Morgunblaðið - 02.04.2004, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 02.04.2004, Blaðsíða 20
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 20 FÖSTUDAGUR 2. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ SEX Grafarvogur | Áform borgarráðs um að leyfa veit- ingu léttvíns og bjórs í veitingastaðnum Sportbit- anum í Egilshöll hafa verið umdeild, og segir for- seti Íþrótta- og ólympíusambandsins (ÍSÍ) þetta þvert á stefnu samtakanna. ÍSÍ hefur mjög skýra stefnu í þessu og hefur beint þeim tilmælum til allra sinna samstarfsaðila að þeir leyfi ekki neyslu eða auglýsingar á áfengi og tóbaki í eða við íþróttamannvirki, segir Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ „Okkur finnst þetta ekki samrýmast iðkun íþrótta og því umhverfi sem á að vera í íþrótta- mannvirkjum og á íþróttavöllum,“ segir Ellert. „Vitanlega fer það ekki saman að stunda íþróttir og annað heilsusamlegt líferni annars vegar, og svo að neyta áfengis og tóbaks á hinn bóginn. Það er ekki í samræmi við anda og tilgang íþróttanna að tefla þessu saman.“ Hann segir að ekki sé hægt að segja að Egilshöll sé meira en bara íþróttamiðstöð. „Þetta er hús sem er byggt til iðkunar íþrótta, en vandamálið er í því fólgið að rekstraraðilarnir í þessu húsi eru ekki tengdir íþróttahreyfingunni. Þeir sækja um leyfi til sölu á víni og bjór á öðrum forsendum heldur en því að þetta sé mannvirki sem sé eingöngu fyrir íþróttafólk. Við lítum svo á að þetta sé íþrótta- mannvirki og teljum það ekki samrýmast þeirri stefnu sem við höfum [að veita áfengi þar],“ segir Ellert. Aðspurður hvort áfengisleyfi fyrir Egilshöll væri ekki sambærilegt við leyfi sem t.d. golfklúbb- ar hafa segir Ellert að ÍSÍ hafi sent þeim öllum bréf þar sem mælst var til þess að þeir seldu ekki áfengi. „Sumir hafa orðið við því og aðrir ekki. Okk- ar samtök eru regnhlífarsamtök fyrir alla íþrótta- hreyfinguna, og við höfum ekki vald til að boða og banna þannig að þetta hefur verið í formi tilmæla.“ Meira en bara íþróttahús Páll Þór Ármann, framkvæmdastjóri Egilshall- ar, segir að sótt hafi verið um leyfi til að veita létt- vín og bjór til þess að veita þá þjónustu sem eðlilegt sé. Hann segir starfsemina í Egilshöll fjölbreytta, þar fari fram ýmis þjónusta auk íþróttastarfsemi, þar á meðal rekstur veitingastaðarins Sportbitans, sem sótti um leyfið. „Ég skil satt að segja ekki það upphlaup sem hefur orðið vegna þessa máls,“ segir Páll. „Í Egils- höll fer fram miklu meiri starfsemi heldur en bara íþróttastarf. Hér verður fjölbreytt þjónusta við íbúa höfuðborgarsvæðisins. Það verður hér versl- un, keilusalur og annað slíkt, svo þetta er talsvert meira en bara íþróttahús, og ég held að menn þurfi að skoða þetta í því samhengi.“ Páll segir starfsemi veitingastaðarins aðskilda frá íþróttaæfingum, og staðurinn fari að sjálfsögðu eftir þeim reglum sem um vínveitingastaði gildi. Hann segir að ekki megi mismuna Egilshöll með því að veita þar ekki leyfi til veitinga á léttvíni og bjór þegar ljóst sé að aðrir aðilar með hliðstæða starfsemi hafi fengið slík leyfi, t.d. Laugar í Laug- ardal, golfklúbbar og fleiri. „Ég sé engan mun á okkur og annarri íþrótta- starfsemi þar sem eru vínveitingar. Ég veit t.d. að í flestöllum félagsheimilum og íþóttaaðstöðu félag- anna eru veitt vínveitingarleyfi fyrir sérstakar uppákomur, og nákvæmlega þegar þessar sér- stöku uppákomur eru í gangi er margoft starfsemi þar sem krakkar eru á ferð í húsunum. Þannig að ég átta mig ekki á þessu upphlaupi með þetta ákveðna mál,“ segir Páll. Ekki eins og hver önnur krá Hildur Björg Hafstein, verkefnisstjóri áfengis- og vímuvarna hjá Lýðheilsustöð, segir að megin- reglan ætti að vera að tengja ekki saman íþrótta- og æskulýðsstarf og vínveitingar. „Mér finnst þetta ekki vera eins og hver önnur krá. Mér finnst þessi tengsl við unga fólkið skipta gríðarlega miklu máli.“ Hún segir leyfisveitingu neikvætt skref, enda hafi það ekki verið gert í öðrum fjölnota íþrótta- húsum. „Við sem erum í forvarnarmálum erum fyrst og fremst að hugsa um ungt fólk og rann- sóknir hafa sýnt að íþrótta- og æskulýðsstarf hafi mikið forvarnargildi. Mér finnst að með því að leyfa vínveitingar í íþróttahúsum þá séum við að gera neyslu á þessu, á þessum vímugjafa, að eðli- legum hluta af þessari íþróttamenningu,“ segir Hildur. Hildur segir þetta ekki það sama og að leyfa vín- veitingar á ákveðnum uppákomum íþróttafélaga. Hún segir það einungis gert þegar önnur starfsemi er ekki í húsunum, og alltaf bundið við ákveðinn at- burð. Hún segir ljóst að það væri auðveldara fyrir íþróttafélögin að hafa fast leyfi, en þau leggi það á sig að sækja um tímabundin leyfi fyrir hvern at- burð til þess að sýna að þeim finnist þetta ekki passa saman. Ágreiningur um hvort leyfa skuli veitingar á léttvíni og bjór í Egilshöll Gengur þvert á stefnu ÍSÍ Reykjavík | Sjálfstæðismenn kröfðu meirihlutann í borgarstjórn um skýringar á því hvort þeir séu fylgj- andi því að Orkuveitan kaupi Sím- ann í samvinnu við aðra fjárfesta, eins og Alfreð Þorsteinsson, stjórn- arformaður OR, lét í ljósi í viðtali í Sjónvarpinu að kæmi til greina. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, odd- viti Sjálfstæðisflokks, sagði það frumverkefni OR að sjá borgurum fyrir rafmagni og heitu og köldu vatni og sagðist telja að OR veitti ekki af fjármunum sínum í þau verk- efni sem þegar hafi verið sett af stað á vegum fyrirtækisins. „Þetta kem- ur ekki til greina, svo einfalt er mál- ið,“ sagði Vilhjálmur. Alfreð Þorsteinsson, stjórn- arformaður Orkuveitunnar, sagðist ekki telja tilefni til fyrirspurnar í borgarráði. Í hverri viku sé leitað keypt hlut í öðru opinberu fyrirtæki, búlgarska símanum. Alfreð spurði hvort ekki mætti leiða að því líkur að áhugi hafi verið á því að OR komi með sama hætti að kaupum á Síman- um og spurði hver héldi því fram, að um tugmilljarða fjárfestingu yrði að ræða ef af yrði. Reykvíkingar viti stöðuna Björn Bjarnason, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, sagði mikilvægt að Reykvíkingar viti hvar málið er statt. Það þurfi að liggja skýrt fyrir hvort Alfreð hafi talað máli meiri- hluta borgarstjórnar. Björn sagðist telja fráleitt að OR geti keypt Símann samkvæmt nú- gildandi lögum og óskaði eftir því að borgarlögmaður athugaði hvort lög um Orkuveituna heimili hugsanleg kaup fyrirtækisins á Símanum. eftir ýmiss konar samstarfi við OR og ekkert hafi verið ákveðið í þessu máli. Hann hefði sagt í umræddu viðtali að hann hefði ekki einu sinni hugleitt þennan kost að miklu marki. Hann sagði rök sjálfstæðismanna að opinbert fyrirtæki megi ekki kaupa annað opinbert fyrirtæki und- arleg, þar sem Síminn hafi nýlega Segja ekki koma til greina að Orkuveitan kaupi Símann Mosfellsbær | Nemendur í íþrótta- fræði í 10. bekk Varmárskóla tóku að sér óvenjulegt verkefni þegar þau buðu elstu börnum leikskólans í íþróttahúsið til leikja og æfinga. Um er að ræða tilraunaverkefni á vegum Skólaskrifstofu Mosfells- bæjar, og hafa leikskólabörnin far- ið tvisvar í íþróttahúsið til 10. bekk- inga. Krakkarnir í 10. bekk skipuleggja tímana og stjórna þeim, og leggja þau metnað sinn í að taka vel á móti leikskólabörn- unum, sem vita fátt skemmtilegra en að leika sér og ólmast með þess- um nýju vinum sínum. Unglingar og leikskóla- börn saman Reykjavík | Mikill meirihluti starfs- manna hjá leikskólum Reykjavíkur, 82%, segja að starfi sínu fylgi mjög eða frekar mikið álag. Aðeins 4% segja starfinu fylgja lítið andlegt álag. Þetta er meðal þess sem kom fram í niðurstöðum viðhorfskönn- unar meðal starfsmanna í leik- skólum Reykjavíkur sem birtar voru nú fyrir stuttu. Bergur Felixsson, fram- kvæmdastjóri Leikskóla Reykjavík- ur, segir skemmtilegustu niðurstöð- urnar án efa að 91% starfsmanna sé mjög eða frekar ánægt með starf sitt þegar á heildina er litið, og einungis 2% eru óánægð. Leik- skólarnir höfðu sett sér það tak- mark að ná hlutfalli þeirra sem eru ánægðir með starfið í 85% á árinu 2003, svo árangurinn er vonum framar. Mikil óánægja með launin Í niðurstöðum könnunarinnar kemur fram að starfsfólkið var helst óánægt með launakjör, og sögðust 79% aðspurðra mjög eða frekar óánægð með laun sín. Aðeins 8% voru mjög eða frekar ánægðir með launin. Þess vegna vekur það athygli að þegar starfsfólkið var beðið um að raða þeim þáttum í forgangsröð sem því fannst skipta mestu máli í starfinu settu flestir áhuga á börnum í 1. sæti, en launin voru í 9. sæti, aftar en góður vinnu- andi, ábyrgð í starfi, vinnuum- hverfi, starfsöryggi o.fl. Bergur segir það ekki koma á óvart að svo hátt hlutfall starfsfólks sé óánægt með launakjör sín, og segir hann það viðvarandi vanda- mál, enda um stóran hóp að ræða sem virðist eiga erfitt með að ná miklum kjarabótum í einu. Eitt af því sem leikskólarnir þurfa að bæta, að mati Bergs, er hversu mikið tillit er tekið til hug- mynda starfsfólks. „Það voru ekki nema 64% sem telja að það sé tekið tillit til hugmynda þeirra varðandi starfið. Þar þurfum við að hækka okkur og höfum sett markið á 80%.“ Starfsandinn góður Um 85% starfsmanna töldu starfsandann á sínum vinnustað vera mjög góðan eða frekar góðan, og sögðu einungis 4% starfsandann slæman eða frekar slæman. 71% starfsmanna var ánægt með vinnu- aðstöðu sína en 13% voru óánægð. Af 444 starfsmönnum sem svör- uðu könnuninni voru einungis 29, eða 7% karlar. Langstærstur hluti starfsfólks var á aldrinum 26–44 ára. Könnunin náði til 28 leikskóla sem valdir voru af handahófi. Þar störfuðu 562 starfsmenn, og var svarhlutfallið 79%. Könnunin var unnin af starfsþróunardeild Leik- skóla Reykjavíkur í október 2003, en niðurstöður voru birtar fyrir stuttu. Könnun hjá starfsmönnum leikskóla Segja mikið álag fylgja starfinu Morgunblaðið/Ómar Gefandi starf: Flest starfsfólk á leikskólum segir áhuga á börnum skipta mestu máli í sínu starfi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.