
sveitartónleikar. Veiðisafnið, Stokkseyri
vegna heimasíðu. Vestmannaeyjabær vegna
verkefnisins Ungt fólk á Íslandi og í Noregi,
samstarfsverkefni við Andø í Noregi „Stille ø“.
200 þúsund krónur
Tveir styrkir að upphæð 200 þús. kr.: Félag
fuglaáhugamanna á Hornafirði vegna gerðar
myndspjalda og kynningarbæklings fyrir
fuglaskoðun og Hjálmtýr Heiðdal vegna 101
Hólmavík, kvikmyndahátíðar á Ströndum.
Úthlutunarnefnd skipuðu Karólína Eiríks-
dóttir tónskáld, formaður, Karitas H. Gunn-
arsdóttir, skrifstofustjóri í menntamálaráðu-
neytinu, varaformaður, Signý Pálsdóttir,
menningarmálastjóri Reykjavíkur, Katrín
Dóra Þorsteinsdóttir, forstöðumaður Símennt-
unarmiðstöðvar Eyjafjarðar, og Örnólfur
Thorsson íslenskufræðingur.
26,5 m.kr. úr Menningarborgarsjóði
Morgunblaðið/Golli
Menntamálaráðherra og borgarstjóri ásamt fulltrúum hinna ýmsu styrkþega við úthlutunina sem fram fór í Gerðarsafni í Kópavogi á dögunum.
BOÐUNARDAGUR Maríu guðs-
móður var rammi og tilefni stórtón-
leikanna í Hallgrímskirkju á sunnu-
dag. Hann hefur frá fornu fari verið
meðal gleðilegustu yrkisefna sálma-
skálda, jafnvel löngu eftir siðbót
Lúthers. Vitundin um þetta glað-
væra dagskrárefni gæti því hafa ýtt
enn frekar undir áheyrandafjöldann;
a.m.k. var kirkjan þétt setin og far-
arskjótum hlustenda ýmist rétt- eða
ranglátlega lagt úti um allt Skóla-
vörðuholt.
Fyrst var flutt hið litla en ljúfa ein-
þætta Magnificat fyrir fimm söng-
raddir og strengi sem lengst af var
eignað „Dananum mikla“ í Lübeck,
Dietrich Buxtehude (1637–1707) en
mun nú talið eftir ókunnan miðþýzk-
an höfund, eins og fram kom af fróð-
leikstroðnu tónleikaskránni. Dúetts-
einsöngsraddir verksins voru hér
sungnar af litlum kór kórfélaga, og
kom það ekki illa út, né heldur stóð
staki ónefndi kórbassinn sig illa með
léttri og unglegri bassarödd sinni.
Þó að Meine Seel erhebt den Herr-
en BWV 10 nái ekki alveg innblásn-
um ofurhæðum Morgunstjörnu-
kantötu Bachs (BWV1) er kantatan
frá 1724 eftir sem áður í úrvalsflokki.
Eftir glæsilegan inngangskórinn,
þar sem lagræn undirstaðan,
forngregorska 9. tónið (mí so mí fa mí
re do | mí so re re la do tí la) á hæg-
um lengdargildum færist á milli
sóprans og alts sem „cantus firmus“
með trompetstuðningi, söng Marta
Guðrún Halldórsdóttir sópranhlut-
verkið í hinni makalaust dýrðardans-
andi aríu Herr, der du stark und
mächtig bist af óaðfinnanlegri tign og
leikni.
Í það heila voru einsöngvarar
dagsins undantekningarlaust ein-
valalið. Gunnar Guðbjörnsson söng
resítaftífin tvö eins og sá er valdið
hefur, en hefði mátt sýna altröddinni
meiri miskunnsemi í dúettinum Er
denket der Bamherzigkeit, er lá
frekar lágt fyrir mezzosópran Guð-
rúnar Jóhönnu Ólafsdóttur og var
ósjaldan keyrð í kaf. Magnús Þ. Bald-
vinsson var pottþéttur bassi í
Gewaltige stößt Gott vom Stuhl, er
tekin var á snörpum hraða svo valds-
manna-„affektinn“ í ofvirkt hossandi
fylgibassanum yrði enn hégómlegri
en ella. Annars voru hraðavöl öll í
eðlilegum farvegi, og hljómsveitin
lék jafnt hér sem í lokaverkinu af
samstilltu öryggi. Eins var um kór-
inn, er ugglaust hefði skilað flúr-
söngsstöðum sínum með lýtalausri
nákvæmni við skýrari akústík.
Magnificat Bachs frá 1723 ber höf-
uð og herðar yfir öll önnur kirkju-
tónverk er samin hafa verið við þenn-
an vinsælasta allra lítúrgískra
latínutexta. Hver einasti hinna tólf
stuttu en hnitmiðuðu þátta er inn-
blásinn í fimmta veldi. Hver sá er
fyllist ekki upphafinni gleði við þetta
síunga meistaraverk ætti að sæta
geðrannsókn. Kórkaflarnir voru í
einu orði sagt magnaðir (þótt leiftr-
andi flúrið færi að mestu fyrir lítið af
fyrrgreindum sökum) og einsöngs-
aríurnar voru ómengaður unaður út í
gegn. Gleðiflúrið í Et exultavit rann
sem bráðið súkkulaði af vörum Guð-
rúnar Jóhönnu þrátt fyrir nokkuð
kröfuhart tempó, og þokkafulla
flautudúóið bætti hunangi við seinni
aríu hennar Et esurientes. Löngun-
arfull drottinsambátt Mörtu Guðrún-
ar gældi fagurlega við ástaróbó Daða
Kolbeinssonar í munúðarfullu sópr-
anaríunni Quia respexit. Bassaarían
Quia fecit mihi magna (að inntaki lík
bassaaríunni í BWV 10) steinlá í
myndugri túlkun Magnúsar. Dúett-
inn Et misericordia náði betra jafn-
vægi en samsvarandi dúett þeirra
Guðrúnar og Gunnars í kantötunni á
undan; sumpart kannski vegna hærri
legu altraddar. Gunnar gat óhikað
sungið út í Deposuit og það gerði
hann með stentorískum glæsibrag. 6
eða 9 valdar kórraddir fluttu bráð-
fallega dreymandi terzettinn Sescep-
it Israel í stað einsöngvara og fór það
þættinum án efa betur en sólísk út-
færsla.
Dáleiðslan er brást
Enn var efnt til tónleika á vegum
framúrstefnuflaggskips þjóðarinnar,
CAPUTs, í Nýja sal Borgarleikhúss-
ins á laugardag. Og enn sem oftar við
ágætis aðsókn – þótt hvergi væri að
vísu í líkingu við aðsóknina að dans-
uppákomu barna á aðalsviði sama
húss á sama tíma, er olli sambæri-
legu bílastæðaöngþveiti og við Hall-
grímskirkju næsta dag.
Tónleikarnir voru helgaðir verkum
eftir Svein Lúðvík Björnsson, pönt-
uðum af CAPUT með stuðningi frá
Nýsköpunarsjóði tónlistar – Musica
nova. Öll voru flutt af einleikurum
sem léku á móti margrödduðum upp-
tökum af eigin hljóðfæraleik, eins og
jafnframt mátti lesa af dagskrár-
blaðinu, er hefði getað bætt við „og
talröddum“ – ef ekki „öndunarhljóð-
um“ – eins og einnig átti eftir að
koma í ljós. Hvert verkanna fimm var
samið fyrir sitt hljóðfærið, eða í flutn-
ingsröð fyrir selló, gítar, óbó, klarín-
ett og flautu. Þar af voru síðustu fjög-
ur frumflutt nú, en hið fyrsta 2002.
Sveinn Lúðvík haslaði sér völl fyrir
átta árum sem rakinn míníatúristi –
tónskáld stuttleikans – og kom manni
þá, og ekki óþægilega, í opna skjöldu.
Svo rifjuð séu upp fyrstu ósjálfráðu
viðbrögðin 1996: „Ha? Er þetta bú-
ið?“ Því óneitanlega voru fyrstu verk
Sveins afar stutt í spuna – en aftur á
móti í heillandi samræmi við hin
fleygu orð leikritaskáldsins frá Strat-
ford, „Brevity is the soul of wit“.
Sannleikskorn sem oft kemur upp í
hugann á nútímatónleikum, þegar
tíminn er lengi að líða í fjarveru eft-
irminnilegs efnis og sannfærandi
framvindu. Þá hvarflar stundum að
manni hvort allt önnur lögmál og
austrænni eigi að taka við. Hvort ætl-
azt sé til að hlustandinn leggist í
tímalausan „trans“ þar sem litlu
skiptir hvað leiðir af öðru, unz loka-
þögnin vekur hann aftur til lífs, líkt
og við fingrasmell dáleiðandans.
Nútímaverk af því tagi eru sem
kunnugt er legíó, og virðast fæst í
fljótu bragði endingarvæn. Því miður
virtist það einnig eiga við hin óvenju-
löngu tónverk Sveins Lúðvíks þenn-
an dag, þar sem hvert verkið var ekki
aðeins öðru líkt í meginatriðum, held-
ur einnig fjölmörgu sem maður hafði
áður heyrt af andrúmserkitýpunni
„einn sit ég úti á steini“. Breytti litlu
þótt sömu eða svipuðu fjórtóna frumi
skyti upp á stangli í öllum verkum
líkt og í samtengingarskyni. Né held-
ur þótt leikið væri af virðingarverðri
ástríðu, sem hvað sellóstykkið varðar
kostaði t.a.m. ófá afslitin bogahár.
Ekki skal þó útilokað að ein eða
önnur egófónía njóti sín stök í fjöl-
breyttara umhverfi. En í hérum-
ræddum stórskammti var fullmikið
af því góða.
TÓNLIST
Hallgrímskirkja
KÓRTÓNLEIKAR
Hátíðartónleikar í tilefni af boðunardegi
Maríu. Buxtehude: Magnificat BuxWV
A1. J.S. Bach: Magnificat í D, BWV 243;
kantatan Meine Seel erhebt den Herren í
B, BWV 10. Marta Guðrún Halldórsdóttir
sópran, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir
mezzosópran, Gunnar Guðbjörnsson ten-
ór og Magnús Baldvinsson bassi ásamt
Mótettukór Hallgrímskirkju og Kamm-
ersveit Hallgrímskirkju. Stjórnandi: Hörð-
ur Áskelsson. Sunnudaginn 28. marz kl.
16.
Borgarleikhúsið
KAMMERTÓNLEIKAR
Sveinn Lúðvík Björnsson: Egofónía I-V
fyrir einleikshljóðfæri og tónband (II–V
frumfl.) Sigurður Halldórsson selló, Pétur
Jónasson gítar, Eydís Franzdóttir óbó,
Guðni Franzson klarinett, Kolbeinn
Bjarnason flauta. Laugardaginn 27. marz
kl. 15:15.
Upphafning gleðinnar
Sveinn Lúðvík
Björnsson
Guðrún Jóhanna
Ólafsdóttir
Gunnar
Guðbjörnsson
Magnús
Baldvinsson
Ríkarður Ö. Pálsson