Morgunblaðið - 02.04.2004, Blaðsíða 37
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. APRÍL 2004 37
FYRSTA einkasýning Gjörningaklúbbsins stend-
ur nú yfir í New York, í galleríinu Jack the Pelic-
an Presents í Williamsburg í Brooklyn. Opnun
sýningarinnar sl. föstudagskvöld var mjög vel sótt
auk þess sem á annað hundrað manns sóttu gjörn-
ing sem fluttur var á sunnudeginum.
Þær Sigrún Hrólfsdóttir, Jóní Jónsdóttir og
Eirún Sigurðardóttir skáluðu í kampavíni undir
stóru eikartré í almenningsgarði í Williamsburg
við sólsetur. Skömmu síðar reyndu þær með sér í
kampavínsglasaþeytingi sem með vilja minnti á
misheppnað fjölleikahússtriði. Áður hafði Gjörn-
ingaklúbburinn leitað aftur á mið einna sinna
fyrstu gjörninga. Íklæddar hvítum kabarettglan-
skjólum með álfavængi á bakinu skiptust þær á
kossum og hófust svo handa við að klippa vængina
hver af annarri. Á meðan blóðlitaður vökvi rann í
taumum niður eftir bökum þeirra feldu þær tár, í
senn sorgar og gleði, yfir umskiptunum sem voru
að eiga sér stað.
Frelsistákn Bandaríkjanna, örninn, svífur yfir
sýningarsal gallerísins. Var hann útbúinn sér-
staklega fyrir sýninguna en efniviðurinn er næl-
onsokkar. Nýtt ljósmyndaverk lýsir óvissuferð
pelsklæddra frúa út í náttúruna þar sem þær sitja
m.a. sönglandi með kassagítar við varðeld. Virðast
þær þó ekki hafa hætt sér lengra en að stíflunni
uppi við Elliðaár. Annað ljósmyndaverk er heim-
ild um gjörning þar sem kampavín, kavíar og
andaglas koma við sögu. Þá er myndbands-
upptaka af gjörningnum Takk, óði til fiskvinnslu-
kvenna, leikið í innri sal gallerísins.
Sýningu Gjörningaklúbbsins lýkur 25. apríl nk.
Ein ljósmyndanna úr nýlegu verki Gjörningaklúbbsins. Innsetning á fyrstu einkasýningu Gjörningaklúbbsins í New York.
Gjörningaklúbburinn í New York
New York. Morgunblaðið.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
HEIMASTJÓRN 1904
Sýningin er unnin í samvinnu
við Þjóðminjasafn Íslands.
www.thjodmenning.is
Heimastjórn 1904 -
sýning í Þjóðmenningarhúsinu.
Opið alla daga frá kl. 11-17
Bíldshöfða 8,
sími 562 1055
Afsakið!
Þetta var aprílgabb
Erum samt fluttir
Kíkið á slóðina
www.guffi.is
og leitið að bíl